25. apr. 2007

Fótbolti og hjátrú

Ég mundi seint telja mig hjátrúarfullan mann. Ég banka ekki í við þegar ég tala um hvað sé rólegt á vaktinni. Ég fer ekki yfir götu þegar ég sé svartan kött. Ég geng undir uppreistan stiga. Ég hef brotið spegil án þess að hljóta af því sjö ára ógæfu. En þegar kemur að rútínu í kringum fótbolta er ég sekur. Ég spila alltaf þegar ég get í treyju númer sjö og helst í Manchesterbúningi innanundir. Ég horfi alltaf á Unitedleiki í búning. En nú er ég held ég orðinn fullkomlega geðveikur. Í gær var ég að horfa á stórleik minna manna við Milan í Meistaradeildinni. Í hálfleik var staðan 1:2 Milan í vil eftir að snillingurinn Kaka hafði galopnað annars ágæta vörn United. Þá fattaði ég að ég hafði gleymt að setja dóttur mína í búning eins og ég hafði gert í seinni leiknum á móti Roma og reyndar líka þegar við horfðum á Watfordleikinn í bikarnum. Ég kippti þessu í lag í einum grænum og viti menn - Rooney setti tvö í seinni hálfleik og staðan fyrir seinni leikinn mun vænlegri en maður þorði að vona. Nú þarf Milan að sækja í seinni leiknum og þá myndast svigrúm fyrir Ronaldo, Rooney og Giggs til að setja eitt kvikindi. Þá vonar maður auðvitað að Vidic og Ferdinand verði komnir á ferðina en það er svo sem ólíklegt. Brown hefur reyndar verið að standa sig prýðilega en Heinze hefur verið hálfráðvilltur þarna í miðri vörninni. Vonandi nær hann áttum.

23. apr. 2007

Yfirburðir

Cristiano Ronaldo var bæði besti og efnilegasti leikmaður Ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Alex Ferguson var besti knattspyrnustjórinn. Í liðið ársins voru 8 leikmenn Manchester United, markmaðurinn, öll varnarlínan, báðir vængmennirnir og annar miðjumaðurinn. Gerrard, Drogba og Berbatov fylltu liðið. Persónulega finnst mér skrýtið að Evra og Neville skuli vera í þessu úrvali en aðrir áttu þetta fyllilega skilið. Ég held það sé enginn sem efast um það að MUFC er með besta liðið á Englandi í dag, nema kannski einstaka fáfróður Poolari.

Fótbolti

Mínir menn stigu feilspor á laugardag sem hefði verið dýrkeypt ef ekki hefði verið fyrir erkióvinina í Newcastle sem náðu góðu markalausu jafntefli við Chelsea í gær. Þetta er ennþá galopið. Manchester United á eftir að mæta Manchester City á City Ground og Chelsea á Stamford Bridge áður en þeir fá West Ham í heimsókn á Old Trafford í lokaumferðinni. Allt saman eru þetta gríðarlega erfiðir leikir því sá fyrsti er grannaslagur, næsti úrslitaleikur um Englandsmeistaratitilinn og líklegt er að West Ham verði að vinna síðasta leikinn ætli þeir að halda sæti sínu í deildinni. Þetta verður gríðarlega spennandi.

Viðbót:
Gleymdi reyndar að það eru fjórar umferðir eftir. Við eigum Everton á Goodison um næstu helgi. Vonandi klára þeir það.

Lítil börn

Íris og Halldór vinir okkar eignuðust stúlku þann 14. apríl og hún fékk strax nafnið Lísbet Hekla.
Kolla og Aron áttu þar á undan risastóran dreng á Föstudaginn langa sem eftir því sem ég kemst næst hefur ekki enn fengið nafn.
Til hamingju öll.

20. apr. 2007

Manchester United - Sheffield United

Frábær leikur hjá mínum mönnum á sunnudaginn þegar þeir tóku Sheffield United í gegn. Mörkin voru glæsileg hjá Carrick og Rooney og undirbúningurinn hjá Ronaldo og Giggs ekki síðri. Það virðist fátt geta stöðvað þá úr þessu en martröðin yrði auðvitað að tapa öllum titlunum til Chelsea. Persónulega finnst mér þeir ekki eiga skilið að vinna meira en þennan eina titil sem þeir hafa þegar unnið. Þeir spila einstaklega leiðinlegan fótbolta núna og það virðist almennt vera þannig að þeir eru liðið sem fólk elskar að hata. Við Unitedmenn leggjum metnað okkar í að vera það lið og viljum þann titil aftur ásamt þeim þremur sem enn eru í boði í boltanum. Bikarana heim á Old Trafford.

Messidona

Rosalegt mark hjá Lionel Messi fyrir Barcelona í gærkvöldi. Það er ekki oft sem maður sér svona mörk í sterkri deildarkeppni nú til dags þar sem varnarmenn tækla yfirleitt áður en menn komast inn í teig. Messi var bara svo snöggur að enginn átti roð við honum. Það er alltaf spennandi þegar svona efnilegir knattspyrnumenn koma fram og manni hættir til að gleyma að hann er aðeins 19 ára. Áhugasamir geta farið í gegnum hlekkinn í fyrirsögninni hér að ofan til að skoða þetta glæsilega mark.

13. apr. 2007

Það er bara taumlaus hamingja þessa dagana

Leikmenn og forráðamenn Manchester United keppast við þessa dagana að halda mér í því ofsakætiskasti sem ég hef verið í síðan um áramót. Það ágerðist reyndar verulega með 7-1 sigri á Roma sl. þriðjudag en náðu algeru hámarki við þær fréttir sem nálgast má í hlekknum í fyrirsögninni. Ronaldo í fimm ár í viðbót á Old Trafford getur ekki þýtt nema eitt eða réttara sagt sex - sex Englandsmeistaratitlar. Gamli spurningaliðsrefurinn Gummi Björns viðraði þá skoðun sína að hann mundi líklega óska eftir sölu ef hann væri bakvörður ensks úrvalsdeildarliðs. Maður lætur bara ekki niðurlægja sig tvisvar á ári næstu fimm árin. Enn fullkomnaðist auðvitað hamingjan í gær þegar mínir menn sigruðu Watford í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Ætli United vinni ekki bara Chelsea bæði í úrslitum bikarkeppninnar og Meistaradeildarinnar auk þess sem þeir hirða deildina líka með því leggja Chelsea að velli 9. maí. Utópía!!!!

12. apr. 2007

Bloggarar

Ég er mikill "surfer". Ekki svo að skilja að ég sé með bikinirönd, beri á mig barnaolíu Jónssonar og busli með skurðarbretti í brimgarðinum við Gróttu heldur ríð ég öldur alnetsins af miklum vígamóð. Ég get gleymt mér tímunum saman að elta hlekki af einni vefsíðu til annarrar en það eru reyndar ákveðnar síður sem ég heimsæki mest þegar ég geysist um veraldarvefinn. Mogginn er að sjálfsögðu opnunarsíðan á vafranum og ég renni því í gegnum mbl.is í hvert sinn sem ég opna netsíðu. Soccernet er líka mikið heimsótt, sérstaklega á leikdögum í boltanum. En það eru bloggin sem í seinni tíð drepa mestan tíma. Þannig les ég hugleiðingar Urðarkattarins daglega en þær eru yfirleitt svipaðar 8-10 daga í röð vegna bloggtregðu en síðan kemur framhjáhlaup eins og hjá öldruðum og hann skrifar hálfa tylft færslna um eitthvað stórmerkilegt. Annar spekúlant sem ég les daglega er hann Simmi úr Kastljósinu. Ég er sérstaklega glaður að lesa bloggið hans þegar Arsenal gerir í brækurnar. Áður fyrr var hinn stórkostlegi Hnakkus í uppáhaldi en hann hefur verið í löngu fríi undanfarið þó síðastliðna daga hafi verið eitthvað lífsmark með honum. Það eru fleiri sem eru skemmtilegir en þessir þrír eru þó þeir sem ég heimsæki hvað oftast.

11. apr. 2007

Gleðidagur

Þvílík snilld. Við Andreas og Ögn horfðum á leikinn í kvöld yfir matnum. Það var ekki að sjá á fyrstu mínútunum að mínir menn ætluðu að standa sig í kvöld þar sem Rómverjar áttu nokkur góð skot til að byrja með en eftir að Carrick skoraði þetta glæsilega fyrsta mark varð ekki aftur snúið. Þeir völtuðu gjörsamlega yfir Roma-liðið og eftir fyrsta markið var aldrei spurning um hvort liðið mundi sigra. Mörkin voru líka hvert öðru glæsilegra en ég held að annað markið sem Smith skoraði og seinna markið hjá Carrick var náttúrlega stórglæsilegt. Glæsilegur sigur og aðeins sigur Chelsea á Spáni varpaði agnarsmáum skugga á annars frábært kvöld.

9. apr. 2007

Páskamatur fenginn að láni frá nokkrum meisturum

Ég eldaði páskamat í gærkvöld fyrir Eddu, Möggu og tengdó. Var með bláberjamarinerað læri sem ég grillaði. Ætlaði að kaupa ómarinerað læri og gera einhverjar gloríur sjálfur en þegar ég fór að versla á laugardaginn voru öll ómeðhöndluð læri uppseld og ég fór því til snillinganna í Gallerý Kjöt á Grensásvegi og keypti hjá þeim bláberjamarinerað lambalæri (fékk næstsíðasta lærið og konan á eftir mér það síðasta). Það fór svo eins og það kom úr kúnni á gasgrillið. Mér finnst persónulega best að grafa grill í holu og umlykja það með gamaldags kolagrillskolum en þegar slíkt er ekki í boði er næstbest að grillla lærið í opnum álpappír og snúa því einu sinni. Ég hef grillið lokað á lágum hita og læt það malla svoleiðis ca. 30-40 mín á hvorri hlið, fyrst á þeirri kjötminni. Þannig verður lærið passlega hrátt við beinið en vel steikt að utan þannig að allir fá steikingu við sitt hæfi.
Með lærinu bar ég fram bakaða kartöflubáta a la Siggi Hall með gíslísku ívafi. Siggi vill nota stórar bökunarkartöflur en mér finnst ekkert síðra að nota bara meðalstórar íslenskar og gerði það í gær. Maður getur gert þetta á ýmsa vegu. Fyrst þegar ég gerði svona kartöflur sauð ég þær aðeins fyrst og setti þær svo stutta stund í ofn. Nú sker ég þær hráar í litla báta, skola þær og þurrka vel og brúna þær síðan í smjöri og olíu á pönnu í nokkra mínútur. Síðan raða ég þeim í ofnskúffu á bökunarpappír, krydda með salti, pipar og reyndar bara því sem mér dettur í hug. Nú setti ég aðeins timjan en mér finnst líka gott að setja steinselju eða basilikum en bara lítið. Svo fer það bara svolítið eftir smekk hvað maður hefur þær lengi inni og auðvitað eftir stærð bátanna en mér finnst gott að hafa þær stökkar og vel bakaðar og hafði þær því í u.þ.b. 60 mínútur.
Með þessu gerði ég rauðvínssósu að hætti Ragnars Freys Ingvarssonar. Þetta var frumraun mín við að gera sósu frá grunni og ég ætla að halda því áfram. Þvílíkt og annað eins lostæti er langt síðan ég hef smakkað. Tengdamamma er þekkt fyrir dálæti sitt á góðum sósum og ef þær eru sérstaklega góðar borðar hún sósu eintóma með skeið og það hefði hún gert í gær hefði hún verið heima hjá sér. Takk Ragnar fyrir sósuna sem má nálgast hér. Hún er um miðja síðuna fyrir þá sem ekki nenna að lesa alla uppskriftina þó ég mæli með því.
Auk þess bar ég fram með þessu ferskt salat sem samanstóð af klettasalati, lambasalati, tómötum, agúrku, rauðlauk og miklu af fetaosti. Ég nota kryddolíuna af fetaostinum mikið í salatið og það kemur að miklu leyti í staðinn fyrir dressingdraslið sem mér finnst oft skemma ferskt salat. Okkur finnst best að hafa salatið sem ferskast og erum hvorugt hrifin af svona edik- og dressingmenningu en ég er viss um að hægt er að venja okkur af þeim ósið ef einhver lumar á galdrauppskrift.
Með þessu var dýrindisrauðvín Montes Cabernet Sauvignon 2005 (geggjað) og í eftirrétt hafði ég ístertu sem ég keypti í búð (frekar metnaðarlítið en mér til varnar þá eru þær sjúklega góðar og ég hafði í nógu að snúast með allt hitt). Þar til næst.

Barnahrúga

Það hefur verið sannkölluð holskefla af börnum hjá bekkjarfélögum mínum úr læknadeildinni nú eftir áramótin. Berglind og Þorsteinn áttu í janúar lítinn Benedikt Árna, Magga Stína og Christian áttu síðan lítinn stráksa sem ekki hefur enn fengið nafn svo ég viti. Við Edda áttum síðan litluna okkar þann 30. mars og nú á föstudaginn langa átti Kolla lítinn risa. Þá má heldur ekki gleyma því að Ragna og Guðmundur áttu strák í nóvember (held ég), Jón Þorkell og Álfhildur áttu strák í september og Emmi og Berglind áttu litla stelpu í ágúst. Það eru svo enn fleiri sem hafa átt börn síðan við útskrifuðumst svo það hefur verið nóg að gera. Til hamingju allir.

7. apr. 2007

Portsmouth 2-1 MUFC

Við feðginin horfðum á annan 2-1 leikinn í röð í sameiningu. Sú litla svaf reyndar allan tímann en ég reyndi að halda blótsyrðunum að innanverðu á meðan ég var að elda og horfa á leikinn. Mínir menn voru ótrúlega daprir, sérstaklega í fyrri hálfleik en þá komust heimamenn í 1-0 eftir hrikalega dapra markvörslu hjá Van der Saar. Seinni hálfleikur var svo hálfgerð einstefna og Portsmouth áttu bara fáeinar skyndisóknir. Í einni slíkri undir lokin fór Van der Saar í skógarferð þegar engin hætta var á ferðum og var þess vegna ekki á marklínunni þegar Ferdinand ætlaði að gefa á hann. Sjálfsmark og leikurinn búinn þó O'Shea tækist að minnka muninn í næstu sókn. Smith átti reyndar gott skot í blálokin en James varði vel. Ég er því ekkert í góðu skapi en get huggað mig við að það er Arsenalmaður að koma í mat sem ég get strítt á því að hafa tapað fyrir West Ham og reyndar Poolari líka en þeir létu Brynjar Björn skora hjá sér í dag.

6. apr. 2007

Dóra Sigrún Fannarsdóttir

Lítil vinkona okkar fékk nafn í dag. Hún er dóttir Elnu sem er elsta og besta vinkona Eddu og Fannars mannsins hennar. Hún var skírð Dóra í höfuðið á langömmu sinni og Sigrún eftir móðursystur sinni. Fallegt nafn það - til hamingju.

Lúxusvandamálakosningar

Stærstu málin í komandi kosningum verða líklega umhverfismál og kannski pínulítið velferðarmál. Ég er ekki viss um að Íslendingar geri sér grein fyrir því hverslags munaður það er að svona mál séu aðalvandamálin. Atvinnumál eru náttúrlega dauður málaflokkur því allir sem vilja geta fengið vinnu ef þeir eru ekki mjög vandlátir og atvinnuleysi er skilgreint ekkert. (skv. alþjóðlegum fræðum er ákveðið atvinnuleysishlutfall talið eðlilegt þar sem fólk er t.d. á milli starfa eða fær ekki starf í stuttan tíma eftir að námi lýkur.) Fólk staldrar enda sjaldan lengi við á bótum hérlendis og mikil umsetning á lista atvinnulausra. Þegar pólítíkin og mannlífið er svo vandræðalítið kýs fólk um mál sem stendur nær hjartanu en buddunni og kýs þá gjarnan vinstri flokkana. Þegar fólk kýs í harðæri kýs það með buddunni og þá fáum við gjarnan sigur hægri flokkanna. Þetta gerist yfirleitt eftir 4 ára stjórnarsetu vinstri flokkanna hér á landi. Vitur hægri maður sagði eitt sinn að það væri mikilvægt að vinstri flokkarnir kæmust til valda á 12 ára fresti. Hann sagði að það væri gott til að koma í gegn mannabreytingum á hægri vængnum auk þess sem engum væri hollt að vera lengur en 12 ár við stjórnvölinn. Hann sagði líka að það væri vont að hafa hægri stjórn í 16 ár því þá væri stöðugleikinn orðinn svo mikill að það væri ekki víst að vinstri flokkunum tækist að klúðra honum á 4 árum og við ættum á hættu að hafa hér 8 ára vinstri stjórn. Ég óttast að það muni gerast eftir næstu kosningar og mínar verstu martraðir segja mér að Skringibjörg Sólbrún verði forsætisráðherra. Vegna draumfara minna er ég þegar farinn að undirbúa sérnám og mætti því segja að ég verði eins konar pólítískur flóttamaður enda á ég von á að allt verði hér á öðrum endanum á meðan ég er í sérnámi. Svo kem ég heim um það bil sem viðreisn hægri flokkanna hefst.

MUFC og Meistaradeildin

Við feðginin horfðum á leikinn í gærkvöld á meðan Edda lagði sig. 2-1 tap staðreynd en markið á útivelli gæti fleytt okkur áfram þegar kemur að seinni leiknum. Scholes var auðvitað eins og hálfviti og fékk tvö spjöld fyrir glórulaus brot og var raunar heppinn að vera ekki þegar fokinn út af þegar það loksins gerðist á 33. mínútu. En Ronaldo galdraði fram skyndisókn og Solskjær gaf þessa glæsilegu sendingu fyrir sem Rooney afgreiddi af sinni alkunnu snilli. Það er erfitt að trúa því að þetta séu fyrstu mörk Rooney í Meistaradeildinni frá því hann sökkti Fenerbache með þrennu í fyrsta leiknum sínum fyrir United. Það virkar svo langt síðan þó það séu ekki nema 18 mánuðir. Svona líður tíminn fljótt.

Chelseamenn gerðu í brók og náðu aðeins jafntefli á heimavelli gegn Valencia. Þar skoraði David Silva stórkostlegt mark og kom Valencia yfir en helvítis geitin hann Drogba þurfti auðvitað að jafna. Ég þoli ekki Drogba - hann er fífl. Kíkti á markverðustu atvikin úr þessum leik á youtube og miðað við það voru þetta kannski bara sanngjörn úrslit. Ayala var reyndar heppinn að fá ekki rautt fyrir að gefa Shevchenko olnbogaskot í byrjun leiks og þá hefði leikurinn sjálfsagt þróast öðruvísi. Sanngjörn úrslit held ég.

Milan náði aðeins jafntefli gegn Bayern Munchen á heimavelli og það þrátt fyrir að hafa fengið gefins vítaspyrnu eins og sést í þessu myndbandi. Kaka lenti tvisvar í leiknum í því að Lucio tæklaði af honum boltann í teignum. Í seinna skiptið náði Kaka að pota aðeins í boltann rétt áður en Lucio hreinsar boltann aftur fyrir og það hefur líklega platað dómarann og því dæmdi hann vítaspyrnu. Það var hinsvegar rangur dómur að mínu mati því Lucio tekur greinilega boltann eins og sést þegar þið skoðið myndbandið. Milan átti fullt af góðum færum en Rensing varði eins og berserkur (Þór: Hann er 22 ára, ég gáði á netinu). Það verður gaman að sjá hvað Milan gerir í Þýskalandi en með miðjumenn eins og Gattuso, Pirlo, Ambrosini og Kaka er allt hægt.

Liverpoolmenn kjöldrógu svo PSV í Hollandi á þriðjudaginn og það þarf bæði kraftaverk og stórslys með dass af heppni til að PSV klári þetta í Liverpool. Liverpool er eina liðið sem hefur tryggt sig í undanúrslit að mínu viti. Allt getur gerst í hinum einvígjunum.

Draumaúrslitaleikur yrði náttúrlega Liverpool - Manchester. Ég held að Chelsea og United mætist í undanúrslitum ef bæði lið fara áfram og Liverpool mætir þá Bayern eða Milan. Bæði þessi lið gætu slegið Poolarana út úr keppninni en eins og þeir hafa verið að spila upp á síðkastið held ég að það verði erfitt. Þetta verður allt saman forvitnilegt að sjá.

Skipt um skoðun

Fyrir nokkrum vikum býsnaðist ég yfir því að fólk skrifaði færslur á síður ómálga kornabarna í fyrstu persónu eins og barnið sjálft væri sögumaður. Nú skil ég hvers vegna foreldrar gera þetta og ét gömlu færsluna ofan í mig.

3. apr. 2007

Hafnfirðingar í stuði

Naumt var það á laugardaginn. Það er varla hægt að kalla þetta niðurstöðu frekar en þegar Holræsa-Solla lét okkur kjósa um flugvöllinn. Það gæti vel verið að niðurstaðan hefði orðið á hinn veginn ef þetta hefði verið viku fyrr eða seinna, kannski degi fyrr eða seinna. En nú er niðurstaðan fengin og eins og eftir allar kosningar keppast menn við að túlka niðurstöðurnar og ráða í þetta allt saman en ólíkt því sem oft gerist þá viðurkennir Alcan að hafa tapað en þeir eru tapsárir og segjast nú vera að skoða framtíðarplönin og það hefur meira að segja verið talað um að loka bara gamla álverinu. Það væri bara pínulítið mátulegt á Hafnfirðinga ef Alcan byggði nýtt álver á Húsavík og lokaði síðan í Straumsvík.

Boltinn

Helgin var góð fyrir mína menn. Ole Gunnar hélt upp á fæðingu dóttur minnar með því að negla lokanaglann í kistuna hjá Blackburn á Old Trafford. Áður hafði Scholes sýnt gamalkunna takta og dregið liðið aftur inn í leikinn. Carrick og Park skoruðu líka í góðum 4:1 sigri. Seinna á laugardaginn voru Chelseamenn ljónheppnir að landa sigri í skemmtilegum leik við Watford. Liverpool hefndi síðan ófaranna frá því fyrr í vetur með því að valta yfir Arsenal á Anfield og galopnaði þar með baráttuna um þriðja sætið því þeir hafa 2ja stiga forskot á Arsenal sem á reyndar leik til góða. Fallbaráttan er líka orðin mjög spennandi. Það er reyndar orðið nokkuð ljóst að Watford fellur en West Ham er komið í gírinn og það gæti orðið spennandi að sjá hvort þeim tekst að bjarga sér frá falli. Ég spái því reyndar að Wigan og Sheffield United fari niður með Watford en Charlton og West Ham bjargir sér. Tevez er að vakna og verður aðalmaðurinn hjá þeim nú í restina, Boa Morte gæti líka farið að blómstra fljótlega. Ég spái því að United verði meistari, Chelsea í öðru, Liverpool í þriðja og Arsenal í fjórða.

Ekki pabbablogg

Þeir sem koma hingað til að lesa um litla sólargeislan okkar Eddu bendi ég á hlekkinn hérna til hliðar því ég ætla að reyna að halda bloggunum hennar þar. Hérna ætla ég áfram að skrifa um fótbolta, pólítík og allt annað sem mér dettur í hug að rífast yfir.