6. maí 2007
Hildur Vaka
Við Edda létum skíra dóttur okkar í dag um leið og hún fékk nafnið Hildur Vaka Bergmann. Ég held að ættingjar og vinir hafi almennt verið nokkuð sáttir við nafnið enda höfum við verið dugleg að hampa kjánalegum nöfnum upp á síðkastið. Þá er lending með venjulegu nafni oft mýkri. Þannig er það nú bara.
2 ummæli:
Hjartanlega til hamingju með skírnina, einstaklega fallegt nafn!
Einnig til hamingju með þína menn og PL titilinn, afar verðskuldað!
Áfram Liverpool! He´s only on loan, he´s only on loan, Greece Athens, we´ll bring him back home!
Kv,
Kobbi
Þetta má (m.a.) skilja svo að kröfur hafi verið uppi meðal aðstandenda að furðulegt nafn yrði valið.
Skrifa ummæli