Kannski ég taki einn Ragnar á þetta og skelli inn einni uppskrift hérna og athugi viðbrögðin.
Efni
500 g Nautahakk (helst ungnautahakk)
2 meðalstórir laukar
6 meðalstórar gulrætur
1/4 rauð paprika
4-5 rif hvítlaukur
2 msk rjómaostur (má líka vera rjómi)
1 dós niðursoðnir tómatar (hvort sem er hakkaðir eða heilir)
1-2 litlar dósir tómatþykkni (purre)
2 nautakraftsteningar eða nautasoð
Bragðbætt með basilikum og svörtum pipar
Jafnað með hveiti ef þarf og gott að bragðbæta með rauðvínsdreitli
Aðferð
Nautahakkið er brúnað í matarolíu í potti eða á pönnu í nokkrar mínútur. Síðan er lauknum, paprikunni og gulrótunum blandað saman við. Mér finnst best að hafa það gróft saxað því bitarnir rýrna alltaf við suðuna. Látið malla í smástund en síðan bæti ég niðursoðnum tómötum og u.þ.b. hálfri dós af vatni út í. Svo súputeningar og loks tómatþykkni. Bragðbætt með hvítlauk, svörtum pipar og basilikum. Mér finnst gott að krydda mikið en það er auðvitað smekksatriði. Lokahnykkurinn er síðan tvær matskeiðar af rjómaosti og kannski smá rauðvín ef það er spari. Ég setti lengi vel matreiðslurjóma en einhvern tíma átti ég ekki rjóma og setti þá rjómaost sem ég átti og mér finnst það gefa betri fyllingu. Síðan sýð ég þetta niður í 40-60 mínútur, því lengur því betra en ef maður er í tímaþröng þá er hægt að jafna með smávegis af hveiti. Síðan ber ég þetta fram með soðnu spaghetti. Auðvitað er best að búa til sitt eigið pasta en ég er ekki enn orðinn svo mikill atvinnumaður. Kannski maður læri það í fæðingarorlofinu á næsta ári. Það er líka mikilvægt að hafa nýbakað brauð og parmesanost, helst ferskan en þegar maður er með lítið heimili er hann fljótur að skemmast svo ég er yfirleitt með hann þurrkaðan nema þegar mikið liggur við. Svo er auðvitað best að hafa eitthvað gott rauðvín. Casillero del Diablo er í miklu uppáhaldi hjá mér en þetta er auðvitað smekksatriði.
Verði ykkur að góðu!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli