Jæja!
Ætli maður verði ekki að endurvekja bloggið á meðan maður er í útlandinu. Það er sem sagt komið á hreint að ég verð í Noregi næstu árin. Nákvæm dagsetning er ekki komin á hreint en það verður vonandi fljótlega. Ég hugsa að bloggið muni að mestu snúast um daglegt líf okkar Eddu, Manchester United og almennar hugleiðingar um lífið og tilveruna. Ég hef síðan ég bloggaði síðast misst mestallan áhuga á að eyða kröftum og tilfinningum í stjórnmálamenn (það gerðist fyrir kreppu en hefur ágerst á meðan á henni hefur staðið) þannig að þeir sem ætlast til að fá gömlu herskáu bloggin munu verða fyrir vonbrigðum.
Þar til næst
Engin ummæli:
Skrifa ummæli