Mér finnst skrýtið þegar fólk leggur ómálga kornabörnum sínum orð í munn á heimasíðu barnsins. Væri ekki miklu eðlilegra að skrifa bara undir eigin nafni þar til barnið er farið að hafa vit á því hvað það vill segja umheiminum. Kannski breytist viðhorfið eitthvað þegar Strækerinn mætir, hver veit?
Aðeins betur að meðgöngunni. Það gengur allt ljómandi vel. Edda er að velta fyrir sér að þrauka þessa viku í vinnu og hætta svo eftir föstudaginn. Ég held að það væri mjög skynsamlegt því hún er orðinn ansi þreytt og lúin eftir vinnudaginn þó hann sé aðeins fjórar klukkustundir. Hún er hins vegar svo mikil keppnismanneskja að hún getur ekki almennilega sætt sig við að hætta snemma.
Það er margir búnir að panta fæðinguna á afmælisdaginn sinn því það eru gríðarlega margir sem eiga afmæli í fjögurra vikna glugganum kringum ásettan dag. Þar eru t.d. Vala Jóns, Helga Steinþórs og Júlía Rósa, Ingibjörg föðursystir mín, Lilja Lofts, amma Gústa, Mamma, Halldór Benjamín, Andreas yngri og Gissur. Þannig er alveg óhemjumikið af hrútum í kringum okkur.
2 ummæli:
HAHAHA!! vertu þá feginn að bara börnum séu sett orð í munn, stundum eru það bara fóstrin!! ein sónarmynd (jafnvel snemmsónar) og svo vefdagbók, allt í 1.pers...spes!!!;)
Segðu Eddu að fara að hvíla sig! hún getur svo bara keppst um að ala barnið upp!!:)...eru ekki allir dagarnir fínir..nema kannski 1.apríl, gæti orðið ves...annars veit maður ekki:)
bið að heilsa ykkur!!
Ekki gleyma 28. mars...
Skrifa ummæli