4. jan. 2009

Ferðasaga

Við komuna í Leifsstöð leið mér eins og hálfvita með hjól í heimatilbúnum kassa og tvo bakpoka – hvernig dettur einhverjum að ferðast einn með tvo bakpoka. Röðin var stutt en samt nógu löng til að nokkrir veltu fyrir sér hver furðufuglinn með kassann væri. Svo kom að mér og ég rétti miðann. Það næsta sem ég heyrði var: “Þú áttir flug í gær”. Ég hafði á einhvern undarlegan hátt náð að breyta dagsetningunni á bókuninni án þess að taka eftir því og pantaði óvart 2. janúar í stað 3. Ég fékk nett panic-kast en Ingi og konan náðu að róa mig og koma mér í söluskrifstofu Icelandair og þar var einstaklega vingjarnleg og elskuleg kona sem bjargaði mér fyrir horn og gat breytt miðanum gegn mjög skaplegu gjaldi. Eftir þessa reynslu mun þurfa mikið til að ég segi styggðaryrði um Icelandair. Hjálpsemin og hugulsemin einstök. Allur farangurinn komst svo á leiðarenda og ég komst í flugvélina án þess að drepast úr hjartaáfalli og er kominn til Viðars og Hildar og allra hinna hér í Íslendinganýlendunni á Borkenholmsveien í Bærum. Ég geri ráð fyrir að vera hér eitthvað fram í vikuna og færa mig svo þegar ég veit hvernig aðstaðan er og hef gert ráðstafanir varðandi nauðsynjavörur. Svo er það bara djúpa laugin á mánudag sem er einhvers konar kynnisdagur og seinni partinn þá verð ég líklega að drífa mig í alls kyns útréttingar – flytja lögheimilið, fá kennitölu o.s.frv. Læt vita af mér fljótlega aftur.

Kveðjustund

Við hjónin héldum gott kveðjupartý á föstudaginn. Það var opið hús og margir létu sjá sig til að kveðja Dvergmennið. Það var mjög gaman að sjá svo marga og ég er þakklátur fyrir allar góðu kveðjurnar. Ég gat síðan lítið sofið um nóttina og það endaði með því að við hjónakornin sofnuðum ekki fyrr en á milli tvö og þrjú um nóttina en síðan þurfti ég að vakna rétt fyrir fimm til að drífa mig út á flugvöll. Ingólfur skutlaði mér og það var kannski eins gott því hann fór hamförum í að redda mér þegar á reyndi í Leifsstöð.

27. des. 2008

Ofsi

Ég hef nú aldrei verið sérstakur aðdáandi Einars Kárasonar þó ég hafi reyndar haft gaman af Djöflaeyjunni á sínum tíma. En mamma og pabbi gáfu mér nýja bók með þessu nafni í jólagjöf og ég byrjaði að glugga aðeins í hana á aðfangadagskvöld, las svo stærstan hluta af henni á jóladag og kláraði hana fljótlega eftir hádegið í dag. Það er langt síðan ég hef orðið svo gjörsamlega heltekin af bók. Þarna endursegir Einar aðdraganda og atburði í kringum Flugumýrarbrennu með því að leggja ýmsum sögupersónum orð í munn eða öllu heldur þanka í hug. Mjög skemmtileg nálgun og skilar sér í því að maður drekkur í sig síðurnar. Mér finnst reyndar orðalagið ekki mjög þesslegt að þannig hafi Gissur Þorvaldsson jarl og Sturla Þórðarson skáld hugsað en það er smáatriði. Grípandi saga sögð í fáum orðum og útkoman frábær afþreying. Ég var næstum búinn að gleyma hvað það er gaman að lesa. Ég er þegar tekin til við aðra bók sem ég fékk en það er Úngur ég var eftir Halldór Laxness. Edda hefur haft það fyrir sið að gefa mér nokkrar bækur í Laxness-safnið mitt en ég hef því miður ekki verið jafnduglegur að lesa þær. Næsta árið ætla ég að gera bragarbót á því.

Noregsför og barnalán

Fyrir þá sem ekki hafa frétt hef ég fengið afleysingastöðu á Ríkisspítalanum í Osló frá áramótum. Ég flýg út laugardaginn 3. janúar og hef störf að morgni mánudagsins 5. janúar. Ég fer einn til að byrja með en við vonumst til að Edda og Hildur Vaka geti flutt út með vorinu en það veltur á nokkrum þáttum og þá aðallega hvernig þróast með vinnumál Eddu Guðrúnar. Við eigum von á barni númer tvö í sumar og það er margslags vesen með fæðingarorlofsmál sem við verðum að greiða úr áður en Edda getur flutt. Ég ætla því að byrja á því að búa í einhverjum húsakynnum sem sjúkrahúsið hefur yfir að ráða en flyt mig vonandi um set þegar nær dregur páskum.

Jólablogg

Við erum búin að hafa það rólegt og gott um jólin. Ég vann fram að hádegi á aðfangadag og fór þá minn venjulega rúnt með kort og pakka. Kom við í kirkjugarðinum hjá ömmu og afa og svo út á Álftanes í kaffi til Siggu og Sigga. Síðan var jólamáltíðin hjá tengdó en við entumst fremur stutt og vorum komin heim í rúmið fyrir miðnætti. Síðan var súkkulaði hjá tengdó aftur á jóladag og síðan fórum við beint í jólaboð Bergmann-fjölskyldunnar hjá Guðrúnu föðursystur minni. Í dag annan í jólum var síðan rólegt fram eftir degi. Eftir hádegið fórum við í prufukeyrslu á nýju snjóþotunni hennar Hildar Vöku sem hún fékk frá ömmu og afa í Eskihlíð. Að sjálfsögðu í nýja flísgallanum frá ömmu og afa í Lerkihlíð. Fengum okkur svo kaffi hjá Óttari bróður á heimleiðinni. Síðan var súkkulaði hjá mömmu og pabba áður en við fórum í fjölskyldujólaboð hjá tengdó. Svo þurfti ég að drífa mig í vinnuna en skyldi liðið eftir í góðum fílíng sem mér skilst að hafi varað langt fram yfir miðnættið.

22. des. 2008

Heimsmeistarar félagsliða

Þó árið hafi verið fremur rýrt á skerinu hafa mínir menn í Manchester aldeilis átt gott ár. Góðir endir á árinu að taka þessa pappírsdollu þarna austur frá. Englandsmeistarar, Evrópumeistarar og Heimsmeistarar - geri aðrir betur. Síðan sýnist manni þetta verði fastir liðir eins og venjulega. Liverpool og Arsenal springa á limminu og keppnin verður milli Chelsky og Manchester United. Ég vona bara að þessi hópur haldi út árið og það verði ekki seldir mikilvægir menn í janúar. Til hamingju allir rauðir djöflar.

20. des. 2008

Noregur

Þá brestur það á. Ég er búinn að panta mér flug út þann 3. janúar og hef störf á Ríkisspítalanum í Osló mánudaginn 5. Edda og Hildur Vaka ætla að vera aðeins lengur heima og koma út einhvern tíma með hækkandi sól. Ég mun búa í íbúð á vegum spítalans þar til þær mæðgur koma út og ætli maður verði ekki mest í að lesa svæfingafræðin og læra norsku fyrstu mánuðina.

11. des. 2008

MUFC

Aumingjar! Það er dapurt að vinna ekki Álaborg á heimavelli í Meistaradeild Evrópu. Mér er alveg sama þó meirihluti liðsins hafi verið hvíldur. Eini maðurinn í byrjunarliðinu sem ekki er beinlínis fastamaður í leikmannahópnum er hinn ungi Darron Gibson sem á að vera eitthvert rosaefni. Mér finnst þetta dapurleg frammistaða og ekki boðleg liðinu mínu (já ég á það). En hvað um það, þeir unnu riðilinn og fá því seinni leikinn heima í næstu umferð. Ég blæs nú á það að mótherjarnir séu eitthvað auðveldari ef maður lendir í 1. sæti. Hafa menn séð hvaða lið voru í öðru sæti í riðlunum:

Chelsea
Inter
Sporting
Atletico Madrid
Villareal
Lyon
Arsenal
Real Madrid

Þetta er ekki árennilegur listi og mér sýnist mögulegur listi fyrir mína menn vera:

Inter
Sporting
Atletico Madrid
Lyon
Real Madrid

Kannski bara best að fá eitthvað af stóru liðunum strax.

10. des. 2008

Endurlífgun

Jæja!

Ætli maður verði ekki að endurvekja bloggið á meðan maður er í útlandinu. Það er sem sagt komið á hreint að ég verð í Noregi næstu árin. Nákvæm dagsetning er ekki komin á hreint en það verður vonandi fljótlega. Ég hugsa að bloggið muni að mestu snúast um daglegt líf okkar Eddu, Manchester United og almennar hugleiðingar um lífið og tilveruna. Ég hef síðan ég bloggaði síðast misst mestallan áhuga á að eyða kröftum og tilfinningum í stjórnmálamenn (það gerðist fyrir kreppu en hefur ágerst á meðan á henni hefur staðið) þannig að þeir sem ætlast til að fá gömlu herskáu bloggin munu verða fyrir vonbrigðum.

Þar til næst

28. nóv. 2007

Femínismi - hversu langt eigum við að ganga!

Ég hef lengi álitið mig mikinn jafnréttissinna. Mér finnst að konur eigi að fá jafnhá laun fyrir sambærileg störf og karlar. Mér finnst að samkynhneigðir eigi að fá að gifta sig og hljóta við það fullan rétt hjóna þó mér finnist vafasamt að skikka trúfélag eins og þjóðkirkjuna til að gefa þá saman með lögum. En það er nú bara angi af staðfastri trú minni á aðskilnað ríkis og kirkju. Mér finnst líka að samkynhneigðir og einhleypir eigi að fá að ættleiða standist þeir þær kröfur sem gerðar eru til slíkra foreldra að öðru leyti. Það er hins vegar öll firringin við réttindabaráttuna sem ég get ekki sætt mig við. Jafnréttisbaráttan er komin í hring. Í mörg ár hefur starfsheitum kvennastétta verið breytt vegna vaxandi menntunarkrafna og/eða þeirrar skoðunar að nöfnin hafi verið stéttunum fjötur um fót. Nýleg dæmi eru:

Fóstra varð leikskólakennari sem mér finnst skelfileg breyting. Fóstra er fallegt orð og felur í sér falleg skilaboð. Þau fóstra börnin yfir daginn. Nær hefði verið að nota orðið fóstri yfir karlana eða bara sætta sig við það einu sinni að karlar noti kvenkyns starfsheiti.
Hjúkrunarkona varð hjúkrunarfræðingur sem er góð breyting að mínu mati. Hjúkka lifir enn góðu lífi og þeir fáu en frábæru hjúkrunarmenntuðu strákar sem ég hef notið þess heiðurs að starfa við hliðina á hafa ekki nokkra komplexa gagnvart því - a.m.k. hef ég þá ekki orðið var við þá.
Skúringakona varð ræstitæknir. Hvort tveggja eru vond orð en mér dettur ekkert skárra í hug. Af þessari breytingu hlaust hins vegar sú breyting að allar faglærðar stéttir spítalans sem áður enduðu á tæknir urðu að breyta nafni sínu enda þótti einhverra hluta vegna ekki við hæfi að faglærðar stéttir bæru sömu endingu og störf sem krefjast lítillar eða engrar menntunar. Af þessu hlutust neðangreindar breytingar.
Röntgentæknir varð geislafræðingur. Ekki kynbreyting hér en ég er þeirrar skoðunar að breytingin hafi verið til hins betra.
Meinatæknir varð lífeindafræðingur. Þarna er ég líka þeirrar skoðunar að vel hafi tekist upp einfaldlega vegna þess að nýja nafnið er meira lýsandi en það gamla.

Ég get alveg fellt mig við breytingar á starfsheitum ef þær eru til bóta fyrir fagið eða skipta höfuðmáli. Nú hafa verið miklar umræður í þjóðfélaginu um starfsheitið ráðherra. Nú gætu verið margar ástæður til breyta svo augljóslega karllægu starfsheiti en engin þeirra er augljóslega fyrir hendi.
LAUN: Nú held ég að laun ráðherra séu bundin í lög og hafi ekkert með kynferði hans að gera. Konur fá sömu laun og karlar sem ráðherrar þannig að sú ástæða fellur um sjálfa sig.
STARFSMÖGULEIKAR: Eru þeir sömu. Konur hafa sama rétt til að bjóða sig fram til Alþingis og sama rétt á ráðherrastörfum. Það er svo hlutverk okkar kjósenda að sjá til þess að konurnar komist til áhrifa. Það gerist ekkert frekar ef starfsheitinu er breytt. Nú er talað um alþingismenn og -konur en það hefur engu breytt. Færri konur en karlar setjast á Alþingi einfaldlega vegna þess að þeim vegnar verr í prófkjörum af einhverjum ástæðum.
VIRÐING: Virðing mín fyrir fólki byggist hvorki á starfsheiti þeirra né stöðu. Hana þarf að vinna sér inn á annan hátt. Hefur einhver heyrt af því að konur í ráðherrastól hafi orðið fyrir aðkasti vegna karlkyns starfsheitis.

Mér finnst að það verði að vera knýjandi ástæður fyrir því að breyta svona mikilvægum og rótgrónum embættisheitum. Ég fæ ekki séð augljósa ástæðu til að breyta ráðherra í eitthvað annað enda sést það á viðbrögðum þingmanna við tillögum Steinunnar Valdís. Þau eru svona Ææææi, greyið!!-viðbrögð. Femínistarnir eru búnir að láta SV spila sig út í horn.

21. okt. 2007

MUFC

Smá skrekkur í manni þarna í byrjun í gær en svo kom þetta í hvelli. Rooney greinilega að finna sitt gamla form enda gat ekki verið annað en tímaspursmál hvenær það gerðist. Hann var góður í gær eins og hann hefur verið í síðustu leikjum. Nú er bara að bíða eftir útileikjunum hjá Arsenal og þá fer þetta að breytast. Ég veit ekki hvort fólk hefur veitt því athygli en Arsenal hefur aðeins leikið 3 af leikjunum sínum 9 á útivelli. Það er ekki hægt að vera meistari með því að hanga alltaf heima sko!!

Tapsár?

Það eru margir sem halda því fram að ég sé óvenju tapsár. Ég hef lengi reynt að halda því fram að það sé ekki alveg rétt. Ég sé bara keppnismaður og kunni reglurnar og þar fram eftir götunum. Nú er ég hins vegar endanlega sannfærður. Ég er nefnilega svo rosalega tapsár að það getur vakið mig af draumi. Á aðfaranótt fimmtudagsins vaknaði ég með andfælum vegna þess að verið var að vinna mig í spili sem ég kunni ekki almennilega reglurnar í. Og viti menn. Haldiði ekki að Viðar hafi verið að kenna mér þetta fáránlega spil. Alltaf sama fólkið sem vekur upp í mér mínar verstu tilfinningar tengdar spilum. Magga mágkona, Kata svilkona og Viðar Pálsson.

14. okt. 2007

Berlín

Var að koma frá Berlín á fimmtudaginn en þar hafði ég verið á ráðstefnu síðan á sunnudag. Ég var að koma í fyrsta skipti til Berlínar og gerði nú svo sem lítið annað en að sitja ráðstefnuna, fara út að borða, drekka bjór og versla svolítið. Miðað við það litla sem ég sá þarna þá held ég að það sé fullkomlega þess virði að heimsækja Berlínarbúa aftur seinna og taka þá fjölskylduna með. Hafði t.d. ekki tíma til að skoða neina sögufræga staði. Mæli samt með Berlín - einstaklega falleg og hrein borg og ég hef aldrei áður upplifað eins mikla öryggistilfinningu í stórborg. Maður hafði einhvern veginn aldrei á tilfinningunni að maður yrði fyrir aðkasti þó maður væri einn á labbinu í bænum eftir myrkur. Ég get ekki sagt að ég hafi þá tilfinningu í miðbæ Reykjavíkur.

Fótbolti

Víkingar eru fljótir að gera strandhögg þegar við á. Nú hafið þeir náð til sín þessum efnilega danska þjálfara frá Leikni Reykjavík sem gerði svo góða hluti þarna á hálendinu í sumar. Ég get ekki sagt annað en að ég sé ánægður með það. Vonandi kemur liðið beinustu leið upp aftur en ég held reyndar að það verði rosalega erfitt að halda öllum þessum strákum hjá liðinu á næsta ári. Áfram Víkingur!!!!

Það er ekki sama að segja af Íslenska landsliðinu í karlaknattspyrnu. Þvílík hörmung að fylgjast með þessu ömurlega liði. Af hverju segir greyið hann Eyjólfur ekki af sér og gefur landsliðinu tækifæri á að fá Ólaf Jóhannesson sem var að hætta hjá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar. Þar er þó í það minnsta maður sem maður veit að er góður þjálfari. Það er ágætis byrjun. Ef þeir halda áfram að sjúga þá vitum við hvert vandamálið er.

Manchester United er komið á ról og voru nokkrar klukkustundir í toppsætinu þarna um daginn. Þá leið mér vel. Arsenal er að gera virkilega góða hluti en ég held að reynsluleysi eigi eftir að koma þeim í koll þegar líður á tímabilið. Það verður forvitnilegt að fylgjast með Chelsea með nýjan stjóra en ég held að þeir séu of seinir að gera eitthvað í sínum málum. United tekur þrennuna í vor og þá er ég ekki að tala um kókópöffsþrennuna sem Poolararnir monta sig alltaf af.

Pólítík síðustu daga

Þó margur álíti mig heilaþveginn sjálfstæðismann þá held ég að ullabjakkið úr ráðhúsinu sé farið að skemma þvottinn þann. Þetta mál er allt með hinum hreinustu ólíkindum. Fyrst reynir Villi að misnota traust kjósenda sinna til að maka krókinn og svo vogar hann sér að slá sjálfan sig til riddara þegar komið hefur verið upp um hann og hann stöðvaður. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðismanna ætti að skammast sín fyrir að styðja við bakið á þessum ótýnda glæpamanni. Það er ásetningurinn sem gildir og mér finnst engu skipta þó komið hafi verið í veg fyrir glæpinn - hann er jafnsekur fyrir því. Verstu krimmarnir eru þó líklega Björn Ingi Hrafnsson sem átti miklu meiri hagsmuna að gæta í þessu OR/REI-hneyksli öllu saman og svo kumpánar hans í nýjum meirihluta. Dagur hefur nú aldrei verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér sem pólítíkus þó hann ég hafi ekki neitt annað en gott að segja um persónuleg kynni mín af honum. Ég kann bara ekki við fólk sem talar svona mikið án þess að segja nokkurn skapaðan hlut. Svandís er svo auðvitað búin að kokgleypa Orkuveitureðurinn með öllu meðfylgjandi eftir að hafa rifist hátt og snjallt. Hún er svona eins og gömlu góðu Bondgellurnar sem bitu, klóruðu og börðust um þar til Bond hafði tekið utan um þær. Þá lögðust þær á bakið og stundu. Ég voga mér þó ekki að líkja Birni Inga við Bond - hann er meira svona Michael Corleone týpa - bara ekki eins flottur.

Það er náttúrlega með ólíkindum að allir oddvitar þeirra flokka sem við Reykvíkingar treystum í síðustu kosningum skuli hafa farið svona hressilega með yfirdráttinn á trausti kjósenda. Hvað ætli margir þeirra nái kjöri í næstu kosningum.

Mikið er ég feginn núna að ég setti Villa ekki á listann í prófkjörinu og strikaði yfir hann í kosningunum. Ætli það verði ekki það síðasta sem ég framkvæmi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík því ég verð fluttur fyrir næstu kosningar og mun aldrei framar búa í þessarri pólítískt rotnu borg - því heiti ég hér með.

25. sep. 2007

Boltinn

Mínir menn í Englandi hafa ekki farið eins vel af stað og maður hefði óskað sér en þeim tókst þó að sigra Chelsea á sannfærandi hátt um helgina. Það hefur verið gaman að fylgjast með vælinu í Chelseamönnum eftir leikinn. Dómarinn var reyndar skelfilegur en fáránlegu dómarnir féllu á báða bóga. Fyrst átti United auðvitað að fá vítaspyrnu þegar Joe Cole felldi Evra í teignum. Hann hefði líka átt að fá rautt þar sem hann var aftasti maður. Ekkert dæmt. Síðan kom þetta rauða spjald sem var fremur ósanngjarnt. Gult og síðasti sjens hefði verið í lagi. Markið hjá Tevez kom kannski svolítið seint í fyrri hálfleik en það er fáránlegt að röfla yfir því. Voru Chelseamenn sem sagt hættir af því að uppbótartíminn átti að vera búinn. Maður spilar bara þangað til dómarinn flautar og ekkert helvítis væl. Joe Cole átti síðan að fá annað rautt þegar hann klippti niður Ronaldo niður í seinni hálfleik. Mér fannst vítaspyrnudómurinn svo hárréttur í lokin. Þó hann felli Saha ekki beinlínis þá slær hann hann í andlitið þegar hann er að fara fram hjá honum og það er ekki bara vítaspyrna þegar það á sér stað inni í teig heldur rautt líka. Að slá mann í andlitið er hreinlega líkamsárás og verðskuldar rautt spjald.
Hvað Mourinho varðar þá finnst mér gríðarlegur sjónarsviptir vera af honum. Þó hann sé algert fífl þá setti hann skemmtilegan svip á ensku úrvalsdeildina og ég mun sakna bullsins í honum.

Bourne Ultimatum

Við Edda fórum á þessa mynd fyrir nokkrum vikum með Möggu og Magga en vegna slælegrar frammistöðu hefur ekki enn verið að skrifað um það hér. Í stuttu máli held ég að þetta sé ein besta hasarmynd seinni ára. Maður hefði ekki trúað því fyrir nokkrum árum að Matt Damon gæti orðið hasarmyndahetja en hann er þrusugóður í þessu hlutverki og maður sér bara fyrir sér seríu af myndum í anda James Bond. Spennan er rosaleg allan tímann og brellurnar flottar.

24. sep. 2007

Bloggleti

Bloggletin að drepa mann. Ég ætla að gera eina endurlífgunartilraun enn og sjá hvort ég held dampi.

28. ágú. 2007

OLE GUNNAR

Lifandi goðsögn hefur lokið vegferð sinni um knattspyrnuvöllinn. Margir leikmenn hafa verið í uppáhaldi hjá mér í gegnum tíðina en Ole Gunnar er þó örugglega sá sem ég hef haldið mest upp á. Ég heillaðist af honum strax fyrsta veturinn hans á Old Trafford þegar meiðsli annarra framherja gerðu það að verkum að hann lék lykilhlutverk við hliðina á Cantona. Ótrúlegar staðsetningar, hnitmiðaðar afgreiðslur og ótrúleg þefvísi. Hann var eins og segull á fráköst og skoraði stóran hluta marka sinna eftir að aðrir höfðu skotið á markið.
Ég komst yfir myndband fyrir síðasta tímabil sem hafði að geyma öll mörk sem Ole hafði þá skorað fyrir United og ég gróf það upp í dag eftir að hann hafði tilkynnt að hann væri hættur. Eftir að hafa horft á þetta myndband fullyrði ég að bestu kaup sem Ferguson hefur gert fyrir Manchester United eru kaupin á Ole Gunnar Solskjær.

4. júl. 2007

Mallorcaveður

Það er ákveðin tegund af óréttlæti að góða veðrið í sumar sé allt á meðan ég er í vinnu og svo rignir örugglega þegar ég fer í sumarfrí. Ég er alla vega ragur að plana tjaldútilegu með löngum fyrirvara þó maður voni auðvitað að sólin láti sjá sig eitthvað seinni partinn í júlí og byrjun ágúst.

Boltinn

Anderson, Nani, Hargreaves og Kuschak í hús. Nú vantar bara hægri bakvörðin sem ég er búinn að biðja Ferguson um í nokkur ár. Vonandi fer kallinn að sjá ljósið. Hvað Víkingana mína varðar lýst mér ekkert á framhaldið. Þeir eru búnir að tapa síðustu fjórum leikjum og hafa aðeins fengið 1 stig af síðustu 15 sem í boði voru. Það er hrikalega dapur árangur og vonandi fer Magnús að gera eitthvað í þessu. Ég hef nú ennþá sterka von í brjósti mér að KR fari niður en annar góður valkostur væri Fram. Ég vona alla vega að lið úr Reykjavík fari niður.

Gríðarleg bloggleti...

...hefur gripið um sig í Hólmgarðinum. Nú er að verða mánuður síðan síðast auk þess sem sumarfríið nálgast óðfluga. Ég hef velt fyrir mér að hætta bara en mér þykir einhvern veginn allt of vænt um þennan tjáningarmáta til að segja algerlega skilið við hann. Vonandi braggast maður þegar haustar en dyggir aðdáendur skuli ekki eiga von á miklu á meðan þetta rosalega sumar gengur yfir.

13. jún. 2007

Þorgeir og Helga eignast dreng

Þorgeir Gestsson félagi minn úr læknadeildinni eignaðist dreng númer tvö um helgina. Helga var líka með okkur í læknadeildinni. Til hamingju með það kæru vinir. Ákveðnar grunsemdir læðast að manni um nafnið á drenginn en engar tilgátur verða settar fram hér. Fleiri vinir og kunningjar eiga von á barni á árinu þannig að Hildur verður ekki á flæðiskeri stödd með leikfélaga í framtíðinni.

12. jún. 2007

Bílar

Ég hef mikið verið að spá í bílamálum sl. daga. Eftir samskipti mín við umboðsmenn Toyota í Keflavík hef ég ákveðið að versla helst sem minnst við þá versla. Eins og flestir vita er ég sérdeilis ánægður með Honduna mína en hún er komin til ára sinna og í ljósi yfirvofandi búferlaflutninga okkar á næsta ári er kominn tími á að endurnýja bílinn (vegna tollalaga í Skandinavíu). Við erum búin að ákveða að kaupa aftur CRV enda hefur sá gamli reynst okkur frábærlega. Tengdaforeldrar mínir smituðust af þessari Hondaást og keyptu sér litla Hondu Jazz. Við höfum haft þennan snarpa bíl í láni á meðan okkar er í yfirferð hjá fagmanni. Þvílík snilld. Aukahlutir allir gerðir til að auka þægindi ökumannsins og öryggi. Frábærir aksturseiginleikar og stílhrein en framsækin hönnun á innréttingum. Ég er ástfanginn af bílnum og ef ég væri að fá mér smábíl mundi ég ekki hugsa mig tvisvar um áður en ég veldi Honduna. Ég hef keyrt nýlegan Yaris hjá Nonna bróður sem tekur yfirleitt svona tík á leigu þegar hann er á landinu. Það eru reyndar líka góðir smábílar en ekki nærri eins skemmtilegir í akstri og Jazzinn.

Bloggheimar

Ég hef verið ansi duglegur að lesa bloggin á blog.is sl. vikur. Það er oft ágætis leið til að drepa tíma þegar manni leiðist. Það eru tvenns konar blogg sem mér finnst gaman að lesa. Annars vegar eru það menn sem skrifa af einhverri skynsemi um þjóðmálin en þeir sem eru eiginlega ennþá skemmtilegri eru vitleysingarnir sem sannfæra mig daglega af hverju ég kýs ekki vinstri flokkana. Sóley Tómasdóttir femínistaruglukolla fer þar fremst í flokki og ég er eiginlega orðinn fíkill í aulahrollinn sem ég fæ alltaf þegar ég les bullið sem vellur frá henni á veraldarvefinn. Hún fullkomnaði algjörlega þá ímynd um daginn þegar hún skrifaði um læknavísindin, lyfjafyrirtækin og getnaðarvarnir. Skrif hennar vöktu hörð viðbrögð og varla var liðinn sólarhringur frá birtingu pistilsins þegar Sóley greyið var komin í kaðlana. Sóley er ein af ástæðum þess að Sjálfstæðismenn þurfa ekki að reka mikla kosningabaráttu fyrir kosningarnar því í hvert skipti sem hún setur hugleiðingu á netið eykst fylgi Sjálfstæðismanna og dalar þar með á vinstri vængnum.

Það er svolítið merkilegt að Sóley skuli ráðast á heilbrigðisgeirann þar sem það hefur í langan tíma verið þannig að laun lækna ráðast nær eingöngu af menntun og reynslu en ekki kynferði. Það er ekki mikið svigrúm til að hækka laun þeirra sem standa sig vel. Það má líka benda henni á nýlegar ráðningar í yfirlæknisstöður á Landspítalanum. Elín Laxdal á æðaskurðdeild, Alma Möller á gjörgæslu við Hringbraut, Hildur Harðardóttir sviðstjóri kvennasviðs, Hulda Hjartardóttir yfirlæknir á kvennadeild (sem reyndar jarðsetti nær öll rök Sóleyjar með frábæru svari á heimasíðu hennar), Vilhelmína Haraldsdóttir sviðstjóri lyflækningaviðs II og Hlíf Steingrímsdóttir yfirlæknir blóðlækningadeildar eru nýleg dæmi um frambærilegar konur sem orðnar eru yfirlæknar og sviðsstjórar. Það er vissulega stór hluti yfirmanna lækna á LSH ennþá karlar en þeir eru aftur í minnihluta í deildarstjórastöðum hjúkrunarfræðinga eins og gefur að skilja. Þetta skýrist hvort tveggja af þeim hlutföllum kynja sem skipa hvorn flokk fyrir sig. Konum fjölgar þó ört í læknastéttinni og ég held það séu sem betur fer fáir sem harma það. Auðvitað tekur tíma að breyta hlutföllum þar sem karlar hafa fyllt flestar þessar stöður í gegnum árin og eðli málsins samkvæmt er það yfirleitt hagur sjúkrahússins að sömu stöðunni sé gegnt lengi samfellt af sama einstaklingnum. Þannig munu hlutföllin sjálfsagt breytast með tímanum eftir því sem skipt verður um fólk í þessum stöðum.

Staðreyndin er sú að öfgafólk eins og Sóley er að skemma marga góða málstaði í samfélaginu með hleypidómum og hroka. Þeir sem raunverulega ná árangri eru þeir sem setja undir sig höfuðið og sækja sín mál af festu og ákveðni. Íslendingum hefur alltaf þótt vænst um þöglu hetjuna sem lætur verkin tala en talar ekki endalaust niðrandi um annarra manna verk.

Góðar stundir

Fótboltinn

Mínir menn Víkingar hafa byrjað tímabilið sæmilega. Sex stig í tveimur útileikjum er góður árangur, sérstaklega þegar litið er til þess að við erum búnir að sigra bæði Fram og KR á útivelli en það verður ekki litið fram hjá því að við höfum aðeins halað inn tvö stig af níu mögulegum á heimavelli. Jafntefli við HK og Breiðablik heima eru ekki ásættanleg úrslit að mínu mati. Vonandi fer að rætast úr þessum heimaleikjavanda. Annars hef ég trú á því að við verðum ofarlega í sumar, vonandi í þriðja sæti á eftir FH og Val en ég held að það sé ekki raunhæft að vonast eftir betri árangri. Það væri náttúrlega yndislegt ef KR mundi falla en af biturri reynslu held ég að það muni ekki gerast. Kannski við losnum bara við Fram í staðinn.

3. jún. 2007

MUFC logar

Síra Ferguson hefur verið duglegur að versla sl. daga. Golfið hefur mátt bíða og hvorki meira né minna en 3 stórkostlegir leikmenn komnir í hús. Mig grunaði svo sem að Owen Hargreaves mundi skila sér að lokum en ég þorði ekki að vona að hann mundi kaupa tvo svona unga og efnilega. Mér finnst nokkuð augljóst að Nani er ætlaður sem arftaki Giggs og Anderson er líklega hugsaðir sem arftaki Scholes. Síðan þessi kaup voru kunngjörð þá hafa borist fréttir af væntanlegri sölu Giggs til Tottenham og Scholes til Sunderland. Ég held að menn séu aðeins að fara fram úr sér með þetta. Er líklegt að Ferguson selji Scholes og Giggs sem báðir voru í liði ársins í ensku úrvalsdeildinni. Kannski ef þetta væru einhverjir vælandi heimskir Hollendingar en þetta eru nú einu sinni sannkallaðir Unitedpiltar. Svoleiðis menn trúi ég ekki að verði seldir. Annað hvort fara þeir frítt eða klára ferilinn hjá United. Þeir eiga það inni hjá klúbbnum og stuðningsmönnunum. Svona leikmenn selur maður ekki.

Ég vona að Ferguson eigi smá afgang til að kaupa hægri bakvörð. Ég er tilbúinn að sætta mig við sölu á Smith og Saha en ég vil ekki sjá að Solskjær fari þó hann sparki aldrei í bolta framar (af sömu ástæðu og Scholes og Giggs eiga ekki að fara). Dani Alves er eins og áður efstur á óskalistanum en ég á ekki von á því að við eltumst við Torres úr þessu.

24. maí 2007

Nú getur maður andað léttar!

Það hefði verið hrikalegt að horfa á eftir Meistaradeildardollunni á Merseyside í annað skipti á tveimur árum. Óbærilegt dramb poolaranna hefði ekki ráðið við slíkt. Ensku fjölmiðlarnir væla yfir fyrra markinu hjá Inzaghi í gær og segja að dæma hefði markið af vegna hendi. Þvílík endaleysa. Eins og sjá má hér var þetta náttúrlega engin hendi og þó boltinn hefði hrokkið af hendinni á Pippo (sem hann gerði ekki) þá hefði markið samt verið löglegt því hann beitir höndinni ekki í boltann heldur neglir Pirlo boltanum einfaldlega í Pippo og inn. Mér fannst sigurinn fullkomlega verðskuldaður því þótt Liverpool hafi pressað vel á löngum köflum sérstaklega í fyrri hálfleik þá sköpuðu þeir sér ekki nógu hættuleg færi. Liverpool heldur áfram að spila sinn ömurlega varnarbolta og ég verð að vera sammála þeim sem segja að fótboltinn sigraði. Milan er með miklu skemmtilegri sóknarbolta og það er ákveðinn áfellisdómur yfir ensku liði að það spili leiðinlegri fótbolta en eitt fremsta lið Ítalíu.

22. maí 2007

Þingvallastjórn

Þá er ljóst hvernig ríkisstjórn næstu fjögurra ára verður skipuð:

Fyrir Sjálfstæðisflokkinn:
Geir Haarde forsætisráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra
Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra

Fyrir Samfylkinguna:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir velferðarráðherra (gamla félagsmálaráðuneytið)
Kristján Möller samgönguráðherra
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra

Þetta er í stórum dráttum sterk ríkisstjórn. Það sem vekur fyrst og fremst upp spurningar er rýr hlutur kvenna í ráðherraliði Sjálfsstæðisflokksins en einnig er athygli vert að Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar fær ekki ráðuneyti. Ég hefði viljað sjá Ágúst í viðskiptaráðuneytinu í stað Björgvins G. Sigurðssonar og ég hefði viljað sjá Bjarna Ben og Guðfinnu Bjarna eða Arnbjörgu Sveins í stað Einars K. og Guðlaugs Þórs. En ég geri ráð fyrir því að töluverðar breytingar verði á ráðherraliði flokksins á kjörtímabilinu að því leyti að Björn Bjarna hættir örugglega og ég vona að Einar K. verði líka látinn víkja. Það verður hins vegar að líta til þess að konur stóðu sig ekki vel í prófkjörum fyrir nýliðnar kosningar þrátt fyrir að prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningarnar hafi sýnt að konur geta vel staðið sig vel í prófkjörum. Ég hef í sl. tveimur prófkjörum lagt mig fram um að veita ungu fólki og konum brautargengi en svo virðist sem aðrir Sjálfstæðismenn geri ekki slíkt hið sama. Þangað til það verður held ég að konur verði að sætta sig skarðan hlut í ríkisstjórn. Að því sögðu held ég að eðlilegt hefði verið að a.m.k. tvær konur hefðu fengið ráðherraembætti í ljósi þess að u.þ.b. 30% þingmanna flokksins eru konur. Ég hlakka eins og aðrir landsmenn til að sjá málefnasamninginn á morgunn.

21. maí 2007

Fram 0 - 2 Víkingur

Mínir menn lögðu Framara í Laugardalnum í gær og eru taplausir og ekki búnir að fá á sig mark í fyrstu tveimur umferðunum. Ágætis árangur það og gott að leggja sitt að mörkum svo Fram fari aftur þangað sem þeir eiga heima sem er í neðri deildunum. Vonandi lukkast líka þetta árið að senda KR, Val eða Fylki niður svo mínir menn fái þann stall sem þeim ber - að vera eina Reykjavíkurliðið í efstu deild.

Owen Hargreaves til United

Ég get ekki sagt annað en: "Mikið fucking var!" Það hafa verið fréttir nær vikulega í allan vetur um að hann sé mögulega á leiðinni en það hefur aldrei orðið að veruleika. Núna er þetta vonandi komið og ég get hlakkað til að sjá Carrick og Hargreaves saman á miðjunni. Ég á svo von á því að Ferguson kaupi einn framherja og sennilega einn hægri bakvörð líka. Nóg er af vinstri bakvörðunum og miðverðirnir orðnir fjórir nokkuð góðir eftir að Gerard Pique kemur úr láninu. Nýjustu fréttirnar sem ég sá voru þær að hann væri líka á höttunum eftir Craig Gordon markverði Hearts og skoska unglingalandsliðsins en ég vil persónulega sjá Ben Foster og Tomasz Kuszczak sem framtíðarmarkmenn liðsins og Van der Sar vil ég sjá sem markmannsþjálfara minna manna. Óskalisti minn fyrir sumarið er svona:

Dani Alves,
Owen Hargreaves og
Carlos Tevez eða
Fernando Torres

Ég held að það sé nóg að kaupa einn hægri bakvörð, miðjumann og einn eða tvo framherja. Solskjær er sennilega búinn, Smith sennilega orðinn meiðslakarl til loka ferilsins eins og Solskjær, Rossi enn ekki búinn að sanna sig og Saha verður seldur. Berbatov gæti verið ágætur kostur en ég held að hann passi ekki sérlega vel inn í þetta United lið.

Mesti bullukollurinn á Moggablogginu?

Hef notað dauðann tíma á vöktunum upp á síðkastið í að grafa upp skemmtilega bloggara. Bloggarar geta verið skemmtilegir af ýmsum orsökum - sumir eru einfaldlega fyndnir, aðrir hlægilegir, enn aðrir skrýtnir og svo eru auðvitað þeir sem eru klárir og skrifa áhugaverða pistla. Þessi held ég að sé mesti rugludallur sem ég hef rekist á. Hann er í persónulegri krossferð gegn Birni Bjarnasyni og er svo sem ekki einn um það en hann er með alls kyns samsæriskenningar um minnstu smáfréttir og einhvern veginn leiðir það allt saman aftur til Björns Bjarnasonar. Hann hefur greinilega takmarkalausa trú á illsku Björns og afskiptasemi. Hvað sem því líður er alltaf gaman að lesa skrif fólks sem hefur ímyndunarafl í aðra eins stórkostlega endaleysu. Mæli með því að þið bookmarkið hann.

19. maí 2007

Helvítis Drogba

Ég þoli ekki Didier Drogba. Ef einhver vill komast að af hverju það er má hann vinsamlegast hafa samband við mig í síma 5812345.

Ríkisstjórnarmyndun

Gunni kemur með skemmtilega athugasemd við síðustu pólítísku færslu og ég held ég verði að taka undir með honum. Ágúst Ólafur er að sjálfsögðu ekki með nóga reynslu til að gegna embætti fjármálaráðherra. Ég er farinn að gæla við að hann verði heilbrigðisráðherra en ég hef heyrt því fleygt að Sjálfstæðismenn hafi augastað á því ráðuneyti. Staðreyndin er sú að það þarf einhvern nagla í heilbrigðisráðuneytið - einhvern sem er tilbúinn að taka á þeim rekstrarvanda sem heilbrigðiskerfið á við að etja. Það er auðvitað ýmislegt sem kemur upp í hugann en á næstu árum mundi ég gjarnan vilja sjá eftirfarandi:

1) Einkarekið sjúkrahús í Reykjavík
2) Yfirstjórn LSH verði látin taka ábyrgð á yfirgengilegum hallarekstri spítalans og farið verði í gagngerða uppstokkun á ríkisrekstri í heilbrigðismálum
3) Farið verði rækilega yfir ástæður þess að ekki fæst starfsfólk til að sinna umönnun og hjúkrun.
4) Gera þarf menntun í heilbrigðisgreinum meira aðlaðandi án þess að slaka á kröfum um námsárangur. Ég held að það sé ekki skynsamlegt að draga úr kröfunum.
5) Gerð verði gangskör í því að reisa öldrunarrými fyrir helmingi fleiri en þörf er á akkúrat í dag. Það er fjárfesting sem skilar sér til baka á örfáum árum í stórkostlegri fækkun á óþarfa legudögum á LSH.

18. maí 2007

Stjórnarsamstarfið brostið og ISG komin í bólið hjá Geir

Það er ótrúlegt að í jafnlitlum flokki og Framsókn geti menn ekki komið skilaboðum áleiðis á fundum. Eða eru Jón og Guðni bara ósammála um málavexti. Jón segir í viðtali í dag að enginn trúnaðarbrestur hafi orðið en Guðni kom víst alveg spólbreimandi í Kastljósið með lóðatíkinni honum Skallagrími Sigfússyni. Ég veit það er fullseint núna en fyrr í vikunni var ég í heimsókn hjá settinu og setti niður spá mína um tilvonandi ríkisstjórn. Hún var nokkurn veginn svona:

Geir H. Haarde Forsætisráðherra
Björn Bjarnason Dóms- og kirkjumálaráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson Menntamálaráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Heilbrigðisráðherra
Bjarni Benediktsson Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Árni Mathiesen
Landbúnaðarráðherra
Kristján Þór Júlíusson Samgönguráðherra

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Utanríkisráðherra
Össur Skarphéðinsson Sjávarútvegsráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir Félagsmálaráðherra
Björgvin G. Sigurðsson Umhverfisráðherra
Ágúst Ólafur Ágústsson Fjármálaráðherra

Kristján Möller, Sturla Böðvarsson, og Einar K. Guðfinnsson munu sjálfsagt seint sætta sig við að fá ekki ráðherraembætti en það geta auðvitað ekki allir orðið ráðherrar. Sturla og Einar voru auðvitað báðir ráðherrar síðast en enginn ráðherra Sjálfstæðismanna kom úr Norðausturkjördæmi á síðastliðnu kjörtímabili. Nú hlýtur að vera komið að þeim og ég er hrifinn af Kristjáni. Ég sé nú reyndar strax þá meinbugi á þessarri spá minni að sennilega verður ráðuneytum jafnskipt en ekki sjö á móti fimm eins og ég hef skrifað auk þess sem ég er fullviss um að Björgvin þarf líklega að víkja fyrir Kristjáni Möller. Auk þess er mér ljóst að líklega verður Ágústi Ólafi ekki treyst fyrir svo veigamiklu ráðuneyti sem fjármálaráðuneytið er þrátt fyrir að hann sé líklega með hentugustu menntunina. Ég er sífellt að verða hrifnari af honum Ágústi sem stjórnmálamanni því hann virðist hafa raunverulegan brennandi áhuga á því sem hann er að gera. Efnilegur pólítíkus þar á ferð. Nú er bara að vona að Ingibjörg láti ekki vonbiðlana freista sín og standi við sitt.

Boltinn

Nú líður senn að tveimur stórkostlegustu knattspyrnuleikjum hvers árs, bikarúrslitaleiknum í Englandi og úrslitum Meistaradeildarinnar. Mig rekur minni til þess að undanfarin ár hafi úrslitaleikur Meistaradeildarinnar hafi jafnan verið á undan en þetta árið er í það minnsta bikarúrslitaleikurinn á undan. Ég er reyndar að vinna um helgina svo ég missi líklega af þeim leik en kannski verður nógu rólegt til að ég geti horft með öðru auganu. Annars er ég nú þegar orðinn sáttur við uppskeru ársins. Bikarúrslit, meistaratitill og undanúrslit í Meistaradeildinni verður seint talinn dræmur árangur en auðvitað er þorstinn í titla óseðjandi á Old Trafford hjá Alexi og Fergussonum.

Á dauða mínum átti ég von...

...en ekki því að karl faðir minn hæfist handa við netskriftir. Nú hef ég látið undan þrábeiðni hans að kenna honum að blogga. Viti menn, það tók ekki nema tæpan klukkutíma að koma honum í gang og ég er ansi hræddur um að nú megi vinstri græningjarnir fara að vara sig. Það verður gaman að fylgjast með skrifunum hans pabba. Hann hefur alltaf átt gott með að koma frá sér hugleiðingum sínum í rituðu máli, hvort sem það hefur verið um gengna vini og kunningja eða á öðrum vettvangi. Mæli með því að þið kíkið á hann hérna.

14. maí 2007

Boltinn

Tap gegn West Ham í síðasta leik. Sennilega í eina skiptið síðan ég man eftir mér sem mér er sama þótt við töpum og ég vonaði það meira að segja hálft í hvoru. Gaman að sjá hvað Eggert gerir með þetta lið og það hefði verið skelfilegt fyrir þá að falla. Ég var feginn að losna við vælukjóann hann Warnock með Sheffield United niður og svo var líka gaman að losna við Pardew. Gott mál.

Kosningar 2007

Nú eru kosningarnar búnar, stjórnin stóð og vinstri flokkarnir væla eins og venjulega. Þegar ég horfi til baka yfir kosningabaráttuna verð ég að viðurkenna að ég hef sjaldan haft eins lítinn áhuga á kosningabaráttunni og nú. Mér fannst baráttumálin alveg ótrúlega ómerkileg, svona lúxusvandamál eins og ég hef áður tjáð mig um, forystumennirnir áhugalausir (fyrir utan sköllótta rauðhausinn) og bara einhver svona velmegunarlognmolluslykja yfir öllu saman. Það dylst nú líklega engum hvar ég stend í pólítík en það er erfitt fyrir svona frjálshyggjurugludalla eins og mig að kjósa nokkuð annað en Geir Hardly eins og staðan er hér á landi. Þegar allt kemur til alls snýst þetta um hverjum leiðtoganna maður treystir best til að stýra skútunni um lygnan sjó næstu 4 árin. Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið sig frábærlega sl. 16 ár og því skildu þeir ekki gera það áfram. Mér finnast kosningar sjaldnast snúast um að koma stjórninni frá eða stjórnarandstöðunni að. Það er sjaldgæft að öll stjórnarandstaðan komist til valda og allir stjórnarþingmenn fari í stjórnarandstöðu. Persónulega mundi ég vilja sjá Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu í stjórn. Ekki það að ég sé hrifinn af Ingibjörgu Sólrúnu og co en ég held bara að eins manns meirihluti sé ekki á vetur setjandi, sérstaklega þegar menn eins og Bjarni Harðarson eru hluti af meirihlutanum.

7. maí 2007

Loksins, loksins meistarar aftur!

Arsenalmenn gerðu okkur United mönnum greiða í dag með því að hirða tvö stig af Chelsea þannig að nú erum við Englandsmeistarar í fyrsta sinn síðan 2003 sem er bara meiriháttar. Van der Sar reddaði okkur á móti City í gær með því að verja vítið hjá Vassell. Snilld. Nú er það bara að nudda þessu í sárið á Stamford Bridge á miðvikudaginn. Ég segi 3-2 í hörkuleik þar sem 2 fá rautt og Rooney skorar þrennu.

6. maí 2007

Hildur Vaka

Við Edda létum skíra dóttur okkar í dag um leið og hún fékk nafnið Hildur Vaka Bergmann. Ég held að ættingjar og vinir hafi almennt verið nokkuð sáttir við nafnið enda höfum við verið dugleg að hampa kjánalegum nöfnum upp á síðkastið. Þá er lending með venjulegu nafni oft mýkri. Þannig er það nú bara.

Pólítík

Mér finnst pólítíkin hérna ekki áhugaverð lengur. Ég held það hafi eitthvað með góðærið að gera. Fólk hættir bara að hafa áhuga á pólítík þegar hagvöxtur er svona mikil og velmegun því sem næst almenn í landinu. Menn fara bara að rífast um einhver lúxusvandamál. Ef það væri hérna 10% atvinnuleysi væri sama liðið og veifar núna náttúruverndarmótmælaspjöldum að krefjast stóriðju fyrir allt það vesalings fólk sem vantaði vinnu. Það er ég fullkomlega sannfærður um. Staðreyndin er sú að á Íslandi höfum við það bara alveg skelfilega gott og það er ekki hægt að þakka það neinu nema framúrskarandi efnahagsstjórn sl. 16 ára. Þá tóku Sjálfstæðismenn við þjóðarskútunni þar sem hún hafði siglt í strand eins og Wilson Muuga. Þá komu heiðurmennirnir Davíð og Jón Baldvin og rifu okkur á flot aftur úr briminu og nú siglum við lygnan sjó inn í framtíðina. Framsóknarmenn hafa að sjálfsögðu átt sinn þátt í þessu en ég held að stærstu skrefin hafi verið stigin á tímum Viðeyjarstjórnarinnar. Af hverju ætti ég að kjósa eitthvað annað en áframhaldandi stöðugleika og hagvöxt. Ég hef reyndar gælt við þá hugmynd að kjósa VG í ár af tveimur ástæðum:
Í fyrsta lagi gæti ég sagt við liðið sem kallar mig sjálfstæðismann um leið og ég opna munninn að ég hafi nú einu sinni kosið vinstri græna. Margir virðast meta pólítíska dómgreind manna eftir því hvað hann hefur kosið marga mismunandi flokka. Það finnst mér vitlaust. En það að kjósa VG gæfi mér sem sagt tveggja flokka status í goggunarröð skoðanafrelsisins á kaffistofunni.
Í öðru lagi líst mér ágætlega á það að klára bara dýfuna sem kemur óhjákvæmilega með iðagrænni vinstristjórn á meðan ég er í sérnámi í útlöndum. Sjálfstæðismenn verða þá komnir með þjóðarskútuna aftur á flot áður en ég kem heim úr sérnámi en ef það verður ekki vinstri stjórn hérna aftur fyrr en eftir 4 ár gæti farið svo að allt verði hér í molum í efnahagslífinu þegar ég vil koma heim úr sérnámi og það finnst mér frekar andfúl tilhugsun.

Gleði og sorg í boltanum

Ég var algerlega niðurbrotinn maður eftir miðvikudagskvöldið enda var ég orðinn vongóður um að mínir menn gerðu harða hríð að þrennunni frægu í annað skipti á innan við áratug. Ég tók gleði mína að vissu leyti í dag, nánar tiltekið þegar Van der Sar varði vítaspyrnuna frá Darius Vassell. Við erum komnir með báðar lúkurnar á blikkið þetta árið og aðeins náttúruhamfarir geta komið í veg fyrir að dollan komi heim. Ég get ekki sagt að ég hafi fengið skemmtilegar tölvupóstsendingar frá félögum mínum sem halda með bítlaliðinu en ég verð þó að hrósa þeim fyrir fádæma sjálfsstjórn því ég hef margoft verið miklu leiðinlegri við þá eftir óteljandi grátlega ósigra þeirra sl. ár.

Liverpool á vissulega glæsta sögu að baki í Evrópukeppninni en það verður að skoðast í því sögulega ljósi að allir titlarnir nema einn komu á þeim tíma þegar menn skiptu mun síður um lið og því byggðist árangur í knattspyrnu fyrst og fremst á góðri þjálfun og öflugu ungliðastarfi. Auðvitað gengu menn kaupum og sölum en uppistaðan í flestum liðum voru heimalningar. Það dregur þó ekki úr þeim glæsilega árangri sem Liverpool náði skömmu eftir miðja síðustu öld í Evrópuboltanum og kom enskum liðum þar með á kortið í evrópsku knattspyrnusamhengi. Síðan er liðin langur tími. Ég verð þó fyrsti maðurinn að viðurkenna að ég skil Poolara vel að vera stoltir af ótrúlegri endurkomu þeirra í úrslitaleiknum fyrir tveimur árum en sú endurkoma jafnast fullkomlega við ótrúlegan sigur minna manna á Bayern Munchen fyrir 8 árum síðan. Þegar svoleiðis lagað gerist er ekki hægt annað en segja bara: "Til hamingju". Ég stend þó á því fastar en á mínum stuttu fótum að Liverpool var hvorki þá né nú með eitt af tveimur bestu liðum Evrópu. AC Milan er það ekki heldur nú. Til að geta gert tilkall til slíkrar nafnbótar finnst mér að liðið verði líka að standa sig með sóma í sinni eigin úrvalsdeild. Það hefur Liverpool ekki gert. Það má færa rök fyrir því að Milan væri með betri stöðu ef þeir hefðu ekki byrjað tímabilið með 8 stig frádregin á Ítalíu en þeir væru samt í þriðja sæti eins og staðan er nú. Þeir væru reyndar mun nær toppliðunum en þeim sem á eftir koma en þegar allt kemur til alls væru þeir samt 20 stigum á eftir Inter. Það telst ekki góður árangur í minni bók.

Eins illa og mér er við Chelsea þá verð ég að dást pínulítið að þeim líka. Þrátt fyrir að spila mjög leiðinlegan og neikvæðan fótbolta eru þeir búnir að hirða eina dollu, eru komnir í úrslit í ensku bikarkeppninni, eiga enn möguleika á enska meistaratitlinum (þó hann sé fremur fjarlægur) og þeir komust í undanúrslit í Meistaradeildinni. Þetta er frábær árangur alveg sama hvernig á það er litið. Eins og staðan er í dag verða aðdáendur knattspyrnuliða oft að gera sér að góðu að liðin þeirra berjist um einn titil því keppni í þessum evrópsku deildum er orðin svo hörð að það er erfitt að berjast á fleiri en einni vígstöð sama árið. Það verður því held ég langt þangað til nokkuð lið leikur eftir það sem United gerði árið 1999 og ég held að yfirburðir þeirra í deildinni heima hafi þá gert þeim kleift að vinna auk þess sem Lafði Lukka var þeim einkanlega hliðholl bæði í úrslitum Meistaradeildarinnar og ensku bikarkeppninnar.

En það er fleira sem fangar athygli manns í fótboltanum þessa dagana. Það grátlegasta er kannski það að Joey Barton sannaði að það er alveg sama hversu mikil hálfviti maður er orðinn - maður getur alltaf bætt sig. Þessi maður er náttúrlega bara gjörsamlega laus við allt sem getur kallast æðri heilastarfsemi. Ég er satt að segja bara fremur hissa á því að hann lifi það af að vera svona hrikalega vitlaus. Ég mundi varla þora fram úr á morgnanna væri ég svona ruglaður.

Að lokum ætla ég að láta það eftir mér að trúa því að það sé hægt að reiða sig á Arsenal þegar mikið liggur við. Þeir hafa verið að spila virkilega skemmtilegan fótbolta á köflum í vetur og Wenger hefur náð aðdáunarverðum árangri í þjálfun á því að skjóta í stangir og slár. Þessir Frakkar reyna alltaf að skara fram úr í svona hliðarsporum en gleyma stundum að hliðarsporin skipta bara svo litlu máli ef aðalsporið er lokað. Það skilar álíka miklum árangri að skjóta í stöng og að hitta hornfánann þegar allt kemur til alls. Áfram Arsenal.

25. apr. 2007

Fótbolti og hjátrú

Ég mundi seint telja mig hjátrúarfullan mann. Ég banka ekki í við þegar ég tala um hvað sé rólegt á vaktinni. Ég fer ekki yfir götu þegar ég sé svartan kött. Ég geng undir uppreistan stiga. Ég hef brotið spegil án þess að hljóta af því sjö ára ógæfu. En þegar kemur að rútínu í kringum fótbolta er ég sekur. Ég spila alltaf þegar ég get í treyju númer sjö og helst í Manchesterbúningi innanundir. Ég horfi alltaf á Unitedleiki í búning. En nú er ég held ég orðinn fullkomlega geðveikur. Í gær var ég að horfa á stórleik minna manna við Milan í Meistaradeildinni. Í hálfleik var staðan 1:2 Milan í vil eftir að snillingurinn Kaka hafði galopnað annars ágæta vörn United. Þá fattaði ég að ég hafði gleymt að setja dóttur mína í búning eins og ég hafði gert í seinni leiknum á móti Roma og reyndar líka þegar við horfðum á Watfordleikinn í bikarnum. Ég kippti þessu í lag í einum grænum og viti menn - Rooney setti tvö í seinni hálfleik og staðan fyrir seinni leikinn mun vænlegri en maður þorði að vona. Nú þarf Milan að sækja í seinni leiknum og þá myndast svigrúm fyrir Ronaldo, Rooney og Giggs til að setja eitt kvikindi. Þá vonar maður auðvitað að Vidic og Ferdinand verði komnir á ferðina en það er svo sem ólíklegt. Brown hefur reyndar verið að standa sig prýðilega en Heinze hefur verið hálfráðvilltur þarna í miðri vörninni. Vonandi nær hann áttum.

23. apr. 2007

Yfirburðir

Cristiano Ronaldo var bæði besti og efnilegasti leikmaður Ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Alex Ferguson var besti knattspyrnustjórinn. Í liðið ársins voru 8 leikmenn Manchester United, markmaðurinn, öll varnarlínan, báðir vængmennirnir og annar miðjumaðurinn. Gerrard, Drogba og Berbatov fylltu liðið. Persónulega finnst mér skrýtið að Evra og Neville skuli vera í þessu úrvali en aðrir áttu þetta fyllilega skilið. Ég held það sé enginn sem efast um það að MUFC er með besta liðið á Englandi í dag, nema kannski einstaka fáfróður Poolari.

Fótbolti

Mínir menn stigu feilspor á laugardag sem hefði verið dýrkeypt ef ekki hefði verið fyrir erkióvinina í Newcastle sem náðu góðu markalausu jafntefli við Chelsea í gær. Þetta er ennþá galopið. Manchester United á eftir að mæta Manchester City á City Ground og Chelsea á Stamford Bridge áður en þeir fá West Ham í heimsókn á Old Trafford í lokaumferðinni. Allt saman eru þetta gríðarlega erfiðir leikir því sá fyrsti er grannaslagur, næsti úrslitaleikur um Englandsmeistaratitilinn og líklegt er að West Ham verði að vinna síðasta leikinn ætli þeir að halda sæti sínu í deildinni. Þetta verður gríðarlega spennandi.

Viðbót:
Gleymdi reyndar að það eru fjórar umferðir eftir. Við eigum Everton á Goodison um næstu helgi. Vonandi klára þeir það.

Lítil börn

Íris og Halldór vinir okkar eignuðust stúlku þann 14. apríl og hún fékk strax nafnið Lísbet Hekla.
Kolla og Aron áttu þar á undan risastóran dreng á Föstudaginn langa sem eftir því sem ég kemst næst hefur ekki enn fengið nafn.
Til hamingju öll.

20. apr. 2007

Manchester United - Sheffield United

Frábær leikur hjá mínum mönnum á sunnudaginn þegar þeir tóku Sheffield United í gegn. Mörkin voru glæsileg hjá Carrick og Rooney og undirbúningurinn hjá Ronaldo og Giggs ekki síðri. Það virðist fátt geta stöðvað þá úr þessu en martröðin yrði auðvitað að tapa öllum titlunum til Chelsea. Persónulega finnst mér þeir ekki eiga skilið að vinna meira en þennan eina titil sem þeir hafa þegar unnið. Þeir spila einstaklega leiðinlegan fótbolta núna og það virðist almennt vera þannig að þeir eru liðið sem fólk elskar að hata. Við Unitedmenn leggjum metnað okkar í að vera það lið og viljum þann titil aftur ásamt þeim þremur sem enn eru í boði í boltanum. Bikarana heim á Old Trafford.

Messidona

Rosalegt mark hjá Lionel Messi fyrir Barcelona í gærkvöldi. Það er ekki oft sem maður sér svona mörk í sterkri deildarkeppni nú til dags þar sem varnarmenn tækla yfirleitt áður en menn komast inn í teig. Messi var bara svo snöggur að enginn átti roð við honum. Það er alltaf spennandi þegar svona efnilegir knattspyrnumenn koma fram og manni hættir til að gleyma að hann er aðeins 19 ára. Áhugasamir geta farið í gegnum hlekkinn í fyrirsögninni hér að ofan til að skoða þetta glæsilega mark.

13. apr. 2007

Það er bara taumlaus hamingja þessa dagana

Leikmenn og forráðamenn Manchester United keppast við þessa dagana að halda mér í því ofsakætiskasti sem ég hef verið í síðan um áramót. Það ágerðist reyndar verulega með 7-1 sigri á Roma sl. þriðjudag en náðu algeru hámarki við þær fréttir sem nálgast má í hlekknum í fyrirsögninni. Ronaldo í fimm ár í viðbót á Old Trafford getur ekki þýtt nema eitt eða réttara sagt sex - sex Englandsmeistaratitlar. Gamli spurningaliðsrefurinn Gummi Björns viðraði þá skoðun sína að hann mundi líklega óska eftir sölu ef hann væri bakvörður ensks úrvalsdeildarliðs. Maður lætur bara ekki niðurlægja sig tvisvar á ári næstu fimm árin. Enn fullkomnaðist auðvitað hamingjan í gær þegar mínir menn sigruðu Watford í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Ætli United vinni ekki bara Chelsea bæði í úrslitum bikarkeppninnar og Meistaradeildarinnar auk þess sem þeir hirða deildina líka með því leggja Chelsea að velli 9. maí. Utópía!!!!

12. apr. 2007

Bloggarar

Ég er mikill "surfer". Ekki svo að skilja að ég sé með bikinirönd, beri á mig barnaolíu Jónssonar og busli með skurðarbretti í brimgarðinum við Gróttu heldur ríð ég öldur alnetsins af miklum vígamóð. Ég get gleymt mér tímunum saman að elta hlekki af einni vefsíðu til annarrar en það eru reyndar ákveðnar síður sem ég heimsæki mest þegar ég geysist um veraldarvefinn. Mogginn er að sjálfsögðu opnunarsíðan á vafranum og ég renni því í gegnum mbl.is í hvert sinn sem ég opna netsíðu. Soccernet er líka mikið heimsótt, sérstaklega á leikdögum í boltanum. En það eru bloggin sem í seinni tíð drepa mestan tíma. Þannig les ég hugleiðingar Urðarkattarins daglega en þær eru yfirleitt svipaðar 8-10 daga í röð vegna bloggtregðu en síðan kemur framhjáhlaup eins og hjá öldruðum og hann skrifar hálfa tylft færslna um eitthvað stórmerkilegt. Annar spekúlant sem ég les daglega er hann Simmi úr Kastljósinu. Ég er sérstaklega glaður að lesa bloggið hans þegar Arsenal gerir í brækurnar. Áður fyrr var hinn stórkostlegi Hnakkus í uppáhaldi en hann hefur verið í löngu fríi undanfarið þó síðastliðna daga hafi verið eitthvað lífsmark með honum. Það eru fleiri sem eru skemmtilegir en þessir þrír eru þó þeir sem ég heimsæki hvað oftast.

11. apr. 2007

Gleðidagur

Þvílík snilld. Við Andreas og Ögn horfðum á leikinn í kvöld yfir matnum. Það var ekki að sjá á fyrstu mínútunum að mínir menn ætluðu að standa sig í kvöld þar sem Rómverjar áttu nokkur góð skot til að byrja með en eftir að Carrick skoraði þetta glæsilega fyrsta mark varð ekki aftur snúið. Þeir völtuðu gjörsamlega yfir Roma-liðið og eftir fyrsta markið var aldrei spurning um hvort liðið mundi sigra. Mörkin voru líka hvert öðru glæsilegra en ég held að annað markið sem Smith skoraði og seinna markið hjá Carrick var náttúrlega stórglæsilegt. Glæsilegur sigur og aðeins sigur Chelsea á Spáni varpaði agnarsmáum skugga á annars frábært kvöld.

9. apr. 2007

Páskamatur fenginn að láni frá nokkrum meisturum

Ég eldaði páskamat í gærkvöld fyrir Eddu, Möggu og tengdó. Var með bláberjamarinerað læri sem ég grillaði. Ætlaði að kaupa ómarinerað læri og gera einhverjar gloríur sjálfur en þegar ég fór að versla á laugardaginn voru öll ómeðhöndluð læri uppseld og ég fór því til snillinganna í Gallerý Kjöt á Grensásvegi og keypti hjá þeim bláberjamarinerað lambalæri (fékk næstsíðasta lærið og konan á eftir mér það síðasta). Það fór svo eins og það kom úr kúnni á gasgrillið. Mér finnst persónulega best að grafa grill í holu og umlykja það með gamaldags kolagrillskolum en þegar slíkt er ekki í boði er næstbest að grillla lærið í opnum álpappír og snúa því einu sinni. Ég hef grillið lokað á lágum hita og læt það malla svoleiðis ca. 30-40 mín á hvorri hlið, fyrst á þeirri kjötminni. Þannig verður lærið passlega hrátt við beinið en vel steikt að utan þannig að allir fá steikingu við sitt hæfi.
Með lærinu bar ég fram bakaða kartöflubáta a la Siggi Hall með gíslísku ívafi. Siggi vill nota stórar bökunarkartöflur en mér finnst ekkert síðra að nota bara meðalstórar íslenskar og gerði það í gær. Maður getur gert þetta á ýmsa vegu. Fyrst þegar ég gerði svona kartöflur sauð ég þær aðeins fyrst og setti þær svo stutta stund í ofn. Nú sker ég þær hráar í litla báta, skola þær og þurrka vel og brúna þær síðan í smjöri og olíu á pönnu í nokkra mínútur. Síðan raða ég þeim í ofnskúffu á bökunarpappír, krydda með salti, pipar og reyndar bara því sem mér dettur í hug. Nú setti ég aðeins timjan en mér finnst líka gott að setja steinselju eða basilikum en bara lítið. Svo fer það bara svolítið eftir smekk hvað maður hefur þær lengi inni og auðvitað eftir stærð bátanna en mér finnst gott að hafa þær stökkar og vel bakaðar og hafði þær því í u.þ.b. 60 mínútur.
Með þessu gerði ég rauðvínssósu að hætti Ragnars Freys Ingvarssonar. Þetta var frumraun mín við að gera sósu frá grunni og ég ætla að halda því áfram. Þvílíkt og annað eins lostæti er langt síðan ég hef smakkað. Tengdamamma er þekkt fyrir dálæti sitt á góðum sósum og ef þær eru sérstaklega góðar borðar hún sósu eintóma með skeið og það hefði hún gert í gær hefði hún verið heima hjá sér. Takk Ragnar fyrir sósuna sem má nálgast hér. Hún er um miðja síðuna fyrir þá sem ekki nenna að lesa alla uppskriftina þó ég mæli með því.
Auk þess bar ég fram með þessu ferskt salat sem samanstóð af klettasalati, lambasalati, tómötum, agúrku, rauðlauk og miklu af fetaosti. Ég nota kryddolíuna af fetaostinum mikið í salatið og það kemur að miklu leyti í staðinn fyrir dressingdraslið sem mér finnst oft skemma ferskt salat. Okkur finnst best að hafa salatið sem ferskast og erum hvorugt hrifin af svona edik- og dressingmenningu en ég er viss um að hægt er að venja okkur af þeim ósið ef einhver lumar á galdrauppskrift.
Með þessu var dýrindisrauðvín Montes Cabernet Sauvignon 2005 (geggjað) og í eftirrétt hafði ég ístertu sem ég keypti í búð (frekar metnaðarlítið en mér til varnar þá eru þær sjúklega góðar og ég hafði í nógu að snúast með allt hitt). Þar til næst.

Barnahrúga

Það hefur verið sannkölluð holskefla af börnum hjá bekkjarfélögum mínum úr læknadeildinni nú eftir áramótin. Berglind og Þorsteinn áttu í janúar lítinn Benedikt Árna, Magga Stína og Christian áttu síðan lítinn stráksa sem ekki hefur enn fengið nafn svo ég viti. Við Edda áttum síðan litluna okkar þann 30. mars og nú á föstudaginn langa átti Kolla lítinn risa. Þá má heldur ekki gleyma því að Ragna og Guðmundur áttu strák í nóvember (held ég), Jón Þorkell og Álfhildur áttu strák í september og Emmi og Berglind áttu litla stelpu í ágúst. Það eru svo enn fleiri sem hafa átt börn síðan við útskrifuðumst svo það hefur verið nóg að gera. Til hamingju allir.

7. apr. 2007

Portsmouth 2-1 MUFC

Við feðginin horfðum á annan 2-1 leikinn í röð í sameiningu. Sú litla svaf reyndar allan tímann en ég reyndi að halda blótsyrðunum að innanverðu á meðan ég var að elda og horfa á leikinn. Mínir menn voru ótrúlega daprir, sérstaklega í fyrri hálfleik en þá komust heimamenn í 1-0 eftir hrikalega dapra markvörslu hjá Van der Saar. Seinni hálfleikur var svo hálfgerð einstefna og Portsmouth áttu bara fáeinar skyndisóknir. Í einni slíkri undir lokin fór Van der Saar í skógarferð þegar engin hætta var á ferðum og var þess vegna ekki á marklínunni þegar Ferdinand ætlaði að gefa á hann. Sjálfsmark og leikurinn búinn þó O'Shea tækist að minnka muninn í næstu sókn. Smith átti reyndar gott skot í blálokin en James varði vel. Ég er því ekkert í góðu skapi en get huggað mig við að það er Arsenalmaður að koma í mat sem ég get strítt á því að hafa tapað fyrir West Ham og reyndar Poolari líka en þeir létu Brynjar Björn skora hjá sér í dag.

6. apr. 2007

Dóra Sigrún Fannarsdóttir

Lítil vinkona okkar fékk nafn í dag. Hún er dóttir Elnu sem er elsta og besta vinkona Eddu og Fannars mannsins hennar. Hún var skírð Dóra í höfuðið á langömmu sinni og Sigrún eftir móðursystur sinni. Fallegt nafn það - til hamingju.

Lúxusvandamálakosningar

Stærstu málin í komandi kosningum verða líklega umhverfismál og kannski pínulítið velferðarmál. Ég er ekki viss um að Íslendingar geri sér grein fyrir því hverslags munaður það er að svona mál séu aðalvandamálin. Atvinnumál eru náttúrlega dauður málaflokkur því allir sem vilja geta fengið vinnu ef þeir eru ekki mjög vandlátir og atvinnuleysi er skilgreint ekkert. (skv. alþjóðlegum fræðum er ákveðið atvinnuleysishlutfall talið eðlilegt þar sem fólk er t.d. á milli starfa eða fær ekki starf í stuttan tíma eftir að námi lýkur.) Fólk staldrar enda sjaldan lengi við á bótum hérlendis og mikil umsetning á lista atvinnulausra. Þegar pólítíkin og mannlífið er svo vandræðalítið kýs fólk um mál sem stendur nær hjartanu en buddunni og kýs þá gjarnan vinstri flokkana. Þegar fólk kýs í harðæri kýs það með buddunni og þá fáum við gjarnan sigur hægri flokkanna. Þetta gerist yfirleitt eftir 4 ára stjórnarsetu vinstri flokkanna hér á landi. Vitur hægri maður sagði eitt sinn að það væri mikilvægt að vinstri flokkarnir kæmust til valda á 12 ára fresti. Hann sagði að það væri gott til að koma í gegn mannabreytingum á hægri vængnum auk þess sem engum væri hollt að vera lengur en 12 ár við stjórnvölinn. Hann sagði líka að það væri vont að hafa hægri stjórn í 16 ár því þá væri stöðugleikinn orðinn svo mikill að það væri ekki víst að vinstri flokkunum tækist að klúðra honum á 4 árum og við ættum á hættu að hafa hér 8 ára vinstri stjórn. Ég óttast að það muni gerast eftir næstu kosningar og mínar verstu martraðir segja mér að Skringibjörg Sólbrún verði forsætisráðherra. Vegna draumfara minna er ég þegar farinn að undirbúa sérnám og mætti því segja að ég verði eins konar pólítískur flóttamaður enda á ég von á að allt verði hér á öðrum endanum á meðan ég er í sérnámi. Svo kem ég heim um það bil sem viðreisn hægri flokkanna hefst.

MUFC og Meistaradeildin

Við feðginin horfðum á leikinn í gærkvöld á meðan Edda lagði sig. 2-1 tap staðreynd en markið á útivelli gæti fleytt okkur áfram þegar kemur að seinni leiknum. Scholes var auðvitað eins og hálfviti og fékk tvö spjöld fyrir glórulaus brot og var raunar heppinn að vera ekki þegar fokinn út af þegar það loksins gerðist á 33. mínútu. En Ronaldo galdraði fram skyndisókn og Solskjær gaf þessa glæsilegu sendingu fyrir sem Rooney afgreiddi af sinni alkunnu snilli. Það er erfitt að trúa því að þetta séu fyrstu mörk Rooney í Meistaradeildinni frá því hann sökkti Fenerbache með þrennu í fyrsta leiknum sínum fyrir United. Það virkar svo langt síðan þó það séu ekki nema 18 mánuðir. Svona líður tíminn fljótt.

Chelseamenn gerðu í brók og náðu aðeins jafntefli á heimavelli gegn Valencia. Þar skoraði David Silva stórkostlegt mark og kom Valencia yfir en helvítis geitin hann Drogba þurfti auðvitað að jafna. Ég þoli ekki Drogba - hann er fífl. Kíkti á markverðustu atvikin úr þessum leik á youtube og miðað við það voru þetta kannski bara sanngjörn úrslit. Ayala var reyndar heppinn að fá ekki rautt fyrir að gefa Shevchenko olnbogaskot í byrjun leiks og þá hefði leikurinn sjálfsagt þróast öðruvísi. Sanngjörn úrslit held ég.

Milan náði aðeins jafntefli gegn Bayern Munchen á heimavelli og það þrátt fyrir að hafa fengið gefins vítaspyrnu eins og sést í þessu myndbandi. Kaka lenti tvisvar í leiknum í því að Lucio tæklaði af honum boltann í teignum. Í seinna skiptið náði Kaka að pota aðeins í boltann rétt áður en Lucio hreinsar boltann aftur fyrir og það hefur líklega platað dómarann og því dæmdi hann vítaspyrnu. Það var hinsvegar rangur dómur að mínu mati því Lucio tekur greinilega boltann eins og sést þegar þið skoðið myndbandið. Milan átti fullt af góðum færum en Rensing varði eins og berserkur (Þór: Hann er 22 ára, ég gáði á netinu). Það verður gaman að sjá hvað Milan gerir í Þýskalandi en með miðjumenn eins og Gattuso, Pirlo, Ambrosini og Kaka er allt hægt.

Liverpoolmenn kjöldrógu svo PSV í Hollandi á þriðjudaginn og það þarf bæði kraftaverk og stórslys með dass af heppni til að PSV klári þetta í Liverpool. Liverpool er eina liðið sem hefur tryggt sig í undanúrslit að mínu viti. Allt getur gerst í hinum einvígjunum.

Draumaúrslitaleikur yrði náttúrlega Liverpool - Manchester. Ég held að Chelsea og United mætist í undanúrslitum ef bæði lið fara áfram og Liverpool mætir þá Bayern eða Milan. Bæði þessi lið gætu slegið Poolarana út úr keppninni en eins og þeir hafa verið að spila upp á síðkastið held ég að það verði erfitt. Þetta verður allt saman forvitnilegt að sjá.

Skipt um skoðun

Fyrir nokkrum vikum býsnaðist ég yfir því að fólk skrifaði færslur á síður ómálga kornabarna í fyrstu persónu eins og barnið sjálft væri sögumaður. Nú skil ég hvers vegna foreldrar gera þetta og ét gömlu færsluna ofan í mig.

3. apr. 2007

Hafnfirðingar í stuði

Naumt var það á laugardaginn. Það er varla hægt að kalla þetta niðurstöðu frekar en þegar Holræsa-Solla lét okkur kjósa um flugvöllinn. Það gæti vel verið að niðurstaðan hefði orðið á hinn veginn ef þetta hefði verið viku fyrr eða seinna, kannski degi fyrr eða seinna. En nú er niðurstaðan fengin og eins og eftir allar kosningar keppast menn við að túlka niðurstöðurnar og ráða í þetta allt saman en ólíkt því sem oft gerist þá viðurkennir Alcan að hafa tapað en þeir eru tapsárir og segjast nú vera að skoða framtíðarplönin og það hefur meira að segja verið talað um að loka bara gamla álverinu. Það væri bara pínulítið mátulegt á Hafnfirðinga ef Alcan byggði nýtt álver á Húsavík og lokaði síðan í Straumsvík.

Boltinn

Helgin var góð fyrir mína menn. Ole Gunnar hélt upp á fæðingu dóttur minnar með því að negla lokanaglann í kistuna hjá Blackburn á Old Trafford. Áður hafði Scholes sýnt gamalkunna takta og dregið liðið aftur inn í leikinn. Carrick og Park skoruðu líka í góðum 4:1 sigri. Seinna á laugardaginn voru Chelseamenn ljónheppnir að landa sigri í skemmtilegum leik við Watford. Liverpool hefndi síðan ófaranna frá því fyrr í vetur með því að valta yfir Arsenal á Anfield og galopnaði þar með baráttuna um þriðja sætið því þeir hafa 2ja stiga forskot á Arsenal sem á reyndar leik til góða. Fallbaráttan er líka orðin mjög spennandi. Það er reyndar orðið nokkuð ljóst að Watford fellur en West Ham er komið í gírinn og það gæti orðið spennandi að sjá hvort þeim tekst að bjarga sér frá falli. Ég spái því reyndar að Wigan og Sheffield United fari niður með Watford en Charlton og West Ham bjargir sér. Tevez er að vakna og verður aðalmaðurinn hjá þeim nú í restina, Boa Morte gæti líka farið að blómstra fljótlega. Ég spái því að United verði meistari, Chelsea í öðru, Liverpool í þriðja og Arsenal í fjórða.

Ekki pabbablogg

Þeir sem koma hingað til að lesa um litla sólargeislan okkar Eddu bendi ég á hlekkinn hérna til hliðar því ég ætla að reyna að halda bloggunum hennar þar. Hérna ætla ég áfram að skrifa um fótbolta, pólítík og allt annað sem mér dettur í hug að rífast yfir.

31. mar. 2007

Ég er stoltur faðir

Okkur Eddu fæddist stórkostleg en agnarlítil dóttir í gærkvöldi. Hún vó aðeins 2600 g eða rúmar 10 merkur og var einungis 48 cm. Foreldrar hennar voru svo sem ekki mikið stærri við fæðingu svo það var ekki við neinum risa að búast. Alla vega kom hún í heiminn organdi og sparkandi eins og sönnum baráttujaxli sæmir og er þegar komin heim til sín þó ekki sé nema rúmur sólarhringur frá því hún fæddist. Hlekkurinn er bæði hér til hliðar og í fyrirsögninni hér að ofan.

30. mar. 2007

Kosningabaráttan

Það er merkileg ákvörðun hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði að hafa álverskosningarnar svona rétt fyrir kosningar. Það gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir flokkinn ef Hafnfirðingar sem margir hafa lífsviðurværi sitt af álverinu kjósa að leyfa stækkun á álverinu. Þetta væru þá sennilega sömu Hafnfirðingar og veittu Samfylkingunni óskorað vald í innanbæjarmálum fyrir ári síðan. Ég held nefnilega að vinstri pólítíkusar átti sig ekki á því að stór hluti þeirra Íslendinga sem áður kusu þá eigi lífsviðurværi sitt undir einhvers konar iðnaði. Það er því ekki óviðbúið að þeir missi fleiri kjósendur en þeir afla sér við þessa umhverfisverndarvakningu sína. En auðvitað er fráleitt að ætla að Samfylkingin hafi verið að reyna að heilla kjósendur með einhverju vinsældastunti. Þingmenn þeirra eru auðvitað alltaf að fylgja sannfæringu sinni - þeirri sannfæringu að stefnan eigi að ráðast af skoðanakönnunum. Það sem gleymist oft að gera ráð fyrir í svona skoðanakönnunum að það eru ekki allir búnir að kynna sér málið til hlítar, það gerist ekki fyrr en nær dregur kosningum og þá er miklu meira að marka slíkar skoðanakannanir. Þá breytir Ingibjörg Sólbrún kannski aftur um skoðun og limirnir dansa eftir höfðinu og predika einhvern annan fagurgala en í dag. Hver kýs fólk sem hefur enga eigin sannfæringu heldur fær hana að láni frá Gallup. Persónulega vil ég frekar pólítíkusa sem fylgja eigin sannfæringu en þá sem ekki geta haldið dampi. En þannig er ég bara.
Það er samt einn þingmaður á vinstri vængnum sem ég er farinn að kunna vel við og finnst gaman að lesa það sem hann skrifar á blogginu sínu. Þetta er Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar sem í skoðunum sínum og skrifum stingur töluvert í stúf við félaga sína í þingflokknum þó hann njóti augljóslega nokkurra vinsælda í röðum flokksmanna.

Spánn 1-0 Ísland

Horfði á þennan leik í fyrrakvöld. Íslendingar áttu nokkra lipra spretti í fyrri hálfleik en þegar Spánverjar vöknuðu var það bara stórleikur Árna Gauts Arasonar í íslenska markinu sem hélt okkur á floti. Ég skil ekki hvers vegna Árni hefur ekki fengið tilboð frá stærri klúbbum í gegnum tíðina. Hann er markvörður sem á að vera að spila í stærstu deildum Evrópu en ekki í norsku úrvalsdeildinni með sæmilegum klúbbi. Skrýtið hvernig sumir leikmenn eru aldrei uppgötvaðir en svo eru aðrir sem ekki eru eins hæfileikaríkir sem komast á stóra samninga. Fáránlegt.

Ógeðfelldur fréttaflutningur

Horfði á fréttirnar á RÚV í gær. Þar var frétt um niðurskurð fjár á bænum Neðsta-Hvammi í Dýrafirði. Þegar inngangur fréttarinnar stóð neðst á skjánum "Ill meðferð" og maður bjóst við að sjá bónda með haglabyssu reyna að stugga við embættismönnum. Þess í stað var auðheyrt á viðtali við yfirdýralækni að bóndinn hafði verið mjög samvinnuþýður og þegar hljóðneminn barst að honum reyndi hann ekki á nokkurn hátt að gera lítið úr aðbúnaði kindanna heldur lýsti atburðarásinni sem hafði leitt til þess að svo fór. Þannig hafði þessi viðkunnalegi maður reynt sitt besta en allt kom fyrir ekki og hann neyddist því til þess að skera niður helming þess fjár sem hann hafði á fóðrum. Persónulega finnst mér ill meðferð fela í sér ásetning en aðstæður og veðrátta geta orðið til þess að aðbúnaður sem marga vetur væri ásættanlegur virðast í þessu tilfelli hafa orðið til þess að ekki varð við þetta ráðið. Ég tek ofan fyrir þessum ágæta manni að taka þessu eins vel og hann gerði og starfa af heilindum með embættismönnum í sínu sveitarfélagi. Fréttastjóri Ríkissjónvarpsins ætti að skammast sín.

26. mar. 2007

Þjóðsöngur vanhelgaður

Það hafa verið ótrúlega miklar umræður um meinta vanhelgun Spaugstofunnar á þjóðsöngnum. Stundum skil ég ekki móðursýkina í þessu þjóðfélagi. Ég er persónulega á þeirri skoðun að öll lög sem banna fólki að tjá sig um nokkurn skapaðan hlut á hvern þann hátt sem því sýnist séu mannréttindabrot. Það væri gaman að sjá þetta mál fara fyrir dómstóla. Fáránlegt mál. Það sem mér finnst hins vegar sorglegra er þegar alls kyns vitleysingar eins og ég, sem færa skoðanir sínar á veraldarvefinn, nota tækifærið til þess að hrauna yfir þjóðsönginn. Það er ógeðslegt að sparka í liggjandi mann eða söng í þessu tilfelli. Kollegi minn Hjalti Már Björnsson skrifar á Hrafnasparki um þetta mál og leggur til að "Hver á sér fegra föðurland" verði þjóðsöngur Íslands framvegis. Ég skil ekki svona vangaveltur. Maður skiptir ekki bara um þjóðsöng af því að helmingurinn af þjóðinni getur ekki sungið hann. Persónulega er ég laglaus en ég kann textann og raula með.

25. mar. 2007

Kynþáttafordómar Laxness.

Ég er að lesa stórskemmtilegt greinasafn Halldórs Laxness sem ber nafnið Upphaf mannúðarstefnu. Þarna er samansafn skemmtilegra greina um hitt og þetta, mest blaðagreinar sem birtust í skandínavískum tímaritum og blöðum í upphafi sjöunda áratugarins. Það er samt sumt sem skýtur skökku við við lestur bókarinnar eins og eftirfarandi dæmi sýnir (ég vona að ég verði ekki grillaður á hannesískan hátt fyrir að stela aðeins textanum hans Halldórs).

"Sá gyðingdómur sem birtist í stjórnarfyrirkomulagi Ísraels hins nýa aðhyllist umburðarlyndi í "hugmyndafræði" og er það ekki vonum fremur í þjóðfélagi þar sem saman kemur blóminn úr evrópskri skynsemi; en rétttrúuðum sabbatsvinum, er í Ísrael haldið í skefjum, svo þeir koma sér ekki við nema í hófi, en gegna þar sama hlutverki og rétttrúaðir menn annarsstaðar, og standa fyrir utan Jerúsalem á helgum og henda grjóti í bíla sem ekki halda hvíldardaginn heilagan."

og Halldór heldur áfram:

"Ódýr neysluvara og vélakostur handa almenníngi er því miður sterkara en hugsjónir. Þannig smáfalla menn fyrir kramvöru, jafnvel þótt þeir séu múhameðstrúar. En fyrir bragðið eru arabar þeir sem eftir urðu í Landinu helga, kanski álíka margir og allir íslendingar, komnir á hærra þjóðfélagsstig af sambúð við ísraelsmenn í hálfan annan áratug en obbinn af trúbræðrum þeirra hefur náð í ríkjum sjálfra sín á þeim 1300 árum sem liðin eru síðan spámaðurinn var á dögum".

Ætli rithöfundum mundi í dag líðast að skrifa svona texta?

Það er líka margt sem er gaman að lesa í bókinni og í kaflanum um rithöfunda eru margar stórskemmtilegar setningar:

"Sumir höfundar eru svo ákafir verkmenn að þeir fá aldrei ráðrúm til að hugsa sig um."

"Í miðri skáldsögu getur höfundurinn alt í einu byrjað ritgerð eða farið að halda ræðu um sjálfvalið efni, og aungan sakar, nema lesarinn verður þúngur yfir höfðinu, leggur frá sér bókina og fer að lúra"

"Þegar verið er að semja skáldsögu þá er holt að hafa símagjaldskrána til Falklandseya sér til leiðbeiningar. Óttinn við að þurfa að greiða undir hvert orð eftir gjaldskrá mundi forða mörgum höfundi frá málaleingíngum."

"Önnur tálsnara sem bíður leikritaskálds er sú þegar hann lætur eftir ástríðu sinni til að prédika móral yfir almenníngi í leikhúsinu."

"Vond skáld eru auðþekt á því að þau eru einlægt reiðubúin að rísa úr sæti og prédika fyrir öðrum vondum skáldum, - aðrir hlusta hvort sem er ekki á þau."

Þó ég sé ekki alltaf hrifin af skoðunum Halldórs er stórkostlegt að lesa textann sem hann skrifar. Ég fullyrði að enginn íslenskur rithöfundur, nema kannski höfundur Njálu, hefur svo stórkostlegt tangarhald á íslenskri tungu.

Ferming

Elín Helga dóttir hans Svenna mágs fermdist í dag. Frábær veisla eins og alltaf á Nesbalanum hjá Kötu og Svenna. Elín fékk margar fallegar gjafir eins og venja er þegar fólk fermist. Við Edda gáfum henni úr sem virtist falla henni vel. Hamingjuóskir og þakkir fyrir frábærar gestrisni. Veislan var líka eins konar kveðjupartý fyrir Svenna sem er á leiðinni í FBI skólann í Maryland, þann sama og Clarice Sterling hljóp í kringum í Silence of the Lambs. Hann verður í burtu fram í júní svo hann hvatti systur sína til dáða að þruma króanum í veröldina áður en hann flýgur af landi brott á föstudaginn. Við ætlum að reyna.

24. mar. 2007

Tvöfalt heilbrigðiskerfi

Þetta mál er og verður mjög umdeilt og ég sé ekki að lögum um einkarekstur verði breytt eftir kosningar - til þess verða Framsókn og Sjálfstæðisflokkur að leiða áfram. Samfylking mundi að öllum líkindum klofna og Vinstri grænir afþakka eins og venjulega.
Helsta röksemd andstæðinga er sú að allir eigi að eiga völ á bestu mögulegu heilbrigðisþjónustu burtséð frá efnahag. Þessi röksemd er málinu bara algerlega óviðkomandi því einkarekstur í heilbrigðiskerfinu þýðir ekki að ríkið eigi að slá slöku við í sinni þjónustu. Það þýðir bara að efnað fólk hefur valkost. Þessu svara andstæðingar með því að ef leyfður væri einkarekstur mundu allir bestu heilbrigðisstarfsmennirnir fara í einkageirann og þar erum við einmitt komin að kjarna málsins. Læknum og hjúkrunarfólki er sem sé ekki heimilt að selja sig hæstbjóðanda heldur eru þau bundin fjötrum meðalmennskunnar á LSH.
Ég hef reyndar lúmskan grun um að raunverulega ástæðan fyrir því að ráðamenn í landinu og þá sérstaklega heilbrigðisráðherrar seinni ára vilja ekki einkarekin sjúkrahús sé sú að þeir eru hræddir um að á fáeinum árum mundi einkageirinn afhjúpa hversu lélegt og illa rekið íslenska heilbrigðiskerfið raunverulega er. Það er ekki tilviljun að stór hluti af frægustu og bestu sjúkrahúsum heims er einkarekinn.

23. mar. 2007

Eiður á Old Trafford

Þetta líst mér vel á!!! Eiður hefur lengi verið á óskalista Fergusons og ég get alveg sagt ykkur það að ef af kaupunum verður þá munu bræðurnir Óli Gunnar og Eiður Smári Bergmann gera garðinn frægan í vítateigum veraldarinnar í framtíðinni. Góðar stundir.

Gettu betur!

Tvær magnaðar keppnir í Gettu betur í gær og í dag. MR-ingar tóku Verzlinga í bakaríið í gær en keppnin var reyndar frekar spennandi þangað til Verzlingarnir fóru á límingunum í lokin. Það eru auðvitað eins og alltaf erfitt að vera undir allan tímann og MR-ingar vörðu forystuna vel með því að vera rólegir og yfirvegaðir og leyfa Verzlingunum að fara snemma á bjölluna og taka sjensinn. Davíð er mikill botnlangahöfundur og því hafa mörg lið farið flatt á því að fara snemma á bjölluna. Í kvöld kepptu svo MK og MH og það var gríðarlega spennandi. MK var undir alla keppnina en náðu að jafna með því að svara þríþrautinni og eftir það var eins og MH-ingar gæfust bara upp. MK fékk 2 stig í bráðabana og komst í úrslitin en ég held að þeir eigi ekki roð í MR-ingana.
Annars finnst mér spurningarnar allt of léttar hjá Davíð en þær eru þó skemmtilega fjölbreyttar. Hann er líka skemmtilegur dómari og lifandi, kemur með skemmtilega brandara og kryddar þetta meira en margir forverar hans. Húmorinn er heldur ekki eins súr og hjá Stebba Páls sem þó er hrikalega fyndinn við réttar kringumstæður. Mér finnst Sigmar hins vegar ekki eins skemmtilegur og hann hefur áður verið. Hann er merkilega hallur undir annað liðið oft á tíðum og mér fannst hann t.d. frekar halda með MR-ingum í gær og MK-ingum í kvöld. Kannski er þetta bara einhver endaleysa í mér. Hvað sem því líður þá er Sigmar einhver alskemmtilegasti bloggari víðveraldarvefsins eins og kynnast má hér.

21. mar. 2007

Slæmir hlutir, gott fólk!

Ég horfði líka á Fyrstu skrefin áðan með Eddu. Þar var viðtal við unga foreldra sem eiga litla dóttur með krabbamein. Faðirinn heitir Haukur Daníel Hrafnsson og var bekkjarfélagi minn í Álftanesskóla og samtíða í Garðaskóla. Það var forvitnilegt að sjá jafnaldra sína hafa slíkt æðruleysi á lífið sem þau sýndu í viðtalinu. Fær mann til að velta því fyrir sér hvort maður á þetta til ef svo skelfilega vildi til að maður þyrfti að ganga í gegnum veikindi með barnið sitt. Yfirvofandi foreldrahlutverk fær mann til að hugsa um svona hluti.

Dapurleg dagskrárgerð

Ég horfði á Kastljósið í kvöld. Það verður að segjast eins og er að það hlýtur bara að vera gúrkutíð þessa dagana. Þegar dregnar eru upp tvær álíka ruglaðar stelpur og látnar rífast um það hvort launamunur kynjanna sé raunverulegur. Oddný Sturludóttir, sem hingað til hefur verið mest óþolandi kvenmaður landsins á eftir Kolbrúnu Halldórsdóttir var að rífast við jafnoka sinn sem ég held að heiti Heiðrún Lind Marteinsdóttir. Sú síðarnefnda bar þess greinileg merki að hafa marinerast í Heimdalli eða einhverjum álíka leiðinlegum félagsskap um nokkurt skeið. Það eina sem Heiðrún hafði að segja var að hún teldi launamuninn stórlega ýktan. Þá færði Oddný fram þá skoðun sína að hún teldi svo ekki vera. Hvorug þeirra gat fært fram áþreifanlegar sannanir fyrir skoðun sinni heldur voru þetta einungis þeirra eigin kenningar. Ég veit ekki með ykkur hin en ég er fullfær um að skálda upp mínar eigin kenningar um svona hluti en væri alveg til í að horfa á einhverja sem í alvöru hafa rannsakað þetta. Persónulega er mér drullusama hvað Heiðrúnu Lind og Oddný Sturludóttur finnst um launamun kynjanna eða launaleynd því hvoruga mundi ég kjósa. Helgi Seljan var síðan eins og þunnur piparsveinn á milli þeirra og reyndi að komast að. Greyið. Ég held að RÚV ætti bara að selj'ann.

4x minna?

Hver fréttamaðurinn á fætur öðrum talar orðið svona. Síðastur var Gissur Sigurðsson í fréttatímanum nú í kvöld. Hann sagði að tannlæknakostnaður ríkisins væri fjórum sinnum minni en hann var fyrir einhverjum árum síðan. Ég veit ekki með ykkur en þegar ég margfalda með fjórum þá stækka tölurnar sem ég margfalda. Ég nota yfirleitt tölur sem eru minni en einn ef ég þarf að minnka eitthvað. Hvað varð um fallegu íslenskuna að tala um fjórðung, þriðjung, helming o.s.frv.
Sama má segja með ruglinginn með helmingi meira og helmingi minna.

20. mar. 2007

Gagnkvæmur pirringur í heilbrigðiskerfinu

Það er gaman að vera unglæknir. Maður kynnist veröldinni á Landspítalanum sennilega betur en nokkur önnur heilbrigðisstétt því maður skiptir um lið einu sinni til tvisvar á ári en flestir hinir vinna mörg ár á sömu deild. Það versta við að vera unglæknir er það að maður er oft að láta aðgerðarleysi deildar- og/eða aðstoðarlækna annarra deilda fara í taugarnar á sér. Það sem ég meina er að maður er oft að skoða sjúklinga og finnst að hann tilheyri augljóslega einhverri annarri deild en manns eigin en deildarlæknir þeirrar deildar er ekki sammála. Síðan verður maður kannski deildarlæknir á þeirri deild seinna og áttar sig á hvílíkur bjáni maður var í fyrra skiptið. Svona er spítalalífið skrýtið. Það er hins vegar alltaf frekar skammlífur pirringurinn og sem betur fer skilja deildarlæknar hvorir aðra. Þegar allt kemur til alls eru þeir flestir aðeins sendiboðar sérfræðinganna og hafa lítil völd sjálfir. Það sem ég hins vegar á alltaf pínulítið erfitt með að sætta mig er hvað Íslendingar eru óþolinmóðir. Allt í einu ákveða þeir að verkurinn sem þeir hafa haft í bakinu/fingrinum/hendinni/fætinum í 30 ár sé bara búinn að vera of lengi og koma þá á slysadeildina seint að kvöldi. Þegar svona lagað gerist þá er biðin á slysó orðin of stutt. Það eru nefnilega margir sem halda því fram að það sé skynsamlegt að hafa bið á slysadeildum ekki minni en 2 klst fyrir minniháttar vandamál. Auðvitað þarf að sinna aðkallandi vandamálum fljótt og örugglega en kannski er bara ágætt að þeir sem geta beðið fái að bíða aðeins. Það er bara ekki í lagi að slysadeild á Háskólasjúkrahúsi, hvort sem það er á Íslandi eða úti í hinum stóra heimi verði einhvers konar bráðaheilsugæsla fyrir þá sem ekki nenna að bíða eftir tíma hjá heimilislækni. Það er nefnilega pínulítið þannig að við Íslendingar teljum okkur eiga rétt á heilsugæslu nákvæmlega hálftíma eftir að okkur dettur í hug að leita til læknis. Það er bara ekkert vit í svoleiðis heilbrigðisþjónustu að mínu mati.

"Ole Gunnar" lætur bíða eftir sér

Edda er enn hin rólegasta og lætur mig bíða óþreyjufullan eftir "ola gunnari". Kannski er það hann/hún sem lætur mig bíða en hvað um það - ég er orðinn óþolinmóður. Ég er bara til í að verða sá gamli. Ég hef haft heimasíðu í smíðum fyrir barnið en er ekki búinn að opna hana enn, það gerist þegar fæðingin er yfirstaðin. Margir lesenda Ljósgíslans fá líklega sms en hinir verða að bíða frétta og hlekks hér á síðunni til að berja myndir af erfingjanum augum. Eddu dreymdi reyndar að stúlka mundi fæðast á 85 ára afmæli ömmu Gústu sem er á morgun og við bíðum þess vegna spennt eftir því hvort sá draumur rætist. Við misstum reyndar af gullnu tækifæri fyrir 22 dögum síðan að eignast dreng þann 26. febrúar en þá varð hinn eini sanni Ole Gunnar 34 ára. Þá hefðu allar varnir sjálfsagt brostið hjá Eddu gagnvart grátbrosleika örlaganna en nú verð ég líklega að sætta mig við eitthvað hefðbundnara íslenskt nafn. Baráttan heldur samt áfram. Einu sinni United maður, alltaf United maður.

Enski bikarinn

Mínir menn mörðu Middlesbro í gær. Ronaldo kom enn einu sinni til bjargar. Hann fiskaði víti og skoraði svo úr því sjálfur. Þeir áttu reyndar skilið að vinna en leikurinn var jafn og hefði getað farið á hvorn veginn sem var. Chelsea tók svo Tottenham 2:1 á White Hart Lane sem var ekki eins svalt. Það hefði samt verið huggun harmi gegn ef þessi dauðadrukkni Tottenhammaður hefði hitt Lampard á trýnið en ekki slegið svona skelfilegt vindhögg. Það er dapurt að fá lífstíðarbann á völlinn fyrir vindhögg. Mér finnst að úr því hann fær bann þá eigi að hleypa honum í 10 mínútur í hringinn með Lampard og sjá hvort hann getur ekki skilað einu eða tveimur á skoltinn á honum. Það er nú bara sanngjarnt.

19. mar. 2007

Sáttmáli Framtíðarlandsins

Var að lesa sáttmála Framtíðarlandsins á netinu. Tiltölulega pólítískt orðaður sáttmáli sem ég held að flestir geti skrifað undir hvort sem þeir eru með eða á móti þeim virkjanaframkvæmdum sem í gangi eru nú. Það eru samt alls konar kverólantar sem þurfa að eyðileggja svona fallega hugmynd með skítkasti og leiðindum. Þarna á ég við vitleysinga úr báðum fylkingum. Í fljótu bragði fann ég engan sem var nógu vitlaus til að skrifa mótmæli á heimasíðu Framtíðarlandsins en fólk sem er fylgjandi skrifar alls kyns meiningar þarna. Nokkrar eru skynsamlegar og margar bara mjög góðar og málefnalegar, hvort sem maður er sammála þeim eða ekki. En svo eru aðrir sem skrifa bara tóma steypu.

Ég þoli t.d. ekki eftirtaldar klisjur sem fólk fátækt af rökum notar:
1) Ég styð þetta af því að ég er ábyrgur foreldri
Eru þá allir sem vilja virkja óábyrgir foreldrar? Er þá ekki fínt að grisja bara óhæfa foreldra út úr í næstu kosningum og gelda þá við útganginn sem ekki kjósa græn framboð. Það mundi eflaust spara heilmikið í félagslegum útgjöldum vegna barnaverndarmála í framtíðinni.
2) Ég styð þetta sem hugsandi manneskja
Ég er viss um að flestir sem styðja þessa framkvæmd gera það að yfirlögðu ráði. A.m.k. hef ég ekki hitt neinn sem er fylgjandi virkjunum af því bara. Hins vegar eru margir sem eru á móti af því bara. Þannig er það nú bara.
3) Við erum með landið að láni frá börnunum okkar (ÆLA)
Þvílík endaleysa. Við eigum landið núna og eigum að ráðstafa því eins og skynsamlegast er akkúrat núna. Þannig er líklegast að við verðum börnunum okkar að gagni. Ef við hugsuðum alltaf þannig að allar ákvarðanir sem við tökum séu fyrir fósturstjúphálfsystkin barnabarna barnabarnabarnanna okkar þá yrði okkur aldrei neitt úr verki.

En af hverju notar fólk svona endaleysu þegar það er svo auðvelt að færa sannfærandi rök fyrir því að maður vilji ekki virkja? Við eyðum svo miklum tíma í að sannfæra alla aðra um að við höfum rétt fyrir okkur að við missum sjónar á raunverulegum tilgangi umræðunnar. Við verðum að ganga úr skugga um að við og allir aðrir sem taka afstöðu í þessum málum geri það á grundvelli þekkingar á málinu. Ætli mótmælendum sé til dæmis ljóst að stærsti hluti lónanna í virkjunum í neðri Þjórsá eru í farvegi sem þegar er til staðar? Ætli fylgjendum virkjunnarinnar sé ljóst að af framkvæmdunum hlýst gífurlegt rask á búsældarlegum býlum í Gnúpverjahreppi og örugglega austanmegin árinnar líka? Ætli mótmælendum sé ljóst að með rangfærslum í málflutningi sínum hafa þeir flæmt fleiri frá málstaðnum en unnist hafa? Þegar allt kemur til alls held ég að við verðum að taka afstöðu út frá okkar eigin sannfæringu en ekki láta hræða okkur með einhverjum bölsýnisspám fylkinganna tveggja. Ísland mun ekki sökkva í sjó þó við virkjum aðeins og iðnaður á Íslandi mun ekki leggjast af þó við virkjum ekki. Hættum þessu bulli og ræðum málin af einhverri skynsemi.

18. mar. 2007

Árninn og Hallinn þrítugir

Þessir tveir heiðursmenn fylltu þriðja tuginn um helgina. Halli í gær og Árni í dag. Til hamingju með það drengir.

Elna og Fannar eignast dóttur

Elna og Fannar vinir okkar Eddu eignuðust dóttur í morgunn. Til hamingju með það kæru vinir.

MUFC

Góð helgi í boltanum. Mínir menn unnu, en það gerðu Chelseamenn líka. Arsenal tapaði og Liverpool gerði markalaust jafntefli. Það er uppskrift að góðri helgi í boltanum. Það vantaði bara að Chelsea tapaði svo hún væri fullkomin.

Góð helgi

Við Edda vorum fyrir austan um helgina. Fórum á föstudag ásamt mömmu og Andreasi. Fyrir voru pabbi og Stúdent. Við fórum öll í tvöfalt fertugsafmæli á laugardaginn hjá Lilju og Guðna á Brúnum. Það var rosalegt hádegisverðarhlaðborð með öllu tilheyrandi. Í gærkvöldi voru svo Eiki og Guðný í mat hjá okkur. Sváfum út í morgunn og komum heim undir kvöld. Frábær helgi.

13. mar. 2007

Uppskrift að Bolognese a la Gilli fyrir áhugasama

Kannski ég taki einn Ragnar á þetta og skelli inn einni uppskrift hérna og athugi viðbrögðin.

Efni

500 g Nautahakk (helst ungnautahakk)
2 meðalstórir laukar
6 meðalstórar gulrætur
1/4 rauð paprika
4-5 rif hvítlaukur
2 msk rjómaostur (má líka vera rjómi)
1 dós niðursoðnir tómatar (hvort sem er hakkaðir eða heilir)
1-2 litlar dósir tómatþykkni (purre)
2 nautakraftsteningar eða nautasoð
Bragðbætt með basilikum og svörtum pipar
Jafnað með hveiti ef þarf og gott að bragðbæta með rauðvínsdreitli

Aðferð
Nautahakkið er brúnað í matarolíu í potti eða á pönnu í nokkrar mínútur. Síðan er lauknum, paprikunni og gulrótunum blandað saman við. Mér finnst best að hafa það gróft saxað því bitarnir rýrna alltaf við suðuna. Látið malla í smástund en síðan bæti ég niðursoðnum tómötum og u.þ.b. hálfri dós af vatni út í. Svo súputeningar og loks tómatþykkni. Bragðbætt með hvítlauk, svörtum pipar og basilikum. Mér finnst gott að krydda mikið en það er auðvitað smekksatriði. Lokahnykkurinn er síðan tvær matskeiðar af rjómaosti og kannski smá rauðvín ef það er spari. Ég setti lengi vel matreiðslurjóma en einhvern tíma átti ég ekki rjóma og setti þá rjómaost sem ég átti og mér finnst það gefa betri fyllingu. Síðan sýð ég þetta niður í 40-60 mínútur, því lengur því betra en ef maður er í tímaþröng þá er hægt að jafna með smávegis af hveiti. Síðan ber ég þetta fram með soðnu spaghetti. Auðvitað er best að búa til sitt eigið pasta en ég er ekki enn orðinn svo mikill atvinnumaður. Kannski maður læri það í fæðingarorlofinu á næsta ári. Það er líka mikilvægt að hafa nýbakað brauð og parmesanost, helst ferskan en þegar maður er með lítið heimili er hann fljótur að skemmast svo ég er yfirleitt með hann þurrkaðan nema þegar mikið liggur við. Svo er auðvitað best að hafa eitthvað gott rauðvín. Casillero del Diablo er í miklu uppáhaldi hjá mér en þetta er auðvitað smekksatriði.
Verði ykkur að góðu!

Matarboð

Ég fór beint úr vinnunni að sækja Andreas bróðurson minn og við fórum á rúntinn. Hann er með æfingaleyfi og ég er að reyna að kenna honum að keyra. Hann er úrvalsnemandi en kennarinn er nú sennilega síðri, skítsmeykur og taugaveiklaður. Hann er orðinn ansi sleipur ökumaður og á eftir að rúlla upp þessu bílprófi þegar þar að kemur. Eftir bíltúrinn komum við hérna heim og ég matreiddi Bolognese a la Gilli. Uppskriftin er reyndar upphaflega frá mömmu en ég hef breytt og lagfært að mínu skapi þannig að varla er hægt að tala um sama réttinn lengur. Mamma og pabbi komu síðan í mat og við feðgarnir sátum lengi fram eftir að ræða hesta- og Hamarsheiðarmál á meðan Edda skrapp í bíó með Möggu systur sinni eftir að hafa skutlað mömmu og Andreasi heim. Frábært kvöld.

11. mar. 2007

Hörkuleikir í bikarnum

Manchester og Middlesborough spiluðu fínan leik í gær. Mínir menn áttu fyrri hálfleikinn en misstu einbeitinguna í lok fyrri hálfleiks og létu Boro jafna. Síðan mættu þeir sofandi í seinni hálfleik og það var ekki liðin mínúta af seinni hálfleik þegar Boateng kom Boro yfir. Það var hrikalega dapurt. En mínir menn voru í stuði og náðu að jafna eftir að víti var dæmt á Boateng. Það var fínt að jafna en það hefði verið betra að vinna þetta í gær í staðinn fyrir að þurfa annan leik. En þrennudraumurinn lifir enn svo maður getur ekki verið annað en kátur. Áfram Manchester United.

Viðburðaríkur dagur

Þegar ég vaknaði í gær var það við hringingu frá pabba. Það voru óskemmtilegar fréttir. Afi hafði verið fluttur mjög veikur upp á sjúkrahús og hann vildi láta mig vita. Einhvern veginn var ég ekki viðbúinn því að hann yrði veikur því hann er alltaf svo hraustur. En hann er í góðum höndum og ég verð að takast á við það erfiða hlutverk að vera aðstandandi og sætta mig við þá vel þekktu staðreynd að aðstandendur hafa yfirleitt ekki dómgreind til að stýra meðferð ættingja sinna. Ég reyni að vera bara túlkur fyrir áhyggjufulla fjölskylduna. Þetta er erfitt en silfurrefurinn er svo hraustur fyrir að ég er sæmilega bjartsýnn á framhaldið, nú er bara að bíða þolinmóður og láta tímann græða sárin.

Eftir að ég hafði kíkt á afa og fylgst með uppvinnslunni fór ég aðeins til tengdapabba og hjálpaði honum að hreinsa til í gamla herberginu hennar Eddu, bera rúm niður í kjallara o.fl.

Í gærkvöldi fór ég síðan í tvær veislur. Fyrst fór ég til Gissurar sem var að halda upp á sveinsprófið í rafeindavirkjun og babuð okkur til veislu heima hjá sér. Frábærar veitingar og skemmtilegt fólk. Eftir að hafa staldrað þar við rúma tvo tíma fórum við til Ingólfs og Áslaugar sem voru með Big Lebowski partý í tilefni af þrítugsafmæli Ingólfs, innflutningi í nýja íbúð og Íslandsmeistaratitil Ingólfs um síðustu helgi. Þar var líka mjög gaman. Eftir það skutluðum við Ingvari niður í bæ en á leiðinni heim lentum við í rassíu lögreglunnar við Perluna. Edda var látin blása og að sjálfsögðu var hún ekki búin að drekka neitt. Mér finnst þetta frábært framtak hjá löggunni og vildi að þeir gerðu þetta oftar.

8. mar. 2007

Lítill Bergmann fæddur í Ameríku

Við fengum þær gleðifregnir frá Ameríku áðan að fæddur væri heilbrigður og kátur drengur. Hann fékk nafnið Þorri Heiðar Bergmann. Fyrir þá sem ekki vita eru foreldrarnir Óttar bróðir og Björk konan hans. Til hamingju Ameríkanar.

GLORY GLORY MAN UNITED!!!!

Mínir menn hafa tryggt sig áfram í meistaradeildinni eftir frábært mark frá Henrik Larsson. Ágætis kveðjugjöf frá honum á Old Trafford. Það var samt leiðinlegt að sjá Arsenal detta út. Mér finnst alltaf gaman þegar mörg ensk lið fara áfram þó mér sé meinilla við Arsenal og Chelsea. Ég hefði reyndar frekar viljað losna við Chelsea. Þoli ekki Mourinho.

7. mar. 2007

Poolarar áfram en Barca heim!

Fylgdist með þessum leikjum á netinu í gær. Ég er hundfúll yfir því að Barca komst ekki áfram en úr því að þeir þurftu að detta út var ágætt enskt lið skildi skella þeim. Ég var líka svekktur að Chelsea skyldi koma til baka á móti Porto. Þegar ég kíkti fyrst var staðan 0-1 fyrir Porto og ég hélt að þeir mundu taka þetta. Svo sló Valencia Inter út á mörkum skoruðum á útivelli. Sá leikur endaði með slagsmálum og einhver eftirmál hljóta að verða af þeim hasar. Roma kom svo á óvart og sigraði Lyon örugglega í Frakklandi. Þannig eru tvö ensk lið, eitt spænskt og eitt ítalskt komin áfram. Ég á von á því Arsenal, United, AC Milan og Bayern fari áfram í kvöld. Þá verða það 4 ensk lið í átta liða úrslitum, tvö ítölsk, eitt spænskt og eitt þýskt. Það sem gæti kannski helst breyst í þessu er að Arsenal fái á sig mark á móti PSV og verði í vandræðum með að skora 3 mörk en sennilega klára þeir það.

5. mar. 2007

Pólítíkin

Er ég einn um það eða eru stjórnmálin hérna orðin hundleiðinleg. Ég verð reyndar að viðurkenna að það hefur lifnað aðeins yfir þessu eftir að Siv kom með hótanir í garð Sjálfstæðisflokksins og Sigurður Kári kvaðst vilja sjá hana segja af sér vegna ummælanna.
Sorglegasta útspilið hlýtur þó að vera yfirlýsing stjórnarandstöðuflokkanna í dag að þeir muni styðja þessa tillögu Framsóknarmanna komi hún til atkvæða á Alþingi. Þetta er náttúrlega alveg ótrúlegt lýðskrum því það er nokkuð augljóst að það verður gríðarlega erfitt að mynda stjórn eftir kosningar án þátttöku sjálfstæðismanna og því nokkuð klárt að ekkert stjórnarsamstarf mun standast að þessi stjórnarskrárbreyting verði samþykkt á tveimur þingum eins og mig minnir að sé nauðsynlegt. Það er því algjörlega án nokkurrar skuldbindingar sem þessir menn lofa þessu. Eftir kosningar geta þeir bara kennt Sjálfstæðismönnum um að vilja þetta ekki.
Auk þess hafa svo lögfróðir menn siðustu daga keppst við að benda á það að þjóð geti ekki átt neitt. Nú ætla ég svo sem ekki að fella dóm um það hvort þeir hafi rétt fyrir sér en mér finnst þessi hugmynd svolítið barnaleg.
Mér finnst hins vegar fullkomlega eðlilegt að einkaaðilar eigi ekki eignaraðild að kvótanum heldur sé hann á formi leigu eða hreinlega boðinn út. Ég meina er ekki eðlilegt að svona lagað sé boðið út.

Skrýtið!

Mér finnst skrýtið þegar fólk leggur ómálga kornabörnum sínum orð í munn á heimasíðu barnsins. Væri ekki miklu eðlilegra að skrifa bara undir eigin nafni þar til barnið er farið að hafa vit á því hvað það vill segja umheiminum. Kannski breytist viðhorfið eitthvað þegar Strækerinn mætir, hver veit?
Aðeins betur að meðgöngunni. Það gengur allt ljómandi vel. Edda er að velta fyrir sér að þrauka þessa viku í vinnu og hætta svo eftir föstudaginn. Ég held að það væri mjög skynsamlegt því hún er orðinn ansi þreytt og lúin eftir vinnudaginn þó hann sé aðeins fjórar klukkustundir. Hún er hins vegar svo mikil keppnismanneskja að hún getur ekki almennilega sætt sig við að hætta snemma.
Það er margir búnir að panta fæðinguna á afmælisdaginn sinn því það eru gríðarlega margir sem eiga afmæli í fjögurra vikna glugganum kringum ásettan dag. Þar eru t.d. Vala Jóns, Helga Steinþórs og Júlía Rósa, Ingibjörg föðursystir mín, Lilja Lofts, amma Gústa, Mamma, Halldór Benjamín, Andreas yngri og Gissur. Þannig er alveg óhemjumikið af hrútum í kringum okkur.

Guðmundur tapaði!!

Ingólfur S. Ingólfsson, oftar kallaður Golli eða Ozon, varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik ásamt Kjartani Briem í gær. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þeir lögðu Guðmund og Matthías Stephensen. Golli er Hannesarmaður, læknir og góður vinur. Þessi sigur er merkilegur fyrir margt, ekki síst það að Ingólfur er nýorðinn löggilt gamalmenni því hann varð þrítugur 1. mars sl. Fyrirsögn færslunnar fylgir svolítil nostalgía því þegar við Golli vorum í menntó þá vildi svo til að hann sigraði eitthvað mót hérna heima sem var bara ekki í boði þá því Guðmundur Stephensen vann hverja einustu dollu sem var í boði. Það fór þó svo að lokum að Ingólfi tókst að leggja hann í einum úrslitaleiknum en fyrirsögnin í Íþróttablaði Morgunblaðsins daginn eftir var einmitt svona yfir hálfa opnuna. Það var sem sagt ekki frétt að Ingólfur væri Íslandsmeistari heldur var auðvitað stórfréttin að Guðmundur skildi tapa leik. Við stríddum Ingólfi mikið á því að fréttamaðurinn léti þetta hljóma eins og Guðmundur hefði tapað fyrir blindum og útlimalausum flóðheststarfi en ekki frambærilegum pingpongleikmanni. Honum var ekki skemmt.

Takmarkalaus fegurð

Allir sem hafa gaman að því sem er fallegt og gott ættu að skoða hlekkinn í fyrirsögninni.

2. mar. 2007

Nokkuð mögnuð aðsókn

Setti nýja teljarann upp fyrir viku og það hafa komu nákvæmlega 200 manns fyrstu vikuna. Ekki slæmt það. Sum ykkar hafa auðvitað komið oftar en einu sinni. Takk fyrir komuna, velkomin aftur.

Virkjanamál

Þið sem hafið lesið færslurnar mínar upp á síðkastið eruð kannski svolítið ringluð og óviss hvort ég er með eða á móti. Það er vegna þess að ég er bara ekki búinn að mynda mér almennilega skoðun. Hálft í hvoru er ég fylgjandi því að menn skoði virkjanamál af yfirvegun og ef Núpsvirkjun er raunverulega besti kosturinn held ég að uppistöðulón i mynni Þjórsárdals þurfi ekki að vera svo hrikalegt. Á hinn bóginn finnst mér að það hljóti að verða sjónarsviptir af fallegum fossum eins og Búða og Urriðafossi. Það verður hins vegar að segjast að þessir fossar hafa ekki beinlínis verið aðgengilegir fyrir almenning, Urriðafoss er kannski skárri en það er töluvert ferðalag að komast að Búða, a.m.k. að vestanverðu. Ég þekki reyndar ekki hvernig það er að austanverðu. Ég get bara ekki ákveðið mig, stundum er ég á móti og stundum með. Oftast þegar ég er með er ég nýbúinn að hlusta á þá sem eru á móti og öfugt. Mér er sagt að ég sé svolítið svona ósammála týpa.