23. mar. 2006

Jæja
Ég er á vaktinni. Það er allt að róast núna og maður hefur aðeins tíma til að pústa. Það er svolítið skrýtið með allar þessar vaktir að það er einhver undarleg blanda af tilhlökkun og kvíða sem hellist yfir mann. Tilhlökkun yfir því að maður sjái áhugaverð tilfelli sem bjóða upp á að maður læri eitthvað nýtt og svo aftur kvíði yfir því að maður lendi í aðstæðum sem maður ræður ekki við. Hvort tveggja hjálpar manni að tileinka sér nýja hluti svo það er bara jákvætt. Síðan eru slysin alltaf erfið að takast á við, sérstaklega þegar unga fólkið kemur inn.

Pólítíkin
Heiðar bendir á hermálin og vatnalögin. Ég hef persónulega engan áhuga á þessu hermáli. Mér er slétt sama hvort það eru 4 eða engin herþota hér á landi. Hvort heldur sem er held ég að stoppi ekki innrás hingað ef einhver ætlar sér það í alvöru. Hins vegar hef ég áhyggjur af því að útgjöld ríkisins til landhelgis- og flugrekstrarmála muni snaraukast í kjölfarið á brottrekstrinum og því miður held ég að ríkisstjórnin okkar hafi ekki verið allskostar undirbúin undir það. Hvað varðar viðbrögð við allri þeirri atvinnustarfsemi sem tapast held ég að menn verði að stíga varlega til jarðar. Ég hef ekki trú á að ferðamannaiðnaður með tilheyrandi offramboði á gistirýmum á svæði sem ferðamenn hafa enn ekki tekið ástfóstri við sé hættulegt. Ég held líka að það væri óskynsamlegt að sleppa öllum þessum íbúðum inn á fasteignamarkaðinn í einu því við það mundi íbúðaverð þarna suðurfrá hrapa niður úr öllu valdi. Háskólaþorpið er svo sem ágætis hugmynd en ég held að það yrði þá að vera einhver af þeim háskólum sem þegar eru starfræktir hérlendis því það síðasta sem við þurfum er að bæta enn einum slíkum í sarpinn.
Annað sem fer í taugarnar á mér við alla þessa umræðu og reyndar almennt um mál þar sem ljóst er að einhver á eftir að missa vinnuna er það að menn ætlast alltaf til að ríkið komi þeim til bjargar. Fólk er ekki tilbúið að taka ábyrgð á eigin velferð. Ég man ekki til þess að það sé minnst á það einu orði í stjórnarskránni að ríkinu beri einhver skylda til þess að redda fólki vinnu sem missir vinnuna sína vegna skipulagsbreytinga í "einkafyrirtæki". Algerlega fáránleg krafa og hana á að kaffæra í fæðingu. Því miður fyrir Suðurnesjamenn held ég að þarna verði kippt fótunum undan forsendum svo stórrar byggðar ef þeir sjálfir hafa ekki frumkvæði að uppbyggingu atvinnustarfsemi til að bæta upp missinn. Ríkið getur ekki enn einu sinni bjargað deginum með því að neyða stofnanir til að flytja út á land.

Byggðastefnan
Hlægileg þessi byggðastefna á köflum. Þingmenn landsbyggðarinnar róa að því öllum árum að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýrinni því það sé svo nauðsynlegt fyrir landsbyggðarfólk að vera nálægt allri þjónustu um leið og það stígur fæti úr flugvélinni. Sömu þingmenn vilja síðan flytja þessar sömu þjónustu í litlu krummaskuðin sem þeir koma úr. Ég held þetta sé allt samsæri til að þrýsta á um uppbyggingu flugvalla við hvert einasta kotbýli landsins.

22. mar. 2006

Pólítík
Það er magnað hvað mér finnst pólítíkin hérna heima orðin leiðinleg. Það virðist sem unga fólkið í pólítík sé þarna bara til að komast í þotuliðið en ekki til að láta hendur standa fram úr ermum. Eitt heitasta málið hefur verið reykingabann á veitingastöðum sem ég er hálft í hvoru fylgjandi, a.m.k. að hluta en ég á samt svolítið erfitt með að útskúfa svo stórum þætti í skemmtanalífi Íslendinga. Þessi forsjárhyggja sæmir ekki almennilegri hægri stjórn. Ég er líka sammála Sigurði Kára með það að það er ófagmannlegt að vinna skýrslu um áhrif óbeinna reykinga á fólk án þess að taka tillit til beggja sjónarmiða. Að því sögðu þá get ég ekki sagt að ég muni sakna reykinganna af skemmtistöðunum.

Enski boltinn
Mínir menn eru allir að braggast og Chelsea er farið að fatast flugið. Ég hef reyndar ekki mikla trú á að MUFC muni ná þeim en það verður gaman ef þeir ná að hleypa svolítilli spennu í þetta með því að þrengja bilið. Ef þeir vinna leikinn sem þeir eiga til góða eru þeir ekki nema 9 stigum á eftir Chelsea en fimm stigum á undan Liverpool með annan leik til góða. Arsenal er svo rétt fyrir ofan botnbaráttuna 13 stigum á eftir United þrátt fyrir að United eigi leik til góða. Þetta er því allt saman hið besta mál.

Utandeildin
Við í Duffa höfum verið á fljúgandi siglingu. Vorum að spila við arfaslakt lið AC Mullet í gær og unnum fremur auðveldlega 6-2 þar sem bæði mörkin þeirra voru gefins af varnarmönnum okkar. Þeir fengu eitt almennilegt sjálfskapað færi en Grétar varði glæsilega í markinu. Okkur vantaði nú samt báða aðalmiðverðina okkar (Jóa og Magga fyrirliða), einn besta bakvörðinn (Bigga H.), markahæsta mann síðasta árs (Jón Helga) og fimm af miðjumönnunum okkar (Eika, Daða, Árna Grím, Gísla Geir og Helga). Því voru margir að spila út úr stöðum. Ég var á vinstri kantinum. Gauti var aftarlega á miðjunni. Stebbi í vörninni og svo mætti áfram telja. Þetta var samt síst of stór sigur og við klúðruðum fullt af færum, m.a. vítaspyrnu. Við erum því fremur brattir fyrir sumarið enda eru allir framherjarnir okkar heilir núna en við vorum tveir frá vegna meiðsla frá byrjun og fram í júlí auk þess sem annar meiddist illa í júní og annar gat lítið verið með vegna anna. Við verðum því mun sterkari í ár held ég, a.m.k. ef allir halda sér sæmilega heilum frameftir sumri.

Vinnan
Mér líkar áfram alveg frábærlega í vinnunni. Hef ekki áður upplifað svo gott og náið samstarf fagfólks í heilbrigðisgeiranum né heldur jafngóðan anda á vinnustað. Þó margir séu frekar ósáttir við launin og vinnuálagið þá eru nær allir að skila vinnunni sinni af áhuga og samviskusemi. Ég hef þegar ákveðið (99,9% viss) að ég ætla að leggja fyrir mig Svæfinga- og gjörgæslulækningar og mun skipuleggja deildarval mitt næstu 2 árin með það að leiðarljósi að það nýtist mér í slíku námi. Ég fékk stöðu sem deildarlæknir á lyflækningasviði frá og með 1. ágúst og ætla mér að vera þar í a.m.k. 6 mánuði en sennilega fram á sumar 2007. Þá hyggst ég færa mig á svæfinguna á Hringbrautinni en þar er töluvert öðruvísi starfsemi en í Fossvogi. Í Fossvoginum erum við með Heila- og taugaskurðdeild, Bæklunarskurðdeild, Lýtaskurðdeild, Æðaskurðdeild og Háls-, nef- og eyrnaskurðdeild. Auk þess sinnum við slysum og bráðveikum sjúklingum sem leita á bráðamóttöku og þurfa gjörgæsluinnlögn. Á Hringbrautinni eru Brjóstholsskurðdeild (hjarta og lungu) og Almenn skurðdeild sem sér um aðgerðir á meltingarfærum. Auk þess eru Nýrnaskurðdeild, Barnaskurðdeild og Kvennaskurðdeild á Hringbraut. Gjörgæslan sinnir að mestu hjartasjúklingum og langveikum börnum en auðvitað koma þar líka sjúklingar með sýklasótt og önnur hefðbundin gjörgæsluvandamál þó það séu kannski fyrst og fremst tilfelli í inniliggjandi sjúklingum. Ég hlakka í það minnsta til að takast á við verkefni næstu tveggja ára og vonast til að komast út í sérnám eigi síðar en sumarið 2008.

Sumarbústaðarferð um helgina
Gamla Garðabæjargengið er á leiðinni í sumarbústað um helgina og ég kemst loksins eftir að hafa misst af síðustu 3 ferðum vegna anna í vinnu eða einkalífi. Það verður gaman og við förum líklega á föstudag og komum heim á sunnudag. Þó gæti farið svo að við förum ekki fyrr en á laugardag en það kemur í ljós á föstudaginn. Nonni bróðir er á landinu og því er svolítið freistandi að fresta ferðinni í Borgarfjörðinn fram á laugardag til að eyða aðeins meiri tíma með honum en við sjáum til hvernig gengur með það. Við bræður og sá gamli erum reyndar að fara með minn gamla og trygga Hjört austur fyrir fjall á morgunn og ætlum að ná í tvo aðra í staðinn þar sem Fluga hans pabba er líka farin úr húsinu í tamningu. Svo stendur til að koma Sindra hennar Eddu í tamningu líka svo við gætum þurft að fara aðra ferð í næstu viku. Mér finnst vetrarútreiðar hérna á malbikinu svo sem ekki sérlega skemmtilegar en það er skárra en ekki neitt. Ég er miklu meira fyrir lengri eða skemmri sumartúra um hálendið því þar kynnist maður því fyrir alvöru úr hverju hestar eru gerðir, ekki á skeiðvöllum þéttbýlisins.

Góðar stundir.

20. mar. 2006

Letin að drepa mann!
Hef ekki bloggað í rúman mánuð og er það nær eingöngu vegna leti og anna við eitthvað ómerkilegra en að koma skoðunum mínum á blað. Reyni að bæta úr þessu fljótlega en get glatt hundtrygga lesendur með því að mínir menn í ensku eru að draga Chelsea uppi. Munurinn kominn í 12 stig og við eigum leik til góða. Það verður létt að ná þeim fyrir vorið með sama áframhaldi. Annars vildi ég að Heiðar Helguson væri í öllum liðum sem Chelsea spilar á móti. Hann mundi fiska einhvern út af með rautt í hverjum leik. Alger klikkhaus þessi drengur.

Annars er bara gott að frétta af okkur. Við erum búin að standa í stórræðum með stofuna sl. vikur - keyptum okkur stofuskáp og bókaskáp í sama stíl í febrúar og byrjum mars og svo hefur hestamennskan verið í lykilhlutverki hjá mér. Edda er ekki úr hófi fram dugleg en það lagast alltaf með vorinu þegar veðrið setur ekki strik í reikninginn.

Síðan er fótboltinn farinn að rúlla með ágætum. Æfum á fimmtudögum og spilum leik á þriðjudögum. Erum búnir að vera að skora mikið og fá á okkur lítið af mörkum sem er alltaf jákvætt. Ég er búinn að setja eitt og leggja upp a.m.k. eitt líka. Þetta er allt að slípast og ég er kominn i sæmilegt form sem skánar reyndar með hverjum deginum. Ég hef eiginlega alveg sloppið við meiðsli í vetur sem er alltaf gott en utanlandsferðirnar tvær hafa ekki hjálpað til með björgunarhringinn. Það er þó að leka úr honum hægt og bítandi svo þetta er allt í áttina.
Þar til næst;)