20. mar. 2007

"Ole Gunnar" lætur bíða eftir sér

Edda er enn hin rólegasta og lætur mig bíða óþreyjufullan eftir "ola gunnari". Kannski er það hann/hún sem lætur mig bíða en hvað um það - ég er orðinn óþolinmóður. Ég er bara til í að verða sá gamli. Ég hef haft heimasíðu í smíðum fyrir barnið en er ekki búinn að opna hana enn, það gerist þegar fæðingin er yfirstaðin. Margir lesenda Ljósgíslans fá líklega sms en hinir verða að bíða frétta og hlekks hér á síðunni til að berja myndir af erfingjanum augum. Eddu dreymdi reyndar að stúlka mundi fæðast á 85 ára afmæli ömmu Gústu sem er á morgun og við bíðum þess vegna spennt eftir því hvort sá draumur rætist. Við misstum reyndar af gullnu tækifæri fyrir 22 dögum síðan að eignast dreng þann 26. febrúar en þá varð hinn eini sanni Ole Gunnar 34 ára. Þá hefðu allar varnir sjálfsagt brostið hjá Eddu gagnvart grátbrosleika örlaganna en nú verð ég líklega að sætta mig við eitthvað hefðbundnara íslenskt nafn. Baráttan heldur samt áfram. Einu sinni United maður, alltaf United maður.

Engin ummæli: