1. jún. 2009
Óþolandi?
Ég er mjög einfaldur maður. Ég ber virðingu fyrir fólki sem notar frítímann sinn til að hjálpa þeim sem eiga í vandræðum. Að stofna Facebook-síðu sem hefur það markmið að hjálpa einhverjum að berjast gegn órétti er ekki bara tímasóun fyrir mann sjálfan heldur grípur um sig einhvers konar allsherjar múgsefjun og allir sem eyða frítímanum á Facebook (í stað þess að hjálpa einhverjum t.d.) stökkva á tækifærið til að friða samviskuna og joina grúppuna. Tálsýnin, að maður hafi tekið þátt í að stöðva barnaklám, hjálpa fótalausri stúlku í Sómalíu að kaupa nýja af Össuri eða eitthvað þaðan af undarlegra, friðþægir samviskuna í nokkrar auka Facebookklukkustundir. Ég þoli þetta ekki. Ég þoli ekki keðjubréf og þetta eru ekkert annað en einhver helvítis keðjubréf. Ég verð pirraður á þessari truflun, minni sjálfan mig á að ég hjálpa fólki með því að mæta í vinnuna og styðja nokkur handvalin góðgerðarsamtök, og geng síðan berserksgang í að hunsa allt helvítis bullið sem rignir yfir mann á Facebook. Hefur fólk ekkert skárra að gera?
Stieg Larsson
Var að ljúka við síðustu bókina í þríleiknum um Lisbeth Salander, Mikael Blomkvist, Eriku Berger og félaga. Þvílíkur spennusagnahöfundur. Frábærar bækur sem ég get mælt með. Það er samt merkilegt eftir því sem maður les lengra hvað er mikið til í því að Lisbeth og Mikael eigi fyrirmyndir sínar í Línu Langsokk og Kalla Blomkvist. Snilldarleg persónusköpun og spenna frá upphafi til enda. Góð leið til að læra nýtt tungumál. Hefur hjálpað mér mikið við að læra hversdagsnorsku.
Kreppan
Ég veit ekki með ykkur hin en ég sé inn á milli alveg ótrúlega jákvæðar fréttir af heiman sem fá litla athygli. Veitti því t.d. enginn eftirtekt að skíðasvæðin í Bláfjöllum voru skv. fréttum full næstum alla daga sem þau voru opin. Fjölskyldufólk flykktist á skíði sem aldrei fyrr. Um helgina var M12 dagur í Húsdýragarðinum og hátt í 20 þúsund manns létu sjá sig. Fjölskyldur. Gæti verið að kreppan geri það að verkum að fólk gefi sér meiri tíma til að vera með sínum nánustu og sinna börnunum sínum? Ég held að þegar öll kurl koma til grafar þá muni kreppan hafa jákvæð áhrif á samfélagsmyndina heima til langtíma litið en það verður erfitt og því miður verða margir fyrir óþægindum sem bera litla ábyrgð á því hvernig fór fyrir fjármálakerfinu. Það er þó ekki hægt að líta fram hjá því að fólk verður að bera ábyrgð á þeim áhættum sem það tók sjálft. Hjá því verður ekki komist.
Fótbolti
Djöfulsins vonbrigði var frammistaða Manchester United í úrslitum Meistaradeildarinnar. Þeir voru svo lélegir að ég var ekki hið minnsta svekktur yfir tapinu. Barcelona var eina liðið á vellinum löngum stundum svo það var erfitt annað en sætta sig við að þeir hirtu dolluna. Ég er nú svo sem gallharður Barcamaður líka en það er ekkert lið sem kemur í stað MUFC hjá mér. Það jákvæða er að Ferguson er örugglega alveg brjál og hættir ekki fyrr en hann hefur bætt fyrir þetta.
Að heiman er ánægjulegt að sjá hvað deildin fer skemmtilega af stað, spútniklið, óvænt úrslit og nýjar hetjur. Alltaf gaman að því. Vona bara að mínir menn hristi af sér slenið í 1. deildinni og fari að taka stig á reglubundinn hátt.
Að heiman er ánægjulegt að sjá hvað deildin fer skemmtilega af stað, spútniklið, óvænt úrslit og nýjar hetjur. Alltaf gaman að því. Vona bara að mínir menn hristi af sér slenið í 1. deildinni og fari að taka stig á reglubundinn hátt.