31. mar. 2007

Ég er stoltur faðir

Okkur Eddu fæddist stórkostleg en agnarlítil dóttir í gærkvöldi. Hún vó aðeins 2600 g eða rúmar 10 merkur og var einungis 48 cm. Foreldrar hennar voru svo sem ekki mikið stærri við fæðingu svo það var ekki við neinum risa að búast. Alla vega kom hún í heiminn organdi og sparkandi eins og sönnum baráttujaxli sæmir og er þegar komin heim til sín þó ekki sé nema rúmur sólarhringur frá því hún fæddist. Hlekkurinn er bæði hér til hliðar og í fyrirsögninni hér að ofan.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með hana "Ögn" Bergmann.
Kv. Hallgrímur og Co Akureyri