11. mar. 2007
Hörkuleikir í bikarnum
Manchester og Middlesborough spiluðu fínan leik í gær. Mínir menn áttu fyrri hálfleikinn en misstu einbeitinguna í lok fyrri hálfleiks og létu Boro jafna. Síðan mættu þeir sofandi í seinni hálfleik og það var ekki liðin mínúta af seinni hálfleik þegar Boateng kom Boro yfir. Það var hrikalega dapurt. En mínir menn voru í stuði og náðu að jafna eftir að víti var dæmt á Boateng. Það var fínt að jafna en það hefði verið betra að vinna þetta í gær í staðinn fyrir að þurfa annan leik. En þrennudraumurinn lifir enn svo maður getur ekki verið annað en kátur. Áfram Manchester United.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli