19. maí 2007

Ríkisstjórnarmyndun

Gunni kemur með skemmtilega athugasemd við síðustu pólítísku færslu og ég held ég verði að taka undir með honum. Ágúst Ólafur er að sjálfsögðu ekki með nóga reynslu til að gegna embætti fjármálaráðherra. Ég er farinn að gæla við að hann verði heilbrigðisráðherra en ég hef heyrt því fleygt að Sjálfstæðismenn hafi augastað á því ráðuneyti. Staðreyndin er sú að það þarf einhvern nagla í heilbrigðisráðuneytið - einhvern sem er tilbúinn að taka á þeim rekstrarvanda sem heilbrigðiskerfið á við að etja. Það er auðvitað ýmislegt sem kemur upp í hugann en á næstu árum mundi ég gjarnan vilja sjá eftirfarandi:

1) Einkarekið sjúkrahús í Reykjavík
2) Yfirstjórn LSH verði látin taka ábyrgð á yfirgengilegum hallarekstri spítalans og farið verði í gagngerða uppstokkun á ríkisrekstri í heilbrigðismálum
3) Farið verði rækilega yfir ástæður þess að ekki fæst starfsfólk til að sinna umönnun og hjúkrun.
4) Gera þarf menntun í heilbrigðisgreinum meira aðlaðandi án þess að slaka á kröfum um námsárangur. Ég held að það sé ekki skynsamlegt að draga úr kröfunum.
5) Gerð verði gangskör í því að reisa öldrunarrými fyrir helmingi fleiri en þörf er á akkúrat í dag. Það er fjárfesting sem skilar sér til baka á örfáum árum í stórkostlegri fækkun á óþarfa legudögum á LSH.

Engin ummæli: