20. mar. 2007

Enski bikarinn

Mínir menn mörðu Middlesbro í gær. Ronaldo kom enn einu sinni til bjargar. Hann fiskaði víti og skoraði svo úr því sjálfur. Þeir áttu reyndar skilið að vinna en leikurinn var jafn og hefði getað farið á hvorn veginn sem var. Chelsea tók svo Tottenham 2:1 á White Hart Lane sem var ekki eins svalt. Það hefði samt verið huggun harmi gegn ef þessi dauðadrukkni Tottenhammaður hefði hitt Lampard á trýnið en ekki slegið svona skelfilegt vindhögg. Það er dapurt að fá lífstíðarbann á völlinn fyrir vindhögg. Mér finnst að úr því hann fær bann þá eigi að hleypa honum í 10 mínútur í hringinn með Lampard og sjá hvort hann getur ekki skilað einu eða tveimur á skoltinn á honum. Það er nú bara sanngjarnt.

Engin ummæli: