Þegar ég vaknaði í gær var það við hringingu frá pabba. Það voru óskemmtilegar fréttir. Afi hafði verið fluttur mjög veikur upp á sjúkrahús og hann vildi láta mig vita. Einhvern veginn var ég ekki viðbúinn því að hann yrði veikur því hann er alltaf svo hraustur. En hann er í góðum höndum og ég verð að takast á við það erfiða hlutverk að vera aðstandandi og sætta mig við þá vel þekktu staðreynd að aðstandendur hafa yfirleitt ekki dómgreind til að stýra meðferð ættingja sinna. Ég reyni að vera bara túlkur fyrir áhyggjufulla fjölskylduna. Þetta er erfitt en silfurrefurinn er svo hraustur fyrir að ég er sæmilega bjartsýnn á framhaldið, nú er bara að bíða þolinmóður og láta tímann græða sárin.
Eftir að ég hafði kíkt á afa og fylgst með uppvinnslunni fór ég aðeins til tengdapabba og hjálpaði honum að hreinsa til í gamla herberginu hennar Eddu, bera rúm niður í kjallara o.fl.
Í gærkvöldi fór ég síðan í tvær veislur. Fyrst fór ég til Gissurar sem var að halda upp á sveinsprófið í rafeindavirkjun og babuð okkur til veislu heima hjá sér. Frábærar veitingar og skemmtilegt fólk. Eftir að hafa staldrað þar við rúma tvo tíma fórum við til Ingólfs og Áslaugar sem voru með Big Lebowski partý í tilefni af þrítugsafmæli Ingólfs, innflutningi í nýja íbúð og Íslandsmeistaratitil Ingólfs um síðustu helgi. Þar var líka mjög gaman. Eftir það skutluðum við Ingvari niður í bæ en á leiðinni heim lentum við í rassíu lögreglunnar við Perluna. Edda var látin blása og að sjálfsögðu var hún ekki búin að drekka neitt. Mér finnst þetta frábært framtak hjá löggunni og vildi að þeir gerðu þetta oftar.
2 ummæli:
Er Edda orðinn góðkunningi lögreglunnar....alltaf verið að láta hana blása. Austan fjalls sem og í bænum :-)
Já en hún var aðeins afslappaðri í þetta skiptið enda ekki einhver kolvitlaus frjálsíþróttanörd í skottinu. Hún er orðin miklu harðsvíraðri glæpon núna og tekur þetta ekkert til sín.
Skrifa ummæli