Það er merkileg ákvörðun hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði að hafa álverskosningarnar svona rétt fyrir kosningar. Það gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir flokkinn ef Hafnfirðingar sem margir hafa lífsviðurværi sitt af álverinu kjósa að leyfa stækkun á álverinu. Þetta væru þá sennilega sömu Hafnfirðingar og veittu Samfylkingunni óskorað vald í innanbæjarmálum fyrir ári síðan. Ég held nefnilega að vinstri pólítíkusar átti sig ekki á því að stór hluti þeirra Íslendinga sem áður kusu þá eigi lífsviðurværi sitt undir einhvers konar iðnaði. Það er því ekki óviðbúið að þeir missi fleiri kjósendur en þeir afla sér við þessa umhverfisverndarvakningu sína. En auðvitað er fráleitt að ætla að Samfylkingin hafi verið að reyna að heilla kjósendur með einhverju vinsældastunti. Þingmenn þeirra eru auðvitað alltaf að fylgja sannfæringu sinni - þeirri sannfæringu að stefnan eigi að ráðast af skoðanakönnunum. Það sem gleymist oft að gera ráð fyrir í svona skoðanakönnunum að það eru ekki allir búnir að kynna sér málið til hlítar, það gerist ekki fyrr en nær dregur kosningum og þá er miklu meira að marka slíkar skoðanakannanir. Þá breytir Ingibjörg Sólbrún kannski aftur um skoðun og limirnir dansa eftir höfðinu og predika einhvern annan fagurgala en í dag. Hver kýs fólk sem hefur enga eigin sannfæringu heldur fær hana að láni frá Gallup. Persónulega vil ég frekar pólítíkusa sem fylgja eigin sannfæringu en þá sem ekki geta haldið dampi. En þannig er ég bara.
Það er samt einn þingmaður á vinstri vængnum sem ég er farinn að kunna vel við og finnst gaman að lesa það sem hann skrifar á blogginu sínu. Þetta er Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar sem í skoðunum sínum og skrifum stingur töluvert í stúf við félaga sína í þingflokknum þó hann njóti augljóslega nokkurra vinsælda í röðum flokksmanna.
1 ummæli:
Var að finna bloggið þitt og kíki nú reglulega við. Skemmtileg skrif frá skemmtilegum fír.
Ætlaði líka að óska ykkur hjónunum velfarnaðar í stóra verkefninu sem er framundan.
Bestu kveðjur Anna Kristrún
Skrifa ummæli