26. mar. 2007

Þjóðsöngur vanhelgaður

Það hafa verið ótrúlega miklar umræður um meinta vanhelgun Spaugstofunnar á þjóðsöngnum. Stundum skil ég ekki móðursýkina í þessu þjóðfélagi. Ég er persónulega á þeirri skoðun að öll lög sem banna fólki að tjá sig um nokkurn skapaðan hlut á hvern þann hátt sem því sýnist séu mannréttindabrot. Það væri gaman að sjá þetta mál fara fyrir dómstóla. Fáránlegt mál. Það sem mér finnst hins vegar sorglegra er þegar alls kyns vitleysingar eins og ég, sem færa skoðanir sínar á veraldarvefinn, nota tækifærið til þess að hrauna yfir þjóðsönginn. Það er ógeðslegt að sparka í liggjandi mann eða söng í þessu tilfelli. Kollegi minn Hjalti Már Björnsson skrifar á Hrafnasparki um þetta mál og leggur til að "Hver á sér fegra föðurland" verði þjóðsöngur Íslands framvegis. Ég skil ekki svona vangaveltur. Maður skiptir ekki bara um þjóðsöng af því að helmingurinn af þjóðinni getur ekki sungið hann. Persónulega er ég laglaus en ég kann textann og raula með.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég var nú kominn vel á aldur þegar ég loksins lærði í eitt skipti fyrir öll hvar s-in eiga að vera í upphafsorðum þjóðsöngsins. "Ha? Guðs vor lands? Land vors Guð? Hvernig er þetta?"

Vandræðalegt en satt.