3. apr. 2007

Boltinn

Helgin var góð fyrir mína menn. Ole Gunnar hélt upp á fæðingu dóttur minnar með því að negla lokanaglann í kistuna hjá Blackburn á Old Trafford. Áður hafði Scholes sýnt gamalkunna takta og dregið liðið aftur inn í leikinn. Carrick og Park skoruðu líka í góðum 4:1 sigri. Seinna á laugardaginn voru Chelseamenn ljónheppnir að landa sigri í skemmtilegum leik við Watford. Liverpool hefndi síðan ófaranna frá því fyrr í vetur með því að valta yfir Arsenal á Anfield og galopnaði þar með baráttuna um þriðja sætið því þeir hafa 2ja stiga forskot á Arsenal sem á reyndar leik til góða. Fallbaráttan er líka orðin mjög spennandi. Það er reyndar orðið nokkuð ljóst að Watford fellur en West Ham er komið í gírinn og það gæti orðið spennandi að sjá hvort þeim tekst að bjarga sér frá falli. Ég spái því reyndar að Wigan og Sheffield United fari niður með Watford en Charlton og West Ham bjargir sér. Tevez er að vakna og verður aðalmaðurinn hjá þeim nú í restina, Boa Morte gæti líka farið að blómstra fljótlega. Ég spái því að United verði meistari, Chelsea í öðru, Liverpool í þriðja og Arsenal í fjórða.

Engin ummæli: