Geir H. Haarde Forsætisráðherra
Björn Bjarnason Dóms- og kirkjumálaráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson Menntamálaráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Heilbrigðisráðherra
Bjarni Benediktsson Iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Árni Mathiesen Landbúnaðarráðherra
Kristján Þór Júlíusson Samgönguráðherra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Utanríkisráðherra
Össur Skarphéðinsson Sjávarútvegsráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir Félagsmálaráðherra
Björgvin G. Sigurðsson Umhverfisráðherra
Kristján Möller, Sturla Böðvarsson, og Einar K. Guðfinnsson munu sjálfsagt seint sætta sig við að fá ekki ráðherraembætti en það geta auðvitað ekki allir orðið ráðherrar. Sturla og Einar voru auðvitað báðir ráðherrar síðast en enginn ráðherra Sjálfstæðismanna kom úr Norðausturkjördæmi á síðastliðnu kjörtímabili. Nú hlýtur að vera komið að þeim og ég er hrifinn af Kristjáni. Ég sé nú reyndar strax þá meinbugi á þessarri spá minni að sennilega verður ráðuneytum jafnskipt en ekki sjö á móti fimm eins og ég hef skrifað auk þess sem ég er fullviss um að Björgvin þarf líklega að víkja fyrir Kristjáni Möller. Auk þess er mér ljóst að líklega verður Ágústi Ólafi ekki treyst fyrir svo veigamiklu ráðuneyti sem fjármálaráðuneytið er þrátt fyrir að hann sé líklega með hentugustu menntunina. Ég er sífellt að verða hrifnari af honum Ágústi sem stjórnmálamanni því hann virðist hafa raunverulegan brennandi áhuga á því sem hann er að gera. Efnilegur pólítíkus þar á ferð. Nú er bara að vona að Ingibjörg láti ekki vonbiðlana freista sín og standi við sitt.
1 ummæli:
Ágúst Ólafur Ágústsson Fjármálaráðherra!!!
FAT FU**ING CHANCE!
GTi
Skrifa ummæli