31. okt. 2005

Helgin...
...var rosaleg. Var reyndar rólegur á föstudag og horfði á ræmu með Eddu, Möggu og Magga. Tek umfjöllun hérna að neðan. Á laugardaginn var síðan nóg að gera. Fór í ræktina, svo að hjálpa tengdapabba með einhverja skápa. Síðan að versla og svo kíkti ég aðeins á settið. Seinnipartinn kíktum við Edda til Írisar og Halldórs og við Halldór horfðum á leikinn saman og grétum. Ömurlegt. Um kvöldið var svo árshátið knattspyrnufélagsins Duffa sem tókst frábærlega. Nánar um það hér að neðan. Sunnudagurinn fór síðan að mestu í þynnku en ég kíkti þó í fjölskylduboð í tilefni af 85 ára afmæli afa sem á reyndar afmæli í dag eins og Svenni mágur. Til hamingju með það báðir tveir.

Uppskeruhátíðin
Jóhann Sveinn var óumdeildur maður kvöldsins á uppskeruhátíðinni og hirti verðlaun sem besti leikmaðurinn, besti varnarmaðurinn, besti sturtufélaginn auk þess sem hann fékk verðlaun fyrir flest D í sumar en fyrir þá sem ekki vita voru gefin 0-4D fyrir frammistöðu í leikjum í sumar. Maggi Ella var dauðafærabani ársins annað árið í röð en margir öttu við hann kappi, þar með talinn undirritaður. Maggi Gísla var valinn síbrotamaður Duffa, Eiki var hrakfallabálkur ársins (eftir harða keppni við mig) og Gauti var besti nýliðinn. Grétar og Biggi komust í hundrað leikja klúbbinn en fyrir í honum var Gestur stjóri. Einhver fleiri verðlaun voru veitt en ég man þau ekki í svipinn.

Alexander
Tók þessa mynd á föstudaginn. Bjóst svo sem ekki við miklu enda fékk hún skelfilega dóma á sínum tíma. Hún var samt verri en ég bjóst við. Þegar maður tekur mynd um mesta herstjóra sögunnar býst maður við mynd um stríð en myndin snýst eiginlega meira um kynhneigð Alexanders og undarlegar ákvarðanir hans í einkamálum sínum. Myndina vantar tilfinnanlega alla orku og heldur sjaldan dampi. Ef þið ætlið að sjá hana er ráðlegt að fá hana bara lánaða á netinu eða eitthvað. Það er alla vega ekki þess virði að borga leigu fyrir hana.

Prison Break
Shitturinn titturinn hvað ég er orðinn háður þessum þáttum. Átta þættir búnir og þeir verða sífellt meira spennandi. Fylgist með þegar og ef þeir koma hingað.

Prófkjörið
Hef markvisst verið að kynna mér frambjóðendurna í prófkjörinu hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Verð ég nú að segja að ekki er um auðugan garð að gresja. Ég er nú reyndar búinn að finna nokkra sem ég gæti hugsað mér að setja á listann en það eru margir sem ég er búinn að útiloka. Það verður erfitt að finna níu manns til að setja á listann en ætli síðustu þrjú til fjögur sætin verði ekki bara uppfyllingarefni.

Vinnan
Ég er að fíla mig mjög vel í vinnunni. Svæfingar og gjörgæsla eiga áhuga minn allan þessa dagana. Ég ætla að láta aðra um að dæma frammistöðuna en ég skammast mín alla vega ekki eftir hverja einustu vakt fyrir hana. Manni er líka treyst fyrir sífellt meiru þannig að maður tekur sennilega einhverjum framförum. Sjáum hvort mér tekst að halda vinnunni út ráðninguna. Þá er ég alla vega skárri en ekki neitt.

27. okt. 2005

Leikir gærdagsins
Gaman að sjá að Chelsky datt út úr bikarnum eftir yfirlýsingar þess efnis í gær að þeir ætluðu að taka allar dollurnar fjórar í ár. Stundum er bara betra að halda kjafti og láta verkin tala. Mínir menn fóru hins vegar létt með neðrideildarliðið Barnet eins og maður reyndar bjóst við. Ferguson stillti upp algeru B-liði og stóðu menn sig almennt vel miðað við aldur og fyrri störf. Rossi heldur áfram að skora þegar hann fær tækifæri í liðinu. Richardson stendur sig líka vel svo það er bjart yfir framtíðinni hjá okkur United-mönnum. Annars held ég að Chelsea gæti alveg unnið þessar þrjár keppnir sem þeir hanga enn inni í því þeir eru með ótrúlega sterkt lið. Vörnin er traust og þeir eru farnir að raða inn mörkum svo ég held að það sé engin örvænting yfirvofandi hjá þeim. Þeir taka í það minnsta deildina létt og við sjáum svo til með Evrópukeppnina og bikarinn.

Prófkjörið
Hef verið að kynna mér betur frambjóðendurna í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík aðeins í morgunn. Er nú ekki búinn að lesa síðurnar þeirra spjalda á milli en það eru nú ekki margir sem heilla mann upp úr skónum. Það er hins vegar einn Hannes í framboði og auðvitað setur maður hann ofarlega á lista í prófkjörinu. Þetta er Davíð Ólafur Ingimarsson sem er úrvalsnáungi og raunar er mér hulin ráðgáta hvernig hann getur talist til fylkingar Bolla Thoroddsen í Heimdalli. Ég ætla þó ekki að erfa það við Davíð að hann hafi stutt Bolla og set hann því í það sæti sem hann biður um. Hannesar er vel hvar sem þeir koma sér fyrir. Áfram Davíð!!!

Bolli
Bolli ætlar sér í 5. sætið held ég en það er ekki fræðilegur möguleiki að ég setji hann á minn lista. Maður sem dregur svo mikla neikvæða umfjöllun að sér í kringum kosningar í Heimdalli verður held ég aldrei frambærilegur borgarfulltrúi. Hann fær sko ekki kjörgengi fyrir tilstilli míns atkvæðis og vona ég lesendur góðir að þið farið að mínu fordæmi.

Maggi Gylfa þjálfar Víking
Ég er ánægður með hvernig Maggi Gylfa hefur byrjað sem þjálfari. Ekkert múður hjá Magnúsi. Hann hefur sent þeim Grétari, Stefáni og Viktori þau skilaboð að menn sem eru samningsbundnir Víkingi og mikilvægir hlekkir í liðinu muni ekki verða lánaðir eða seldir nema fyrir ásættanlega fjárhæð og þá til útlanda. Þetta þýðir að Viktor og Grétar munu að óbreyttu spila með okkur næsta sumar og verður það gífurlegur liðsstyrkur. Áfram Víkingur!!!

26. okt. 2005

Feitir vs. reykingamenn
Edda kom hérna heim um daginn og hafði verið að horfa á heimildamyndina um McDonald's gaurinn og var að segja mér frá snilldarlegri athugasemd aðalsöguhetjunnar í þeirri mynd. Við hikum ekki við að biðja fólk að drulla sér með sígarettuna sína. Við gerum vinum og ættingjum lífið leitt um leið og það kveikir sér í rettu. En hvað með hina sem geta varla gengið sökum fitu. Þeir byrja að troða í sig í fermingarveislunum og það eina sem fólk gerir er að snúa sér undan og hugsa: "Greyið". Af hverju er svona auðvelt að ráðast á reykingamenn en erfitt að segja fitubollunum til syndanna. Mér finnst þetta góð pæling.

Andríki
Þeir sögðu í grófum dráttum það sem ég var búinn að skrifa en hætti við að birta. En eins og ég sagði hér í gær þá fannst mér, í þessu tilfelli, tilgangurinn helga meðalið. Það verður líka að taka það fram að stór hluti þeirra kvenna sem arkaði niður Skólavörðustíginn á mánudag fær nákvæmlega sömu laun og karlmenn í sömu stöðu. Kennarar, leikskólakennarar, hjúkrunarfræðingar, læknar og svo mætti lengi telja. Launahækkanir ráðast í þessum störfum af námi, starfsaldri, lífaldri sums staðar og fleiri sambærilegum hlutum. Þetta er greypt í kjarasamninga og lítið sem ekkert svigrúm til að mismuna fólki á grundvelli kyns eða nokkurs annars sem yfirmenn kynnu að hafa áhuga á að gera.
En böggull fylgir skammrifi því það er heldur ekki hægt að verðlauna fólk fyrir framúrskarandi árangur í vinnu. Það er bara ekki í boði. Þó ég væri afburða starfskraftur sem sýndi meiri afköst, meiri hæfileika, meiri metnað, betri mætingu og væri bara á allan hátt betri en starfsbróðir/-systir minn/mín þá hefði yfirmaður okkar ekki nokkurn möguleika á að verðlauna mig sérstaklega, launalega séð. Ég er ekki viss um að það sé endilega gott heldur, ekki einu sinni fyrir stelpurnar sem oft á tíðum eru framúrskarandi læknar.

25. okt. 2005

Sælinú!
Ég var í gær búinn að skrifa langan pistil um kosti og galla þessa kvennafrídags en þó aðallega gallana. Ég ákvað af virðingu við móður mína og verðandi eiginkonu að endurskoða pistilinn áður en ég birti hann og í kjölfarið hætti ég við að birta hann. Stundum er það þannig að tilgangurinn helgar meðalið og ég held að konur hafi rétt sloppið fyrir horn í þetta skiptið.

Boltinn
Mínir menn eru ekki alveg að standa sig þessa daganna. Tvö jafntefli í röð á heimavelli eru ekki ávísun á meistaratitla þegar vorar. Annars er ég ánægður með ýmislegt í leik minna manna en mér finnst eins og það vanti breidd og kannski svolítið hungur í liðið. Þeir leika eitthvað svo áhugalausan fótbolta þessa dagana.

Olnbogaskot
Talandi um fótbolta þá er ég duglegur að mæta á æfingar. Í gær var ég á einni slíkri og var ekki ánægður á eftir. Þannig er það að einn félagi minn fór í sama skallaboltann og ég nema hvað honum hefur verið kennt að baða olnbogunum út í loftið af einhverjum miður gáfuðum knattspyrnuþjálfara í yngri flokkum. Hann hitti mig svona hressilega í augað að ég fékk risastórt glóðarauga hægra megin og sé illa út úr auganu í dag sökum bólgu. Ég hef ákveðna skoðun á því þegar mann verja sig svona með olnbogunum. Mér finnst að það eigi að banna það, hengja alla þá þjálfara sem kenna mönnum þetta og gefa mönnum beint rautt fyrir í leikjum ef olnbogar þeirra hitta höfuð andstæðingana. Þá finnst mér einu gilda hvort menn gefa olnbogaskotið viljandi eða óviljandi (eins og var raunin í gær því hann vissi ekki af mér). Það er alveg á hreinu að menn setja olnbogana á undan sér í ákveðnum tilgangi og með vilja og þó þeir ætli sér kannski ekki endilega að hitta mótherjana með þeim þá er það óneitanlega alltaf hættan að það gerist. Þú þarft að vera alvarlega greindarskertur eða þá heilaþveginn til að stökkva með olnbogana í höfuðhæð á móti öðrum manni því þetta getur verið lífshættulegt eins og dæmin sanna.
Menn afsaka sig yfirleitt með einhverjum fáránlegum afsökunum eins og "það gera þetta allir" eða "þú stökkst bara á olnbogann á mér" en báðar eru slakar. Þetta er svona eins og að keyra á 100 km hraða í íbúðargötu og segja svo bara að barnið hafi hlaupið á bílinn þegar þú ert búinn að keyra yfir það. Menn taka áhættu og verða að taka afleiðingunum af því.
Hitt er svo annað mál að þessi félagi minn er langt frá því að vera einhver heiladauður hálfviti. Þetta er virkilega viðkunnalegur og klár náungi sem er aldrei annað en ljúfmennið uppmálað utanvallar. Þetta er bara týpískt dæmi um þann heilaþvott sem ungir fótboltamenn mega þola af forheimskum fótboltaþjálfurum alls staðar í heiminum. Strákum og stelpum er kennt að þetta sé eina leiðin til að fara upp í skallabolta. Staðreyndin er reyndar sú að það er ekkert mál að fara upp í og jafnvel vinna skallabolta án hjálpar olnboganna. Ég fer aldrei með þá á undan og hef örugglega unnið hlutfallslega mjög marga miðað við hæð og fyrri störf. Þetta er miklu meira spurning um stökkkraft og tímasetningar en einhverja helvítis olnbogavörn.

Hamingjuóskir
Haffi og Hrefna voru að trúlofa sig á dögunum. Ljós-Gíslinn óskar þeim innilega til hamingju með áfangann og vonar að lífið brosi við þeim hér eftir sem hingað til.

23. okt. 2005

Erfið helgi!
Ég hef ekki verið sérlega duglegur að blogga um helgina enda aðallega unnið og sofið. Reyni að bæta úr bloggleysinu í vikunni.

20. okt. 2005

Salka Valka
Fór í gær með Eddu, Möggu Pálu og tengdamömmu á Sölku Völku í Borgarleikhúsið. Þetta var bara nokkuð skemmtilegt. Almennt fannst mér uppsetningin skemmtileg, sviðið opið og lýsingin hjálpaði mikið til við að marka skil í tíma. Mér finnst hins vegar hljómburðurinn ótrúlega slakur og maður sá að gestir áttu oft í vandræðum með að greina orðaskil, sérstaklega þegar margir voru að tala.
Hvað leikarana varðar þá voru nokkrir sem voru góðir. Ilmur átti frábæra frammistöðu sem Salka og er svo sannarlega að stimpla sig inn sem ein mest spennandi leikkonan hérlendis að mínu mati. Sveinn Geirsson var góður sem Arnaldur og Halldóra Geirharðsdóttir var ágæt sem móðir Sölku en mér fannst Ellert A. Ingimundarson eiginlega bestur en hann lék Steinþór. Laddi fór einnig á kostum í nokkrum hlutverkum og var sérlega góður sem Jóakim, einn af kærustum móður Sölku.
Annars mæli ég eindregið með því að þið skellið ykkur að sjá stykkið, það er klárlega þess virði.

Boltinn
Mínir menn hér heima búnir að ráða Magnús Gylfason sem þjálfara. Ég veit ekki hvort ég er sáttur við það en maður verður víst að sætta sig við hann næstu 2 árin miðað við fréttirnar því samningurinn er óuppsegjanlegur af beggja hálfu í þessi tvö ár. Hann er hins vegar harður á því að Viktor Bjarki og Grétar Sigfinnur komi heim eftir að hafa verið í láni hjá Fylki og Val svo það er í það minnsta jákvætt. Sjáum til hvað hann gerir karlinn.

Kranabyltan
Ég er þessa vikuna á Gjörgæslunni og kranabyltan fræga blasir við okkur ofan af 6. hæð. Það var nú enginn smáhvellur þegar hann hlunkaðist niður og maður hélt bara að eitthvað hefði hrunið í gólfið uppi á deild í fyrstu. En það voru einhverjir þarna sem höfðu séð það sem gerðist svo maður var fljótur að átta sig. Í dag eru þeir búnir að vera að rembast eitthvað við að lyfta krananum og þegar ég fór heim voru þeir að búa sig undir að rétta kranabílinn við. Fyrr í dag færðu þeir kranaarminn, sem verið var að lyfta þegar slysið varð, í burtu í nokkrum pörtum og virtist það ganga vel. Líklega verður allt búið í fyrramálið þegar ég kem í vinnuna.

Sheringham er snillingur
þessa frábæru frétt á www.tribalfootball.com. Hann kann sko að koma fyrir sig orði þó hann sé orðinn gamall og hrumur.

Andríki
Góð grein á Andríki í dag um ökuleyfi atvinnubílstjóra. Kíkið þangað.

18. okt. 2005

Boltinn
Mínir menn fóru illa að ráði sínu í kvöld og náðu aðeins markalausu jafntefli gegn Lille á heimavelli í meistaradeildinni. Auk þess meiddist Giggs og Scholes fékk rautt þannig að hópurinn er aldeilis tekinn að þynnast. Vonandi geta ungu strákarnir staðið undir væntingum og hjálpað liðinu í gegnum öll þessi meiðsli á næstu vikum. Annars hef ég fremur litlar áhyggjur af þessu. Ég held að við munum taka Lille í Frakklandi og klára þennan riðil með stæl. Sjáum hvað setur.
Meiri áhyggjur hef ég hins vegar af mínum mönnum hér heima því Víkingar hafa enn ekki ráðið til sín þjálfara fyrir næsta sumar sem er sérlega slæmt þegar maður hugsar til þess að félagaskiptaglugginn hefur þegar opnað. Vonandi fer stjórnin að klára þetta sem fyrst og ég vona persónulega að Þorvaldur Örlygsson taki þetta að sér.

Heilsuátakið mikla
Þetta gengur enn sem komið er hörkuvel. Ég er þegar farinn að grennast og hlaupaformið kemur rólega. Ég er líka farinn að þyngja í lyftingunum og mestu harðsperrurnar farnar úr magavöðvunum. Ég hef haldið dampi sl. daga og er búinn að fara á hverjum degi sl. 8 daga í Laugar auk þess sem ég hef spilað fótbolta 3 af þessum dögum líka. Það magnaðasta er þó það að ég ekkert farinn að láta mér leiðast þetta. Læt ykkur vita hvernig gengur.

Settið að skipta um postulín
Kamarinn hjá settinu er fokheldur þessa dagana. Þau rifu bókstaflega allt út og ætla að skipta um heila klabbið. Pabbi er búinn að vera með sveittan skallann sl. daga við að rífa út og svo kom píparinn og lagði í þetta í gær. Svo kom flísalagningamaðurinn í dag og allt er komið á fulla ferð við að múra og pússa og ég veit ekki hvað og hvað. Páfinn hefur boðað vígsluathöfn með aðstoð Ljós-Gíslans að viku liðinni. Ef kostnaðar- og framkvæmdaáætlanir standast verður jafnvel boðið upp á þriggja skáka einvígi.

17. okt. 2005

Fiskur er hollur og góður
Á þessu staglaðist mamma alla mína æsku. Ég mótmælti því svo sem ekki að hann væri hollur enda hafði ég ekki mikið vit á því. En góður var hann sko ekki. Ég fussaði og sveiaði í hvert skipti sem fiskur var á boðstólnum. Mamma þreyttist hins vegar aldrei á því að hafa fisk svo ég fékk hann a.m.k. einu sinni í viku allan minn uppvöxt. Smátt og smátt lærði ég að meta fiskinn að verðleikum og eftir að ég flutti að heiman hef ég saknað þess sífellt meira að fá ekki fisk reglulega. Nú er svo komið að ég elska humar og skötusel og mér finnst steiktur fiskur ennþá alveg rosalega góður með soðnum kartöflum og kokkteilsósu. Ég er farinn að panta mér fisk á veitingastöðum en slíkt hefði ég talið ávísun á geðveiki fyrir nokkrum árum.
Nú síðustu dagana hef ég verið að velta fyrir mér framtíð Reykjavíkur og hvernig væri hægt að tryggja framtíð hennar. Þá mundi ég eftir orðum mömmu gömlu og komst að þeirri niðurstöðu að Reykjavík þyrfti bæði hollan og góðan fisk!!!! Og viti menn! Jú!! Gísli Marteinn er fiskur. Þess vegna held ég að hann sé framtíðarkostur Reykvíkinga.
En að öllu rugli slepptu hef ég ákveðið að styðja hann í prófkjörinu. Það þarf einfaldlega unga og ferska vinda inn í pólítíkina. Gísli er eini raunhæfi kosturinn eins og er. Áfram nafni.

Vinnan
Ég er farinn að finna mig vel í vinnunni finnst mér. Ég hlakka til að fara í vinnuna á morgnana og mér finnst gaman á vöktunum. Kannski er ég bara búinn að finna mína hillu eða kannski fæ ég leið á þessu eftir nokkra mánuði. Alla vega er ég alsæll núna og vona að svo verði áfram.

Afmælisbörn
Í gær áttu afmæli tveir snillingar. Sigrún mágkona mín, eiginkona Jóns Braga bróður, varð 25 í 13da skipti og Sveinn Fannar Sveinsson bróðursonur Eddu varð 7 ára. Til hamingju með daginn bæði.

16. okt. 2005

Nýjir tenglar
Var að bæta við skemmtilegum tenglum. Annars vegar er heimasíðan hans Magga sem er kærasti Möggu systur hennar Eddu. Helvíti gott blogg og skemmtileg síða. Hinn linkurinn er neðar í fótbolta og fréttalinkunum og tengill í mjög skemmtilegan tippleik sem þessi sami Maggi stendur fyrir á netinu. Nú er að byrja nýtt tímabil á morgunn eða hinn held ég svo það er um að gera að skrá sig. Látið mig endilega vita ef ykkur finnst ég eiga að linka á ykkur með því að skrifa komment við þessa færslu.
Boltinn
Mínir menn kláruðu þetta í gær. Gott að sjá Rossi koma inn og standa sig. Ég held þessi strákur verði nýjasta stjarnan til að koma upp úr unglingastarfinu og slá í gegn með aðalliðinu. Sá mörk úr æfingaleik gegn Peterborough í sumar. Þar átti þessi leikur frábæra takta, skoraði glæsilegt mark og lagði upp annað fyrir Ruud eftir glæsilegan einleik. Það er líka ánægjulegt að einhver annar en Ruud og Rooney skori mörk í deildinni. United hefur skorað 13 mörk í deildinnil, Ruud hefur skorað 8, Rooney 4 og Rossi 1. Vonandi fer þetta að detta inn hjá öðrum, Giggs og Scholes eru nú vanir að skora sitthvor 5-10 og fleiri leikmenn skora alltaf eitt eða tvö.
Þegar ég skrifaði hérna síðast var hálfleikur í leikjum gærdagsins og Chelsea var undir en Arsenal að gera jafntefli. Chelseamenn lifnuðu við í seinni hálfleik eftir að Eiður kom inn á en Arsenal tapaði og hefur því aðeins náð 1 stigi af 12 mögulegum á útivelli í vetur. Einhvern veginn á ég miklu auðveldara með að sætta mig við velgengni Chelsea en Arsenal. Kannski er það vegna Eiðs eða þá vegna þess að tengdafjölskyldan eins og hún leggur sig heldur með Arsenal sem og pabbi og Halldór bróðir hans. Þessir Arsenalaðdáendur eru svo hrikalega montnir þegar vel gengur, næstum jafnslæmir og KR-ingar.
En mínir menn eru að standa sig sæmilega í keppninni um annað sætið á Englandi og fara í það minnsta betur af stað en Arsenal sem líklega verða þeirra stærsti keppinautur. Kannski hefur brotthvarf Vieira dregið úr þeim vígtennurnar svo þeir verða slakir í vetur. Vona það. Síðan er líka gaman að sjá hvað Liverpool hefur farið illa af stað. Skora lítið og gera mörg jafntefli. Tóku reyndar stig af mínum mönnum á Anfield en við tökum þá í bakaríið á heimavelli eftir áramótin.

Aðsóknin að glæðast
Gamlir aðdáendur eru greinilega farnir að uppgötva endurholdgun Ljós-Gíslans því teljarinn telur 10-15 manns á dag og það fer vaxandi. Látið endilega álit ykkar í ljós á kommentakerfinu. Það er gaman að heyra hvað ykkur finnst.

Kraftlaus Orkuveita
Ég átti svolítið bágt með mig í morgunn niðri í Laugum. Þannig er því háttað að Orkuveita Reykjavíkur hefur gefið einhvern drykkjarbrunn þarna í lyftingasalinn sem er svo sem góðra gjalda vert. Hann er hins vegar svo máttlaus að bunan drífur varla upp úr rörinu. Endurspeglar algerlega máttleysið í stjórnun Orkuveitunnar enda eru Framsóknarmenn þar við stjórnvölinn. Hafið þið einhvern tíma spáð í hvað nafnið á Framsóknarflokknum er skelfilega mikið rangnefni. Sennilega mesti afturhaldsflokkurinn hér sl. 100 ár.

15. okt. 2005

Heilsuátak
Ég er byrjaður í heljarinnar heilsuátaki. Það var eiginlega þrennt sem rak mig af stað. Í fyrsta lagi er ég alls ekki í nógu góðu formi, í öðru lagi hefur Edda verið ófeimin við að benda mér á björgunarhringinn minn og í þriðja lagi hefur öxlin verið í hraðri afturför sl. vikur og það varð að lokum til þess að ég dreif mig í Laugar. Keypti mér hálfs árs kort á þriðjudag og er búinn að fara á hverjum degi síðan. Stefnan er að lyfta mánudaga, miðvikudaga og föstudaga með Sverri og Kobba félögum mínum. Síðan ætla ég helst að fara tvo til þrjá aðra daga vikunnar að hlaupa til að þjálfa þolið og brenna fitu. Síðan er ég í fótbolta þrisvar í viku svo að meðaltali ætti ég að fara 7-8x í viku í einhverja hreyfingu þannig að ég ætti að vera snöggur að koma mér í form. Ég leyfi ykkur að fylgjast með hvernig gengur.

Boltinn
Mínir menn voru rétt í þessu að skora fyrsta mark leiksins gegn Sunderland og mér er nokkuð sama þó það verði það síðasta einnig. Væri fínt að ná 3 stigum á útivelli í dag. Það var hinn frábæri Wayne Rooney sem sett'ann. Hann er allur að koma til og hefur staðið sig vel í haust þrátt fyrir að vera á köflum helst til óstýrilátur.
Síðan er Chelsea undir í hálfleik gegn Bolton og Arsenal að gera jafntefli við West Brom á útivelli. Það væri ekki leiðinlegt ef það yrðu lyktir þeirra leikja. Sjáum hvað setur.

Góð heimsókn
Mér finnst rosalega gaman að heimsækja fólk en jafnvel enn meira gaman að fá vini í heimsókn til mín. Í gærkvöldi litu góðir vinir við og það var meiriháttar notaleg kvöldstund, sátum og spjölluðum langt fram yfir miðnætti. Í kvöld ætlum við skötuhjúin síðan að grilla humar á teini og kíkja svo aðeins til vina okkar í netta konnastemmingu og rólegheit. Ég hlakka heilmikið til.

Landsfundurinn
Hef því miður ekki haft almennileg tök á því að fylgjast með gangi mála þar en sá inntakið í ræðu Davíðs og fannst hann skemmtilega herskár að skilnaði. Það er greinilega heilmikil orka eftir í kallinum og ég er að mörgu leyti sammála því sem hann sagði þótt hann hafi á köflum verið fullherskár í tali. Fyrir utan þetta hef ég því miður lítið fylgst með og ætla því ekkert að vera að gaspra hér út í loftið.

14. okt. 2005

Ógeðslegt mál
Ég fékk nú bara gæsahúð þegar ég las tímarit Morgunblaðsins um helgina. Greinin um systurnar fimm sem voru misnotaðar á hinn hroðalegasta hátt sem maður getur hugsað sér. Það gerist ekki mikið ógeðslegra en að selja aðgang að kynlífi með börnunum sínum. Það sem mér finnst standa upp úr er hins vegar það hve ótrúlega margt getur farið úrskeiðis í svona málum. Það er ljóst að yfirvöld hafa á öllum stigum misstigið sig á einn eða annan hátt í þessu máli og grátlegast er að lesa dóm Hæstaréttar frá 1978 þar sem maðurinn er sýknaður þrátt fyrir mjög knýjandi gögn um hið gagnstæða og framburð félaga hans í brotinu.

Það hefur hins vegar komið mér á óvart hvað sumir sem ábyrgir voru fyrir velferð barna í Hafnarfirði á þessum tíma, eru óhræddir við að axla sína ábyrgð og viðurkenna mistök. Ég held hins vegar miðað við umfjöllunina að það sé ljóst að árangur í svona málum næst aldrei nema með samstarfi við fórnarlömb hins kærða og þá er auðvitað grundvallaratriði að meint fórnarlömb séu óhrædd að tala sínu máli. Ekki er líklegt að það takist nema löggæsluaðilar fái rýmri heimildir til að halda meintum gerendum frá hugsanlegum fórnarlömbum. Það er náttúrlega ekki vænlegt til árangurs í máli sem tekur kannski vikur eða mánuði að rannsaka að þolendur og gerendur búi í sama húsi. Ég held að þetta sé eitt af grundvallarmistökunum varðandi þetta mál. Það verður að aðskilja fórnarlömb og meinta gerendur á meðan á rannsókn málsins stendur, í þessu tilfelli, fjarlægja börnin af heimilinu.

Ég verð nú samt að segja að mér finnst varhugavert að skella allri skuldinni á yfirvöld í þessu máli. Mér finnst t.d. að eldri systurnar verði að axla þá ábyrgð að hafa ekki kært föðurinn eftir að þær yfirgáfu heimilið og komið þannig í veg fyrir að yngri systurnar hlytu sömu örlög. Móðirin sem verður vitni að þessu öllu saman ber auðvitað líka ákveðna ábyrgð þó hún sé raunverulega fórnarlamb líka. Það stendur í lögum að þeim, sem grunar að börn séu beitt ofbeldi eða óhóflegu valdi, beri að tilkynna slíkt til barnaverndaryfirvalda. Gerðu þær það? Ég veit það ekki?

Svo eru alltaf þeir sem skýla sér á bakvið þá afsökun að það hafi verið búið að tilkynna þetta þegar þeir fréttu af þessu en svo hefði bara ekkert gerst. Það er léleg afsökun. Hverjum borgara ber að tilkynna hvert það tilfelli vanrækslu eða ofbeldis gegn barni sem hann verður vitni að. Það er jafnvel nóg að um grun sé að ræða. Skv. barnaverndarlögum ber okkur skylda til að tilkynna slíkt. Það er ljóst að margir hafi brugðist þessari skyldu sinni í þessu máli; móðir stúlknanna, eldri systurnar, nágrannar, lögregla, kennarar, skólahjúkrunarfræðingar, vinir, fjölskyldur foreldranna og fleiri. Síðan hafa yfirvöld auðvitað brugðist í þau skipti sem þetta var tilkynnt.

En þegar öllu er á botninn hvolft er þetta eitt ógeðslegasta mál sem komið hefur upp á yfirborðið hér svo ég muni og í sjálfselsku sinni óskar maður þess næstum að hafa ekki lesið greinina til enda. En það mikilvæga við þetta skref þeirra systra er að umræðan fer í gang og vonandi sjáum við fleiri tilkynningar um meint ofbeldi gegn börnum í framtíðinni. Öðruvísi náum við ekki árangri. Það er ekki nóg að standa á Austurvelli með skrýtna húfu og mótmælaspjald og heimta harðari refsingar og minni sönnunarbyrði en líta svo undan þegar nágranninn tuskar barnið sitt til út í búð. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað gerist í laumi hjá fólki sem lemur börnin sín á almannafæri. Árangurinn næst ef allir leggjast á eitt um að vera ábyrgir og tilkynna í hvert skipti sem þeir sjá börn beitt ofbeldi.

11. okt. 2005

Nokkrar góðar ræmur!!
Ég er búinn að vera duglegur að glápa á skjáinn um helgina. Eins og sjá má í fyrri færslu var föstudaguskvöldið lagt undir spil en á laugardaginn tókum við skötuhjúin því rólega og horfðum (lesist: ég horfði á meðan Edda svaf) á tvær misgóðar myndir á RÚV. Fyrst horfði ég á The Human Stain með Anthony Hopkins, Nicole Kidman, Gary Sinise, Ed Harris og fleirum. Sá þessa mynd aldrei í bíó eins og ég ætlaði mér og var sannast sagna búinn að steingleyma henni en stundum borgar sig að horfa á RÚV. Í stuttu máli fannst mér hún hreint afbragð. Frábær leikur í mynd sem tekur á mikilvægum málefnum dagsins í dag og raunar sl. 50 ára. Hopkins fer á kostum og hin eru mjög góð líka. Mæli með henni. Á eftir henni kom svo ótrúlega skelfileg mynd með Seann William Scott sem heitir Stark Raving Mad. Þvílík endaleysa en það má þó segja að plottið var ágætt. Mér hefur alltaf þótt He Said/She Said formið vont en það er þegar persónur í myndinni tala við myndavélina og þar með áhorfandann á meðan bakrunnurinn stendur kyrr. Afspyrnu slök leið til að koma söguþræðinum og boðskapnum á framfæri. Lou Diamond Phillips lék líka í henni en það er nánast ávísun á slaka mynd. Ég hef nú svarið þess dýran eið að sjá aldrei mynd þar sem hann leikur stórt hlutverk aftur.
Á sunnudagskvöldið fór ég síðan á ræmuleigu og tók tvær ágætar myndir. Fyrst sá ég Beyond the Sea með Kevin Spacey og fleirum en hún fjallar um ævi dægurlagasöngvarans og frekjudallsins Bobby Darin. Spacey fer á kostum í hlutverki þessa snillings sem gat sungið eins og engill þrátt fyrir alvarlegan hjartasjúkdóm. Mæli með henni fyrir aðdáendur góðrar tónlistar, sérstaklega ef þið hafið gaman af djasstónlist. Hin myndin er Something's Gotta Give með Jack Nicholson og Diane Keaton ásamt fleirum. Þetta er ágætis feelgood mynd sem þau tvö halda uppi með hreint ágætum leik. Ekki kannski beinlínis snilldarverk en alveg þess virði að taka sem gamla ef ekkert kemur upp í hugann.

Boltinn
Unglingalandsliðið tók Svía í kennslustund áðan en ég efast um að það sé fyrirboði um gott gengi aðallandsliðsins gegn frændum okkar á morgunn. Ég er svolítið hræddur um að þeir verði gernaðir en maður veit auðvitað aldrei. Það verður gaman að sjá hvernig vængbrotið lið okkar stendur sig en ég hef trú á að þeir muni tapa stórt. Mín spá er 5-1 fyrir Svía. Sjáum til.

Prófkjörið
Nú er framboðsfrestur útrunninn fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og ég var svolítið hissa að sjá ekki fleiri frambærilega frambjóðendur í þessum slag. Það verður nú frekar auðvelt að raða á þennan lista held ég en við skulum sjá til hvernig menn standa sig áður en ég legg seðilinn í kassann. Kannski eiga einhverjir lítt þekktir sterka innkomu í umræðuna.

Sameiningarfloppið
Ég verð að taka undir með þeim sem gagnrýna þetta sameiningarrugl allt saman. Það sér auðvitað hver maður í hendi sér að það getur skilað meiriháttar hagræðingu fyrir sveitarfélög að sameinast í stærri einingar en sú hagræðing er löngu horfin út í veður og vind með endalausri fjársóun Félagsmálaráðuneytisins við að halda síendurteknar kosningar í hreppum sem margoft hafa sýnt nær einróma andstöðu gegn sameiningu. Mér finnst mál að linni og fólk fái að hafa sjálft að því frumkvæði að sameinast. Það er kannski rétt að hafa sið Englendinga og setja lög sem skikka íbúa hreppa sem ekki vilja sameinast til að gifta börn sín börnum úr öðrum nálægum hreppum sem hafa neitað að sameinast og búa svo í þeim þriðja. Eftir u.þ.b. 80 ár verða þá allir meira og minna ættaðir frá öllum þessum hreppum og geta þá kannski sætt sig við sameiningu. Svo væri hægt að veita t.d. bæjarstjóranum á Akureyri "prima nocte" í öllum litlu hreppunum. Það mundi kannski verða til þess að menn mundu sameinast um það á Eyjafjarðarsvæðinu að koma honum frá völdum og þá er samvinnan komin í gang og hægt að notfæra sér meðbyrinn til að sameina allt heila klabbið. Hvað segið þið um þetta?

8. okt. 2005

Súsanna segir loks eitthvað af viti
Mæli með að þið lesið bakþanka Súsönnu Svavarsdóttur á baksíðu Fréttablaðsins í gær. Ég held þetta sé í fyrsta sinn sem ég er sammála henni. Ég er nú samt þeirrar skoðunar ólíkt mörgum að óbreyttir lögreglumenn eigi ekki að vera sýnilega vopnaðir skotvopnum enn sem komið er. Mér segir svo hugur að ástæðan fyrir hægri skotvopnaþróun hins almenna krimma hér á landi sé einmitt sú að lögreglan er lítt vopnuð. Sennilega á þetta eftir að breytast næstu árin en ég held að lögreglan ætti að fara hægt í sakirnar með að bera skotvopn dags daglega. Þessi íhaldsemi byggist þó algerlega á því að lögreglan búi yfir sterkri, vel vopnaðri sérsveit sem er ávallt í viðbragðsstöðu ef einhver klikkhaus ákveður að ógna lögreglumönnum eða samborgurum sínum með hættulegum vopnum. Því held ég að auknar fjárveitingar til sérsveitarinnar séu hið besta mál.

Pólland-Ísland
Ég er ánægður með hvað Íslendingar stóðu uppi í hárinu á Pólverjum þrátt fyrir að þeir hafi tapað að lokum. Það er gott að vita til þess að menn hafi kjark til að sækja á útivelli gegn sterkari andstæðingum. Menn ná aldrei framúrskarandi árangri nema þeir standi frammi fyrir erfiðum verkefnum af reisn, leggi sig alla fram og reyni að sigrast á líkunum. Þannig getur maður alltaf sagt að maður hafi gert sitt besta og aðeins betur en það ef það er það sem þarf. (skelfilegur texti handboltalandsliðsins fyrir B-keppnina forðum daga). Ég er líka ánægður með hvað þessir ungu strákar eru að koma sterkir upp. Kári Árnason og Hannes Sigurðsson ásamt Gunnari Heiðari Þorvaldssyni eru líklega efnilegustu landsliðsmennirnir okkar. Kannski er vonin um sæti á HM í nánustu framtíð ekki svo fjarlæg þegar við eigum svo marga efnilega stráka. Verst er þó hve margir þeirra eru að upplagi sóknarmenn. Við eigum núna a.m.k. fjóra mjög frambærilega framherja (Eið, Heiðar, Gunnar og Hannes) auk þess sem nokkrir ungir og upprennandi hafa samið við stór lið í Evrópu sl. misseri. Við eigum líka nokkra sæmilega miðjumenn og síðan eru auðvitað ágætis varnarmenn og frábær markvörður. Þetta er bara að verða nokkuð frambærilegt. Kannski maður fari að splæsa sér í íslenska landsliðsbúninginn.
Áfram Ísland

Víkingur í djúpum
Það er ekki gaman að vera Víkingsaðdáandi þessa dagana. Þjálfaramál meistaraflokks karla í upplausn eftir að Siggi Jóns sagði upp og menn eru greinilega alvarlega að spá í Loga Ólafsson eða Magnús Gylfason. Mér finnst nú frekar skrýtið að menn ætli að ráða tvo menn sem hefur mistekist svo rosalega sl. mánuði. Magnús stóð sig reyndar vel með Eyjamenn í fyrra og Logi færði Víkingum þeirra eina Íslandsmeistaratitil í fótbolta hingað til en báðir eru þeir á niðurleið. Ég vil helst sjá Eyjólf Sverrisson eða Þorvald Örlygsson í þessu. Svo væri líka gaman að reyna við Heimi Guðjónsson en hann er reyndar nýbúinn að skrifa undir samning við FH um að gerast aðstoðarþjálfari meistaraflokks ef ég man rétt. Sjáum hvað setur.
Síðan er hálft 2. flokksliðið komið í bann. Þar af einn í næstum 9 mánuði eftir að þeir veittust að dómara eftir að síðasta leik tímabilsins lauk. 6 leikmenn fengu rautt spjald eftir að venjulegum leiktíma lauk og 1 í leiknum. Sá áttundi var síðan kominn með 6 gul á tímabilinu og fær eins leiks bann vegna þess. Skammarlegt að menn láti dómara, þó þeir séu lélegir, fara svona hrikalega í sig. Skilst reyndar á þeim sem sáu leikinn að hann hafi verið skelfilegur en það afsakar ekki að hann sé sleginn eftir leik. Vonandi læra þessir strákar að hafa stjórn á sér í framtíðinni svo þeir geti hjálpað mínum mönnum að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni að ári. Þar eigum við heima.

Heiðar og Þorgeir eiga greinilega góðar konur
Garðabæjargengið spilaði í gær Axis&Allies og stýrði Gunni og Hjölli öxulveldunum en ég, Heiðar og Þorgeir stýrðum "allies". Tvísýnt spil lengi vel en úrslitin réðust sennilega í fyrstu umferðunum þegar Þorgeir (USA) og Heiðar (UK) áttu við fáránlega fötlun á teningunum að etja. Þeir misstu nær allan flotann sinn í tveimur fyrstu umferðunum án þess að gera öxulveldunum teljandi skráveifu og það þýddi að ég stóð einn með Rússana í stríði við Japan og Þýskaland á meginlandinu. Uppbyggingin var síðan erfið og kom of seint og Hjölli náði af mér Moskvu í fimmtu umferð og þar með var spilið búið þrátt fyrir að París væri fallin í okkar hendur aftur. Þjóðverjar voru einfaldlega allt of sterkir til þess að eitthvað vit væri í að halda áfram. Gunni stýrði líka Japan af miklu öryggi og ég held að það hafi verið viturlegt af honum að rjúfa friðhelgi Rússlands eins snemma og hann gerði. Rússar hafa einfaldlega ekki bolmagn í að berjast á tveimur vígstöðvum í jafnvíðáttumiklu landi og þeir ráða yfir. Til þess eru fjárráðin of lítil. Ég komst reyndar í 40 framleiðslustig þegar best lét enda einbeittu Þjóðverjar sér að flotaorrustum á Atlantshafi fremur en á austurvígstöðvunum en þegar hann fékk frið á höfunum var hann einfaldlega of sterkur fyrir mig.
Frábært spil og niðurstaðan sú í ljósi fáránlegra óheppni Þorgeirs og Heiðars með teningana að þeir hljóti að eiga góðar konur.

6. okt. 2005

Kommentakerfi
Búinn að setja upp kommentakerfi. Þá geta menn sagt skoðanir sínar á bullinu í mér.
Erfitt að vera sinn eiginn bensíntittur!
Mér hefur lengi fundist fyndið hvernig verslun með bensín fer fram. Liðið kemur á bensínstöðina og lætur bensíntittina vita að þeir vilji fá bensín fyrir 1500 kall t.d. Síðan dælir bensíntitturinn samviskusamlega og stoppar af fádæma öryggi í nákvæmlega 1500 kalli með sjö aukastöfum. Síðan andar hann léttar, strýkur stresssvitann af enninnu og setur dæluna aftur í slíðrið. Viðskiptavinurinn arkar inn og borgar - með korti. Eins og það skipti einhverju máli hvort það er 1498 eða 1503 kr sem færist á reikninginn.
Starf bensíntittana og okkar hinna sem dælum sjálf hefur hins vegar orðið að martröð eftir að bensínverð rauk upp úr öllu valdi. Maður rembist við að hitta á 1500 kallinn og þegar maður er kominn í 1493 reynir maður af veikum mætti að hitta í 1500 kallinn en allt kemur fyrir ekki. Ég held takanum inni í hálfa nanósekúndu og viti menn, reikningurinn stendur í 1607 krónum. Það er kraftur í Orkudælunum. Ég skelli dælunni í slíðrið, loka bensíntanknum og reyni af fremsta megni að halda haus. Sest svo inn í bílinn minn með svörtu rúðunum og þá opnast flóðgáttir tárabylgjunnar. Ég er misheppnaður bensíntittur!!!

Skrýtnar greinar
Ég hef gaman af að lesa greinar á pólítískum vefritum og oft á tíðum eru þær snilldarlegar. T.d. er
www.andriki.is ein af mínum uppáhaldssíðum og þeir menn sem þar skrifa greinilega miklir spekúlantar. Ég get hins vegar ekki varist brosi þegar meðlimir fylkingar ungra sjálfstæðismanna birtir svona pistil á sinni vefsíðu. Hvað er málið? Mér finnst reyndar oft erfitt að átta mig á hvernig pistlarnir á Deiglunni tengjast pólítík. Þeir eru oft hnittnir og skemmtilegir aflestrar en oftar en ekki hafa þeir ekkert með pólítík að gera. Það er svolítið erfitt að taka svona félagsskap alvarlega.

Prison Break
Svili minn (kærasti mágkonunnar) er mikill áhugamaður um sjónvarp. Hann stundar það að nálgast sjónvarpsþætti sem ekki hafa verið teknir til sýninga hér og athuga hvort eitthvað sé varið í þá. Nú síðast uppgötvaði hann þessa þætti sem hafa nýlega verið teknir til sýninga í USA. Ég er búinn að sjá fyrstu 4 þættina og er orðinn hooked. Fjalla um bræður sem eru að skipuleggja flótta úr fangelsi. Sá yngri rændi banka til að láta dæma sig til betrunarvistar í sama fangelsi og bróðir hans bíður dauðadóms. Þetta gerði hann til að skipuleggja flótta í þeirri trú að stóri bróðir sé saklaus. Mikið plott og mikil spenna. Mæli með þeim.

Skítalaun
Sparnaður er skrýtinn. Laun hjá ófaglærðu starfsfólki í umönnunar- og uppeldisstörfum eru alveg skelfileg. Hátt hefur farið í fjölmiðlum hversu skelfileg laun ófaglært starfsfólk leikskóla hefur en ég hef jafnvel enn meiri áhyggjur af slíku starfsfólki á elli- og hjúkrunarheimilum. Eða ætti ég kannski að segja skorti á því starfsfólki. Nú er svo komið, segja mér fróðari menn, að tugir plássa á elliheimilum standi auð einfaldlega vegna þess að það er ekki til starfsfólk til að sinna því fólki sem annars gæti nýtt sér plássin. Í staðinn liggja sjúklingarnir sem gætu notið góðs af þessum tiltölulega ódýru plássum í rándýrum rúmum Háskólaspítalans og hreinlega drekka í sig framlög ríkisins til LSH. Það er nú einu sinni þannig að til að hægt sé að reka spítalann almennilega er algert grundvallaratriði að hægt sé að útskrifa þá sem leggjast inn. Auðvitað keppast læknar, hjúkrunarfólk og aðrir starfsmenn við að skila fólki aftur á sinn stað en það er nú einu sinni þannig að stundum er fólk einfaldlega ekki lengur í stakk búið fyrir fyrri vistarverur og þarf meiri þjónustu. Vegna skorts á henni liggur það hins vegar löngu tilbúið að útskrifast svo vikum skiptir á spítalanum. Dominoeffektin sér síðan til þess að ekki er hægt að kalla fólk inn til rannsókna og meðferðar á hættulegum eða hvimleiðum kvillum og það kemur fyrir að fólk deyr á biðlistum eftir inngripum sem hugsanlega gætu bjargað lífi þeirra um stund og veitt þeim dýrmætan tíma með ættingjum. Þessu hafa stjórnmálamenn gefið allt of lítinn gaum og það er nánast grátlegt hvað bæði stjórnarliðar og stjórnarandstaða hafa lítinn áhuga á heilbrigðismálum. Þessu þarf að breyta.
Það versta er þó að góðir menn innan spítalans hafa reynt að taka á þessum málum með því að setja kraft í það að eyða biðlistum og oftar en ekki hefur komið á daginn að stórfé sparast því þótt það kosti peninga að framkvæma inngripin eru áföllin sem sjúklingarnir geta orðið fyrir á meðan þeir bíða miklu kostnaðarsamari. Þessir hugsjónamenn eru síðan verðlaunaðir með því að yfirstjórn spítalans hirðir af þeim peningana sem þeir spara við næstu kostnaðaráætlun í stað þess að veita þeim í uppbyggingu þjónustunnar. Grátleg skammsýni. Stundum kostar peninga að spara svolítið.

4. okt. 2005

Stuttbuxnadrengir
Það er voðalegt að fylgjast með hnignun ungliðahreyfingar sjálfstæðismanna. Maður heyrir varla bofs í þessum greyjum sem stýra þessu annað en eitthvað gelt um kosningasvindl og atkvæðasmölun. Svo virðist sem málefni skipti orðið engu í þessu og það sé bara nóg að vera svolítið "krútt", helst hafa ættarnafn, verður að hafa verið í versló og helst þar annað hvort formaður NFVÍ eða í ræðuliðinu. Svo er líka gott ef þér finnst gaman að gefa táningsstúlkum á lóðaríi nokkrar pitsusneiðar og kannski svolítinn bjór. Ég hef nú reynt að fylgjast með áherslum þeirra aumu manna sem hafa verið að belgja sig þarna og ég get ekki séð að það sé nein framúrskarandi hugmyndavinna eða nýstárlegar hugmyndir. Helst hefur þeim þótt við hæfi að gefa einhverjum kommum í útvarpshúsinu spil og kannski kerti í náttmyrkri hálfdauðs "menningarsjónvarps". Það er kannski þess vegna sem ekkert gerist þarnar við Efstaleiti, það eru örugglega allir að spila spilin sem Heimdellingar hafa gefið þeim.

Verst finnst mér þó þegar þeir sem bylja hæst í ungliðahreyfingunni ná kjöri á Alþingi. Þá þurfa þeir að fara í síðbuxur eins og ædolin þeirra og þá virðist sem allur vindur sé úr þeim. Það er eins og uppspretta hávaðans sé í kálfunum og gjafmildi hennar virðist í réttu hlutfalli við það magn lofts sem leikur um kálfana þeirra. Svo þegar síðbuxurnar hindra næðingin þá er bara allur vindur úr þeim og eru bara sáttir við að vera komnir á þing. Maður heyrir helst í þessum drengjum þegar Séð og Heyrt (en þó mestmegnis logið) slær upp fréttum að næturgamni þeirra með ólögráða unglingum eða einhverju þaðan af verra.

Er ekki kominn tími á að fá ferska vinda inn í pólítíkina, fá einhverja menn sem eru ekki myglaðir af langri fundarsetu hjá ungliðahreyfingunni þar sem frjóustu hugmyndirnar eru: "Kaupum útvegsspilið handa einhverjum sem er ekki kúl" eða "Pöntum pizzu". Er ekki kominn tími á að einhver af þessum mönnum standi við stóru orðin og geri eitthvað af viti. Hvurslags eiginlega dauðyflisflokkur er það þegar ekki nokkrum manni dettur í hug að bjóða sig fram til formanns nema krónprinsinum. Enginn virðist heldur þora í Þorgerði nema Kristján Júlíusson sem ég held að eigi ekki minnsta sjens í hana. Ég er ekki að segja að ég sé eitthvað mótfallinn þeim Þorgerði og Geir sem slíkum. Ég er bara mótfallinn rússneskum kosningum og mér finnst tímabært að einhver hræri svolítið upp í þessum flokki. Vatnið hefur staðið of lengi kyrrt og er orðið úldið. Nú er kominn tímí að einhver setji árarnar útbyrðis, gári vatnið aðeins, vaggi bátnum og komi svolítilli hreyfingu á málefnaumræðuna innan flokksins sem og út á við.

Ég hef orðið trú á að Gísli Marteinn geti gert góða hluti í borginni ef einhverjum tekst að koma svolítilli grimmd í hann. Ég mundi persónulega vilja sjá hann láta eins og hann gerir stundum í leikjum með Rögnunni. Verður alveg dýrvitlaus og berst eins og ljón, ýtir aðeins frá sér og lætur menn heyra það. Hvurslags eiginlega kosningabarátta er það þegar frambjóðendurnir keppast við að hlaða lofi á hvorn annan. Það er eins og þeir séu að reyna að fá kjósendur til að kjósa frekar mótframbjóðandann. Ég held reyndar að ég muni halda með Gísla Marteini. Ekki endilega vegna þess að hann sé einhver Messías heldur vegna þess að Vilhjálmur er orðinn of samdauna batteríinu öllu saman. Það þarf ungan mann sem er tilbúinn að gára vatnið aðeins. Hann þarf að vera skemmtilegur og með pólítíska sem og persónulega útgeislun. Hann þarf líka að vera svolítið grimmmur en þó rökfastur. Kurteis en þó harður í horn að taka. Gísli hefur flesta þessa kosti en eins og ég sagði áður þá finnst mér hann of linur. Ég vil sjá hann gagnrýna menn, ekki bara láta eins og allt sé í gúddí fíling í borgarstjórnarflokki sjálfstæðisflokksins. Það á ekkert allt að vera í gúddí fíling eftir svo langa fjarveru úr bílstjórasætinu.
Jæja!
Ég hef tekið þá afdrifaríku ákvörðun að þið hinir vitleysingarnir (þið eruð hér er það ekki?) getið ekki lifað án þess að vita af skoðunum mínum á mönnum og málefnum. Undanfarnar vikur hafa líka verið svo lygilegar í þjóðmálaumræðunni að það nær ekki nokkurri átt og þið hafið auðvitað velt upp þeirri augljósu spurningu hvað Ljós-Gíslanum finnst um málið.

Baugsmálið
Ég veit ekki hvar ég á eiginlega að byrja. Ég veit ekki einu sinni hvort ég á að byrja en almannaheill er í húfi svo það er kannski eins gott að láta flakka.
1.
Hvers vegna láta Baugsmenn svona ófriðlega í fjölmiðlum þrátt fyrir að vera vissir um eigið sakleysi. Gæti verið að þeir telji sig þurfa að þyrla ryki í augu almennings til að koma í veg fyrir að hann kynni sér almennilega einstaka þætti málsins og kæmist þannig að þeirri augljósu niðurstöðu að þeir séu í raun og veru ótýndir glæpamenn. Ég er sannfærður að Landsímadrengurinn mun verða þjófnaðarlegur smárindill við hliðina á þessum lortum.
2.
Hvaða heilvita maður sendir Jónínu Ben. viðkvæman tölvupóst. Ég mundi ekki einu sinni þora að senda henni fingurkoss af ótta við að Edda mundi lesa um það í Séð og Heyrt (en mestmegnis logið). Það er miklu betra að segja henni það bara augliti til auglitis því þá getur maður verið viss um að hún verður búin að gleyma því þegar rennur af henni (ef það gerist þá einhvern tíma).
3.
Þeir sem ríða brim alnetsins á hina merku síðu www.andriki.is hafa vafalaust lesið nýlega úttekt þeirra á því "andrúmslofti" sem vinstri menn telja að kærur J.G. Söllenberger (héðan í frá kallaður Sölli) hafi sprottið fram í. Í ljós kemur að hæst gullu gagnrýnisraddir á Baug í þeim stallsystkinum Ingibjörgu Sólbrúnu og Össuri Skarp á Alþingi um þær mundir sem kærurnar komu fram. Nú spyr ég mig: Væri ekki nær að gagnrýna þau fyrir að hvetja Sölla ekki til að kæra fremur en að gagnrýna Moggann fyrir aðstoð sýna við að koma kærunum á framfæri. Ekki það að ég vilji verja Styrmi greyið sem ég held að ætti að sjá sóma sinn í að víkja úr ritstjórn Moggans. Ef ekki fyrir afskipti sín af málinu í fæðingu þá fyrir fáránleg greinaskrif sín á undanförnum dögum. Maðurinn hefur misst allan trúverðugleika sem hlutlaus ritstjóri og á meðan hann situr í ritsjórn er ekki hægt að líta á Mbl. sem annað en opinbert málgagn uppkominna stuttbuxnadrengja.

Davíð laxtur
Mestu stórtíðindin hljóta nú samt að vera yfirvofandi brotthvarf Dabba kóngs úr brúnni hjá Sjálfstæðisflokknum. Það er náttúrlega sjónarsviptir af þeim gamla en persónulega fannst mér kominn tími á þetta. Hann er einkabarn sinnar eigin byltingar og hún hefur eins og byltinga er von og vísa gert heiðarlega tilraun til að leggja sér Dabba til munns. Hann var reyndar eitthvað tormeltur og hefur tekist að rymja nokkra smellna one-linera úr koki hinnar digru einkavæðingarbyltingar en nú er komið að því að honum verði kyngt niður í maga hins pólítíska gímalds og setjist að í Virkinu við Akraborgarbryggju. Einhverjum búkhljóðum held ég að við megum búast við og ekki kæmi mér á óvart þó byltingin fengi alvarlegar meltingartruflanir eftir brotthvarf svo mikils leiðtoga.

Ég vil persónulega þakka Davíð fyrir að hrinda í framkvæmd mörgum af þeim þjóðþrifamálum sem mörg okkar, er teljumst hægra megin á hrygg pólítíkurinnar, dreymdi um fyrir nokkrum árum en á einu sviði mér hugleiknu hefur honum ekki tekist að hrinda af stað bráðnauðsynlegri einkavæðingarbylgju og það er í heilbrigðisgeiranum. Kannski tekst Geiranum betur upp í þeim efnum. Davíð hefur samt staðið sig vel og ég held að hann eigi líka eftir að standa sig vel í Seðlabankanum. Ég meina Steingrímur Hermannsson kláraði þetta for kræing ád lád!!!! Ég var reyndar alveg steinhissa að Guttormur Húsdýragarðsnaut skildi ekki erfa stöðuna hans en hann var víst full svona þver skilst mér á kunnugum.

Ég geri ráð fyrir því að Davíð muni einbeita sér að því að veiða lax á kostnað okkar skattborgarana undir því yfirskini að það sé mikilvægt fyrir gengisþróun og vaxtastýringu. Verði honum að góðu. Vona að hann veiði vel.

Tökum nú upp léttara hjal!!
Boltinn hefur alltaf verið snar þáttur í skrifum mínum hér og mun það ekki breytast. Ég er hundóánægður með mína menn þessa dagana en það voru klár batamerki á leik liðsins um helgina. Rúðan er líka komin í gang og finngálknið unga Wayne Rooney er líka að standa sig. Park er líka farinn að finna sig eins og ég bjóst reyndar við og það var meiriháttar að sjá hvað hann var ógnandi um helgina. Áfram MUFC.!!!

Drykkja, matur, hestar og bíó
Helgin var góð. Á föstudag átti ég góða stund í Hólmgarðinum með gömlum félögum úr menntó. Serbinn, Króatinn og Kobbi fruma kíktu við og nokkrum bjórum var rennt niður. Notaleg kvöldstund og ég fór lúinn að sofa.
Á laugardag fórum við Edda í bæinn eftir að hafa sofið út. Um kvöldið fór ég svo með Eddu á Hótel Óðinsvé. Við fengum ljúffenga máltíð sem markaði tímamót. Við vorum bæði í fyrsta skipti á ævinni að panta okkur sjávarfang á veitingastað sem bíður upp á annað. Ég fékk mér dýrindis skötusel með humarhala og einhverju hrísgrjónadrasli. Mjög gott. Edda fékk sér pönnusteikta lúðu sem var ágæt en ekki eins góð og hjá mömmu. Í það heila notaleg kvöldstund sem endaði hjá Svenna mág og Kötu svil í nettu spjalli.
Á sunnudaginn var svo hestaleiðangur. Þurfti að sækja hest í aðgerð fyrir Nonna bróður og fara svo með Sindra hennar Eddu og annan hest frá pabba í tamningu. Okkur feðgunum varð ekki skotaskuld úr þessu og ég var kominn heim nógu tímanlega til að sjá GOAL! í bíó kl. 20 í Kringlubíó. Ágætis fílgúd mynd en ég held að Óskar frændi muni ekki slefa yfir þessari. Góð mynd fyrir fótboltaáhugamenn.

Læt þetta duga í bili, nógu er kombakkið orðið kröftugt. Reyni að vera duglegri næstu daga og vikur og mánuði og ár.