28. nóv. 2005

TippToppið
Ég er ekki að gera góða hluti í tippinu hjá Magnúsi þessa dagana. Eftir að hafa klúðrað titli á þriðja tímabili með því að gleyma að tippa á síðasta seðilinn þá hef ég ekki náð mér almennilega á strik. Féll núna síðast úr 1. deildinni og nú er Gunnar Thoroddsen farinn að snýta mér á seðlunum þrátt fyrir að vera einhverjum 3 deildum fyrir neðan mig. Það er súrt. Hann snýtti reyndar líka öllum hinum á síðasta seðli en það er samt súrt að tapa fyrir Keflvíkingnum. Ég er annars farinn að leggja aðeins meiri metnað í þetta og er farinn að spá í afstöðu liða í þeim deildum sem þau eru að spila í og svona. Það er samt ekkert að skila mér fleiri stigum og skitin 18 stig á seðli er náttúrlega bara hlægilegt. Villareal og Fulham skemmdu t.d. bæði fyrir mér með sínum sigrum en ég spáði báðum tapi. Svona getur lífið verið ósanngjarnt.

Helvítis Poolarar og Leedsarar
Sannaðist enn einu sinni hvurslags heiladauðir hálfvitar halda með þessum liðum um helgina þegar verið var að votta látnum manni virðingu. Það er eins og þeir muni ekki að þetta er einmitt sami maðurinn og á sínum tíma gaf skít í MUFC og hætti bara af því að hann mátti ekki alltaf vera að djamma og ríða kellingum. Ég hef alltaf vitað að það er bara illa upp alinn rumpulýður sem heldur með Liverpool og svo eru nú bara furðufuglar sem halda með Leeds.

Leikmaður ársins í Evrópu
Ef einhver hafði efasemdir þá eru þær hér með úr sögunni. Það kemur náttúrlega enginn annar til greina sem bestur í fótbolta en Ronaldinho. Hann mun held ég taka öll verðlaun sem hann á möguleika á að vinna. Maður sem tekur bara allt Real Madrid liðið og snýtur því út um svitaholu á bak við eyrað um leið og hann stingur þá af. Ótrúlegt kvikindi og þótt hann sé ljótur held ég að allir fyrirgefi honum það. Meira að segja kellingarnar. Fannst reyndar svolítið skrýtið að sjá menn eins og Carragher á listanum en ekki Rooney sem er náttúrlega mörgum klössum ofar. Sennilega fær Carragher heiður fyrir Evrópumeistaratitilinn sem hann á reyndar skilið en það er svolítið skrýtið að sjá að hvorki Campbell né Ferdinand eru ofar en hann þrátt fyrir að þeir séu báðir á undan honum í enska landsliðið. Carragher er góður en einn af 20 bestu leikmönnum Evrópu? Varla.

Arftaki Keane
Því miður held ég að hann sé ekki að finna innan veggja Old Trafford. Það er líka ljóst að það væri vanhugsað að kaupa einhvern leikmann sem þegar hefur spilað í meistaradeildinni ef við á annað borð gerum ráð fyrir að þeir komist upp úr riðlinum sínum. Ég held að það sé ljóst að leikmaðurinn þarf annað hvort að koma úr liði sem ekki hefur spilað í Meistaradeildinni í vetur eða frá liði utan Evrópu. Þá er manni kannski helst litið til S-Ameríku og það eru nokkrir sem maður hefur heyrt að séu að gera góða hluti með sínum liðum þar, flestir argentískir en einnig Kólombíumenn og Brassar. Það verður gaman að sjá hvort Ferguson fær aura til að kaupa í janúar eða bara hvort Ferguson verður yfir höfuð við stjórnvölinn hjá MUFC í janúar. Ég held að sé orðin stutt líflínan hans og sennilega fær hann að taka pokann sinn ef hann vinnur ekki einhverja titla á þessu tímabili. Það væri þó leiðinlegur endir á annars frábærum ferli hans hjá MUFC.

Mannorðsrán
Það hefur lengi verið í umræðunni hér á landi hversu erfitt sé að fá kynferðisafbrotamenn sakfellda hér á landi og hvort ekki sé rétt að létta sönnunarbyrðina. Þetta hefur sem betur fer ekki fengið hljómgrunn löggjafarvaldsins en nú hafa meint fórnarlömb fengið DV í lið með sér og þeir þarna á Djöfulsins Vitleysunni hafa nú einsett sér að eyðileggja mannorð hvers þess manns sem kærður er fyrir nauðgun. Ef þeir eru síðan sýknaðir þá kemur kannski leiðrétting einhvers staðar í smáauglýsingunum nema þá að Djöfulsins Vitleysan taki þann pól í hæðina að dómararnir hafi bara verið fífl og maðurinn sé bara samt sekur. Það er nefnilega þannig í DV-landi að hálfvitarnir sem vinna þar þykjast vita meira um lög og brot á þeim heldur en allir héraðsdómarar og hæstaréttardómarar til samans. Ég er nú ekki viss um að samanlögð greindarvísitala blaðamanna Djöfulsins Vitleysunnar sé hærri en ísskápsins á kaffistofunni hjá þeim og alveg örugglega ekki ef grasið inni í honum er talið með.

Að því sögðu ætla ég nú ekki að taka afstöðu til þeirra mála sem undanfarna daga hafa riðið fréttahúsum hérlendis en ég á nú ekki von á því að DV birti afsökunarbeiðni á forsíðunni ef meintur R0hypnol-nauðgari verður sýknaður. Þá verður fyrirsögnin örugglega "DÓMARASKANDALL" eins og venjulega. Viðkvæðið hérna heima er nefnilega yfirleitt þannig að þegar menn hafa verið ákærðir fyrir eitthvað þá eru þeir sjálfkrafa sekir í huga fólks og ef þeir eru sýknaðir er skuldinni yfirleitt skellt á lélega dómara fremur en slakan málatilbúnað eða raunverulegt sakleysi. Nema reyndar í Baugsmálinu en þar voru Baugsmiðlarnir búnir að heilaþvo landann svo rækilega að einhverjir auðtrúa töldu sakleysi Baugsfeðga augljóst. Fyrir mér er þetta einfalt. Ef ekki tekst að færa sönnur á sekt manna eru þeir saklausir fyrir mér nema ég hreinlega viti fyrir víst að þeir séu sekir (hafi sjálfur orðið vitni að verknaðnum). Það eru aðrir og betri menn langtum hæfari en ég að dæma um sekt eða sýknu manna. Ég ætla bara að leyfa þeim að vinna sína vinnu í friði og ætlast til að ég fái að vinna mína að mestu í friði líka. Friður!!!!

Þegar öllu er á botninn hvolft er ekki takandi mark á nokkru sem stendur skrifað í DV vegna þess að þó sannleikskorn geti leynst inn á milli þá er 99% bara sorpblaðamennska af verstu gerð enda var einhver slakasti rithöfundur þjóðarinnar ritstjóri þess blaðs lengi. Ég meina hann getur ekki einu sinni skáldað upp almennilegar fréttir - hversu ömurlegur getur einn maður verið?

Andríki...
...tók um helgina á máli sem ég hef haldið fram frá því ég sá Bowling for Columbine. Michael Moore býr ekki til heimildarmyndir heldur áróðursmyndir. Þær eru vissulega skemmtilegar en heimildargildi þeirra er nær ekkert. Raunverulega eru þær hálfs annars tíma fyrirlestur um skoðanir Moore's og raunar má segja honum það til tekna að margir eru sammála skoðunum hans. Það þýðir samt ekki að um heimildarmyndir sé að ræða. Menn verða að gera greinarmun á þessu og ég held að öllum væri hollt að lesa Helgarsprokið frá 27. nóvember. Fróðleg lesning og stungið á mörgum bólum varðandi heimildarmyndir.

Boltinn
Mínir menn að standa sig í gær/fyrradag á móti West Ham. Rooney var víst enn einu sinni allt í öllu í leik minna manna og það er gaman að sjá hvað honum hefur farið fram sl. mánuði. Það verður gaman þegar hann og Ronaldo verða orðnir fullmótaðir leikmenn með Mikel á milli sín á miðjunni. Ég held að framtíðin sé björt en við þurfum einn svona vinnuhest á miðjuna. Ég er hrifinn af Pirlo eða Gattuso en Gravesen, Vieira eða Gerrard mundu alveg duga líka.

25. nóv. 2005

Jæja!
Það fer að styttast í sjöþúsandasta gestinn hér á síðunni. Ef ég dreg þá sjálfsögðu ályktun að ekki nokkur maður nenni að kíkja á þessa síðu oftar en einu sinni þá eru þetta næstum 2,5% þjóðarinnar. Ótrúlegt ekki satt.

Jólafögnuður í vinnunni
Var í vinnunni í nótt og það var heilmikið að gera. Ætla því að leggja mig seinnipartinn svo ég verði upplagður í jólafögnuð í vinnunni í kvöld. Við ætlum að fara út að borða á Skólabrú þar sem við ætlum að gæða okkur á jólakvöldverð. Það verður örugglega hörkustuð. Held reyndar að allir hinir deildarlæknarnir ætli að kjúklinga á þessu. Þá er bara að detta í það með sérfræðingunum og hjúkkunum. Það verður fínt. Skilst að það hafi verið hörkustuð í fyrra svo maður bíður bara spenntur.

United
Mínir menn skitu í sig á móti Villareal á heimavelli á miðvikudag enda ekki við öðru að búast. Þeir hafa náð algeru Arsenalformi í CL og verða nú að vinna Benfica á útivelli í síðustu umferðinni til að eiga möguleika á að komast áfram. Það verður létt verk og löðurmannlegt.

Föt og frakki, kökubiti!!
Fór í morgunn í Herrahúsið á Laugavegi og reddaði brúðkaupsdressinu ásamt frakka og ýmislegu smálegu. Tók klukkutíma en svo á eftir að lagfæra fötin lítið eitt. Snilld. Var búinn að kvíða þessu í marga mánuði en þetta var fljótgert. Sá gamli kom með og keypti sér líka föt. Við verðum aðalgæjarnir í partýinu ásamt Valda tengdó. Það er búið að gera mikið grín að kallinum og veðmál standa yfir hversu lengi hann verði að draga Eddu upp að altarinu. Flestir veðja á 8 sek. sléttar en ég ætla að gefa kallinum smá breik og segja 11 sek sléttar. Valdi er nefnilega svo röskur að það verður eitthvað súrt hjá honum og að dóla eitthvað upp kirkjugólfið. Hann vill örugglega ná góðum sætum við altarið eða eitthvað. Sjáum hvað setur.

ÁTVR
Hversu viðeigandi er það að Átthagafélag Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu beri þetta nafn. Mér finnst þetta bara kúl.

George Best
Fallinn er frá einhver mesta goðsögn í sögu MUFC. Ekki nóg með að hann væri snillingur í fótbolta heldur var hann líka umdeildur glaumgosi og fyrsti rokkstjörnufótboltamaðurinn. Auk þess var hann ölur mjög og frægt er orðið þegar hann sagði í viðtali að hann hefði eitt megninu af peningunum sínum í konur, bíla og skemmtanir. Restinni sagðist hann hafa eytt í vitleysu.
Þrátt fyrir að hafa verið versti aumingi verður seint tekið af Best að hann var einn ástsælasti leikmaður MUFC fyrr og síðar og vottar Ljós-Gíslinn honum virðingu sína. Sannur snillingur hefur safnast til feðra sinna.
Haha! Ég er partýtröll!!!

Partítröll

Þú ert nýjungagjörn, tilfinningarík félagsvera.

Partítröllið fylgist vel með nýjustu straumum og stefnum hvort sem um er að ræða föt, tónlist eða græjur. Það eru 74.5% líkur á því að það eigi iPod, 61% líkur á því að það eigi Fred Perry póló bol og 96% líkur á því að það eigi Adidas skó. Partítröllinu finnst The OC vera skemmtilegur þáttur.

Partítröllið er vinsælt - eða telur sig að minnsta kosti vera það. Þótt margir laðist að því eins og flugur að mykjuhaug eru aðrir sem eru ónæmir fyrir þokka þess og enn aðrir sem hafa jafnvel ofnæmi fyrir því. Það eru þeir sem eru í eldhúspartíinu á meðan partítröllið hristir rassinn og baðar út öngum á dansgólfinu.

Þegar gamaninu slotar er partígríman þó fljótt tekin niður og undan henni kemur viðkvæma blómið sem partítröllið raunverulega er.

Hvaða'>http://www.stilbrot.com/trollafell/konnun/">Hvaða tröll ert þú?

22. nóv. 2005

Erfiður leikur í kvöld
Manchestermenn eiga erfiðan leik fyrir höndum í kvöld gegn Villareal á heimavelli í Meistaradeildinni. Þeir verða að vinna í kvöld til að komast áfram og það er nú ekki víst að það verði svo auðvelt. Sem betur fer skilst mér að Juan Roman Riquelme verði ekki með vegna meiðsla en hann er aðaldriffjöðurinn á miðjunni hjá þeim. Svo er bara að sjá hvort Forlan skorar á móti okkur. Það væri nú alveg týpískt.

20. nóv. 2005

Boltinn
Mínir menn tóku sig saman í andlitinu eftir sjokkerandi viku og gengu frá Charlton í dag. Gaman að sjá hvað Nistelrooy er í miklu stuði á þessu tímabili og nú verður maður bara að krossa fingur að hann meiðist ekki. Sömuleiðis má skilja á umfjöllun soccernet að Rooney hafi verið allt í öllu í leiknum í dag. Ég er alveg hrikalega ánægður með hvernig hann hefur staðið sig í vetur. Það er eiginlega miðjan og vörnin sem hefur verið að klikka en ekki sóknin og markvarslan á þessu tímabili.

Vaktirnar
Það er ótrúlegt hvað vaktirnar geta verið misjafnar. Yfirleitt er nóg að gera en samt þannig að maður getur andað á milli. Svo kemur ein og ein vakt þar sem er rólegt en oftar er breytileikinn í hina áttina og manni virðist sem allir landsmenn séu annað hvort fárveikir eða gjörsamlega geðveikir í slagsmálum og vitleysisgangi. Á vöktunum hérna sér maður sem sé bæði um gjörgæsluna og að svæfa fyrir þær bráðaaðgerðir sem koma upp. Maður er í náinni samvinnu við sérfræðinginn á vaktinni sem er á bundinni vakt í húsinu. Vaktirnar eru mjög lærdómsríkar auk þess sem þær eru mjög skemmtilegar en það er auðvitað svolítið vandnotað orð þegar maður er að fást við mjög veikt fólk. Að sjálfsögðu er ekkert gaman að sjá fárveikt fólk en það er engu að síður sérstaklega gaman þegar vel tekst til með bráðameðferðina. Á gjörgæslu eru venjulega veikustu sjúklingar spítalans hverju sinni og er ein slík á hvorum spítalanum auk þess sem það eru nokkur slík pláss á Akureyri. Margir gera að því grín að svæfingalæknar vilji helst sleppa við samskiptin við sjúklinga og vissulega eru þeir oft ekki til viðræðu en þá er einmitt mikið um samskipti við áhyggjufulla ættingja sem koma í staðinn og eru oft miklu vandmeðfarnari. Það er því mikill misskilningur að mannleg samskipti séu ekki ríkur þáttur í starfi svæfinga- og gjörgæslulækna og flestir hafa þeir einstakt lag á erfiðum kringumstæðum.

Skemmtilegar fréttir
Mogginn klikkar aldrei í áhugaverðum og mikilvægum fréttum eins og dæmin sanna. Ótrúlegt að mesti fréttavefur landsins skuli alltaf vera með svona ótrúlega tilgangslausar fréttir. Get ekki skilið að nokkur maður hafi áhuga á að vita það að einhver hafi skemmt bílinn sinn með því að aka á einhvern rolluræfil en ég hef svo sem haft rangt fyrir mér áður. Ekki oft en það hefur komið fyrir ;)

Konur gera það gott í prófkjörum
Sá úrslitin í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Þrjár konur af fimm efstu og 4 af 8 efstu. Það var löngu kominn tími á frambærilegar konur í Sjálfstæðisflokknum sem hingað til hefur alls ekki höfðað til kvenna. Ég veit ekki hvað breyttist en breytingin er góð.

18. nóv. 2005

Keane hættur
Obbosí. Hrikalegt svekkelsi að einn besti leikmaður Manchester frá upphafi skuli yfirgefa félagið undir þessum kringumstæðum en hann hefur sýnt sl. vikur að hann er ekki lengur traustsins verður. Persónulega finnst mér fyrir neðan allar hellur að fyrirliði liðsins skuli vera með blammeringar í útvarpi um félaga sína í liðinu, sérstaklega þegar hann er ekki einu sinni að spila sjálfur. Þetta er eitthvað sem á að fara fram í búningsklefa liðsins og kemur engum öðrum við. Ég held því að þetta muni reynast gæfuspor fyrir liðið þegar kemur fram á vorið. Nú neyðast þeir til að kaupa miðjumann sem helst getur borið fyrirliðabandið líka. Annars fannst mér ungu leikmennirnir sem Keane gagnrýndi hvað mest svara gagnrýni hans ágætlega á móti Chelsea. Því er hins vegar ekki að neita að ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með frammistöðu minna manna það sem af er vetri, sérstaklega í meistaradeildinni. Persónulega finnst mér nauðsynlegt að fá tvo heimsklassamiðjumenn strax í janúar. Ég er spenntastur fyrir Gravesen og Ballack persónulega en aðrir sem hafa verið nefndir til sögunnar eru svo sem allir frekar spennandi kostir. Sjáum hvort Ferguson hristi ekki enn einu sinni eitthvað tromp fram úr erminni.

Jón Ólafsson
Greyið hann Jón. Hann er búinn að eyða allri sinni fullorðinsævi í að kveða niður þann draug að hann hafi upphaflega efnast með vafasömum hætti. Maður hefði haldið að slíkur maður hefði andúð á hvers kyns Gróusögum og rógburði en það sannast enn einu sinni hvers kyns innræti þessi maður hefur þegar hann segist hafa heyrt út undan sér að skattrannsóknarstjóri hafi verið með einhverjar yfirlýsingar í einhverjum gleðskap um að honum hafi verið boðin aukafjárveiting fyrir að rannsaka meinta glæpi Jónanna tveggja (J.Ó og J.Á.J).

Nú hefur umræðan aðallega snúist um það hvort skattrannsóknarstjóri hafi verið fullur eða ekki sem mér finnst algert aukaatriði. Að maðurinn skuli leyfa sér að greina opinberlega frá einhverjum ummælum sem hann heyrði í einhverri kjaftasögu og draga þannig vísvitandi úr trúverðugleika embættismanns er náttúrlega með ólíkindum. Það er svo auðvelt að trúa svona sögum og svo erfitt fyrir fórnalambið að verjast slíku. Ég gæti sagt hér fullt af kjaftasögum um Jón Ólafsson greyið sem eru miður fallegar en mér dettur það bara ekki í hug af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi hef ég ekki hugmynd um hvort þær eru sannar og í öðru lagi hef ég ekki efni á að verja mig fyrir breskum dómstólum.

Eftir stendur hins vegar að í allri umfjölluninni hefur Jón hins vegar greipt í huga fólks álit þess á honum sem skúrk frekar en að mála einhverja hetjumynd af sjálfum sér eins og vafalaust var hugmyndin með bókinni. Það hefur enginn gleymt því að Jón gaf hér upp örfáa þúsundkalla í tekjur á mánuði þegar hann var einn umsvifamesti kaupsýslumaður landsins. Það hefur heldur enginn gleymt því hvernig hann seldi stóran hluta eigna sinna hér og flúði land þegar skattrannsóknin hófst. Saklausir menn flýja ekki. Nú veit ég ekki hvort Jón framdi þá glæpi sem honum voru gefnir að sök en hann var greinilega hræddur um að einhverjar beinagrindur læddust út úr skápnum þegar lögreglan færi á stúfana.

Ótrúlega viðeigandi
Heimasíða keppninnar um Herra Ísland er undirsíða á Ungfrú Ísland síðunni skv. þessari frétt á mbl.is. Hversu ótrúlega viðeigandi er það? Fór aðeins og kíkti á þessa síðu og á forsíðunni var ótrúlega kunnuglegt andlit sem ég kom þó ekki fyrir mig. Það var Ingunn Sigurpálsdóttir sem lenti í öðru sæti í Ungfrú Ísland síðast skv. síðunni. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að ég kannast ekkert við hana heldur er hún litla systir stelpu sem var í mínum árgangi í Garðaskóla og byrjaði reyndar með okkur í MR, Önnu Kristínar Sigurpálsdóttir. Þær systur eru sláandi líkar. Góð saga.

Boðskort
Jæja nú fara boðskortin út um helgina og þið getið haldið í ykkur andanum á meðan þið bíðið spennt eftir að sjá hvort þið fáið boð. Eða nei annars það er kannski ekki ráðlegt. Ólíklegt að kortin berist fyrr en eftir helgi og ég ráðlegg ykkur að halda ekki í ykkur andanum þangað til. Bara anda rólega og bíða spennt við lúguna. Eitt það erfiðasta sem ég hef gert er að sía út af gestalistanum og margir sem ég hefði alveg getað hugsað mér að bjóða komust ekki á listann. Sama er að segja um Eddu. Þetta hefði hæglega getað orðið 250 manns en við ákváðum að miða við ca. 150 og það var skorið niður í samræmi við það. Svona er lífið. Það er ekki öllum gefið að vera boðið í brúðkaupið þeirra Gísla og Eddu.

Gaman
Það er svolítið gaman að Googla gamla vini og kunningja sem maður hefur ekki haft samband við í mörg ár. Það kemur margt skemmtilegt í ljós.

17. nóv. 2005

Sælt veri fólkið!
Það er eitthvað skelfilegt andleysi yfir mér núna. Ég hef frá svo litlu að segja og þegar mér dettur eitthvað skemmtilegt í hug hef ég ekki aðgang að tölvu. Þegar svo í tölvuna kemur er ég auðvitað búinn að gleyma gríninu en svona gengur þetta bara. Vonandi fer ég að finna eitthvað skemmtilegt til að rífa mig yfir.

Nýjustu meiðslin
Ég er orðinn þvíumlíkt rosalegur hrakfallabálkur. Nú síðast missteig ég mig á æfingu í gær og rústaði á mér ökklanum. Nú get ég varla gengið en ég læt mig hafa það með teygjusokk og spelku. Er á vaktinni um helgina þannig að það verður bara Íbúfen og Parkódín helgi hjá mér. Reyni að setja einhverjar færslur inn um helgina.

14. nóv. 2005

Afmælisbörn dagsins
Gleymdi náttúrlega afmælisbörnum dagsins í færslunni fyrr í dag.
Fyrstan skal nefna Sigurð Loftsson stórbónda í Steinsholti og fyrrum fóstra minn sem varð 42 ára í dag og er því nákvæmlega jafngamall Surtsey gömlu.
Síðan er hjúskapur foreldra minna árinu yngri en þau gengu í það heilaga þann 14. nóvember 1964 ásamt reyndar Ingibjörgu systur hans pabba og manni hennar Þorbergi.
Síðastur en alls ekki sístur er síðan Emil gamli sem varð 29 í dag og fær hamingjuóskir Ljós-Gíslans eins og önnur afmælisbörn.
Til hamingju öllsömul.
Erlendir strætisvagnabílstjórar
Sá um daginn einhvers staðar á netinu að menn eru farnir að væla yfir því það séu útlendingar sem ekki skilja íslensku farnir að keyra strætó. Ég skil ekki vandamálið. Þeir sem taka á strætó á Íslandi eru útlendingar sem eru vanir almenningssamgöngum frá heimalandi sínu og svo unglingar sem eru ekki með bílpróf. Hvorugir tala yfirleitt almennilega íslensku svo ég sé ekki ástæðu til að krefjast þess af bílstjóranum að hann tali hana reiprennandi. Svo er líka bannað að tala við vagnstjórann. Maður á nefnilega að standa fyrir aftan rauðu línuna ef ég man rétt. Það eina sem vagnstjórinn þarf að kunna í íslensku er fargjaldið: "1500 kr fyrir fullorðna og 1499 fyrir börn". Svo þarf hann að geta sagt "ef þú átt ekki pening drullaðu þér út". En annars að öllu gríni slepptu þá finnst mér bara sniðugt að ráða útlendinga í þjónustustörf og þessi. Neyðin kennir þeim þá fyrr að tala íslensku sem er náttúrlega bara frábært, bæði fyrir þá og okkur hin.

13. nóv. 2005

Helgin
Er búinn að vera fremur rólegur um helgina þrátt fyrir að vera ekki í vinnunni. Á föstudaginn vorum við skötuhjúin bara róleg hérna heima að vinna í boðskortamálum og ég fékk mér einn bjór. Það var bara fínt að vera heima svona einu sinni og slaka á þó undirbúningur brúðkaupsins hafi verið meginþema kvöldsins. Síðan var tekið á því í gær því ég fór í Laugar í gærmorgunn. Síðan var farið í Smáralind í allskyns búðastúss þar sem ég keypti mér þessa líka fínu íþróttapeysu í Zara. Við urðum líka vitni að því þegar 470 jójógráðug börn settu heimsmet í fjöldajójói. Það ótrúlegt hvað hægt er að fá fólk til að gera fyrir ókeypis hluti.
Eftir Smáralind fór ég aðeins í spæjaragírinn og fann nokkur heimilisföng hjá tilvonandi brúðkaupsgestum en seinni partinn fór ég síðan í boltann og loks í mat til Svenna mágs sem hélt matarboð fyrir nánustu fjölskyldu í tilefni af afmælinu sínu. Þar fékk maður aðeins í aðra tánna og frábært læri líka. Komum heim um tvöleytið og þá fór ég algerlega uppgefinn í bælið.
Svaf síðan frameftir í morgunn og er svo búinn að vera í þessu boðskortaveseni í allan dag. Það gengur ágætlega.
Ætla síðan að gera heimatilbúna pizzu fyrir okkur á eftir en við verðum sjálfsagt langt fram á kvöld í þessu stússi öllu saman.

Króatinn á vertíð
Króatinn var svo blankur að hann skellti sér á vertíð til Ísafjarðar. Þar stundar hann hvalveiðar af kappi um helgar en í miðri viku skrifar hann ritgerð af miklu kappi. Sendum honum baráttukveðjur á Ísafjörð. Áfram Krói - You can do it!!!

England-Argentína
Helvítis Tjallarnir geta þetta þá ennþá. Owen litli er að blómstra hjá Newcastle og sannaði sig enn og aftur í gær með því að skora 2 í lokin eftir að hafa varla sést í leiknum (ef marka má lýsingar). Það eru alltaf góðir framherjar sem geta átt lélegan leik en samt skorað tvö mörk. Annars verð ég nú að segja að mér finnst mest gaman þegar S-Ameríkuþjóðirnar vinna þessa heimsmeistaratitla því fótboltinn þeirra er bara svo miklu skemmtilegri og meira fyrir augað. Ég held ég haldi bara í gamlan vana og haldi með Brössum á næsta HM.

12. nóv. 2005

Boltinn
Ég er að verða svolítið leiður á öllum þessum fréttum af mönnum sem MUFC á að vera á höttunum eftir. Best væri að sögurnar hættu bara alveg og þeir keyptu menn í stað þess að slúðra um það. Eða þá ekki. Maður vinnur ekki titla á að slúðra í blöðin. Ef þetta lið þarna eyddi helmingnum af þeim tíma sem þeir nota í að blaðra við blaðamenn þá mundi kannski eitthvað ganga upp hjá þeim.

Andleysi
Ég hef eitthvað svo lítið að segja þessa dagana. Kannski er það af því að ég hef verið að vinna svo mikið eða kannski er það bara af því að ég er sprunginn. Heimsækið mig daglega næstu vikurnar og þið munuð komast að því hvort er.

Skottulæknir
Sá Birnu Smith í Kastljósinu í gær. Hvernig er hægt að vera svona ótrúlega ósvífin. Konan sat þarna í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu og hélt því fram fyrir framan alþjóð að hún gæti talað við stofnfrumuna (ath. ekki fleirtala heldur eintala) og þannig læknað sjálfa sig af alls kyns kvillum. Mér fannst Magnús Karl komast vel frá þessu því hann hrakti allt sem hún sagði án þess að vera ókurteis eða hleypidómafullur. Hann bara svaraði henni með vísindalegum rökum. Greyið konan gerði sig að algeru fífli og maður eiginlega vorkenndi henni bara að vera svona ótrúlega eitthvað bjánaleg. Það er nú lágmark að koma sæmilega undirbúin í svona rökræður en það var augljóst að konugreyið hefur aldrei einu sinni litið í líffræðibókina sína í gaggó. Mér liggur við að segja að hún hafi ekki einu sinni verslað í bókabúð sem selur líffræðibækur, svo illa var hún að sér. Nú er ekki svo að ég sé alfarið á móti óhefðbundnum lækningum. Síður en svo. Ég er bara á móti því að svona loddarar haldi því fram að þeir geti læknað sjúkdóma með eintómu kukli af því að einhver lærifaðir þeirra sem sennilega er geðveikur segir þeim að það sé hægt. Ég er líka á móti kuklurum sem ráða skjólstæðingum sínum að afþakka hefðbundnar vísindalega rannsakaðar meðferðir og þiggja í staðinn eitthvað djöfulsins óvísindalegt og ósannað fimbulfamb. Þetta jaðrar á köflum við tilraun til manndráps.
Ég ber hins vegar virðingu fyrir þeim sem bera virðingu fyrir læknavísindunum. Fjölmargir iðkendur óhefðbundinna lækninga leggja hart að skjólstæðingum sínum að þiggja áfram hefðbundnar meðferðir og útskýra fyrir sjúklingnum að hvor aðferð fyrir sig hjálpi hinni í virkni sinni. Hvort sem það er rétt eður ei er víst að margar óhefðbundnar aðferðir gera fólki, sem er komið á fremsta hlunn með að gefast upp, kleift að sjá einhverja von áfram og hún er það mikilvægasta sem langveikur sjúklingur býr yfir.

Kári fór líka á kostum!!!
Kári fór líka á kostum í þess Kastljósi og ræð ég þeim sem misstu af honum að nálgast hann. Held það sé hægt á netinu. Kári var eins og snaróður vísindamaður með silfurgrátt hárið upp í loftið og tryllingslegt augnaráð. Síðan fór hann í stríð við eyrnagræjuna og þá var orrustan töpuð. Hann hringsnerist í stúdíóinu og sýndi myndavélinni rassinn ítrekað. Það vantaði bara að hann múnaði í myndavélina.

Læt þetta duga í bili. Látið endilega heyra í ykkur á kommentakerfinu. Það gengur ekki að þetta sé bara spjallþráður fyrir þá Heiðar og Þorgeir.

11. nóv. 2005

Afmælisbarn dagsins!!
Edda mín átti afmæli í dag, 10. nóvember og varð hún 27 ára. Það var haldin smá afmælisveisla fyrir nánustu vini og vandamenn. Í gær átti tengdapabbi líka afmæli og gleymdi ég að senda honum kveðju þá. Er það gert hér með. Til hamingju með afmælið bæði tvö.

10. nóv. 2005

Vinna og aftur vinna
Var að klára svolítið erfiða vaktaviku. Tók 5 vaktir á 8 dögum. Það getur tekið helvíti hraustlega á, sérstaklega ef það er mikið að gera. Nú tek ég ekki vakt í nokkra daga og get hlaðið batteríin en þetta eru reyndar fremur erfiðar vikur framundan þar sem ég er að taka vaktir aðra hverja helgi í einn og hálfan mánuð. En maður kvartar ekki því yfirleitt finnst mér gaman í vinnunni (að því undanskildu að það er ekki gaman að fólk skuli vera veikt).

Brúðkaupsundirbúningur
Það er allt að komast á fullt. Boðskort, tónlist, matur, ljósmyndari o.s.frv. Ætli við verðum ekki orðin brjáluð áður en yfir líkur. Það er alla vega frá að panta kirkju, prest og sal. Gott að vera búinn að því. Nú er bara spenningurinn hjá ykkur félagar. Fáið þið boð eða ekki. Það er spurningin.

Heiðar og Þorgeir
Þeir félagar eiga greinilega margt vantalað. Þeir standa í þeirri trú að commentakerfið mitt sé spjallþráður fyrir þá og verði þeim að góðu. Við hin höldum þá bara áfram að nota MSN. Njótið piltar.

7. nóv. 2005

Prófkjörið
Þá er prófkjörinu lokið og flokkurinn getur snúið sér að baráttunni um borgina. Þrátt fyrir að baráttunni um fyrsta sætið hafi ekki lokið eins og ég vonaði er margt jákvætt við niðurstöðuna.
Í fyrsta lagi eru konur augljósir sigurvegarar í prófkjörinu. Hanna Birna nær örugglega öðru sætinu og síðan eru fjórar aðrar konur í tíu efstu sætunum. Það er langt síðan konur hafa náð svona glæsilegum árangri í prófkjöri flokksins og ég held að við sem höfum stutt flokkinn ættum að vera stolt af þessu. Sennilega hefur nýafstaðin kröfuganga kvenna í borginni átt sinn þátt í þessum glæsilega árangri en ég held að meginástæða þessarar frábæru niðurstöðu sé sú að þessar konur eru einstaklega frambærilegar, hver á sinn hátt.
Í öðru lagi held ég að við getum fagnað því hvað unga kynslóðin stóð sig vel í þessu prófkjöri. Af tíu efstu eru sjö sem eru yngri en fertugir og átta yngri en fimmtugir. Júlíus Vífill er fæddur 1951 og Vilhjálmur 1846... nei ég meina 1946. Ég tel því að Sjálfstæðismenn séu að veðja á nýja kynslóð í flokknum og það er gott.
Í þriðja lagi finnst mér mikilvægt að flokksmenn eru að veita mörgum einstaklingum sem ekki hafa verið áberandi í borgarpólítíkinni kjörgengi. Það er sem sé ekki bara unga kynslóðin sem er að ryðja sér til rúms heldur líka mikið af nýju fólki. Þetta held ég að muni reynast mjög mikilvægt þegar kemur að kosningunum í vor.
Það er svo sem ekki margt neikvætt við þetta prófkjör að mínu mati. Það helsta er að Vilhjálmur skyldi sigra en ég vona bara að hann komi mér á óvart. Auk þess finnst mér ekki gott hvað Júlíus Vífill og Bolli enduðu ofarlega. Ég er ekki sérlega hrifinn af þeim tveimur af ástæðum sem ég ætla ekki að básúna hér. Látum bara sitja við það að mér líkar ekki fyrri saga þeirra innan sem utan flokksins.
Í framhaldinu held ég að það væri sterkur leikur að færa Gísla Martein niður í áttunda sætið og nýta sér þannig það mikla persónufylgi sem hann hefur og færa síðan þá sem eru á milli hans og áttunda sætisins ofar sem því nemur. Ég er hvorki viss um að prófkjörsreglur leyfi þetta (hef ekki kynnt mér það) né hvort Gísli Marteinn væri yfirhöfuð fáanlegur til þess ef reglur flokksins leyfðu.

Boltinn
Mínir menn stóðu sig í gær þrátt fyrir hrakspár mínar. Frábært afrek að binda enda á 40 leikja sigurgöngu Chelskymanna. Maður minnist með gleði í hjarta á það þegar við bundum enda á aðra aðeins lengri sigurgöngu í fyrrahaust um svipað leyti. Mér skilst nú að úrslitin hafi ekki endilega verið alveg sanngjörn, að kannski hefði jafntefli gefið rétta mynd af gangi leiksins en mér er sama. Þrjú stig eru gulls ígildi hverjir svo sem andstæðingarnir eru og hvernig sem þau nást. Það er líka augljóst að Keane hefur mikil áhrif á frammistöðu sinna manna þrátt fyrir að hann spili ekki leikina sjálfur. Þvílíkur leiðtogi. Þó hann hafi dalað töluvert á síðastliðnum árum held ég að það verði erfitt að finna arftaka hans. Svona miðjumenn fæðast ekki nema einu sinni á áratug. Nú vona ég bara að mínir menn finni sjálfstraustið sem þá hefur vantað svo tilfinnanlega síðastliðnar vikur.

Da Vinci Code
Var að ljúka við þessa frábæru bók og hef verið að surfa á netinu í leit að allskyns vitleysu tengdri því sem kemur fram í bókinni. Dan Brown hefur lagst yfir ótrúlega heimildavinnu áður en hann setti saman þessa frábæru sögu og verður hann að fá hrós fyrir frábæra fléttu og einstaka frásagnargáfu. Sumt fólk er bara fætt til að segja sögur. Ég las þessar tæpu 600 síður á rúmri viku, þar af hef ég lesið rúmlega 300 núna um helgina. Ég hef verið á næturaktinni um helgina og það hefur verið fremur rólegt auk þess sem ég hef verið andvaka síðustu tvær nætur eins og sést á ókristilegri tímasetningu þessarar færslu.
Annars þá finnst mér "plottið" alveg frábært en ætla að sjálfsögðu ekki að ljóstra upp um það hér ef vera skildi að einhver annar en ég sé ekki löngu búinn að lesa bókina. Ef það á við um eitthvert ykkur ræð ég þeim hinum sama að ráða bót á því hið snarasta.

5. nóv. 2005

Prófkjörið
Fór að kjósa áðan og Valhöll var full út úr dyrum. Þrátt fyrir að vera skráður í flokkinn þá fékk ég bara tvær hringingar. Þær voru frá Davíð Ólafi og hringdi Hafsteinn í mig í morgunn en ég geri ráð fyrir að það hafi verið fyrir Gísla Martein. Það verður gaman að fylgjast með þessu í kvöld og sjá hvernig þetta fer allt saman. Ég vona að Gísli nafni minn vinni en ég vona eiginlega enn frekar að Sjálfstæðismenn hafi séð sóma sinn í kjósa allar þessar efnilegu konur. Það væri klókt fyrir komandi kosningar að stilla upp lista með þessum efnilegu konum.

Boltinn
Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að horfa á leikinn á morgunn. Ég vona auðvitað að mínir menn standi sig en ég get ekki hugsað mér að sjá þá tapa fyrir Chelsky. Annars held ég að Ferguson verði rekinn fljótlega ef þetta fer ekki að ganga. Hann er of stoltur til að segja upp og það gæti gert það að verkum að stjórnin verði að reka hann. Það væri leiðinlegur endir á annars frábærum ferli þessa magnaða þjálfara.

Nína Þorbjörg
Gleymdi að minnast á í síðustu færslum að Árni Grímur og Steinunn hafa nefnt litluna sína þessu fallega nafni. Til hamingju með nafnið öllsömul.

Annars ætla ég að láta þetta gott heita í dag. Skrifa aftur fljótlega.

2. nóv. 2005

Prófkjörið
Ég er svolítið hissa á einu. Þrátt fyrir að vera skráður í Sjálfstæðisflokkinn hef ég ekki fengið eitt einasta símtal frá frambjóðendunum. Kannski halda allir að ég sé of þver til að mér verði snúið og kannski hafa þeir nokkuð til síns máls. Ég er tiltölulega þver eins og fólk sem þekkir mig veit en það er nú kannski eitthvað sem framtíðarpólítíkusar verða að geta gert. Sannfært þá sem eru ósammála þeim. Ég frétti til dæmis í dag að ég er með fýlukall fyrir framan nafnið mitt í skránum hjá Vilhjálmi. Ekki veit ég hvernig þeir fengu það út enda hefur enginn þeirra talað við mig. Kannski eru framboðin með lið í að fletta nafni frambjóðandans upp á Google á hverjum degi til að fylgjast með andanum í þjóðfélaginu. Hver veit? Þó ég hafi ekki trú á að Vilhjálmur leiði hægrimenn til sigurs var ég nú að spá í að hafa hann ofarlega á mínum lista en nú er ég ekki svo viss. Hvurslags eiginlega stjórnmálamaður gefst bara upp? Ég bara spyr.
Annars hef ég haldið áfram að kynna mér frambjóðendurna og ég er kominn á þá skoðun að loksins loksins er kominn stór hópur af frambærilegum konum í framboð fyrir flokkinn. Loksins eru komnar konur í framboð sem eru raunverulegir valkostir. Ég held bara að það endi með því að ég setji þær allar á listann hjá mér og sumar þeirra mjög ofarlega. Ekki nóg með að þær séu með ágætis áherslur í málefnum heldur koma þær þeim frá sér með sóma og hafa persónutöfra í ríkum mæli. Áfram stelpur!! ;)

Stund sannleikans
Var á vaktinni í nótt og því átti ég vaktafrí í dag. Við pabbi nýttum daginn í hestastúss. Sindri hennar Eddu er loksins kominn á tamningaraldur og er búinn að vera hjá tamningamanni í mánuð. Það var orðið ágætt í bili enda Sindri ennþá hálfgerður unglingur. Hann er hins vegar að lofa rosalega góðu og ég var í það minnsta meiriháttar ánægður með framfarirnar. Nú fær hann frí eitthvað fram á vorið og þá kannski tek ég aðeins til við hann sjálfur og kenni honum praktíska hluti eins og að teymast og fleira. Hann lofar alla vega mjög góðu og mér skilst á tamningamanninum að hann verði góður konuhestur sem eru nákvæmlega það sem hann átti að verða.

Fótboltinn
Nú er ég alveg að gefast upp á mínum mönnum. Þeir voru að tapa í Meistaradeildinni fyrir Lille og nú er útlitið svart. Kannski er bara kominn tími á að láta Ferguson fara og selja Keane. Ég er nú ekki sammála Keane samt með Richardson sem hefur verið að standa sig ágætlega. En ég er fullkomlega sammála honum með Rio og Fletcher. Þeir hafa bara ekki verið að sýna neitt með liðinu í vetur og ég var hissa að sjá Rio í liðinu í kvöld. Ég held samt að það sé hægt að leysa vandamálið með einum eða tveimur góðum miðjumönnum. Sjáum til hvernig fer en ég held að ef ástandið lagast ekki á næstu vikum fái einhverjir hausar að fjúka um áramótin.