23. des. 2006

Gleðileg jól!
Sælt veri fólkið. Langaði bara að óska lesendum Geislans gleðilegra jóla.

20. des. 2006

Meðgangan
Fyrir þá sem ekki vissu erum við skötuhjúin með eitt í ofninum. Það verður okkar fyrsta en vonandi ekki það síðasta. Allt gengur vel. Við erum að bresta í 27 vikurnar á mánudaginn og þetta er að verða raunverulegt fyrir mér einhvern veginn núna. Ég hlakka til að verða sá gamli en auðvitað er maður pínulítið kvíðinn líka. Annað væri held ég afar óvenjulegt. Til hliðar er mynd tekin eftir tæpar 25 vikur. Myndarleg ekki satt. Kúlan er öll að koma.

Skemmtileg orðatiltæki sem við þurfum að skýra fyrir börnunum okkar
Ég hef verið að hugsa upp á síðkastið um allskonar orðatiltæki sem við notum sem eru raunverulega orðin úrelt. Eitt er til dæmis að setja plötuna á fóninn. Við erum flest löngu hætt að hlusta á plötur eða setja tónlist á fóninn en samt er þetta orðatiltæki notað reglulega. Annað er að hlutirnir "gangi á afturfótunum". Síðast þegar ég gáði göngum við öll á afturfótunum og það er bara allt í góðu lagi en sennilega vísar þetta til ferfættra fararskjóta fyrri tíma. Leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. Það er samt gaman að pæla í svona hlutum.
Annað sem er gaman er að pæla í hvernig veröldin var þegar við sem erum nú í kringum þrítugt vorum lítil. Þá voru engir örbylgjuofnar eða DVD spilarar. Geislaspilarar voru bara komnir á allra efnuðustu heimili. Fáir áttu myndbandsupptökuvélar og ekki voru allir einu sinni búnir að kaupa sér myndbandstæki. Sjónvörpin voru næstum öll frá ITT og dugðu miklu meira en þau 3 ár sem nú er meðallíftími viðtækja. Útvarpsstöðvar voru nákvæmlega 2, Rás 2 og RÚV, það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum og ekki heldur í júlí. Barnaefnið var líka kúl en ekki eitthvað sálfræðimombojombo eins og núna. Við fengum að horfa á Thundercats og Transformers á laugardagsmorgnum og þar var slegist og barist án afláts. Samt rættist úr okkur. Ég man líka að bræður mínir eignuðust snemma Comador 64 sem var ein alheitasta leikjatölvan þá. Í hana voru til svona 3 leikir og enginn þeirra skemmtilegur. Það var samt mjög svalt. Gemsarnir voru heldur ekki komnir og mæður okkar þurftu í alvöru að fara út úr húsi til að leita að okkur í matinn. Reyndar var líka hægt að hringja í nágrannanna til að spyrja hvort einhver hefði séð mann en það var náttúrlega á þeim tíma sem fólk hafði tíma til að þekkja nágrannana sína. Ég veit að ég hljóma eins og gamall karl en ég held í alvöru að það hafi verið miklu auðveldara að vera barn þegar ég var yngri en það er í dag. Nú skilgreinir það fátækramörk hvort fólk geti gefið börnunum sínum nýjustu playstationtölvuna í jólagjöf eða ekki. Við erum öll í miðju lífsgæðakapphlaupinu og finnst við öll vera að tapa en þegar allt kemur til alls er þetta bara eins og unglingavinnan. Það er ekki aðalatriðið að vinna, það er nóg að vera bara með og komast í mark.

Boltinn
Dapurlegt að tapa fyrir West Ham. Ég veit ekki hvað ég á að segja um það. Bara dapurlegt. Það er samt fínt að Saha skuli vera búinn að framlengja, alltaf gott að ganga frá slíku. Nú er bara að binda restina niður og láta þá skrifa undir.

Hvað ætli deyi margir hermenn vegna heimsku yfirmanna þeirra?
Reyndar má auðveldlega færa rök fyrir því að allir hermenn deyi vegna heimsku yfirmanna þeirra en sá sem dó hér suður með sjó í fyrradag var klárlega einn af þeim sem deyr algerlega að óþörfu. Hverslags hálfbjáni sendir 9 danska sjóliðsdrengi út í íslenskt brim á gúmmíslöngu til að bjarga áhöfn af gríðarstóru flutningaskipi þegar þyrlur eru til staðar til að bjarga málunum. Þetta hlýtur bara að flokkast undir morð. Skipið er ekki enn sokkið tveim dögum seinna en mannfíflið sem stýrir þessum danska ryðkláfi fékk þá grillu í höfuðið að bjarga þeim á gúmmítúttu. Þið getið hengt ykkur upp á það að hann ætlaði sér að fá heiðurinn af björguninni. Hreinn og klár metnaður. Engin virðing fyrir mannslífum. "Ekkert að bíða eftir því að gera hlutina skynsamlega. Neibb. Strákarnir redda þessu á gúmmítuðrunni bara." Það fyrsta sem maður lærir á námskeiðum í hjálp í viðlögum er að tryggja eigið öryggi alltaf fyrst, því annars ertu bara að skapa enn meiri hættu. Þennan mann á að draga fyrir dómstóla og aldrei senda hann á sjó aftur. Ekki það að ég hafi nokkurt vit á sjómennsku og auðvitað er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á en hann er yfirmaður á herskipi og á að vita betur. Hann er fífl að mínu viti.

Menntskælingurinn
Andreas bróðursonur minn fékk úr prófunum í 3ja bekk í MR í dag. Stóð sig með stakri prýði drengurinn nema í íslensku og stærðfræði. Íslenskan var svo sem ekkert sjokk því hann hefur búið í Noregi í 8 ár en í stærðfræðinni hefði hann átt að gera betur. Hann brilleraði hins vegar í öllu öðru og tók 9 í næstum öllu öðru. Ég mundi kalla það frábæran árangur miðað við að hann flutti til Íslands aftur í haust. Ég var búinn að aðstoða hann í stærðfræði og efnafræði og verð því að taka á mig hluta af sökinni. Hann fær þétta kennslu á vorönn hjá mér og Viðari í stærðfræði og íslensku. Hann tekur þetta í vor. Drengurinn er náttúrlega bara snillingur.


17. des. 2006

Steggjun!
Við félagarnir steggjuðum Árna Grím í gær. Það var hörkustuð. Byrjuðum á því að vekja hann rétt fyrir níu og hella í hann bjór en svo tók við afrókennsla, brúnkusprautun í g-streng og brjóstahaldara. Síðan var étið en eftir það var það litbolti og svo Bláa lónið áður en við fórum út að borða á Galileo og síðan í partý hjá Ellanum. Þetta var frábær skemmtun en það verður að segjast að við félagar Árna úr læknadeildinni stóðum okkur ekki vel. Emmi og Jón höfðu reyndar báðir löggilda afsökun en ég var bara að aumingjast. Svona er þetta. Sem betur fer voru aðrir félagar hans tilbúnir í giggið og héldu honum á djamminu fram undir morgunn. Vel heppnaður steggjadagur og steggurinn ánægður með þetta skilst mér.

Galileo
Borðuðum þarna í gær. Ég hef heyrt á mönnum sem hafa borðað þarna að þetta sé oft á tíðum ágætis staður en í gær var þetta ekki alveg að gera sig. Ég fékk parmaskinku í forrétt sem var reyndar mjög góð og melónan var ein sú besta sem ég hef smakkað. Síðan fékk ég nautakjöt, hráefnið var í lagi en matreiðslan skelfileg. Algjör synd hvernig þeir fóru með þennan frábæra bita. Svo kom reyndar ágætis súkkulaðikaka í eftirrétt. Aðrir fengu nautacarpaccio sem var enn frosið þegar það var borið fram og Emmi fékk svínakjöt sem enn voru tannstönglar í einhverra hluta vegna. Það var samt kannski ekki endilega maturinn sem var svo slæmur en þjónustan var skelfileg. Stelpugreyin sem voru þarna voru tvær að þjóna stóran hluta kvöldsins og það voru örugglega 50 manns þarna á hæðinni.

Boltinn
Mínir menn stóðu sig ekki nógu vel í dag þegar þeir töpuðu fyrir West Ham. Dapurt. Ég er eiginlega orðlaus yfir þessu bara. Maður getur þó huggað sig við það að Arsenal gerði jafntefli í gær. Það er dapurt að gera jafntefnli við Portsmouth á heimavelli.

12. des. 2006

Boltinn

Áfram halda mínir menn á sigurbraut, nú með glæsilegum sigri á erkifjendunum í City. Frábær mörk eftir góðan undirbúning og reyndar spiluðu varnarmenn City stóra rullu í mörkunum þremur líka. Það er alltaf gaman að þessum leikjum en ég verð nú að viðurkenna að ég hef verið fremur pirraður á City sl. ár því þeir hafa verið að hirða heilmikið af stigum af okkur á Old Trafford sem er alltaf vont. En gærdagurinn er eiginlega magnaðastur fyrir stórglæsilegt mark Matthew Taylor fyrir Portsmouth gegn Everton. Menn skora svona mörk sennilega bara einu sinni á ævinni ef þeir eru heppnir og þá sennilega á æfingu. Svo nær fullkomnuðu Rassenalmenn helgina með því að ná jafntefli við Chelsea á Brúnni. Það hefði verið rosalegt hefði þeim tekist að vinna en þrumufleygurinn hans Essien kom í veg fyrir það. Það var líka rosalegt mark.



Hálfvitar sem eiga heima bak við lás og slá

Fréttir af hálfvitum sem voru með skæting við lögreglumenn á slystað um helgina og helgina áður eru vægast sagt sláandi. Að menn skuli ekki bera meiri virðingu fyrir líðan og heilsu annarra að þeir ekki aðeins hjálpi ekki til á slysstað heldur vægast sagt geri björgunar- og rannsóknarmönnum erfiðara fyrir er náttúrlega alveg með ólíkindum. Mér finnst reyndar að það eigi bara að vera regla að taka svona fólk til yfirheyrslu og sekta með háum fjárhæðum þá sem verða uppvísir að því að raska slysstað eða hindra störf þar. Við vorum síðan að hlusta á síðdegisútvarp Bylgjunnar á leiðinni í ræktina í dag og þar lét einhver hálfviti þá skoðun sína í ljós að lögreglan ætti að taka meira tillit til þeirra sem bíða í svona röðum. Þessu er ég algjörlega ósammála. Auðvitað er mikilvægt að lögreglan taki tillit til hins almenna borgara en þegar aðstæður eru svona þá getur hún ekki verið að hugsa um hvað einhverjir hálfvitar í röðinni eru að pæla, það tefur bara störf á vettvangi. Það eina sem gildir er að loka fyrir umferð og klára rannsóknina, sama hversu langan tíma hún tekur. Ég vona bara að þetta fólk sem var með læti í röðinni fari að fordæmi ólátabelgsins sem hringdi í lögregluna og baðst afsökunnar. Batnandi mönnum er best að lifa.

Sömu skoðun hef ég á þeim mönnum sem hafa hótað þeim lögreglumönnum líkamsmeiðingum sem voru viðstaddir þegar berserkurinn af Hótel Sögu lést í vörslu þeirra. Ég leyfi mér að efast um að menn sem velja sér að starfa innan lögreglunnar á Íslandi hafi áhuga á því að drepa aðra menn, hversu illa þokkaðir sem þeir kunna að vera. Mér skilst líka á fréttum að lögreglan hafi brugðist hárrétt við og hafið rannsókn á þessu máli sem sakamáli strax og ljóst var hvað hafði gerst. Mér finnst að menn sem ógna lögreglumönnum eigi heima í klefanum við hliðina á fábjánunum sem trufla störf á slysstað og þó. Þeir eiga bara heima á Hrauninu. Það breytir því hins vegar ekki að ungur maður lést eftir ryskingar við umboðsmenn ríkisvaldsins og alveg eins og þegar fólk deyr í aðgerðum án þess að nokkur mistök hafi átt sér stað finnst mér að það eigi að sjá fyrir börnum mannsins að einhverju leyti.


Nostalgía dauðans

Ég hef sl. daga og vikur verið að aðstoða bróðurson minn í prófunum í 3ja bekk í MR. Hann er búinn að standa sig vel miðað við það að hann flutti heim til Íslands eftir 8 ára búsetu í Noregi í haust. Íslenskan er aðeins að vefjast fyrir honum en að öðru leyti hefur honum gengið ágætlega. Það verður gaman að sjá einkunnaspjaldið hans. Ég held að stráksi komi á óvart.


Ræktin

Fjórða tilraun til heilbrigðara lífs hófst í gær. Ég er alltaf að reyna að koma mér í gang og hef fengið skötuhjúin Viðar og Gunnar til að drífa mig upp úr sleninu. Lyfti í gær og tók síðan þolið í dag. Það var svo sem ekki merkilegt, hljóp 5,5 km á 40 mínútum. Ætla mér að ná 7 km á 45 mínútum áður en erfinginn kemur í heiminn. Auk þess skal vera þvottabretti á maganum, helköttaðir upphandleggir og mökkskornir brjóstvöðvar. Ætti kannski að spara yfirlýsingarnar en planið er að verða í hörkuformi næstu tvö sumur og klára knattspyrnuferilinn með sæmd hjá Duffa. Vonandi tekst það.

5. des. 2006

Rosaleg steggjun
Við drengirnir í Garðabæjargenginu steggjuðum Heiðar á laugardaginn. Ég var reyndar að vinna aðfaranótt laugardagsins og gat því ekki tekið þátt í dagskrá morgunsins en hann var sem sé sóttur snemma og látinn sinna vinnu sinni í miðborginni í annarlegum klæðum. Um hádegið hafði ég safnað kröftum og drengirnir sóttu mig á leiðinni út úr bænum. Þá var ferðinni heitið í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum og það var tær snilld. Við klifruðum vegg, fórum í rosalega háloftarólu og príluðum svo einhvern staur sem var svona 7 cm í þvermál. Ég tókst á við mína gríðarlegu lofthræðslu en hún varð mér að falli á 7 cm staurnum og mér tókst ekki að fóta mig á toppnum á honum. Djöfull var hann samt boginn. Eftir þetta var brennt á Hamarsheiðina og tekið á því við mat, drykk, pottaböðun, söng og póker. Gleðin stóð langt fram á morgunn og síðastur að sofa var sjálfur steggurinn á sjötta tímanum á sunnudagsmorgunn. Það var snilld. Svo hjálpuðu nokkrir drengjanna okkur feðgunum að smala hrossunum heim á tún fyrir veturinn. Það gekk mjög vel.

Boltinn
Mínir menn í Man Utd stóðu sig vel um helgina og lögðu Middlesbro á útivelli. Þetta hefur oft verið erfiður leikur fyrir mína menn en þeir kláruðu þetta um helgina og Fletcher af öllum mönnum setti sigurmarkið. Gott mál. Chelsea átti leik við Newcastle sem einhverra hluta vegna var frestað. Það er auka pressa að eiga leik til góða en getur reyndar virkað vel ef United tapar stigum, en á meðan þeir halda sínu striki er pressan á Chelsea.

1. des. 2006

Sautjánda endurlífgun Ljós-Gíslans
Ætli ég reyni ekki enn eina endurlífgunina á blogginu. Ég hef verið einstaklega latur við skriftir sl. vikur þrátt fyrir að tölvukostur heimilisins hafi tvöfaldast síðan síðasta færsla var skrifuð. Ég festi sem sagt kaup á nýrri tölvu fyrir nokkrum vikum. Þetta er Dell inspiron og ég er bara þrusuánægður með hana. Hef auðvitað sleppt mér aðeins í tölvuleikjum sl. vikur en er að verða saddur í bíli. Var búinn að næla mér í FM 2007, Call of Duty 2 og Need for Speed Carbon. Allt saman ágætis leikir en nú ætla ég að leggja þeim aðeins í bili. Þá verður maður að hafa eitthvað fyrir stafni svo ætli ég reyni ekki að blogga svolítið.

Baggalútur
Er að hlusta á Jól og Blíðu með þeim félögum og þetta er náttúrlega bara tær snilld. Ég er sérstaklega hrifinn af Rjúpur og Jólajólasveinn. Þessir snillingar virðast vera ótæmandi uppspretta af snilldarlegum rugltextum.

Þórunn Lárusdóttir
Hann er líka frábær nýi diskurinn með Þórunni og Friðrik Karlssyni. Það virðist vera í tísku að taka þessi gömlu íslensku dægurlög og gefa þau út á disk.

Brúðkaup
Mikið af brúðkaupum þessar vikurnar. Haffi og Hrefna gengu í það alheilagasta um síðustu helgi og tókst það með eindæmum vel. Skemmtileg og falleg athöfn í Dómkirkjunni og síðan var frábær athöfn í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni. Ég hef aldrei komið í þennan sal en hann er mjög skemmtilegur fyrir svona veislur, opinn og rúmur. Í stuttu máli var veislan hin ágætasta líka, frábær matur, góðar ræður og sérdeilis prýðileg súkkulaðikaka í eftirrétt. Ég og Heiðar héldum uppi heiðri Garðabæjargengisins, Heiðar flutti frábæra ræðu og ég afhenti Maka enda handhafi hans í tæpa 11 mánuði. Þorgeir er nú sá úr hópnum sem hefur átt bikarinn lengst en Viðar skemmst enn sem komið er. Haffi mun þó bæta það met því hann nær aðeins að hafa bikarinn í rúman mánuð sem stofustáss því Heiðar ætlar að ganga í hnappelduna 30. desember og verður þá handhafi bikarsins. Hann verður svo að treysta á að Jói og Guðrún eða Gissur og Lára drífi í þessu fljótlega því Gunni, Viðar og Sjonni eru allir dottnir í piparsveinasukkið, djamma allar helgar og ekkert gagn í þeim hvað giftingar varðar á næstunni. Kötturinn hefur reyndar verið með veiðihárin á lofti eins og Gunni með radarinn opinn en þeir hafa eftir því sem ég best veit ekki gert neinar framtíðaráætlanir með baugfingurshandjárnum. Þeir eru hins vegar orðnir svo óaðskiljanlegir að við hjónin köllum þá aldrei annað en skötuhjúin.

Boltinn
Mínir menn standa sig sæmilega í deildinni en ég er reyndar ekki nógu ánægður með að hafa tapað stigum á móti bæði Arsenal og Chelsea á heimavelli. Það þýðir að við eigum tvo gríðarlega erfiða leiki eftir áramót, þ.e. Chelsea á Brúnni og Arsenal á Emirates. Það verður erfitt.

Jæja læt þetta gott heita í bili en reyni að láta ekki líða 2 mánuði þangað til ég skrifa aftur.