25. mar. 2007

Kynþáttafordómar Laxness.

Ég er að lesa stórskemmtilegt greinasafn Halldórs Laxness sem ber nafnið Upphaf mannúðarstefnu. Þarna er samansafn skemmtilegra greina um hitt og þetta, mest blaðagreinar sem birtust í skandínavískum tímaritum og blöðum í upphafi sjöunda áratugarins. Það er samt sumt sem skýtur skökku við við lestur bókarinnar eins og eftirfarandi dæmi sýnir (ég vona að ég verði ekki grillaður á hannesískan hátt fyrir að stela aðeins textanum hans Halldórs).

"Sá gyðingdómur sem birtist í stjórnarfyrirkomulagi Ísraels hins nýa aðhyllist umburðarlyndi í "hugmyndafræði" og er það ekki vonum fremur í þjóðfélagi þar sem saman kemur blóminn úr evrópskri skynsemi; en rétttrúuðum sabbatsvinum, er í Ísrael haldið í skefjum, svo þeir koma sér ekki við nema í hófi, en gegna þar sama hlutverki og rétttrúaðir menn annarsstaðar, og standa fyrir utan Jerúsalem á helgum og henda grjóti í bíla sem ekki halda hvíldardaginn heilagan."

og Halldór heldur áfram:

"Ódýr neysluvara og vélakostur handa almenníngi er því miður sterkara en hugsjónir. Þannig smáfalla menn fyrir kramvöru, jafnvel þótt þeir séu múhameðstrúar. En fyrir bragðið eru arabar þeir sem eftir urðu í Landinu helga, kanski álíka margir og allir íslendingar, komnir á hærra þjóðfélagsstig af sambúð við ísraelsmenn í hálfan annan áratug en obbinn af trúbræðrum þeirra hefur náð í ríkjum sjálfra sín á þeim 1300 árum sem liðin eru síðan spámaðurinn var á dögum".

Ætli rithöfundum mundi í dag líðast að skrifa svona texta?

Það er líka margt sem er gaman að lesa í bókinni og í kaflanum um rithöfunda eru margar stórskemmtilegar setningar:

"Sumir höfundar eru svo ákafir verkmenn að þeir fá aldrei ráðrúm til að hugsa sig um."

"Í miðri skáldsögu getur höfundurinn alt í einu byrjað ritgerð eða farið að halda ræðu um sjálfvalið efni, og aungan sakar, nema lesarinn verður þúngur yfir höfðinu, leggur frá sér bókina og fer að lúra"

"Þegar verið er að semja skáldsögu þá er holt að hafa símagjaldskrána til Falklandseya sér til leiðbeiningar. Óttinn við að þurfa að greiða undir hvert orð eftir gjaldskrá mundi forða mörgum höfundi frá málaleingíngum."

"Önnur tálsnara sem bíður leikritaskálds er sú þegar hann lætur eftir ástríðu sinni til að prédika móral yfir almenníngi í leikhúsinu."

"Vond skáld eru auðþekt á því að þau eru einlægt reiðubúin að rísa úr sæti og prédika fyrir öðrum vondum skáldum, - aðrir hlusta hvort sem er ekki á þau."

Þó ég sé ekki alltaf hrifin af skoðunum Halldórs er stórkostlegt að lesa textann sem hann skrifar. Ég fullyrði að enginn íslenskur rithöfundur, nema kannski höfundur Njálu, hefur svo stórkostlegt tangarhald á íslenskri tungu.

Engin ummæli: