23. apr. 2007

Yfirburðir

Cristiano Ronaldo var bæði besti og efnilegasti leikmaður Ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Alex Ferguson var besti knattspyrnustjórinn. Í liðið ársins voru 8 leikmenn Manchester United, markmaðurinn, öll varnarlínan, báðir vængmennirnir og annar miðjumaðurinn. Gerrard, Drogba og Berbatov fylltu liðið. Persónulega finnst mér skrýtið að Evra og Neville skuli vera í þessu úrvali en aðrir áttu þetta fyllilega skilið. Ég held það sé enginn sem efast um það að MUFC er með besta liðið á Englandi í dag, nema kannski einstaka fáfróður Poolari.

Engin ummæli: