22. apr. 2009

Magnaður leikur

Leikur Liverpool og Arsenal á Anfield í gær er einn besti leikur sem ég hef séð í áraraðir. Stórkostleg skemmtun, sérstaklega seinni hálfleikur. Svona á að spila fótbolta. Arshavin betri en ég hafði trú að hann yrði í enska boltanum. Klárt að Arsenal verða góðir á næsta ári, haldi þeir mannskapnum sínum óbreyttum eða bæti við.

Að sjálfsögðu!

Efast einhver um þetta lengur? Nú er rétti tíminn til að kýla á þetta. Skapa störf og spara peninga á LSH á einu höggi. No brainer!!!

Kosningar 2009

Ég verð að viðurkenna að aldrei hef ég verið eins ringlaður fyrir kosningar. Hingað til hef ég aldrei verið í neinum meiriháttar vafa um hvað ég á að kjósa. Stefna Sjálfstæðisflokksins hefur yfirleitt heillað mig og gerir það raunar enn en lengi hef ég verið efins um ágæti flestra þingmanna flokksins. Nú hefur að sjálfsögðu komið í ljós að sá efi var fullkomlega réttlætanlegur. Svo virðist sem heiðarlegt fólk eigi ekki upp á pallborðið í þessum flokki. Ungliðahreyfingarnar hafa í mörg ár verið keyrðar áfram með atkvæðasmölun og ber mér fyrir augu sem ekkert annað en kosningasvindl þó sjálfsagt sé það ekki þannig í laganna skilning. Mér misbauð algjörlega fyrir tæpum 10 árum síðan og hef ekki tekið þátt í ungliðastarfi flokksins síðan, fannst ég ekkert hafa þangað að sækja. Flokkurinn hefur verið að rotna innan frá síðan seint á 10. áratugnum a.m.k. og kannski lengur. Síðan koma þessi krakkagrey inn í prófkjörin og halda áfram sama djöfulsins bullinu, atkvæðasmölun og skítkasti. Skipulagðar herferðir gegn andstæðingum sínum í stað þess að byggja upp almennilega málefnalegan grunn fyrir kosningunni. Peningana fá þeir gefins frá illa innrættum peninganna mönnum sem hafa sjálfir efnast á því að taka lán og áhættur. Mútur?! Hverjum ætli þessi vesalings grey standi með þegar kemur að því að koma böndum á skúrkana. Auðvitað er inn á milli gott fólk eða í það minnsta fólk sem maður hélt að væri heiðarlegt. Ég hélt t.d. að Geir kallinn væri heiðarlegur en nú hefur komið í ljós að FL og LÍ mútuðu honum (styrktu hann/flokkinn) með 55 milljónum og enginn veit með vissu hvaðan restin kom. Í stuttu máli þá er enginn leið fyrir mig að styðja við bakið á svona löguðu. Engin leið að kjósa flokk sem eftir svona afhjúpun hefur ekki einu sinni dug í sér til almennilegrar endurnýjunnar. Ennþá sama helvítis keypta pakkið og áður, bara búið að fara í ljós og ný jakkaföt, smá í ræktina til Ágústu eða í WC. Helvítis fokking fokk!!! Eftir situr einn maður sem ég hef álit á en því miður er það ekki nóg til að kjósa flokkinn. Sá maður heitir Birgir Ármannsson.
Hvar stendur hægrisinnaður velferðarsinni þá á Íslandi. Skoðum aðeins landslagið:

Samfylkingin
Hér höfum við flokk sem er að minnsta kosti jafnspilltur og Sjálfstæðisflokkurinn þar sem fyrrum formaður hefur viðurkennt að hafa veit háum styrkjum frá Baugi viðtöku og nú hefur komið í ljós að þingmenn flokksins voru einnig keyptir að einhverju leyti. Samansafn af Evrópusinnum, félagshyggjubruðlurum og froðusnökkum. Ég hafði ákveðið álit á Ágústi Ólafi en hann var líka sá eini og er að sjálfsögðu kominn í frí frá pólítík. Ætli við sjáum hann nokkuð aftur. Formaðurinn er svo sem ágætis kerling en algjörlega vanhæfur forystumaður og eins og sagan sýnir okkur gjörsamlega ófær um að sýna aðhald. Hættulegt ætli hún að stjórna ríkisstjórn.

Vinstri grænir a.k.a. Hinn íslenski sósíalistaflokkur/Alþýðubandalagið
Það er vel hægt að gefa marxistaflokki nýtt nafn en þegar allt kemur til alls er það að sjálfsögðu stefnan sem skilgreinir flokkinn. Þrátt fyrir að reynt hafi verið að dulbúa sósíalísku stefnuna með náttúrverndarhjali getur hver einasti maður séð að um hreina sósíalíska stefnu er að ræða. Hún er svo sem góðra gjalda verð en hvernig á maður að treysta fólki til að leysa úr vandræðum þjóðarinnar þegar það þorir ekki einu sinni að koma fyrir sjónir kjósenda eins og það er klætt. Heigulsháttur ef þið spyrjið mig. Þó mega þingmenn VG eiga það að maður hefur á tilfinningunni að um heiðarlegt fólk sé að ræða. Því miður er það bara ekki nóg þegar stefnumál flokksins eru stórhættuleg fyrir þjóð í nauðum. Égmundi ekki geta horft í augun á börnunum mínum eftir 20 ár og sagt þeim að ég hafi stutt stjórn VG og Samfylkingar sem við fáum að sjálfsögðu eftir kosningar. Sjálfseyðingarhvöt landsmanna?

Framsóknarflokkurinn
Hvað er hægt að segja um Framsókn. Spilltasti og tengdasti flokkur landsins. Samansafn af hugsjónalausum framapoturum sem velja sér Framsókn af því að það er auðveldast að komast til áhrifa þar. Gamli bændaflokkur Íslands en ég held að langflestir íslenskir bændur séu löngu hættir að kjósa þá. Flestir velja Sjálfstæðisflokk eða Samfylkingu af þeim sem ég þekki, kannski einhverjir VG. Holdgervingur afturhalds og stöðnunar í íslenskri sögu í áratugi. Nýi formaðurinn algert súkkulaði og engan veginn tilbúinn í djobbið. Aldrei í lífinu kysi ég Framsóknarflokkinn.

Frjálslyndi flokkurinn
Skelfileg saga sundurlyndis og persónuárása innanbúðar. Ógeðfelld stefna í innflytjendamálum hjá ákveðnum aðilum sem ég taldi víst að yrði dregin upp í aðdraganda kosninganna en sennilega hefur tekist að koma böndum á hana. Samansafn þingmanna sem ég ber ekki nokkuð traust til. Vonlaust að kjósa þá.

Borgarahreyfingin
Ég var mjög opinn fyrir nýju framboði fyrir þessar kosningar og hef lagt mig allan fram um að vera jákvæður gagnvart þeim. Tillögur að úrbótum eftir kosningar hafa hins vegar verið barnalegar og stefnan nánast ósýnileg. Fulltrúar hreyfingarinnar sem ég hef heyrt til í besta falli verið hlægilegir. Sorglegt að ekki fáist almennilegt fólk úr þjóðfélaginu til að leggja nýju stjórnmálaafli lið. Það að þeir fái þó þetta mikið fylgi í könnunum segir manni að það hefði verið gríðarlegur hljómgrunnur fyrir almennilegu nýju framboði. Svekkjandi að það skyldi ekki koma fram.

Lýðræðishreyfingin
Ein ástæða til að kjósa hana ekki og algerlega nægjanleg: Ástþór Magnússon. Maðurinn hlýtur að vera að grínast.

Hvað kýs ráðvilltur lítill maður þá. Ekki neitt. Ég ætla að sitja hjá í þetta skiptið. Finnst það ömurlegt en veit að mér mundi finnast ömurlegra að velja einhvern þeirra kosta sem í boði eru.

10. apr. 2009

Ýmislegt

Boltinn
Mínir menn voru alveg í ruglinu hérna á þriðjudaginn og ég var ekkert rosalega kátur með Nonna bróður glottandi hérna yfir leiknum en svona er þetta. Ekkert óvinnandi vígi í Portúgal og eitt mark nægir mínum mönnum ef þeir drullast til að verjast eins og menn. Ég tók hins vegar gleði mína á ný eftir leiki miðvikudagsins þar sem Barca valtaði yfir Bayern og Chelsea lagði Liverpool. Af þessum tveimur liðum hata ég reyndar Chelsea meira en ég veit líka að ég óttast þá ekki eins og Liverpool. Helvítis poolararnir eru komnir með gamla góða takið á MUFC svo það verður fínt að losna við þá úr keppninni. Ég held reyndar að þeir geti alveg tekið Chelsea 0-3 á "Brúnni" en ekki án Gerrard eins og útlit er fyrir.

Tengdó
Fékk tengdó með flugpósti á miðvikudaginn. Tíminn er mikið fljótari að líða þegar maður er með góða heimsókn og við höfum haft það gott, borðað góðan mat og túristast svoldið. Fórum upp á Holmenkollen í gær til að sjá útsýnið og ég keyrði með þau víðar um borgina til að sýna þeim ýmislegt. Fallegt veður og útsýnið yfir Oslófjörðinn var geggjað. Stefnan tekin á Framsafnið í dag og svo kannski spóka sig aðeins á Karl Johans gate þó allt sé auðvitað lokað. Síðan er tengdamamma búin að panta verslunarferð í Sandvika Storsenter á morgun. Nóg að gera og þá líður tíminn fljótt.

Pólitík
Hrikalegt ástandið á skerinu og einhvern veginn kemur mér ekki á óvart að Guðlaugur Þór sé miðdepillinn í þessu. Ég vorkenni Bjarna greyinu því hann lendir í að troða marvaðann í saurnum úr fyrirrennurum sínum en hann hefur svo sem ekki verið manna duglegastur að gagnrýna forystuna sl. ár svo kannski á hann þetta bara skilið. Ég tel fullvíst að sigur vinstri aflanna verði gríðarstór í kosningunum í vor og það er kannski bara það sem við Íslendingar eigum skilið. Djúp lægð gerð verri af hleypidómafullum dulbúnum gamaldags kommum. Ég verð að segja eins og er að ég sakna þess ekkert að búa á skerinu ef menn eins og Steingrímur J. og Ögmundur eru þeir sem Íslendingar eiga að leiða þjóðina út úr þrengingunum. Verð bara hérna úti næstu 5-10 árin þar til Íslendingar vakna og lykta af beikoninu. Ekki það að ég skil svo sem að menn vilji ekki sjálfstæðismenn í stjórn. Þeir verða fyrst að endurvinna traustið sem þeir hafa saurgað sl. ár en valkostirnir eru nú ekki álitlegir. Sennilega væri skást ef Framsókn og Samfylking næðu saman án VG og Sjálfstæðisflokks. Þá yrði kannski einhver vottur af skynsemi í athöfnum ráðamanna. Guð hjálpi Íslandi.

5. apr. 2009

MACHEDA

Ole! Ole! Ole! Ole! Nei! Það var reyndar Federico "Kiko" Macheda sem bjargaði mínum mönnum í dag. Þvílík snilld. Drengurinn gjörbreytti leik Manchester United þegar hann kom inn á og allt í einu sást til manna eins og Giggs, Tevez og Ronaldo. Svo skoraði hann þetta stórglæsilega mark. Minnti nokkuð á einn lítinn sætan Norðmann sem oftar en einu sinni dró svona lagað fram úr skálminni þegar mikið lá við. Instant hero! Snillingur.

1. apr. 2009

Fréttir frá Noregi

Héðan er svo sem ekki mikið að frétta annað en ég vinn og les og sef.

Boltinn
Það er landsleikjapása í deildunum og þá er auðvitað ekkert að gera annað en að horfa á landsleikina. Er að fylgjast með Norðmönnum spila við Finna. Staðan 0-1 hér í Osló eftir fyrri hálfleik en Norðmenn voru að jafna. Íslendingar og Englendingar eru að spila líka þannig að það er nóg af leikjum að fylgjast með. Áfram Ísland!!!

Fjölskyldan
Eins og flestir vita neyddist Edda til að fara aftur heim með Hildi Vöku til að vinna aðeins því lítið var í boði hér úti fyrir ófrískan Íslending. Hún ætlar því að vera heima fram í maí og kemur aftur út til mín þá. Ég tel niður dagana þar til ég sé stelpurnar mínar aftur.

Vinnan
Ég reyni auðvitað að nota tímann á meðan ég er einn til að vinna eins mikið og ég get og síðan les ég á milli. Ég hef fengið upplýsingar um næstu rótasjón hér á sjúkrahúsinu og hún er ekki af verri endanum því ég verð á hjarta- og lungnasvæfingunni. Við erum að tala um stórar hjartaaðgerðir á fullorðnum og börnum, hjartaígræðslur og svoleiðis. Verður rosalega gaman og ég er þegar farinn að undirbúa mig með lestri. Hér úti er mikið lagt upp úr því að maður lesi í kringum vinnuna og því fær maður einn dag aðra hverja viku til lestrar. Það er auðvitað ekki alltaf sem gengur upp vegna manneklu að losa mann úr vinnu en það hefur gengið vel upp á síðkastið og þá notar maður tímann auðvitað vel. Annars hefur þetta farið vel af stað hérna úti og ég er gríðarlega sáttur með að vera loksins kominn af stað í sérnáminu mínu.

Veðrið
Eftir öll snjóþyngslin fyrstu 3 mánuðina hér er allt í einu að koma sumar. Nú er hver dagurinn á fætur öðrum sólskinsdagur með hlýju veðri en næturnar eru áfram kaldar. Íslenskt maíveður ef svo má segja og mér finnst eins og ég verði að fara að lesa undir próf. Ég held að sumarið sé á næsta leyti.

Kreppan
Það er ljóst að kreppan hefur komið við okkur eins og aðra. Maður finnur t.d. fyrir því þegar maður ætlar að flytja peningana sína að heiman hingað út. Það er ekki einfalt. Hins vegar getur maður huggað sig við það að á meðan vinstri stjórnin situr heima virðist gengi krónunnar á niðurleið og það kemur sér ágætlega þegar maður er með tekjur í erlendri mynt. Ekki minnka gjaldeyrishöftin ef marka má aðgerðir síðustu daga.