5. mar. 2007

Skrýtið!

Mér finnst skrýtið þegar fólk leggur ómálga kornabörnum sínum orð í munn á heimasíðu barnsins. Væri ekki miklu eðlilegra að skrifa bara undir eigin nafni þar til barnið er farið að hafa vit á því hvað það vill segja umheiminum. Kannski breytist viðhorfið eitthvað þegar Strækerinn mætir, hver veit?
Aðeins betur að meðgöngunni. Það gengur allt ljómandi vel. Edda er að velta fyrir sér að þrauka þessa viku í vinnu og hætta svo eftir föstudaginn. Ég held að það væri mjög skynsamlegt því hún er orðinn ansi þreytt og lúin eftir vinnudaginn þó hann sé aðeins fjórar klukkustundir. Hún er hins vegar svo mikil keppnismanneskja að hún getur ekki almennilega sætt sig við að hætta snemma.
Það er margir búnir að panta fæðinguna á afmælisdaginn sinn því það eru gríðarlega margir sem eiga afmæli í fjögurra vikna glugganum kringum ásettan dag. Þar eru t.d. Vala Jóns, Helga Steinþórs og Júlía Rósa, Ingibjörg föðursystir mín, Lilja Lofts, amma Gústa, Mamma, Halldór Benjamín, Andreas yngri og Gissur. Þannig er alveg óhemjumikið af hrútum í kringum okkur.

Guðmundur tapaði!!

Ingólfur S. Ingólfsson, oftar kallaður Golli eða Ozon, varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik ásamt Kjartani Briem í gær. Það væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þeir lögðu Guðmund og Matthías Stephensen. Golli er Hannesarmaður, læknir og góður vinur. Þessi sigur er merkilegur fyrir margt, ekki síst það að Ingólfur er nýorðinn löggilt gamalmenni því hann varð þrítugur 1. mars sl. Fyrirsögn færslunnar fylgir svolítil nostalgía því þegar við Golli vorum í menntó þá vildi svo til að hann sigraði eitthvað mót hérna heima sem var bara ekki í boði þá því Guðmundur Stephensen vann hverja einustu dollu sem var í boði. Það fór þó svo að lokum að Ingólfi tókst að leggja hann í einum úrslitaleiknum en fyrirsögnin í Íþróttablaði Morgunblaðsins daginn eftir var einmitt svona yfir hálfa opnuna. Það var sem sagt ekki frétt að Ingólfur væri Íslandsmeistari heldur var auðvitað stórfréttin að Guðmundur skildi tapa leik. Við stríddum Ingólfi mikið á því að fréttamaðurinn léti þetta hljóma eins og Guðmundur hefði tapað fyrir blindum og útlimalausum flóðheststarfi en ekki frambærilegum pingpongleikmanni. Honum var ekki skemmt.

Takmarkalaus fegurð

Allir sem hafa gaman að því sem er fallegt og gott ættu að skoða hlekkinn í fyrirsögninni.

2. mar. 2007

Nokkuð mögnuð aðsókn

Setti nýja teljarann upp fyrir viku og það hafa komu nákvæmlega 200 manns fyrstu vikuna. Ekki slæmt það. Sum ykkar hafa auðvitað komið oftar en einu sinni. Takk fyrir komuna, velkomin aftur.

Virkjanamál

Þið sem hafið lesið færslurnar mínar upp á síðkastið eruð kannski svolítið ringluð og óviss hvort ég er með eða á móti. Það er vegna þess að ég er bara ekki búinn að mynda mér almennilega skoðun. Hálft í hvoru er ég fylgjandi því að menn skoði virkjanamál af yfirvegun og ef Núpsvirkjun er raunverulega besti kosturinn held ég að uppistöðulón i mynni Þjórsárdals þurfi ekki að vera svo hrikalegt. Á hinn bóginn finnst mér að það hljóti að verða sjónarsviptir af fallegum fossum eins og Búða og Urriðafossi. Það verður hins vegar að segjast að þessir fossar hafa ekki beinlínis verið aðgengilegir fyrir almenning, Urriðafoss er kannski skárri en það er töluvert ferðalag að komast að Búða, a.m.k. að vestanverðu. Ég þekki reyndar ekki hvernig það er að austanverðu. Ég get bara ekki ákveðið mig, stundum er ég á móti og stundum með. Oftast þegar ég er með er ég nýbúinn að hlusta á þá sem eru á móti og öfugt. Mér er sagt að ég sé svolítið svona ósammála týpa.

28. feb. 2007

Uppistöðulón

Það er margt skrýtið sem náttúruverndarsinnar taka sér fyrir hendur en mér finnst merkilegast þegar menn fara að tala um uppistöðulón. Er ég eini maðurinn sem finnst vötn falleg? Ég er miklu meira á móti stíflumannvirkjum, ljótum stöðvarhúsum og rafmagnslínum. Ætli 101 náttúruverndarsinnarnir fari ekki í göngutúr um helgar í kringum virkjunarlónið Elliðaárvatn? Og þó. Þeir halda kannski að það hafi alltaf verið þar. Kannski halda þeir líka að Úlfljótsvatn hafi alltaf verið þarna austur í Grímsnesi af því það var þar þegar skátamótið var 1991. Staðreyndin er nefnilega sú að virkjanaframkvæmdir geta verið stórkostlegar fyrir náttúruunnendur því fjöldamörg tækifæri skapast fyrir þá að njóta náttúrunnar á nýjan hátt með uppistöðulónum. Það er líka staðreynd að virkjanaframkvæmdir og vegagerð samhliða þeim hafa opnað okkur staði á landinu sem seint hefðu verið á forgangslista Vegagerðarinnar annars. Stundum held ég nefnilega að þeir sem hæst gjamma séu ekki endilega þeir sömu og ferðast um landið heldur þeir sem skoða náttúruperlur á ljósmynd eftir Ragnar Axelsson, lesa um hálendið og nýtingu þess í bók eftir Andra Snæ og skoða jöklana á myndbandi eftir Ómar Ragnarsson. Það er svo sem góðra gjalda vert en megum við hin sem nennum í alvöru að standa upp úr sófanum og upplifa náttúruna þá ekki bara hafa Landsvirkjunarvegina fyrir okkur til að skoða landið?

Gott svar

Ég var glaður að sjá gott svar vina minna í Steinsholti við ógeðfelldri persónulegri árás á bróður þeirra í Fréttablaðinu fyrir skemmstu. Svarið birtist á föstudaginn í Fréttablaðinu og var mjög málefnalegt og án heiftar. Manni finnst alltaf óþægilegt þegar vinir manns verða fyrir barðinu á ósanngjarnri gagnrýni sem gælir við grófa persónulega árás.
Þegar maður vafrar um vefinn sér maður ýmislegt skrifað um þennan blessaða Árnesfund og eftir því sem maður les fleira er ljóst að það er enga ályktun hægt að draga af honum.
Í fyrsta lagi var stór hluti fundarmanna eftir því sem ég kemst næst ekki úr Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Þannig er ekki hægt að draga ályktun um vilja íbúa sveitarinnar.
Í öðru lagi var þeim sem eru fylgjandi virkjunum ekki leyft að tjá sig á fundinum
Í þriðja lagi var ekki kosið um ályktun fundarins eins og ýjað hefur verið að heldur virðist fundarstjórinn hafa samþykkt hana með því að biðja fundarmenn að klappa fyrir henni. Auðvitað hefði enginn klappað ef fundarmenn hefðu almennt verið ósáttir við hana en það er samt ljóst að það þarf ekki nema hluti að klappa til að yfirgnæfa þögn hinna sem ósammála eru og þegja.
Allt þetta kemur fram í svari þeirra systkina í Steinsholti sem þau skrifa bróður sínum til varnar.

Duffi sigraði í kvöld

Dufþakur tók leik við Vængi Júpíters sem er eitt af sterkari liðum utandeildarinnar í kvöld. Í stuttu máli tókum við þá í bakaríið. Sigruðum 5-2, Steini með tvö og Stebbi, Þengill og Maggi Ella með sitt markið hver. Góður leikur.

Glæsilegur sigur minna manna - eða þannig!

United tók Reading í kvöld og tryggði sig áfram í bikarnum. Mér skilst að þeir hafi verið góðir fyrstu 6 mínúturnar en eftir það voru Readingmenn betri. Mörkin voru fín þarna í byrjun en ég held reyndar að Ole Gunnar hafi verið suddalega rangstæður í þriðja markinu. Enn okkur Unitedmönnum er alveg sama um það. Sigur er sigur og við mætum Middlesborough í næstu umferð. Það er fínt og verður þetta örugglega hörkuleikur.

Nýjir bloggarar hlekkjaðir

Datt niður á tvö Duffablogg í dag og bætti þeim í hlekkjalistann. Þetta er bloggið hjá Jóni Helga sem er yngri systirinn í systrunum í Duffa. Hann er alltaf meiddur og þess vegna bloggar hann svona mikið. Hinn er Magnús Elíasson, sjaldan kallaður annað en Mæjan. Hann er greinilega nýbyrjaður að blogga aftur og er nokkuð duglegur sýnist mér. Athugið það.

26. feb. 2007

Chels$ky deildarbikarmeistarar

Chelseamenn lyftu deildarbikarnum í gær við lítinn fögnuð tengdafjölskyldunnar. Svenni mágur, Magga og Elín Helga horfðu víst saman og voru ekki kát. Ég sá ekki mikið af þessum leik en ég er búinn að sjá mörkin, slagsmálin og þegar Terry sleikti ilina á Diaby. Mér fannst nú sumir Chelseamennirnir sleppa ansi ódýrt eftir slagsmálin í lokin en allir sem fengu rautt áttu það nú skilið. Spurning hvort Lampard hefði ekki mátt fá reisupassann líka en það er erfitt fyrir dómarann að sjá svona lagað. Chelsea tóku sem sagt fyrsta stóra titilinn þetta árið og ég vona að það verði jafnframt sá síðasti sem þeir taka í ár.

25. feb. 2007

Þvílík endaleysa

Rakst þessa fádæma endaleysu eftir Sverri Jakobsson á netinu áðan. Stundum verður manni bara illt að lesa vitleysuna sem kemur frá þeim vinstri grænu. Þið megið ekki skilja mig sem svo að ég sé ósammála Sverri að töluvert skorti á að jafnrétti gæti hér í launamálum en það eru tillögurnar sem fara fyrir brjóstið á mér. Hann vill sem sé aflétta launaleynd og taka upp kynjakvóta. Það er kannski bara rétt að ganga alla leið og setja innistæður bankabóka á netið líka svo hægt sé að draga úr launum þeirra sem eru duglegir að spara. Ég meina það eru takmörk fyrir því hvað fólk þarf að eiga inni á bankabókinni sinni er það ekki?
Hann talar einnig um að Vinstri grænir og Framsóknarmenn séu þeir einu sem tryggi konum örugg sæti á framboðslistum. Það er kannski rétt að benda Sverri á það að í síðustu Borgarstjórnarkosningum voru 3 konur í efstu 7 sætum á lista sjálfstæðisflokksins ef ég man rétt og 5 í efstu 10 sætunum. Þetta gerðu þær án þeirra hækju að eiga sætin vís. Þannig er hægt að færa rök fyrir því að sjálfstæðismenn séu þeir einu sem tryggja framgang kvenna í pólítík án þess að gefa þeim einhverja forgjöf - það þarf nefnilega ekki þegar menn eru raunverulegir jafnréttissinnar. Kannski eru bara frambærilegri konur á hægri vængnum.

Húrra fyrir Guðmundi Steingrímssyni

Mikið rosalega var ég ánægður með að lesa bakþanka Guðmundar á Fréttablaðinu í gær. Hann er sem sé eini stjórnmálamaðurinn sem hefur hugrekki til að standa vörð um mannréttindin. Það verður oft raunin með fólk sem þykist berjast fyrir mannréttindum af vinstri vængnum að það eru bara ákveðin mannréttindi fyrir ákveðna einstaklinga sem það berst fyrir. Þótt okkur líki það illa þá eiga klámmyndastjörnur líka rétt á að njóta mannréttinda.

Heppnir

Mínir menn voru heppnir í gær. Ronaldo bjargaði okkur með frábæru marki rétt fyrir lok leiksins. Strax eftir markið áttu Fulhammenn slatta af færum og kröfðust þess að fá vítaspyrnu rétt fyrir leikslok þegar Heiðar Helguson og Edwin van der Sar lentu saman. Mér fannst það nú alger steypa. Heiðar og van der Sar voru báðir að eltast við boltann og Heiðar hleypur á markmanninn á blindu hliðinni. Ef eitthvað var hindrar hann markmanninn í að ná til boltans en dómarinn gerði vel í að láta leikinn bara flæða áfram. Það er samt merkilegt hvað það eru margir andUnitedmenn að lýsa á Sýn. Þetta var nú reyndar sérlega slæmt þegar boltinn var á RÚV því þá voru allir íþróttafréttamenn meira eða minna aðdáendur svörnustu andstæðinga MUFC. Þetta hefur skánað en var einstaklega slæmt í gær.
Því er þó ekki að neita að mínir menn voru heppnir að fara með sigur af hólmi í gær og mega þakka van der Sar það því hann varði oft á tíðum stórkostlega í seinni hálfleik. Nú er bara að vona að Chelsea fari að misstíga sig svo þetta klárist fyrir páska.

23. feb. 2007

Siðgæðispostular við Hagatorg og Femínistar

Ég er enn í áfalli yfir því að við Íslendingar skulum láta múgæsingu framkalla mannréttindabrot árið 2007. Mér finnst merkilegast af öllu að Femínistafélag Íslands eða hvað sem þessi svokölluðu kvenréttindasamtök kalla sig skuli hvetja til slíkra mannréttindabrota. Er sem sagt ekki sama hvaða starfsvettvang konur velja sér? Eiga bara þær sem vinna í tískubúðum, verkfræðingar og lögfræðingar skilið að njóta almennra mannréttinda? Ég skoðaði nú heimasíðu þessarar samkundu og þó ég sé nú ekki sannfærður um að allar þessar stúlkur séu siðgæðisséníar þá fæ ég ekki séð að íslenskum stallsystrum þeirra hafi tekist að sýna fram á einhverja glæpi sem kalla á að þessum stúlkum og drengjum sé útskúfað héðan. Hvað varð um regluna að fólk njóti sakleysis uns sekt sé sönnuð?
Getum við þá í framtíðinni átt von á því að vera útskúfað af Radisson SAS hótelum af því að Íslendingar veiða hvali? Þó að við stöndum kannski ekki beinlínis sjálf við skutulinn þá erum við nú einu sinni Íslendingar og ríkisstjórn okkar veiðir hvali. Víðast hvar erlendis er glæpur að veiða hvali alveg eins og það er glæpur hér að framleiða klám.
Ég er samt á því að það sé réttur hvers fyrirtækis að velja sér viðskiptavini og neita fólki um þjónustu alveg eins og það er réttur einstaklingsins að sækjast eftir þjónustunni. Ég fæ ekki séð að réttur einstaklingsins sé meiri en fyrirtækisins. Það breytir því þó ekki að þegar samningar hafa verið undirritaðir þá ber að standa við þá hvort sem manni líkar betur eða verr, ellegar greiða viðeigandi bætur fyrir samningsbrot.
Fyrir mitt leyti skammast ég mín fyrir að búa í landi þar sem yfirvöld leika sér á þeirri fínu línu að álykta um hverjir séu velkomnir hér og hverjir ekki. Persónulega held ég að þetta Femínistafélag geri meiri skaða en gagn í jafnréttismálum hérlendis en það er bara mín skoðun og mér dettur ekki í hug að biðja yfirvöld að álykta um það hvort Femínistafélagið eigi rétt á því að básúna sínar skoðanir og siðapredikanir yfir okkur syndarana. Þeim er fullkomlega frjálst að hafa sínar skoðanir þó mér finnist þær alger tímaskekkja í nútímaþjóðfélagi.

Heimsókn

Við Edda kíktum á Þórhildi Örnu Kristjánsdóttur á efri hæðinni í dag. Hún er dóttir þeirra Brynju Jónsdóttur og Kristjáns Derekssonar sem bæði voru tveimur árum á eftir mér í læknadeildinni og búa hér á efri hæðinni. Þórhildur er fædd á síðastliðinn jóladag og var pínulítið að flýta sér í heiminn því hún átti ekki að fæðast fyrr en í byrjun janúar. Hún er mjög gestrisin og var alveg til í að leyfa okkur að æfa okkur. Þær stöllurnar Edda og Brynja eru farnar að plana göngutúra og fleira í sumar og ég held að það verði voðalega notalegt hjá þeim að vera svona nálægt hvorri annarri. Ætli ég segi ekki bara takk fyrir okkur.

22. feb. 2007

Vinnan

Þá er ég búinn að vera hér í rúmar þrjár vikur á háls-, nef- og eyrnadeildinni (HNE) og líkar bara nokkuð vel. Það er auðvitað alltaf þannig þegar maður byrjar á nýjum stað að maður er algjör bjáni og þarf aðstoð og kennslu við minnstu viðvik en svo kemur þetta hægt og bítandi. Annars hefur verið svo mikið að gera hjá mér að ég hef því miður haft lítinn tíma til að lesa fagið. Það stendur til bóta. Maður reynir að glugga í þetta á vöktunum en oft er svo mikið að gera að það er lítið hægt að lesa.

Poolararnir koma á óvart

Liverpool tókst það sem enginn, nema hörðustu poolarar, hafði trú á. Þeir unnu Barcelona á Nou Camp. Ég sá reyndar ekki leikinn en maður verður eiginlega bara að óska liverpoolaðdáendum til hamingju með árangurinn. Það er ágætt að þeir standa sig einhvers staðar því ekki eru þeir að gera það gott í deildinni.

Svekktur, varla!

Ég get ekki sagt að ég sé mjög svekktur yfir þessu, þó mér finnist þetta jaðra við mannréttindabrot. Ég veit ekki til þess að tekist hafi að sanna á neinn ráðstefnugesta að hann hafi gerst brotlegur við lög þannig að ég skil ekki alveg hvernig Bændasamtökin ætla að verja sig ef til málsóknar kemur. Að því sögðu er ég nú bara sáttur við að þetta fólk sé ekki á leið hingað þó mér finnist sá tilgangur ekki hafa helgað meðalið sem var notað.

Færslu breytt

Hef gert breytingar á færslu minni um náttúruverndarsinna eftir að hafa lesið hana aftur. Hún var kannski skrifuð í fullmikilli heift og að áeggjan annarra endurskoðaði ég það sem ég skrifaði. Þetta er ástæðan fyrir því að ég yrði aldrei góður stjórnmálamaður, heiftin nær stundum tökum á mér og þá gleymi ég að vera kurteis.

21. feb. 2007

United, United!

Mínir menn að standa sig þó svo virðist sem markið verði umdeilt um einhverja hríð. Við höfum svo sem fengið okkar skerf af svona mörkum á okkur og ég hef alltaf verið gríðarlega ósáttur við að þetta sé hægt en það var kominn tími til að við fengjum svona mark sjálfir. Annars skilst mér að þetta hafi verið hundleiðinlegur leikur en sá seinni ætti að vera skemmtilegri úr því Lille verður að skora. Ég vona bara að mínum mönnum takist að skora fljótlega svo þeir slökkvi vonir Frakkanna. Svo er bara að vona að PSV og Barcelona standi sig.

