3. apr. 2007

Hafnfirðingar í stuði

Naumt var það á laugardaginn. Það er varla hægt að kalla þetta niðurstöðu frekar en þegar Holræsa-Solla lét okkur kjósa um flugvöllinn. Það gæti vel verið að niðurstaðan hefði orðið á hinn veginn ef þetta hefði verið viku fyrr eða seinna, kannski degi fyrr eða seinna. En nú er niðurstaðan fengin og eins og eftir allar kosningar keppast menn við að túlka niðurstöðurnar og ráða í þetta allt saman en ólíkt því sem oft gerist þá viðurkennir Alcan að hafa tapað en þeir eru tapsárir og segjast nú vera að skoða framtíðarplönin og það hefur meira að segja verið talað um að loka bara gamla álverinu. Það væri bara pínulítið mátulegt á Hafnfirðinga ef Alcan byggði nýtt álver á Húsavík og lokaði síðan í Straumsvík.

Engin ummæli: