4. jan. 2009
Kveðjustund
Við hjónin héldum gott kveðjupartý á föstudaginn. Það var opið hús og margir létu sjá sig til að kveðja Dvergmennið. Það var mjög gaman að sjá svo marga og ég er þakklátur fyrir allar góðu kveðjurnar. Ég gat síðan lítið sofið um nóttina og það endaði með því að við hjónakornin sofnuðum ekki fyrr en á milli tvö og þrjú um nóttina en síðan þurfti ég að vakna rétt fyrir fimm til að drífa mig út á flugvöll. Ingólfur skutlaði mér og það var kannski eins gott því hann fór hamförum í að redda mér þegar á reyndi í Leifsstöð.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli