Var að lesa sáttmála Framtíðarlandsins á netinu. Tiltölulega pólítískt orðaður sáttmáli sem ég held að flestir geti skrifað undir hvort sem þeir eru með eða á móti þeim virkjanaframkvæmdum sem í gangi eru nú. Það eru samt alls konar kverólantar sem þurfa að eyðileggja svona fallega hugmynd með skítkasti og leiðindum. Þarna á ég við vitleysinga úr báðum fylkingum. Í fljótu bragði fann ég engan sem var nógu vitlaus til að skrifa mótmæli á heimasíðu Framtíðarlandsins en fólk sem er fylgjandi skrifar alls kyns meiningar þarna. Nokkrar eru skynsamlegar og margar bara mjög góðar og málefnalegar, hvort sem maður er sammála þeim eða ekki. En svo eru aðrir sem skrifa bara tóma steypu.
Ég þoli t.d. ekki eftirtaldar klisjur sem fólk fátækt af rökum notar:
1) Ég styð þetta af því að ég er ábyrgur foreldri
Eru þá allir sem vilja virkja óábyrgir foreldrar? Er þá ekki fínt að grisja bara óhæfa foreldra út úr í næstu kosningum og gelda þá við útganginn sem ekki kjósa græn framboð. Það mundi eflaust spara heilmikið í félagslegum útgjöldum vegna barnaverndarmála í framtíðinni.
2) Ég styð þetta sem hugsandi manneskja
Ég er viss um að flestir sem styðja þessa framkvæmd gera það að yfirlögðu ráði. A.m.k. hef ég ekki hitt neinn sem er fylgjandi virkjunum af því bara. Hins vegar eru margir sem eru á móti af því bara. Þannig er það nú bara.
3) Við erum með landið að láni frá börnunum okkar (ÆLA)
Þvílík endaleysa. Við eigum landið núna og eigum að ráðstafa því eins og skynsamlegast er akkúrat núna. Þannig er líklegast að við verðum börnunum okkar að gagni. Ef við hugsuðum alltaf þannig að allar ákvarðanir sem við tökum séu fyrir fósturstjúphálfsystkin barnabarna barnabarnabarnanna okkar þá yrði okkur aldrei neitt úr verki.
En af hverju notar fólk svona endaleysu þegar það er svo auðvelt að færa sannfærandi rök fyrir því að maður vilji ekki virkja? Við eyðum svo miklum tíma í að sannfæra alla aðra um að við höfum rétt fyrir okkur að við missum sjónar á raunverulegum tilgangi umræðunnar. Við verðum að ganga úr skugga um að við og allir aðrir sem taka afstöðu í þessum málum geri það á grundvelli þekkingar á málinu. Ætli mótmælendum sé til dæmis ljóst að stærsti hluti lónanna í virkjunum í neðri Þjórsá eru í farvegi sem þegar er til staðar? Ætli fylgjendum virkjunnarinnar sé ljóst að af framkvæmdunum hlýst gífurlegt rask á búsældarlegum býlum í Gnúpverjahreppi og örugglega austanmegin árinnar líka? Ætli mótmælendum sé ljóst að með rangfærslum í málflutningi sínum hafa þeir flæmt fleiri frá málstaðnum en unnist hafa? Þegar allt kemur til alls held ég að við verðum að taka afstöðu út frá okkar eigin sannfæringu en ekki láta hræða okkur með einhverjum bölsýnisspám fylkinganna tveggja. Ísland mun ekki sökkva í sjó þó við virkjum aðeins og iðnaður á Íslandi mun ekki leggjast af þó við virkjum ekki. Hættum þessu bulli og ræðum málin af einhverri skynsemi.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli