6. apr. 2007

Lúxusvandamálakosningar

Stærstu málin í komandi kosningum verða líklega umhverfismál og kannski pínulítið velferðarmál. Ég er ekki viss um að Íslendingar geri sér grein fyrir því hverslags munaður það er að svona mál séu aðalvandamálin. Atvinnumál eru náttúrlega dauður málaflokkur því allir sem vilja geta fengið vinnu ef þeir eru ekki mjög vandlátir og atvinnuleysi er skilgreint ekkert. (skv. alþjóðlegum fræðum er ákveðið atvinnuleysishlutfall talið eðlilegt þar sem fólk er t.d. á milli starfa eða fær ekki starf í stuttan tíma eftir að námi lýkur.) Fólk staldrar enda sjaldan lengi við á bótum hérlendis og mikil umsetning á lista atvinnulausra. Þegar pólítíkin og mannlífið er svo vandræðalítið kýs fólk um mál sem stendur nær hjartanu en buddunni og kýs þá gjarnan vinstri flokkana. Þegar fólk kýs í harðæri kýs það með buddunni og þá fáum við gjarnan sigur hægri flokkanna. Þetta gerist yfirleitt eftir 4 ára stjórnarsetu vinstri flokkanna hér á landi. Vitur hægri maður sagði eitt sinn að það væri mikilvægt að vinstri flokkarnir kæmust til valda á 12 ára fresti. Hann sagði að það væri gott til að koma í gegn mannabreytingum á hægri vængnum auk þess sem engum væri hollt að vera lengur en 12 ár við stjórnvölinn. Hann sagði líka að það væri vont að hafa hægri stjórn í 16 ár því þá væri stöðugleikinn orðinn svo mikill að það væri ekki víst að vinstri flokkunum tækist að klúðra honum á 4 árum og við ættum á hættu að hafa hér 8 ára vinstri stjórn. Ég óttast að það muni gerast eftir næstu kosningar og mínar verstu martraðir segja mér að Skringibjörg Sólbrún verði forsætisráðherra. Vegna draumfara minna er ég þegar farinn að undirbúa sérnám og mætti því segja að ég verði eins konar pólítískur flóttamaður enda á ég von á að allt verði hér á öðrum endanum á meðan ég er í sérnámi. Svo kem ég heim um það bil sem viðreisn hægri flokkanna hefst.

Engin ummæli: