21. mar. 2007

Dapurleg dagskrárgerð

Ég horfði á Kastljósið í kvöld. Það verður að segjast eins og er að það hlýtur bara að vera gúrkutíð þessa dagana. Þegar dregnar eru upp tvær álíka ruglaðar stelpur og látnar rífast um það hvort launamunur kynjanna sé raunverulegur. Oddný Sturludóttir, sem hingað til hefur verið mest óþolandi kvenmaður landsins á eftir Kolbrúnu Halldórsdóttir var að rífast við jafnoka sinn sem ég held að heiti Heiðrún Lind Marteinsdóttir. Sú síðarnefnda bar þess greinileg merki að hafa marinerast í Heimdalli eða einhverjum álíka leiðinlegum félagsskap um nokkurt skeið. Það eina sem Heiðrún hafði að segja var að hún teldi launamuninn stórlega ýktan. Þá færði Oddný fram þá skoðun sína að hún teldi svo ekki vera. Hvorug þeirra gat fært fram áþreifanlegar sannanir fyrir skoðun sinni heldur voru þetta einungis þeirra eigin kenningar. Ég veit ekki með ykkur hin en ég er fullfær um að skálda upp mínar eigin kenningar um svona hluti en væri alveg til í að horfa á einhverja sem í alvöru hafa rannsakað þetta. Persónulega er mér drullusama hvað Heiðrúnu Lind og Oddný Sturludóttur finnst um launamun kynjanna eða launaleynd því hvoruga mundi ég kjósa. Helgi Seljan var síðan eins og þunnur piparsveinn á milli þeirra og reyndi að komast að. Greyið. Ég held að RÚV ætti bara að selj'ann.

Engin ummæli: