13. jún. 2007
Þorgeir og Helga eignast dreng
Þorgeir Gestsson félagi minn úr læknadeildinni eignaðist dreng númer tvö um helgina. Helga var líka með okkur í læknadeildinni. Til hamingju með það kæru vinir. Ákveðnar grunsemdir læðast að manni um nafnið á drenginn en engar tilgátur verða settar fram hér. Fleiri vinir og kunningjar eiga von á barni á árinu þannig að Hildur verður ekki á flæðiskeri stödd með leikfélaga í framtíðinni.
1 ummæli:
Takk fyrir kveðjuna Gísli minn. Sömuleiðis til hamingju með þína skvísu. Fallegt nafnið hennar. Kveðja frá strákafjölskyldunni í vesturbænum, Helga et al.
Skrifa ummæli