7. apr. 2007

Portsmouth 2-1 MUFC

Við feðginin horfðum á annan 2-1 leikinn í röð í sameiningu. Sú litla svaf reyndar allan tímann en ég reyndi að halda blótsyrðunum að innanverðu á meðan ég var að elda og horfa á leikinn. Mínir menn voru ótrúlega daprir, sérstaklega í fyrri hálfleik en þá komust heimamenn í 1-0 eftir hrikalega dapra markvörslu hjá Van der Saar. Seinni hálfleikur var svo hálfgerð einstefna og Portsmouth áttu bara fáeinar skyndisóknir. Í einni slíkri undir lokin fór Van der Saar í skógarferð þegar engin hætta var á ferðum og var þess vegna ekki á marklínunni þegar Ferdinand ætlaði að gefa á hann. Sjálfsmark og leikurinn búinn þó O'Shea tækist að minnka muninn í næstu sókn. Smith átti reyndar gott skot í blálokin en James varði vel. Ég er því ekkert í góðu skapi en get huggað mig við að það er Arsenalmaður að koma í mat sem ég get strítt á því að hafa tapað fyrir West Ham og reyndar Poolari líka en þeir létu Brynjar Björn skora hjá sér í dag.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mr. Ferdinand, you were better on steroids!!!

Nafnlaus sagði...

Kannski hefði þetta aldrei gerst hjá Fredda ef hann hefði nú bara hlýtt Helga?
http://www.kvikmynd.is/indexdetail.asp?id=3126

Gísli Björn Bergmann sagði...

Héðan í frá verður nafnlausum kommentum eytt á þessari síðu. Þar sem þessi komment bera þess keim að vera frá annað hvort Kobba, Eika eða Sverri ætla ég að leyfa þeim að standa. Svarið mitt til poolara er einfaldlega: Brynjar Björn!!!!