25. apr. 2007

Fótbolti og hjátrú

Ég mundi seint telja mig hjátrúarfullan mann. Ég banka ekki í við þegar ég tala um hvað sé rólegt á vaktinni. Ég fer ekki yfir götu þegar ég sé svartan kött. Ég geng undir uppreistan stiga. Ég hef brotið spegil án þess að hljóta af því sjö ára ógæfu. En þegar kemur að rútínu í kringum fótbolta er ég sekur. Ég spila alltaf þegar ég get í treyju númer sjö og helst í Manchesterbúningi innanundir. Ég horfi alltaf á Unitedleiki í búning. En nú er ég held ég orðinn fullkomlega geðveikur. Í gær var ég að horfa á stórleik minna manna við Milan í Meistaradeildinni. Í hálfleik var staðan 1:2 Milan í vil eftir að snillingurinn Kaka hafði galopnað annars ágæta vörn United. Þá fattaði ég að ég hafði gleymt að setja dóttur mína í búning eins og ég hafði gert í seinni leiknum á móti Roma og reyndar líka þegar við horfðum á Watfordleikinn í bikarnum. Ég kippti þessu í lag í einum grænum og viti menn - Rooney setti tvö í seinni hálfleik og staðan fyrir seinni leikinn mun vænlegri en maður þorði að vona. Nú þarf Milan að sækja í seinni leiknum og þá myndast svigrúm fyrir Ronaldo, Rooney og Giggs til að setja eitt kvikindi. Þá vonar maður auðvitað að Vidic og Ferdinand verði komnir á ferðina en það er svo sem ólíklegt. Brown hefur reyndar verið að standa sig prýðilega en Heinze hefur verið hálfráðvilltur þarna í miðri vörninni. Vonandi nær hann áttum.

Engin ummæli: