17. maí 2009
Vinnan
Ég finn gríðarlegan mun á vinnuálaginu eftir að ég flutti mig aftur á Ríkisspítalann en það er bara jákvætt. Maður lærir gríðarlega mikið á stuttum tíma með því að einbeita sér svona að einu undirfagi í einu. Vaktirnar eru líka mun skemmtilegri því maður hefur eitthvað að gera. Við fáum flókin tilfelli frá öllum Noregi og sem dæmi má nefna að tveir af þeim sem ég svæfði í gærkvöldi komu með löngu sjúkraflugi. Annar frá Þrándheimi og hinn alla leið norðan úr Finnmörk. Það er áhugavert að sjá hvað skurðlæknarnir eru orðnir sérhæfðir og snjallir á sínu sviði. Heima er einfaldlega ekki nógu mikið af svona flóknum tilfellum til að menn geti orðið svona klárir. Það gerir auðvitað svæfinguna miklu þægilegri líka þegar skurðlæknirinn er snjall. Aðgerðirnar verða styttri, blæðingar minni og meðferðin eftir aðgerðina mun einfaldari. Hins vegar kemur næstum á hverri einustu vakt einhver sjúklingur á gjörgæsluna með einhvern gríðarlega sjaldgæfan sjúkdóm og maður getur alveg eytt hálfri vaktinni í að lesa sig til um tilfellin og meðferð sjúkdómanna. Gríðarlega frjótt umhverfi fyrir gjörgæslunörd eins og mig.
Boltinn
Það má segja að uppskera minna liða hafi verið góð um helgina. Manchester United, Barcelona og Inter Milan tryggðu sér öll meistaratitla í gær. Ég er gríðarlega ánægður með það. Nú er bara að njóta þess að halda með báðum liðunum í úrslitum Meistaradeildarinnar og geta varla verið svekktur með niðurstöðuna. Viðurkenni þó að ég mundi helst kjósa að United tæki þetta en er alls ekki viss um að það verði auðvelt að stoppa litla kvikindið hann Messi. Hann er ekki hægt.
Eurovision
Ég var að vinna í gærkvöldi og nótt og sá því ekki keppnina nema glefsur hér og þar. Horfði svo á Alexander og Jóhönnu og stigagjöfina á netinu i morgunn. Glæsileg frammistaða hjá þeim báðum og svo var stigagjöfin auðvitað aldrei spennandi. Þvílíkt burst. Jóhanna gerði eins vel og íslenskur efnahagur þoldi og getur verið virkilega stolt af frábærri frammistöðu. Ég verð að viðurkenna að ég lét hana fara í taugarnar á mér síðustu árin og fannst hún hálfgerð prímadonna án þess að hafa unnið fyrir því. Nú hefur hún þroskast bæði andlega og ekki síst hvað varðar sönginn. Það er auðvelt að hrífast af hæglátu og lítillátu fasinu og frábærum sönghæfileikunum. Hún er langt kominn með að verða mesta díva landsins. Norðmenn voru gríðarlega hrifnir af henni og fólk hefur verið að tala um hana í vinnunni alla vikuna svo það kom mér ekki sérlega á óvart að Norðmenn gæfu okkur mörg stig. Nú eru bara nokkrar mínútur í að Alexander mæti á Gardermoen og það verður spennandi að sjá hvernig móttökurnar verða hér.
6. maí 2009
Vinnan
Nú er ég byrjaður aftur á Ríkisspítalanum hér í Osló eftir þriggja mánaða heimsókn á Radiumsjúkrahúsinu sem er sjúkrahús fyrir framsækna og flókna krabbameinsmeðferð hér í Noregi. Þar svæfði ég sjúklinga fyrir aðgerðir sem mér skilst að séu ekki framkvæmdar víða annars staðar í heiminum. Gríðarlega áhugavert en ekki beinlínis einhverjar nýjungar svæfingalega séð aðrar en ég fékk tækifæri til að bæta hæfileikana í ómstýrðum ástungum á æðum. Vann mikið með ungum þýskum sérfræðingi sem er nágranni okkar hér úti í Bærum sem er nokkuð snjall með græjurnar og hefur kennt mér heilmikið um ómtækni.
Nú er ég hins vegar kominn á hjartasvæfinguna. Var svolítið heppinn að fá inn þar strax því venjulega er þetta einn af síðustu stöðunum sem menn fara á áður en þeir klára sérnámið en síðastliðna mánuði hefur verið frekar lítil nýliðun á deildinni þannig að við nýliðarnir fáum nokkurn veginn það sem okkur langar til. Svo eru vaktirnar skemmtilegri og lærdómsríkari.
Nú er ég hins vegar kominn á hjartasvæfinguna. Var svolítið heppinn að fá inn þar strax því venjulega er þetta einn af síðustu stöðunum sem menn fara á áður en þeir klára sérnámið en síðastliðna mánuði hefur verið frekar lítil nýliðun á deildinni þannig að við nýliðarnir fáum nokkurn veginn það sem okkur langar til. Svo eru vaktirnar skemmtilegri og lærdómsríkari.
Pólítík
Ekki finnst mér rauðgræna vorið lofa góðu. Flokkarnir ná ekki samkomulagi um nokkurn hlut og bjóða okkur upp á ömurlegan málefnapakka og enn síðri aðgerðapakka. Ætlum við í Evrópusambandið eða ekki? Ætlum við fyrningarleiðina eða ekki? Á að byggja Landspítala eða ekki? Á að bjarga heimilinum eða ekki? Hvað í veröldinni vitum við um hvað stjórnin ætlar að gera? Ögmundur segist ætla að vera heilbrigðisráðherra í tólf ár. Guð hjálpi íslensku heilbrigðiskerfi ef sú hótun verður að veruleika.
Boltinn
Ég er í skýjunum eftir að mínir menn niðurlægðu Arsenal á Emirates í gærkvöldi. Það er auðvitað sárt að heyra það fyrir Arsenalmenn en reynsluleysið kostaði þá sætið í úrslitum. Mér finnst reyndar svekkjandi að sjá þennan Gibbs sem einhvern blóraböggul. Færið sem Park fékk var þröngt og Almunia átti að gera mikið betur að mínu mati. Og hvar var restin af vörninni? Bara á jogginu einhvers staðar við vítateigslínu. Aukaspyrnan var svo glæsileg en góður markvörður á að verja aukaspyrnu þar sem boltinn kemur í augsýn 25 m frá marki. Þriðja markið var auðvitað glæsileg skyndisókn sem erfitt er að verjast þegar liðið sækir stíft. Vítaspyrnudómurinn fannst mér harður en kannski ásættanlegur en linkindin við Adebayor fyrir sólatæklinguna rétt á eftir í engu samræmi við hörkuna í teignum. Að öðru leyti fannst mér dómarinn standa sig vel í þessum leik. Ég verð samt að vera sammála Roy Keane að ég sakna gömlu góðu daganna þegar leikir þessara liða buðu upp á slagsmál, rauð spjöld, dramatík, pizzukast og fleira. Those where the days!!!