31. des. 2005

Bloggleti
Hef nú ekkert skrifað hér í rúma 10 daga og mér sýnist menn líka vera farnir að venja komur sínar æ sjaldnar hingað. Í það minnsta hefur hægt töluvert á teljaranum sl. daga. Kannski eru það jólin.

Jólin
Þetta voru svolítið skrýtin jól þar sem ég var að vinna bæði aðfaranótt aðfangadags og jóladags en ég var svo í fríi á jóladag sjálfan og á annan í jólum.
Á jóladag var fínt. Við kíktum á settið í Eskihlíðinni og ég fékk mér kaldan hamborgarhrygg a la mama. Hamborgarhryggurinn klikkar nú aldrei hjá gömlu og ég sat langt fram eftir degi. Á eftir kíktum við svo á tengdó í smá súkkulaði og um kvöldið var síðan jólaboð hjá foreldrum pabba og afkomendum þeirra. Það er alltaf hörkugaman, mikið af jafnöldrum mínum og mikið af skemmtilegu fólki. Við unga fólkið drógum okkur afsíðis þegar þeir eldri fóru að týnast heim og tókum í nýja Trivialið. Það gekk ágætlega en við vorum sammála um að spurningar væru rosalega misléttar eftir bunkum en vorum líka á einu máli um að það væri töluvert léttara en síðustu spil.
Á annan í jólum fórum við Edda síðan til tengdó í mat um kvöldið þar sem þau systkinin komum heim í kotið. Síðan var tekið bæði Trivial og Pictionary strákar á móti stelpum. Við slátruðum þeim tvisvar í Trivial en þær tóku okkur eins og venjulega í Pictionary. Eins og tryggir lesendur vita er listin að tapa mér ekki í blóð borin en ég tók nú reyndar tapinu í Pictionary óvenjuvel þetta árið að mati nærstaddra.
Ég hef síðan verið að vinna milli jóla og nýárs. Var á vakt á þriðjudaginn en á fimmtudaginn var síðan komið að ættarmóti Hólsfjölskyldunnar frá Patreksfirði sem haldið er á fimm ára fresti. Það var miklu meira gaman en ég þorði að vona og við vorum langt fram eftir þar.
Í kvöld var síðan tekið maraþon Axis&Allies spil heima hjá Hafsteini þar sem ég stýrði öxulveldunum gegn Hjörleifi og Hafsteini og endaði það með þrátefli þó að staða Bandamanna hafi verið sjónarmun sterkari þegar við sömdum loks vopnahlé.
Á morgunn er síðan planið að við bræðurnir verðum allir hjá gamla settinu í Eskihlíðinni en Edda ætlar reyndar að vera með systrum sínum heima hjá foreldrum sínum fram yfir miðnætti. Þetta verður í fyrsta skipti í hálft þriðja ár sem við erum allir bræðurnir á landinu í einu svo það verður örugglega meiriháttar gaman enda ætlum við okkur að sletta ærlega úr klaufunum.

Uppgjör ársins
Ætla mér að gera upp nokkur af hugðarefnum mínum á sl. ári á næstu dögum. Má þar nefna lífið og tilveruna, boltann, tónlistina, vinnuna, pólítíkina, bækurnar, hestaferðina og fleira. Hvet ykkur til að fylgjast með næstu daga. Það verður örugglega eitthvað við allra hæfi.

20. des. 2005

Íslenskukunnátta fjölmiðlafólks
Hef lengi haft gaman að frábærri íslenskukunnáttu útvarps-, sjónvarps- og blaðamanna. Ég hef mörgum sinnum skemmt mér ótrúlega mikið yfir frábæru bulli sem hefur komið út úr þessum snillingum. Það er eins og rjómi íslenskukunnáttufólks veljist til starfa á ljósvakamiðlum. Þorgeir Ástvaldsson átti til dæmis alveg frábært bull í síðdegisútvarpi Bylgjunnar sl. föstudag. Þeir voru að spila einhverjar upptökur af því hvernig þeim hafði vafist tunga um tönn á sl. vikum. Þegar upptakan hafði verið spiluð kom þetta líka frábæra innlegg frá Þorgeiri. Jú, þeim félögunum verður oft "fótaskortur á tungunni"! Ég er svo sem ekkert hissa á því, tungan er jú oft svolítið blaut og það hlýtur að vera svolítið erfitt fyrir tungutraðksþolann að segja eitthvað sem vit er í þegar verið er að traðka á tungunni á honum. Þorgeir hefur reyndar verið með þeim skárri í þessu og þetta er í fyrsta skipti sem ég hef heyrt hann bulla eitthvað svona. Það gerir þessa tilvitnun bara enn skemmtilegri.

Der Untergang
Var að sjá þessa mynd í fyrsta skipti. Ágætis ræma fyrir þá sem hafa gaman að sannsögulegum myndum og hún er ágætlega leikin líka. Er svo sem ekki heimsins mesti þýskuaðdáandi en það var enskur texti svo ég lét mig hafa það. Það rifjuðust samt upp fyrir mér skelfilegir atburðir sem gerðust á 5 ára tímabili frá 15 ára til tvítugs. Flestir kalla þá þýskutíma en ég voga mér yfirleitt ekki að taka það hræðilega orð í munn, rétt hef það af að stafa það hér.
Mér fannst sem sagt ekki gaman í þýsku og ég var alltaf skíthræddur við þýskukennarana mína. Fyrst var það Elísabet sem kenndi mér í Garðaskóla. Hún var illskeyttasti kennari sem ég hef haft þó hún hafi reyndar borið af öðrum þýskukennurum sem ég hafði á þessu 5 ára tímabili. Síðan hafði ég Ásmund Guðmundsson fyrstu tvö árin í menntó sem líklega hefur byrjað kennsluferilinn í Kvennaskólanum áður en soranum var hleypt þangað því hann virtist bara geta kennt stelpunum. Við strákarnir lærðum í það minnsta ekki mikið og einkunnirnar hríðféllu hjá mér. Í fimmta bekk hafði ég svo hinn stórkostlega Halldór Vilhjálmsson sem oft var nefndur ?Hitler?. Hann var ágætur inn á milli en eyddi yfirleitt meiri tíma í að venja örvhenta af þeim ljóta ósið að skrifa með vinstri, venja þvagblöðrur rápara á að halda í sér auk þess sem hann eyddi miklum tíma í það að rannsaka hvernig mætti teygja úr þeim stuttu og stytta þá löngu. Veit ekki hvort mikið kom út úr þessum rannsóknum Halldórs og honum tókst oftar að koma okkur til að hlæja en að læra eitthvað nýtt í þýsku. Síðasta árið mitt í menntó hafði ég svo Danfríði Skarphéðinsdóttur sem ég man eiginlega varla eftir sem kennara. Sennilega er það vegna þess að áhugaleysi mitt var algjört og mætingu minni í þýskutíma hafði hrakað ískyggilega frá fyrri árum. Ég hafði haft góða áttu í þýsku í gaggó og náði því reyndar aftur í 3. bekk (enda sama námsefni og í 10. bekk) en eftir það lækkaði ég mig um einn heilan á ári og endaði með 5 í þýsku stúdentsprófs árið mitt. Þannig fór um sjóferð þá.

Sódóma Reykjavík
Er líka nýbúinn að sjá hana og hún er ein af þessum myndum sem maður verður aldrei þreyttur á. Snilldarleg mynd úr smiðju Óskars Jónassonar. Björn Jörundur, Helgi Björns og Eggert Þorleifs fara á kostum auk þess sem Sigurjón Kjartans á frábæra innkomu.

Boltinn
Mínir menn eru að taka sig saman í andlitinu eftir að hafa dottið út úr Meistaradeildinni á snautlegan hátt. Þrátt fyrir ósanngjarnt jafntefli gegn Everton virðast þeir enn vera þeir einu sem eiga sjens í að halda í Chelsea en Liverpool eru reyndar búnir að vera á rosalegri siglingu og ef þeir geta haldið svona áfram þá ættu þessi þrjú lið að vera á toppnum í lok tímabilsins. Annars veit maður að um leið og poolararnir tapa leik koma nokkrar vikur af slökum leik og þá missa þeir af lestinni. Arsenal lendir ekki ofar en í sjötta sæti með sama áframhaldi og þá fer Wenger til Real næsta sumar. Þegar hann fer flýr Henry og gerir Barcelona enn meira ósigrandi. Svo ef Guð lofar þá hverfur Arsenal niður í fyrstu deildina og þá verða bara allir sáttir.

14. des. 2005

Boltinn
Jæja. Ýmislegt gerst síðan ég skrifaði síðast og verð ég að viðurkenna að ég varð fyrir ákveðnum vonbrigðum með viðbrögðin við trúarjátningunni minni. Bjóst við því að alla vega eitt ykkar kallaði mig guðlastarar og trúleysingja. Svo hafa poolararnir nær alveg haldið kjafti sem ekki hefur gerst í mörg ár. Þeir hljóta að vera í prófum eða eitthvað uppteknir við annað.
Mínir menn hafa svo sem ekki verið að standa sig sérlega vel síðastliðnar vikur en í kvöld stóðu þeir sig vel og völtuðu yfir Wigan Athletic. 4-0 sigur var langþráður og sannfærandi og maður getur andað léttar í að minnsta kosti örfáa daga. Sjáum hvað setur um helgina.

Þvíumlíkt rugl
Hverslags skilaboð eru það eiginlega sem Reykjavíkurborg er að senda foreldrum borgarinnar. Við viljum frekar að fólk með menntun sem það getur ekki nýtt sér sjái um börnin ykkar á daginn en að faglærðir leikskólakennarar geri það. Eftir nokkur ár verða öll sex ára börn vel að sér um franska setningafræði, kenningar Sigmunds Freud og þýskar sonnettur. Síðan verða sjálfsagt allir leikskólakennarar farnir að sinna gamla fólkinu á elliheimilunum fyrir miklu hærri laun en hjúkkugreyin sem hafa sjálfsagt hrökklast úr störfum sínum og ráðið sig sem yfirkennara í grunnskólum borgarinnar á meðan kennaragreyin eru ennþá í verkfalli. Hvar endar eiginlega þetta gamanleikrit Steinunnar Valdísar? Ég held að hún sé á rangri hillu greyið. Sennilega yrði hún Arnaldur íslensku vísindaskáldsagnanna ef hún sneri sér að ritun slíkra bókmennta enda held ég að flestum borgarbúum sé hulin ráðgáta hvernig er mögulegt að vera svona vitlaus. Fyrsta bókin gæti til dæmis fjallað um það hvernig dularfullur en mjög frjálslyndur læknir reynir að klóna heila Steinunnar til að átta sig á öllu bullinu í henni. Hvað er eiginlega í gangi með þessa borgarpólítík?
Það versta við hana er þó að svo virðist sem allir þeir kollegar mínir sem voga sér svo mikið sem að hugsa um borgarmál verði sjálfkrafa kálhausar. Í það minnsta hafa allir þeir læknar sem komið hafa nálægt borgarpólítíkinni orðið heilalausir fáráðlingar þrátt fyrir ágæta meðalgreind í námi sínu. Hvað veldur því til dæmis að Dagur B. Eggertsson sem er læknir er með ólæknandi strútsheilkenni. Ef hann fær öndunarerfiðleika af öllum sandinum sem hann hefur grafið ofan á hausinn á sér er heppilegt að hann er vel giftur góðum lækni (veit reyndar ekki annað en að Dagur sé sjálfur góður læknir) sem getur reddað honum er í harðbakkann slær. Frá mínum bæjardyrum séð þá held ég að Dagur ætti að halda sig bara við læknisfræðina en ég er svo sem ekkert að kvarta yfir frammistöðu hans í borgarmálunum. Samfylkingin virðist falla um minnst 1% í hvert sinn sem maðurinn sést í sjónvarpi. Ætli Reykvíkingar hafi ekki bara séð í gegnum hann.

Jóla hvað
...með Skrámi er sennilega eitt magnaðasta og fyndnasta jólalag allra tíma. Þið verðir hreinlega að hlusta á það við tækifæri. Ég græt úr hlátri í hvert sinn.

Sniðugt
Farið á Google og sláið inn eftirfarandi orðasambönd: "failure" og "french military victories". Styðjið síðan á hnappinn vogun vinnur, vogun tapar í Google eftir hvort orð og hlæjið ykkur máttlaus. Þvílík snilld.

Meiri snilld
Þessi linkur er alger snilld. Eftir einhvern snilldarlegan amerískan blaðamann.

9. des. 2005

Ég trúi á Manchester United FC,
Besta félagslið í heimi.
Ég trúi á Ferguson, þess draumason,
stjóra vorn, sem getinn er í Skosku Hálöndunum,
fæddur af móður sinni,
píndur á dögum Margaretar Thatcher.
Fúkyrtur, skammaður og brotinn.
Steig niður úr Skotlandi,
Reis á 10. áratugnum aftur upp til sigurs.
Steig upp á verðlaunapallinn.
Situr við hægri hönd Busbys, áður almáttugs,
og mun þaðan fara aðeins vegna eigin dauða.
Ég trúi á heilagt liðið, heilbrigða almenna samkeppni,
áætlanir Glazerana, fyrirgefningu tapana,
upprisu United og eilífa sigra.
Mark

7. des. 2005

I have a dream!!!
Var að hlusta enn einu sinni á frábæra ræðu Martin Luther King yngri sem hann flutti á þrepum Lincoln-minnismerkisins þann 28. ágúst 1963. Hef lengi átt eintak af henni en ekki hlustað á hana í langan tíma. Var svo að skoða lagasafnið og rakst á þessa frábæru ræðu. Þó ræðan sé flutt fyrir röskum 40 árum er sorglegt að viðurkenna að margt sem hann dreymdi um þennan dag hefur enn ekki ræst þó annað hafi áunnist.
Það er líka magnað að hlusta á hve sannfærandi og hrífandi ræðumaður hann hefur verið. Þetta er svona persónutöfrar sem ekki er hægt að læra heldur eru þeir aðeins gefnir örfáum útvöldum. Mæli með því að allir sem ekki hafa þegar hlustað á þessa frábæru ræðu nálgist hana með einum eða öðrum hætti t.d. með því að Googla tilvitnunina ?I have a dream?.

Erfiður leikur
Mínir menn eiga erfiðan leik fyrir höndum í Meistaradeildinni í kvöld þegar þeir mæta Benfica í Portúgal og verða að vinna til að vera pottþéttir áfram. Þeir gætu reyndar komist áfram á jafntefli en það er algerlega háð úrslitum í hinum leik riðilsins á milli Lille og Villareal. Það verður gaman að fylgjast með.

6. des. 2005

Langt síðan síðast
Nú er komin rúm vika síðan ég reit hér snilld mína síðast. Margt hefur á daga mína drifið og væri langt mál að tíunda það allt. Ætla ég þó að gera heiðarlega tilraun til þess að draga það saman í stuttu máli.

Nonni bróðir...
...hefur verið hér heima sl. viku og verður fram á helgina. Hann kom hér heim í fríi sem hann átti og leysti af svæfingarlækna á Landspítalanum í Fossvogi og við höfum því verið að vinna svolítið saman sl. daga. Það hefur verið meiriháttar gaman og þá sérstaklega að sjá að það er ekki tómt bull sem hann segir heldur er hann bara helvíti lunkinn bæði í svæfingunum og gjörgæslulækningunum. Gott að vinna með þeim gamla líka.

Steggjaveislan
Var steggjaður á laugardaginn. Ég var sóttur hingað heim um morguninn upp úr níu og það var keyrt með mig í náttfötunum suður í Sporthúsið þar sem ég átti að klæða mig í sérlega kvenlegar hlaupabuxur og bleika skyrtu. Ofan á það var síðan bætt kúrekahatti og sólgleraugum. Þannig fór ég í upphitun og loks var ég settur í body-pump tíma. Það var ekki svalt en þó tók ég helvíti hraustlega á því þó ég segi sjálfur frá. Á meðan á þessu stóð öllu saman voru drengirnir duglegir að hella í mig öli enda ekki vanþörf á því að drekka í sig kjark að láta sjá sig í þvílíkum flíkum.
Eftir Sporthúsið var farið með mig í Smáralind þar sem ég átti að spígspora um allt og árita vafasama fótboltamynd af sjálfum mér sem Halldór Benjamín hafði útbúið. Síðan var farið með mig heim til Ingvars þar sem Jóhann Páll gipsaði á mig bjórkrús og þannig mátti ég vera það sem eftir lifði dags.
Frá Ingvari lá leiðin í Ölver þar sem ég var neyddur til að syngja You'll Never Walk Alone og síðan horfðum við á upprisu Peter's Crouch. Það var ágætt, sérstaklega þar sem með í kaupunum fylgdi ágætis shittíbörger sem ég sporðrenndi ljúflega.
Eftir þetta þótti þjóðráð að fara með mig í Smáralind en nú létu þeir mála mig og ég hélt áfram að gefa fólki áritaðar myndir af mér.
Að lokum lá leiðin svo í bústað austur í Hrepp þar sem djammað var vel fram yfir miðnætti þó sumir hafi farið snemma í háttinn. Sjálfur tórði ég til tvö en þá sagði þreytan til sín.
Frábær dagur með góðum vinum og þrátt fyrir nokkrar niðurlægingar var ég ánægður með daginn. Maður hefur gott af því endrum og eins að láta eins og fífl á almannafæri. Maður tekur sjálfan sig ekki eins hátíðlega á eftir.

Brúðkaupsundirbúningur
Allt í hámarki nú. Matur, myndir, músik, föt og fleira allt að smella. Nú síðast kláruðum við gjafalistann sem verður hafður í Líf&List í Smáralind. Mjög flott búð og þjónustan þar var frábær. Mæli með henni. Síðan er auðvitað ýmislegt sem okkur langar í sem ekki er á listanum en meðal þess eru listmunir, sérstaklega málverk. Auk þess eru ýmiss rafmagnstæki sem okkur vantar en við ákváðum að leyfa fólki að hafa töluvert frjálsar hendur með því að hafa listann ekkert of langan. Mér finnst alltaf gaman að fá óvænta hluti sem ég hef ekki óskað mér.

Mínir menn að standa sig
MUFC-menn stóðu sig vel um helgina með 3-0 sigri á heimavelli gegn Portsmouth. Scholes skoraði loksins og svo settu Rooney og Ruud hann af gömlum vana. Ruud virðist búinn að finna gamla formið sitt aftur og Rooney er áfram bara jafnrosalegur og hann hefur verið. Vona að þeir haldi uppteknum hætti í Meistaradeildinni í vikunni. Það verður erfiður leikur hjá þeim á útivelli á móti Benfica en ég held að það hafist. Maður verður í það minnsta að halda í vonina.