21. maí 2007
Fram 0 - 2 Víkingur
Mínir menn lögðu Framara í Laugardalnum í gær og eru taplausir og ekki búnir að fá á sig mark í fyrstu tveimur umferðunum. Ágætis árangur það og gott að leggja sitt að mörkum svo Fram fari aftur þangað sem þeir eiga heima sem er í neðri deildunum. Vonandi lukkast líka þetta árið að senda KR, Val eða Fylki niður svo mínir menn fái þann stall sem þeim ber - að vera eina Reykjavíkurliðið í efstu deild.
1 ummæli:
Það fellur bara eitt lið á þessu tímabili. Valur verður meistari og falla því ekki. En það væri fínt að losna við kr eða fram.
Skrifa ummæli