Kímniskortur

Einn af mínum uppáhalds bloggurum er Sigmar Guðmundsson fréttamaður. Hann er einstaklega fyndinn og hittir oft naglann á höfuðið. Það sem er þó grátlegt við að lesa síðuna hans er það að margir sem þar skilja eftir álit sitt eru greinilega algerlega sneiddir íslenskum húmor. Þarna er einn ofurbloggari og feministi sem ég man ekki hvað kallar sig en hún er með fjólurautt hár eða eitthvað. Hún náði bara ekki kaldhæðninni í færslu Sigmars um klámstefnuna hér. Í dag voru svo nokkrir sem ekki náðu djóknum um fréttaskúbbið og mýsnar í Bónus. Eins og augljóst er hverjum sem skoðar myndbandið almennilega er útilokað að um mýs sé að ræða. Ég meina hafið þið einhvern tíma séð mýs leiðast yfir gang. Þær hljóta þá líka að vera vel aldar úr því að þær eru kúlulaga og rúlla yfir gólfið í rólegheitum í stað þess að skjótast eins og kollegar þeirra. Þetta er enn eitt dæmið um það að hér er ekkert í fréttum.

20. feb. 2007

Ógeðfelldir "náttúruverndarsinnar"

Öllu má nú nafn gefa. Sl. föstudag skrifuðu nokkrir Gnúpverjar opið bréf til Gunnars Arnar Marteinssonar oddvita í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í Fréttablaðið vegna fyrirhugaðrar Núpsvirkjunnar. Ég verð að segja eins og er að ómálefnalegri áróður hef ég sjaldan séð. Sjálfur hef ég ekki myndað mér skoðun á þessu máli enn sem komið er en þegar ég sé hvernig málflutningur andstæðinganna hefur farið af stað er næstum útilokað fyrir mig að styðja við bakið á samtökum gegn virkjuninni.
Í þessu bréfi er ráðist persónulega á sómadrenginn Gunnar sem þó hefur reynt að koma fram í þessu máli af einhverri skynsemi og reynt að sjá fleiri en einn flöt á málinu. Þetta náttúruverndarhalelújafólk sem hefur hæst þarna fyrir austan hefur margsinnis sannað að það telur það ekki eftir sér að hagræða sannleikanum fyrir fáfróðum höfuðborgarbúum til að fá þá á sitt band eins og ég komst að þegar ég fór að ræða við nokkrar samverkakonur mínar á svæfingunni í Fossvogi þegar umræðurnar um Norðlingaölduveitu fóru sem hæst. Þær höfðu farið í fylgd ónefnds Nátturuverndar-Gnúpverja inn á afrétt og mun hann hafa sýnt þeim náttúruperlur sem átti að færa í kaf en raunar voru þær víðs fjarri hinu áætlaða lóni. Náttúrverndarsinnum hættir nefnilega til að eyðileggja auðverjanlegan málstað með gífuryrðum og vanhugsuðum blekkingum og það er ástæða þess að margir eru orðnir þreyttir á þessum áróðri. Ég held að sumum væri nú nær að taka til hendinni á eigin landi áður en þeir fara að predika yfir öðrum um náttúrvernd.

Grey kallinn

Ég skil ekki af hverju menn hafa ekki velt sér meira upp úr fréttinni af því að einhver fréttamaður skuli hafa samið heilu tilvitnanirnar og jafnvel viðtöl við þáverandi forsætisráðherra, Steingrím Hermannsson, án þess að hann gerði athugasemdir við það. Steingrímur greyið man ekki neitt fremur en fyrri daginn en í dag kann það þó að vera eðlilegur hluti öldrunarferlis hjá karlgreyinu. Hann var nú svo sem alltaf hálfgert meinleysisgrey þó hann klúðraði hér öllu í efnahagsmálum þjóðarinnar. Merkilegt hvað metnaður hefur lítið með efnivið að gera. Sjáið bara hana Holræsa-Sollu. Hún er í dag álíka efnileg og Glanni glæpur. Sorglegt útbrunnið kerlingarpólitíkurkeis. Má ég þá frekar biðja um Össur og Steingrím. Þeir gætu þá alla vega klúðrað hér öllu góðærinu með einhverjum stæl. Skringibjörg hefur álíka mikinn sjarma og ófullnægður og sköllóttur fangavörður. Og þó. Maður á ekki að tala illa um fangaverði. Indælasta fólk.

Lifrarlaugardrengir golfa

Mér skilst að sómadrengurinn og mannvitsbrekkan Craig Bellamy hafi þjónustað frænda vorn Jón Árna Risa með golfkylfufótanuddi um helgina og það fyrir að neita að syngja í karókí. Þar fór alveg töffarayfirbragðið af grey stráknum. Ég sé fyrir mér einmana yfirþyngdardrottningarnar sem fitjuðu upp á nefið þegar ég nauðgaði You never walk alone í steggjaveislunni minni á sviðinu í Ölver. Þeim fannst ekki mikið til frammistöðu minnar koma. Craig var að hætti félagsins sektaður um andvirði golfkylfunnar sem hann keypti úr dánarbúi Önnu Nicole sl. fimmtudag. Ég meina hvað er málið með þetta pakk. Það er stórmerkilegt hvað lífið í Liverpool þarf oft að snúast um eitthvað annað en fótbolta. Það er eins og það safnist þangað hver sorasauðurinn á eftir öðrum. Það er náttúrlega ótrúleg skammsýni að festa kaup á Bellamy og Pennant, verandi með kóknösina Robbie Fowler á hliðarlínunni. Poolarar eru og verða hálfvitar.

19. feb. 2007

Hitt og þetta

Helgi á Hamarsheiði
Fín helgi á Hamarsheiði um helgina. Ég kom heilmiklu í verk innanhúss og slappaði líka af á milli. Íris og Halldór komu ásamt Naomí og við skemmtum okkur vel saman.

Klámhistería
Ég veit ekki hvað er að verða um þetta land. Það er allt vitlaust út af því það ætla að koma hér eitthvað klámpakk að halda ráðstefnu. Ég meina af hverju má þetta lið ekki spjalla svolítið saman hérna. Það er ekki eins og það sé verið að skipuleggja fjöldasamfarir á Austurvelli eða járnbrautarlest í Kringlunni. Ég veit ekki hvers vegna þetta femínistafélag þarf alltaf að vera að rífa sig. Það er ekki eins og þetta fólk sé hér tilneytt.

Þreytt grammófónplata
Skringibjörg Sólbrún er byrjuð á sínu skrykkjótta kosningabarátturausi. Það verður gaman að sjá hvort henni tekst í þetta skiptið að koma í alvöru einhverja stefnuskrá eða hvort hún gerir bara eins og venjulega að fara eftir skoðanakönnunum. Algjörlega hugsjónalaus stjórnmálamaður sem hefur enga tilfinningu fyrir vilja kjósenda lengur. Hundleiðinleg væluskjóða.

Fokking Brynjar Björn

16. feb. 2007

Uppfærsla
Sæl öllsömul. Ég er enn að uppfæra síðuna og var nú að setja inn hlekki á nokkur börn í viðbót. Hjá sumum þarf lykilorð en ekki hjá öðrum. Þið finnið út úr því. Annars vil ég endilega að þið sendið mér línu með kommenti ef ykkur finnst barnið ykkar vanta þarna.

Uppáhaldsbloggarinn þessa dagana
Ég er orðinn háður því að lesa nýju matardagbókina hans Ragnars Freys. Ragnar var með mér í læknadeildinni og er mjög ástríðufullur maður. Ein af sterkustu ástríðum hans er matargerð og hann hefur nú ákveðið að deila með okkur hinum snilli sinni í eldhúsinu með því að blogga á hverjum degi hvað hann og konan elda. Ég mæli með því að þið kíkið á þessa síðu ef þið hafið minnsta áhuga á matargerð. Brjálæðislega girnileg síða.

Tvær aðrar heimasíður í smíðum
Annars vegar er það heimasíða fyrir Hamarsheiði sem er reyndar fyrst og fremst fyrir okkur sem eigum pleisið en áhugasamir geta fylgst með því hvað fer fram á heiðinni.
Hin síðan er síðan fyrir "Ole Gunnar Bergmann" en hún verður ekki opnuð strax. Slóðin verður þó þessi þegar þar að kemur og ég geri ráð fyrir að ég opni hana um miðjan mars.

12. feb. 2007

Breytt útlit

Ég var orðinn þreyttur á útlitinu og ákvað að breyta til. Uppfærði líka hlekkjalistann svo ef einhver vill láta hlekkja sig þá er bara að setja álit og ég skelli þér inn ef mér líst vel á. Er annars að vinna í tveimur öðrum síðum líka. Það er síða fyrir Hamarsheiði og fyrir Ola Gunnar. Gengur ágætlega. Meira seinna - er að fara á vaktina.

11. feb. 2007

Meðgangan
Þá er farið að styttast allsvakalega í þetta. 34 vikur á þriðjudaginn og það er kominn í mann heilmikill fiðringur. Edda er orðin myndarleg þó bumban sé nett eins og foreldrarnir. Ekki kannski við því að búast að komi einhver risi út úr svona dvergaræktun. Eitt er samt víst að barnið verður liðtækt í boltanum því hann skallar og sparkar í innanverða bumbuna af miklum móð og er einstaklega laginn við að hitta í lófann á pabba sínum.

Frábær afrek
Það er frábær siður hjá Rauða krossinum að veita viðurkenninguna skyndihjálparmaður ársins. Síðustu árin hafa mörg börn og unglingar fengið viðurkenninguna og fyrir árið í fyrra hlaut átta ára gamall drengur hana. Hann bjargaði lífi móður sinnar þegar hann brást hárrétt við ofnæmislosti hennar.

Pabbinn
Við fórum skötuhjúin ásamt Helgu og Sverri, Áslaugu og Ingólfi og Elnu og Fannari að sjá þetta verk í gær. Það er svo magnað með leikhús að það er alltaf gaman að fara en maður fer samt svo ótrúlega sjaldan. Það er ekki einu sinni vegna þess að ég hafi ekki haft tækifærin heldur valdi ég bara að fara ekki. Mamma og pabbi hafa verið frekar dugleg að fara og buðu mér oft að koma með þegar ég bjó hjá þeim en ég afþakkaði alltaf. Þetta varð til þess að þegar ég fór með tengdó á Með fullri reisn fyrir nokkrum árum þá hafði ég ekki farið í leikhús síðan Hilmir Snær og Valgerður Guðna slógu í gegn í The Rocky Horror Picture Show í Loftkastalanum um árið.
En hvað um það - við sáum þetta verk í gær. Bjarni Haukur var auðvitað frábær í Hellisbúanum um árið svo maður bjóst við frábærri skemmtun og það var nákvæmlega það sem maður fékk. Ég veltist um af hlátri hvað eftir annað og á milli komu mikilvæg skilaboð til verðandi og nýbakaðra foreldra. Ég mæli eindregið með þessu fyrir alla sem hafa gaman að því að hlæja.

Boltinn
Áfram MUFC. Góður sigur á Charlton í gær þrátt fyrir að Ronaldo og Carrick væru hvíldir. Það virðist allt ætla að ganga upp hjá mínum mönnum þetta árið. Það er gott og kominn tími til. Það er líka frekar jákvætt að hvíla tvo af bestu leikmönnum liðsins og mennirnir sem koma inn í liðið sjá um að klára leikinn. Það kallar maður að koma inn í liðið með stíl. Ég er farinn að hafa góða tilfinningu fyrir vorinu. Ég er viss um að Óli Gunnar er ánægður með þetta.

8. feb. 2007

Boltinn
Mínir menn að standa sig í boltanum. 0-4 á útivelli á móti Tottenham og þeir sáu aldrei til sólar í leiknum. Ronaldo er náttúrlega ótrúlegur leikmaður og þó vítið hafi verið fremur ódýrt þá verður að segjast að dómarinn sleppti augljósum vítaspyrnudómi stuttu áður þegar Larsson var teikaður í teignum. Vidic er svo auðvitað baneitraður þarna í hornunum en ég hafði nú samt svolitla samúð með Robinson greyinu að fá á sig mark eftir nokkrar stórkostlegar markvörslur í aðdraganda marksins. Scholes setti svo eitt sem Ronaldo gaf honum eiginlega og Giggs kláraði leikinn endanlega þegar hann sett'ann undir lokin. Ég var að vonast eftir marki frá Larsson en hann gerði svo sem flest annað en að skora í leiknum. Ótrúlega seigur leikmaður. Arsenal og Liverpool halda áfram að skíta í buxurnar en ég er ekki nógu ánægður með hvað Chelsea tekst alltaf að bjarga sér fyrir horn. Það er reyndar ánægjulegt að sjá hvað þeir skora lítið en það gæti skilað sér í óþarfa jafnteflum á móti liðum sem tekst að skora á móti þeim.

Umhverfisverndarendaleysan
Það hlýtur að vera erfitt að hafa ekkert áhugamál í pólitík annað en umhverfismál. Það er nefnilega þannig að umhverfisvernd er áhugamál fólks úr öllum flokkum og hefur ekkert með aðrar pólitískar hugsjónir fólks að gera. Ég held að þeir einstaklingar sem fengjust til að bjóða sig fram í nafni umhverfisverndarhugsjóna yrðu ekki frambærilegir þingmenn því mér virðist sem ötulustu talsmenn umhverfismála séu algerlega stefnulausir í öðrum mikilvægari málum. Umhverfismál ættu að vera sameiginlegt áhugamál fólks úr mismunandi flokkum og rétti vettvangurinn fyrir slíka baráttu eru fjölmiðlar og baráttuhópar en ekki stjórnmálaflokkar sem hafa engan áhuga á öðrum stefnumálum og fá einhverja leigða kosningasérfræðinga til að setja saman eitthvað stefnumálamombodjombo sem þeir nenna síðan ekki einu sinni að kynna sér. Ég mundi persónulega ekki kjósa Ómar eða Andra Snæ. Ég mundi einfaldlega ekki treysta þeim fyrir heilbrigðis-, efnahags- og velferðarmálunum því menn sem láta ástríðu fremur en skynsemi ráða ferð enda yfirleitt í ógöngum.

Nýja vinnan
Mér líst mjög vel á mig á nýja staðnum. Maður er reyndar frekar ryðgaður í skurðlæknisfræðinni sem við er að eiga á vöktunum en dagvinnan er frábær og ég finn strax að það mun nýtast mér vel svæfingunum. Ég er líka að byrja fyrir alvöru að vinna í rannsókninni minni sem snýst um starfsemi nýrnanna í gjörgæslusjúklingum. Það ætti að taka mig 4-6 mánuði að fá einhverjar niðurstöður úr því ef ég held vel á spöðunum.

31. jan. 2007

Ótrúlegt svekkelsi
Þeir stóðu sig ótrúlega vel í gær strákarnir okkar í handboltanum. Það er glæsilegur árangur hjá pínulítilli þjóð eins og okkur að komast í 8 liða úrslit á heimsmeistaramóti. Stórsigur á Frökkum, sætur sigur á Slóvenum og frábær barátta á móti Dönum standa upp úr að mínu mati. Það er samt margt sem var jákvætt í þessari keppni. Markvarslan hefur t.d. sjaldan verið betri og ég held að það sé fyrst og fremst vegna þess að Sverrir, Vignir og Alexander hafa komið gríðarlega sterkir inn í vörnina en áður var Fúsi algjör yfirburðamaður. Annað sem er jákvætt er að ógnin sem hefur vantað vinstra megin á vellinum er komin með þeim Loga og Markúsi Mána og þó Arnór Atlason hafa ekki náð sér á strik á þessu móti þá má ekki gleyma því að hann var frábær á síðasta stórmóti og ég er viss um að hann kemur aftur sterkur inn næst. Að lokum er það svo snillingurinn Snorri Steinn Guðjónsson. Þarna er að mínu mati kominn framtíðarfyrirliði íslenska landsliðsins. Svo má auðvitað ekki gleyma því að við eigum tvo frábæra hægri bakverði framtíðarinnar í Einari Hólmgeirs og Ásgeiri Erni. Þannig erum við komnir með frábæra leikmenn í hverja einustu stöðu á vellinum.
Guðjón Valur er náttúrlega einn magnaðasti vinstri hornamaður heims.
Logi og Markús Máni eiga eftir að vaxa enn meira í vinstri bakvarðarstöðunni.
Snorri Steinn er frábær á miðjunni en því miður vantar annan góðan leikstjórnanda.
Óli á sennilega ekki mörg ár eftir, ekki af því að hann getur það ekki heldur af því að hann vill það ekki. Ég hef það að minnsta kosti á tilfinningunni. Þar er framtíðin hins vegar björt með Ásgeir og reyndar sérstaklega Einar Hólmgeirsson sem því miður gat ekki verið með núna.
Svo eigum við auðvitað hinn stórkostlega tengdason Alexander Petterson í hægra horninu. Ef það er til útlendingur sem er stoltari og ákafari að spila fyrir fósturþjóð sína þá megið þið vinsamlega benda mér á hann.

Medicin
Þá er lokið veru minni á lyflækningasviði. Eins og ég held að ég hafi skrifað um hér áður þá ákvað ég að stytta starfstímann minn þar úr einu ári í sex mánuði þar sem ég taldi mig ekki vera að fá það út úr starfinu sem ég lagði upp með í upphafi. Eins voru aðstæður á sviðinu ekki hagstæðar á þessum sex mánuðum, sérstaklega vegna manneklu. Það er ekki þar með sagt að mér hafi ekki líkað samstarfsfólkið sem slíkt. Það fer ekki alltaf saman góður vinnuandi og gott umhverfi til að bæta sig sem læknir. Ég hef einhvern veginn á tilfinningunni að ég hafi litlu bætt við það sem ég kunni þegar en kannski gerir maður sér ekki grein fyrir svoleiðis löguðu fyrr en frá líður. Einhverra hluta vegna gekk mér að minnsta kosti ekki vel að stunda lestur fræðanna á meðan ég starfaði þarna, hverju sem það er um að kenna. Ég hef störf á Háls-, nef- og eyrnadeildinni í fyrramálið. Það verður vonandi lærdómsríkt.

29. jan. 2007

Handboltinn
Strákarnir hafa verið að standa sig svona upp og ofan. Tap fyrir Pólverjum og Þjóðverjum en sigur á Slóvenum og Túnisbúum. Ég held að ef við höldum okkur frá verjunum þá munum við hirða þessa helvítis dollu. Það er því ljóst að við getum tekið Rússa, Dani, Frakka og Króata en það gæti orðið erfitt að vinna Spánverja, Pólverja og Þjóðverja. Kannski spilast þetta heppilega fyrir okkur í hinum leikjunum en á morgun hef ég trú á því að við tökum Dani.
Ég er gríðarlega ánægður með hvernig breiddin í hópnum hefur aukist. Þannig hafa Logi og Markús Máni staðið sig með prýði og Róbert hefur létt töluvert álagið sem var alltaf á Fúsa. Eins hefur innkoma varnarjaxlanna Sverris og Vignis auðveldað varnarleikinn fyrir Fúsa eins og reyndar Alexander hefur gert líka. Með þessum bætta varnarleik hefur markvarslan batnað til muna og í fyrsta skipti síðan ég fór að fylgjast með hafa markverðirnir verið með bestu mönnum liðsins. Þeir hafa allir átt góða spretti en Birkir hefur þó verið jafnbestur og alveg hreint stórkostlegur á köflum á móti t.d. Frökkum og Slóvenum.

Fótboltinn
Mínir menn í MUFC hafa verið allt of rólegir á leikmannamarkaðnum í janúar að mínu mati því ég var að vonast eftir alla vega einum varnarmanni og einum miðjumanni. Einn miðjumaður hefði meira að segja glatt mig gríðarlega. Ferguson veit hins vegar hvað hann syngur og ég er löngu hættur að efast um ákvarðanir hans í leikmannamálum. Maðurinn er lifandi goðsögn. Nú er bara að baka Reading í bikarnum og halda áfram á sömu braut í deildinni.

Frjálslyndir
Ótrúlegt hvað er hægt að mynda mikinn storm í svona litlu vatnsglasi. Margrét lætur eins og einhver drottning og vælir yfir öllu sem menn segja og gera. Sú hefur verið rúmlega handfylli á gelgjunni en það var svo sem ekki ómerkari nagli en Sverrir Hermanns sem tókst á við það þannig að sennilega hefur það verið í lagi. Það er nú engin lognmolla í honum blessuðum. Ég held reyndar að Frjálslyndir forystumenn muni líta á þessa kosningu sem stuðningsyfirlýsingu við þjóðernisstefnu flokksins og þeir gætu sópað til sín fylgi út á það í vor. Ég er ekki að verja stefnuna en það er augljóst að margir eru orðnir þreyttir á aðstreymi erlends vinnuafls hingað, hvernig sem unnt verður að hefta það. Það er hins vegar sjálfsögð umræða að spá í hvort ekki ætti að halda íslenskunni meira að útlendingum eða a.m.k. ensku. Það er sífellt vaxandi vandamál að á bráðamóttökur LSH leitar fólk sem hvorki talar ensku né íslensku og sumir tala ekkert nema framandi móðurmálið. Slíku fólki er erfitt að hjálpa en sem betur fer er túlkaþjónustan hér framúrskarandi. Það verður í það minnsta spaugilegt að fylgjast með þessari umræðu í aðdraganda kosninganna.

RÚV
Þvílík og önnur eins endaleysa sem þetta RÚV-mál er allt orðið. Ég er nú enn þeirrar skoðunnar að almannavarnanautaskíturinn sé tómur fyrirsláttur í einhverju nostalgíuliði sem vil troða upp á sauðsvartan almúgan einhverjum leiðindagaurum sem fjalla um orð sem enginn notar lengur eða spila tónlist sem einhverjir dauðir menn sömdu á falskt píanó fyrir 1700 árum. Hvað hefur þessi Mozart karakter fram yfir Diktu og Jeff Who?? Nákvæmlega ekki neitt nema hann djammaði aðeins meira og var vel plöggaður. Helvítis ræfill. Ég er svo sem ekki að setja út á músíkina hans sem slíka en það er bara svo margt sem flestum núlifandi finnst skemmtilegra. Tengdamamma heldur t.d. mikla meira upp á Bjögga gamla en hinn útdauða Wolfgang, tengdapabbi hlustar á Spaðana og Queen og pabbi gamli er meira svona djassgeggjari þó hann fíli nú alveg W.A.M.

Hamarsheiði og Helgi Hrafn
Við vorum á Hamarsheiði um helgina fjölskyldan. Jón Bragi og Sigrún voru á landinu og krakkarnir líka svo það var þrumustuð. Helgi Hrafn var alveg steinhissa á þeirri fáránlegu staðreynd að Edda væri með barn í maganum og skildi ekkert í því hvernig ætti að ná því út. Hann hélt fyrst að það kæmi bara út um munninn en þegar pabbi hans reyndi að útskýra þetta fannst honum það ekki trúlegt. Hann velti þessu fyrir sér dágóða stund og sagði svo spekingslegur: "Vi har en plan!! Ég tala bara við doktorkallinn og hann nær því út". Við bræðurnir vorum auðvitað gjörsamlega gagnslausir og það var því ákveðið að Helgi mundi hafa samband við doktorkallinn strax daginn eftir. Ég náði þessu sem betur fer öllu á myndband og þetta verður geymt til þess dags að drengurinn gengur í það heilaga. Þá verður sko hlegið í salnum.

In memoriam
Samband skötuhjúanna virðist brostið og báðir hafa þeir hafið stefnumótun af krafti. Ekki hefur sést til Safapressunnar sl. 10 daga vegna gríðarlegra stefnumótunaranna. Blessuð sé minning sambands þeirra sem var stutt en þó fallegt og ástríðufullt.

22. jan. 2007

Strákarnir okkar brillera!!!
Frábærasti leikur íslenska landsliðsins í langan tíma. Mér finnst menn reyndar gleyma níu marka sigrunum á Júgóslövum og Spánverjum hérna um árið en það að valta svona yfir Evrópumeistarana er sannarlega rosalegt. Við keyrðum yfir þá í fyrri hálfleik og bökkuðum svo yfir þá í þeim seinni. Birkir Ívar var náttúrlega maður leiksins og maður sér hvers hann er megnugur þegar vörnin verður svona góð. Það voru markvörslur í heimsklassa þarna inni á milli, sérstaklega þegar hann tók þessar neglur frá Fernandez niðri í hornunum. Ótrúlegar markvörslur. Liðið var reyndar allt alveg frábært, Óli, Guðjón, Snorri Steinn og Logi í sókninni. Fúsi, Vignir, Alex og Sverrir í vörninni. Talandi um Alex. Það er magnað að sjá mann spila af svona miklu stolti, innlifun og baráttu fyrir land sem hann er ekki einu sinni fæddur í og hafði reyndar ekki búið í fyrr en um tvítugt. Hann er sannarlega draumatengdasonur íslensku þjóðarinnar. Nú er bara að redda sjónvarpinu á Hamarsheiðina svo við getum fylgst með þessu um helgina.

MUFC
Helvítis svekkelsi í gær að tapa svona fyrir Arsenal. Ég held að það sé eitthvað bogið við það að ég horfi á þessa leiki heima hjá Svenna mág og co. svo ég ætla að hætta því. Horfi á næsta leik einhvers staðar annars staðar. En púlararnir stóðu sig á laugardaginn svo munurinn er ennþá 6 stig og ég hef reyndar minnstar áhyggjur af Chelsea, því þar virðast öll eyðslusemin vera að koma í bakið á þeim. Mourinho sýnir þessa daganna að þegar illa gengur er það öllum öðrum að kenna en honum sjálfum og er greinilega búinn að gleyma því hvernig á að gera mikið úr litlu eins og hann gerði hjá Porto.

18. jan. 2007

Aumingi
Ljós-Gíslinn er búinn að vera sannkallaður aumingi síðustu daga. Ég var á vaktatörn í síðustu viku og þegar ég kom heim á sunnudagsmorgunn fann ég að ég var að fá hálsbólgu. Ég lagðist því til svefns eftir að hafa tekið sýklalyf og ætlaði að reyna að hrista þetta af mér fyrir vaktina um kvöldið. Þegar ég vaknaði seinni partinn var ég helmingi verri og kominn með hita í þokkabót. Ég þurfti því að slaufa vaktinni. Til að bæta gráu ofan á svart hafði ég tekið að mér fundarstjórn á Læknadögum á mánudagseftirmiðdeginum og slíkt er erfitt að afboða með svo stuttum fyrirvara. Ég klæddi mig því upp, skellti í mig tveimur parkódín og einni íbúfen og rétt hafði það af þennan einn og hálfa tíma, kom heim og svaf. Nóttin á eftir var hræðileg. Ég svaf næstum ekkert fyrir svitahófum og kuldahrollsköstum á víxl og það endaði með því að ég færði mig fram í stofu um kl. 4:30 til að halda ekki vöku fyrir Eddu. Nú er kominn fimmtudagur og ég er enn með hitavellu og að drepast í hálsinum en þetta er samt allt að koma. Vonast til að komast í vinnuna á morgun.

Boltinn
Spennandi bolti um helgina. Fyrst Liverpool-Chelsea á laugardaginn og svo Arsenal-Man.Utd. á sunnudag. Draumur í dós ef Liverpool tæki Chelsea og United tæki Arsenal. Þá væri tímabilið næstum búið held ég. Ronaldo setur 2 og Scholes 1 í 2:3 sigri minna manna. Magga og Maggi verða á vellinum svo ég vona að það verði skorað mikið.

14. jan. 2007

Brúðkaup
Gleymdi auðvitað að blogga um brúðkaupin sem við fórum í um og eftir áramótin. Fyrst voru það Heiðar og Fríða 30. desember og svo Árni Grímur og Steinunn þann 6. janúar. Bæði brúðkaupin ógleymanleg, frábær matur, skemmtilegar ræður, skemmtilegt fólk og almenn gleði. Takk fyrir mig fólk.

Boltinn

Þeir gefa ekkert eftir United menn og nú síðast tóku þeir Aston Villa í kennslustund á Old Trafford á laugardaginn. Þrjú mörk í fyrri hálfleik, þar af eitt frá hinum sjóðheita Cristiano Ronaldo og annað frá hinum gagnrýnda Michael Carrick. Ég er mjög hrifinn af þeim félögum og mér finnst gagnrýnin sem Carrick hefur orðið fyrir svolítið fáránleg. Miðjan hefur verið vandamál hjá okkur lengi eða alveg frá því Keane fór að dala og svo kemur þessi strákur, liðið fer að spila vel og hann fær ekkert hrós. Ég held að ein af stóru þáttunum í því hvað Ronaldo, Scholes og Giggs hafi spilað vel á þessu tímabili sé einmitt óeigingjarnt starf Carricks aftarlega á miðjunni og stundum reyndar O'Shea og Fletcher. Ég er í það minnsta einn Unitedmaður sem er hrifinn af framlagi stráksins og vona að hann fái að spila mikið og lengi hjá MUFC.
Ég fór aðeins að skoða heimasíðu Actim og þar sér maður að Ronaldo er #2 yfir bestu leikmenn deildarinnar, rétt á eftir Drogba. Þar getur maður borið þá saman og sér þá eftirfarandi.

Tölfræði Ronaldo Drogba
Leikir 21 23
Leiknar mín 1866 2040
Mörk/skot á mark 13/60 14/29
Mörk að meðaltali 0,62 0,61
Stoðsendingar 6 3
Fyrirgjafir 59 14
Gul spjöld 0 6
Actim stig 394 403

Miðað við þessar tölur skil ég ekki af hverju Drogba toppar listann. Ronaldo er bara miklu betri. Aðrir United menn á þessum lista eru:
Rooney 7. sæti
Rio 12. sæti
Van der Sar 13. sæti
Saha 17. sæti
Giggs 23. sæti
Neville 25. sæti
Evra 33. sæti
Scholes 35. sæti
Vidic 43. sæti
Carrick 69. sæti

Svo þið sjáið að allt byrjunarliðið er á topp 100 listanum

Van der Sar
Neville Rio Vidic Evra
Carrick
Ronaldo Scholes Giggs
Rooney Saha

Ekki slæmt enda hefur liðið staðið sig frábærlega á tímabilinu og ég held að þeir hirði helvítis dolluna í vor.

12. jan. 2007

Pólítíkin
Ingibjörg Sólrún virðist alveg búin að missa það. Eftir að hún tók sér frí og fór að læra meira hefur færst yfir hana þessi menntasnobbsyfirlætisangan sem svo gjarnan einkennir hámenntaða vinstrimenn. Hámenntaðir vinstri menn finnst mér alltaf svolítið spaugilegir því mér finnst þeir alltaf svo ótrúverðugir. Ég mundi miklu frekar kjósa verkalýðsforingjann sem hefur unnið 400 daga á ári og á sautján börn með æskuástinni sinni heldur en einhvern uppskafinn vinstrisinnaðan háskólamann. Þeir eru bara miklu trúverðugri. Kannski er ég gamaldags og vil að veröldin sé bara sama gamla ríku hægri, fátæku vinstri ímyndin. Þetta er orðið svo flókið núna eftir að allir flokkarnir færðu sig inn á miðjuna, Sjálfstæðisflokkur frá hægri og vinstri flokkarnir frá vinstri. Um leið hefur gamli miðjuflokkurinn Framsókn einhvern veginn sokkið í niðurfallið og er nú í endalausum lífsbáráttuspíral í hringiðu niðurfallsins. Til allrar hamingju fyrir þá var Alfreð Þorsteinsson búinn að rústa holræsakerfinu og yfirtaka Orkuveituna þannig að öll niðurföll borgarinnar eru hálfstífluð og taka illa við svona hroða. Við þurfum að fá okkur svona tætara eins og eru á öllum góðum heimilum í henni Amríku.

Vaktin
Ég er á næturvöktum um helgina ásamt Ingólfi Ozon. Vona að það verði rólegt svo maður geti lagt sig og gert eitthvað úr deginum en það er svo sem ekki algengt. Kannski maður nái í það minnsta að sjá leikinn á morgunn.

Eru allir hættir að lesa?
Það hafa ekki komið nein komment á síðustu tvær færslur og Ljós-Gíslinn er farinn að hallast að því að allir séu búnir að gefast upp á honum. Slíkt er ekki óhugsandi enda hefur oft liðið langt á milli færsla. Sjáum hvort við fáum ekki einhvern til að rífa sig yfir þessum skrifum.

Buffið gengið út
Já, hvort sem þið trúið því eða ekki þá er buffið gengið út. Hann hefur sést með ónefndri dömu (ath! ekki Safapressunni) í öllum helstu kvikmyndahúsum borgarinnar upp á síðkastið. Ólyginn sagði að hann hefði m.a.s. farið í áttunda skipti á The Departed án þess að segja stúlkunni frá fyrri kynnum sínum af myndinni. Áform Buffsins og Safapressunar um sambúð eru í uppnámi að sögn vina Safapressunnar og hann lifir nú milli vonar og ótta að fregnir af tilvonandi brullupi Buffsins seint í næstu viku séu úr lausi lofti gripnar. Undirbúningur ku þó vera svo langt á veg kominn að tilvonandi brúður hafi sést nær daglega ásamt þreknum einkaþjálfara í Laugum upp á síðkastið. Sögusagnir segja að um bróður Buffsins sé að ræða en líklegt verður að teljast að Buffið sjálft sé þar á ferðinni enda þeir bræður sláandi líkir. Meira um þetta mál síðar.

10. jan. 2007

Ljót orð
Það er ákveðið orð sem hefur riðið húsum Ljós-Gíslans upp á síðkastið sem hann hefur sérstaka andstyggð á, en það er nafnorðið elska. Takið eftir að ég er hvorki að tala um sögnina að elska né nafnorðið elska í merkingunni ástin mín eða krúsíbolluknúsudúllan mín. Orðið sem ég á við er elska í merkingunni ást eða umhyggja. Mér finnst það alveg skelfilegt orð einfaldlega vegna þess hvað það verður ljótt þegar það er notað í þessari merkingu. Vinsamlega notið þetta orð ekki í nærveru minni, það gæti orðið banamein ykkar.

Boltinn
Ég elska að hata önnur fótboltalið en þau sem ég sjálfur held með. Þannig hata ég t.d. Val, Fram og Fylki (hef aldrei náð upp KR-hatrinu í mér). Þannig hata ég líka Chelsea, Arsenal, Juventus, Real Madrid og Bayern Munchen. Ég elska jafnframt Víking, Manchester United, Barcelona og Milanoliðin Inter og AC. Af þessari ástæðu finnst mér ekki gaman þegar Arsenal vinnur tvo góða sigra í röð á útivelli þó það sé gegn Liverpool. Sem betur fer var þetta allt saman í bikarnum og bæði lið halda áfram að skíta í bleyjurnar sínar í deildinni. Mínir menn hafa hins vegar staðið sig frábærlega í deildinni til þessa og maður vonar bara að Ferguson sé enn seinni helmings maður eins og hann hefur alltaf verið, þ.e. að United spili seinni hluta tímabils betur en þann fyrri. Þá verður titillinn okkar.

Vinnan
Ég er að verða búinn með mína sex mánuði á lyflækningadeildunum og hlakka til að skipta um vettvang og flytja mig yfir á háls-, nef- og eyrnadeildina um mánaðarmótin. Það verður svolítið öðruvísi að fást við skurðlæknisfræði næsta hálfa árið en þegar því er lokið verður lífið bara ein svæfing ef öll plön ganga eftir. Í sumar stefni ég að því að fara að athuga fyrir alvöru með sérnám og ég ætla mér að komast út ekki mikið seinna en haustið 2008 eða í síðasta lagi um jólin sama ár. Það er ekki eftir neinu að bíða svo sem en það er ágætt að njóta lífsins aðeins áður en næsti áfangi á námsferlinum hefst.

Lífið
Nú er maður farinn að átta sig betur og betur á því hvað bíður manns eftir rúma 3 mánuði þegar "Óli Gunnar" kemur í heiminn. Við skötuhjúin eigum eins og flestir lesendur vita líklega von á barni í lok mars og ég hef mér og fleirum til gamans uppnefnd bumbubúann Óla Gunnar, Eddu og tengdafólki mínu öllu til mikillar "gleði". Þau eru flest Arsenalmenn en einstaka Poolarar og reyndar einn Villamaður. (Ath!! ekki Villimaður). Svo er það vinnan sem ég nefndi að ofan auk þess sem ég er að reyna að drulla mér af stað með rannsóknarverkefni en ég finn mér aldrei tíma í allri letinni til að koma því af stað. Svo er ég að reyna að koma mér í form því ég ætla að taka eitt alvöru tímabil í boltanum áður en ég flyt út en það gengur erfiðlega, fyrst og fremst vegna áðurnefndrar leti og þrjósku við að taka upp hollara mataræði. Í morgunn hófst enn eitt átakið. Sjáum hvernig gengur.

Ný börn
Ég hef náttúrlega gleymt að blogga um öll nýju börnin í kringum okkur.

Fyrst verður að sjálfsögðu að nefna KR-inginn og fegurðardrottninguna Helgu Kristínu Eiríksdóttur (Eika og Guðnýjar) sem kom í heiminn þann 27. nóvember. Við erum búin að heimsækja hana og hún tók vel á móti okkur. Fjallmyndarleg eins og foreldrarnir.

Næst voru síðan Kristján og Brynja sem búa hér í húsinu og vinna bæði með mér á LSH. Þau áttu litla skvísu á jóladag ef ég man rétt og heilsast öllum vel þar líka. Hún kom aðeins og kíkti á okkur ásamt foreldrunum á gamlárskvöld eða reyndar nýársnótt. Efnileg stúlka þar á ferð.

Síðan var botninn sleginn í árið þegar húnninn þeirra Björns og Ernu leit dagsins ljós á Eðalfundsdaginn 29. desember sl. Hann hlýtur að sjálfsögðu að fá nafnið Hannes úr því hann fæddist á þessum degi og hafði eðalfundinn af pabba sínum en við sjáum til hvernig það fer allt saman.

Í svipinn man ég ekki eftir fleiri nýjum börnum en minnið mig endilega á ef ég gleymi einhverju.

3. jan. 2007

Gleðilegt ár og takk fyrir gamla!
Já, nú er komið enn eitt nýárið. Janúar er skemmtilegur mánuður. Hann ber með sér marga skemmtilega atburði. Í ár er sá fyrsti brúðkaup þeirra Árna Gríms og Steinunnar á laugardaginn en á sunnudaginn eigum við Edda svo eins árs brúðkaupsafmæli. Tíminn er fljótur að líða. Þá verður Óttar bróðir líka 37. Janúar er líka mánuðurinn sem ég er mikið í símanum að tala við apótek. Þannig er nefnilega mál með vexti að lyfseðlar duga bara í 1 ár frá útgáfudegi og ég er mjög lengi að átta mig á áraskiptum og skrifa því lengi fram eftir mánuðnum gamla árið með dagsetningunni. Þannig eru seðlarnir í raun útrunnir um leið og ég skrifa þá. Súrt að vera svona utan við sig stundum.


Vellyktandi
Við Edda höfum þann sið að kaupa dýrasta skoruþerrinn í búðinni yfir hátíðirnar. Um þessi jól reyndist hann vellyktandi og jólasteikin hefur því ferðast um blómlega haga á leið sinni til fiskanna. Alltaf gott að hafa botninn vellyktandi.

Áramótapartý
Við skötuhjúin héldum heljarinnar teiti hér á gamlárskvöld og nýársnótt. Við byrjuðum á að bjóða tengdó og Möggu í mat auk þess sem Viðar kom þar sem hann var ekki boðinn til tilvonandi tengdaforeldra sinna á Álftanesinu og foreldrar hans voru í sveitasælunni. Við höfðum Nautalund Wellington sem var frumraun og þótt innpökkunum heppnaðist ekki alveg var maturinn ljúffengur á bragðið þó ég segi sjálfur frá. Edda gerði svo stórkostlega súkkulaðiköku í eftirrétt. Síðan var horft á skaupið sem var svo sem allt í lagi, svolítið steikt en ekki nógu að mínu mati. Stundum er betra að fara bara með steikina alla leið. Svo skutum við upp flugeldum í kapp við nágrannana og svo var tekið á Konna og ölinu fram eftir nóttu. Það var fámennt en góðmennt. Gott partý.

Hörmuleg hestaslys
Það hafa verið skelfileg hestaslys á þessu ári. Fjöldi mænuskaða og a.m.k. tvö dauðsföll, það síðasta var nú rétt fyrir áramótin þegar Jóhanna Björnsdóttir blóðmeinafræðingur og kollegi minn fannst látin eftir útreiðartúr. Ég vann nú ekki mikið með henni Jóhönnu en talaði töluvert oft við hana í síma og hún var mjög viðkunnaleg kona. Blessuð sé minning hennar.

23. des. 2006

Gleðileg jól!
Sælt veri fólkið. Langaði bara að óska lesendum Geislans gleðilegra jóla.

20. des. 2006

Meðgangan
Fyrir þá sem ekki vissu erum við skötuhjúin með eitt í ofninum. Það verður okkar fyrsta en vonandi ekki það síðasta. Allt gengur vel. Við erum að bresta í 27 vikurnar á mánudaginn og þetta er að verða raunverulegt fyrir mér einhvern veginn núna. Ég hlakka til að verða sá gamli en auðvitað er maður pínulítið kvíðinn líka. Annað væri held ég afar óvenjulegt. Til hliðar er mynd tekin eftir tæpar 25 vikur. Myndarleg ekki satt. Kúlan er öll að koma.

Skemmtileg orðatiltæki sem við þurfum að skýra fyrir börnunum okkar
Ég hef verið að hugsa upp á síðkastið um allskonar orðatiltæki sem við notum sem eru raunverulega orðin úrelt. Eitt er til dæmis að setja plötuna á fóninn. Við erum flest löngu hætt að hlusta á plötur eða setja tónlist á fóninn en samt er þetta orðatiltæki notað reglulega. Annað er að hlutirnir "gangi á afturfótunum". Síðast þegar ég gáði göngum við öll á afturfótunum og það er bara allt í góðu lagi en sennilega vísar þetta til ferfættra fararskjóta fyrri tíma. Leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér. Það er samt gaman að pæla í svona hlutum.
Annað sem er gaman er að pæla í hvernig veröldin var þegar við sem erum nú í kringum þrítugt vorum lítil. Þá voru engir örbylgjuofnar eða DVD spilarar. Geislaspilarar voru bara komnir á allra efnuðustu heimili. Fáir áttu myndbandsupptökuvélar og ekki voru allir einu sinni búnir að kaupa sér myndbandstæki. Sjónvörpin voru næstum öll frá ITT og dugðu miklu meira en þau 3 ár sem nú er meðallíftími viðtækja. Útvarpsstöðvar voru nákvæmlega 2, Rás 2 og RÚV, það var ekkert sjónvarp á fimmtudögum og ekki heldur í júlí. Barnaefnið var líka kúl en ekki eitthvað sálfræðimombojombo eins og núna. Við fengum að horfa á Thundercats og Transformers á laugardagsmorgnum og þar var slegist og barist án afláts. Samt rættist úr okkur. Ég man líka að bræður mínir eignuðust snemma Comador 64 sem var ein alheitasta leikjatölvan þá. Í hana voru til svona 3 leikir og enginn þeirra skemmtilegur. Það var samt mjög svalt. Gemsarnir voru heldur ekki komnir og mæður okkar þurftu í alvöru að fara út úr húsi til að leita að okkur í matinn. Reyndar var líka hægt að hringja í nágrannanna til að spyrja hvort einhver hefði séð mann en það var náttúrlega á þeim tíma sem fólk hafði tíma til að þekkja nágrannana sína. Ég veit að ég hljóma eins og gamall karl en ég held í alvöru að það hafi verið miklu auðveldara að vera barn þegar ég var yngri en það er í dag. Nú skilgreinir það fátækramörk hvort fólk geti gefið börnunum sínum nýjustu playstationtölvuna í jólagjöf eða ekki. Við erum öll í miðju lífsgæðakapphlaupinu og finnst við öll vera að tapa en þegar allt kemur til alls er þetta bara eins og unglingavinnan. Það er ekki aðalatriðið að vinna, það er nóg að vera bara með og komast í mark.

Boltinn
Dapurlegt að tapa fyrir West Ham. Ég veit ekki hvað ég á að segja um það. Bara dapurlegt. Það er samt fínt að Saha skuli vera búinn að framlengja, alltaf gott að ganga frá slíku. Nú er bara að binda restina niður og láta þá skrifa undir.

Hvað ætli deyi margir hermenn vegna heimsku yfirmanna þeirra?
Reyndar má auðveldlega færa rök fyrir því að allir hermenn deyi vegna heimsku yfirmanna þeirra en sá sem dó hér suður með sjó í fyrradag var klárlega einn af þeim sem deyr algerlega að óþörfu. Hverslags hálfbjáni sendir 9 danska sjóliðsdrengi út í íslenskt brim á gúmmíslöngu til að bjarga áhöfn af gríðarstóru flutningaskipi þegar þyrlur eru til staðar til að bjarga málunum. Þetta hlýtur bara að flokkast undir morð. Skipið er ekki enn sokkið tveim dögum seinna en mannfíflið sem stýrir þessum danska ryðkláfi fékk þá grillu í höfuðið að bjarga þeim á gúmmítúttu. Þið getið hengt ykkur upp á það að hann ætlaði sér að fá heiðurinn af björguninni. Hreinn og klár metnaður. Engin virðing fyrir mannslífum. "Ekkert að bíða eftir því að gera hlutina skynsamlega. Neibb. Strákarnir redda þessu á gúmmítuðrunni bara." Það fyrsta sem maður lærir á námskeiðum í hjálp í viðlögum er að tryggja eigið öryggi alltaf fyrst, því annars ertu bara að skapa enn meiri hættu. Þennan mann á að draga fyrir dómstóla og aldrei senda hann á sjó aftur. Ekki það að ég hafi nokkurt vit á sjómennsku og auðvitað er alltaf auðvelt að vera vitur eftir á en hann er yfirmaður á herskipi og á að vita betur. Hann er fífl að mínu viti.

Menntskælingurinn
Andreas bróðursonur minn fékk úr prófunum í 3ja bekk í MR í dag. Stóð sig með stakri prýði drengurinn nema í íslensku og stærðfræði. Íslenskan var svo sem ekkert sjokk því hann hefur búið í Noregi í 8 ár en í stærðfræðinni hefði hann átt að gera betur. Hann brilleraði hins vegar í öllu öðru og tók 9 í næstum öllu öðru. Ég mundi kalla það frábæran árangur miðað við að hann flutti til Íslands aftur í haust. Ég var búinn að aðstoða hann í stærðfræði og efnafræði og verð því að taka á mig hluta af sökinni. Hann fær þétta kennslu á vorönn hjá mér og Viðari í stærðfræði og íslensku. Hann tekur þetta í vor. Drengurinn er náttúrlega bara snillingur.


17. des. 2006

Steggjun!
Við félagarnir steggjuðum Árna Grím í gær. Það var hörkustuð. Byrjuðum á því að vekja hann rétt fyrir níu og hella í hann bjór en svo tók við afrókennsla, brúnkusprautun í g-streng og brjóstahaldara. Síðan var étið en eftir það var það litbolti og svo Bláa lónið áður en við fórum út að borða á Galileo og síðan í partý hjá Ellanum. Þetta var frábær skemmtun en það verður að segjast að við félagar Árna úr læknadeildinni stóðum okkur ekki vel. Emmi og Jón höfðu reyndar báðir löggilda afsökun en ég var bara að aumingjast. Svona er þetta. Sem betur fer voru aðrir félagar hans tilbúnir í giggið og héldu honum á djamminu fram undir morgunn. Vel heppnaður steggjadagur og steggurinn ánægður með þetta skilst mér.

Galileo
Borðuðum þarna í gær. Ég hef heyrt á mönnum sem hafa borðað þarna að þetta sé oft á tíðum ágætis staður en í gær var þetta ekki alveg að gera sig. Ég fékk parmaskinku í forrétt sem var reyndar mjög góð og melónan var ein sú besta sem ég hef smakkað. Síðan fékk ég nautakjöt, hráefnið var í lagi en matreiðslan skelfileg. Algjör synd hvernig þeir fóru með þennan frábæra bita. Svo kom reyndar ágætis súkkulaðikaka í eftirrétt. Aðrir fengu nautacarpaccio sem var enn frosið þegar það var borið fram og Emmi fékk svínakjöt sem enn voru tannstönglar í einhverra hluta vegna. Það var samt kannski ekki endilega maturinn sem var svo slæmur en þjónustan var skelfileg. Stelpugreyin sem voru þarna voru tvær að þjóna stóran hluta kvöldsins og það voru örugglega 50 manns þarna á hæðinni.

Boltinn
Mínir menn stóðu sig ekki nógu vel í dag þegar þeir töpuðu fyrir West Ham. Dapurt. Ég er eiginlega orðlaus yfir þessu bara. Maður getur þó huggað sig við það að Arsenal gerði jafntefli í gær. Það er dapurt að gera jafntefnli við Portsmouth á heimavelli.

12. des. 2006

Boltinn

Áfram halda mínir menn á sigurbraut, nú með glæsilegum sigri á erkifjendunum í City. Frábær mörk eftir góðan undirbúning og reyndar spiluðu varnarmenn City stóra rullu í mörkunum þremur líka. Það er alltaf gaman að þessum leikjum en ég verð nú að viðurkenna að ég hef verið fremur pirraður á City sl. ár því þeir hafa verið að hirða heilmikið af stigum af okkur á Old Trafford sem er alltaf vont. En gærdagurinn er eiginlega magnaðastur fyrir stórglæsilegt mark Matthew Taylor fyrir Portsmouth gegn Everton. Menn skora svona mörk sennilega bara einu sinni á ævinni ef þeir eru heppnir og þá sennilega á æfingu. Svo nær fullkomnuðu Rassenalmenn helgina með því að ná jafntefli við Chelsea á Brúnni. Það hefði verið rosalegt hefði þeim tekist að vinna en þrumufleygurinn hans Essien kom í veg fyrir það. Það var líka rosalegt mark.



Hálfvitar sem eiga heima bak við lás og slá

Fréttir af hálfvitum sem voru með skæting við lögreglumenn á slystað um helgina og helgina áður eru vægast sagt sláandi. Að menn skuli ekki bera meiri virðingu fyrir líðan og heilsu annarra að þeir ekki aðeins hjálpi ekki til á slysstað heldur vægast sagt geri björgunar- og rannsóknarmönnum erfiðara fyrir er náttúrlega alveg með ólíkindum. Mér finnst reyndar að það eigi bara að vera regla að taka svona fólk til yfirheyrslu og sekta með háum fjárhæðum þá sem verða uppvísir að því að raska slysstað eða hindra störf þar. Við vorum síðan að hlusta á síðdegisútvarp Bylgjunnar á leiðinni í ræktina í dag og þar lét einhver hálfviti þá skoðun sína í ljós að lögreglan ætti að taka meira tillit til þeirra sem bíða í svona röðum. Þessu er ég algjörlega ósammála. Auðvitað er mikilvægt að lögreglan taki tillit til hins almenna borgara en þegar aðstæður eru svona þá getur hún ekki verið að hugsa um hvað einhverjir hálfvitar í röðinni eru að pæla, það tefur bara störf á vettvangi. Það eina sem gildir er að loka fyrir umferð og klára rannsóknina, sama hversu langan tíma hún tekur. Ég vona bara að þetta fólk sem var með læti í röðinni fari að fordæmi ólátabelgsins sem hringdi í lögregluna og baðst afsökunnar. Batnandi mönnum er best að lifa.

Sömu skoðun hef ég á þeim mönnum sem hafa hótað þeim lögreglumönnum líkamsmeiðingum sem voru viðstaddir þegar berserkurinn af Hótel Sögu lést í vörslu þeirra. Ég leyfi mér að efast um að menn sem velja sér að starfa innan lögreglunnar á Íslandi hafi áhuga á því að drepa aðra menn, hversu illa þokkaðir sem þeir kunna að vera. Mér skilst líka á fréttum að lögreglan hafi brugðist hárrétt við og hafið rannsókn á þessu máli sem sakamáli strax og ljóst var hvað hafði gerst. Mér finnst að menn sem ógna lögreglumönnum eigi heima í klefanum við hliðina á fábjánunum sem trufla störf á slysstað og þó. Þeir eiga bara heima á Hrauninu. Það breytir því hins vegar ekki að ungur maður lést eftir ryskingar við umboðsmenn ríkisvaldsins og alveg eins og þegar fólk deyr í aðgerðum án þess að nokkur mistök hafi átt sér stað finnst mér að það eigi að sjá fyrir börnum mannsins að einhverju leyti.


Nostalgía dauðans

Ég hef sl. daga og vikur verið að aðstoða bróðurson minn í prófunum í 3ja bekk í MR. Hann er búinn að standa sig vel miðað við það að hann flutti heim til Íslands eftir 8 ára búsetu í Noregi í haust. Íslenskan er aðeins að vefjast fyrir honum en að öðru leyti hefur honum gengið ágætlega. Það verður gaman að sjá einkunnaspjaldið hans. Ég held að stráksi komi á óvart.


Ræktin

Fjórða tilraun til heilbrigðara lífs hófst í gær. Ég er alltaf að reyna að koma mér í gang og hef fengið skötuhjúin Viðar og Gunnar til að drífa mig upp úr sleninu. Lyfti í gær og tók síðan þolið í dag. Það var svo sem ekki merkilegt, hljóp 5,5 km á 40 mínútum. Ætla mér að ná 7 km á 45 mínútum áður en erfinginn kemur í heiminn. Auk þess skal vera þvottabretti á maganum, helköttaðir upphandleggir og mökkskornir brjóstvöðvar. Ætti kannski að spara yfirlýsingarnar en planið er að verða í hörkuformi næstu tvö sumur og klára knattspyrnuferilinn með sæmd hjá Duffa. Vonandi tekst það.

5. des. 2006

Rosaleg steggjun
Við drengirnir í Garðabæjargenginu steggjuðum Heiðar á laugardaginn. Ég var reyndar að vinna aðfaranótt laugardagsins og gat því ekki tekið þátt í dagskrá morgunsins en hann var sem sé sóttur snemma og látinn sinna vinnu sinni í miðborginni í annarlegum klæðum. Um hádegið hafði ég safnað kröftum og drengirnir sóttu mig á leiðinni út úr bænum. Þá var ferðinni heitið í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum og það var tær snilld. Við klifruðum vegg, fórum í rosalega háloftarólu og príluðum svo einhvern staur sem var svona 7 cm í þvermál. Ég tókst á við mína gríðarlegu lofthræðslu en hún varð mér að falli á 7 cm staurnum og mér tókst ekki að fóta mig á toppnum á honum. Djöfull var hann samt boginn. Eftir þetta var brennt á Hamarsheiðina og tekið á því við mat, drykk, pottaböðun, söng og póker. Gleðin stóð langt fram á morgunn og síðastur að sofa var sjálfur steggurinn á sjötta tímanum á sunnudagsmorgunn. Það var snilld. Svo hjálpuðu nokkrir drengjanna okkur feðgunum að smala hrossunum heim á tún fyrir veturinn. Það gekk mjög vel.

Boltinn
Mínir menn í Man Utd stóðu sig vel um helgina og lögðu Middlesbro á útivelli. Þetta hefur oft verið erfiður leikur fyrir mína menn en þeir kláruðu þetta um helgina og Fletcher af öllum mönnum setti sigurmarkið. Gott mál. Chelsea átti leik við Newcastle sem einhverra hluta vegna var frestað. Það er auka pressa að eiga leik til góða en getur reyndar virkað vel ef United tapar stigum, en á meðan þeir halda sínu striki er pressan á Chelsea.

1. des. 2006

Sautjánda endurlífgun Ljós-Gíslans
Ætli ég reyni ekki enn eina endurlífgunina á blogginu. Ég hef verið einstaklega latur við skriftir sl. vikur þrátt fyrir að tölvukostur heimilisins hafi tvöfaldast síðan síðasta færsla var skrifuð. Ég festi sem sagt kaup á nýrri tölvu fyrir nokkrum vikum. Þetta er Dell inspiron og ég er bara þrusuánægður með hana. Hef auðvitað sleppt mér aðeins í tölvuleikjum sl. vikur en er að verða saddur í bíli. Var búinn að næla mér í FM 2007, Call of Duty 2 og Need for Speed Carbon. Allt saman ágætis leikir en nú ætla ég að leggja þeim aðeins í bili. Þá verður maður að hafa eitthvað fyrir stafni svo ætli ég reyni ekki að blogga svolítið.

Baggalútur
Er að hlusta á Jól og Blíðu með þeim félögum og þetta er náttúrlega bara tær snilld. Ég er sérstaklega hrifinn af Rjúpur og Jólajólasveinn. Þessir snillingar virðast vera ótæmandi uppspretta af snilldarlegum rugltextum.

Þórunn Lárusdóttir
Hann er líka frábær nýi diskurinn með Þórunni og Friðrik Karlssyni. Það virðist vera í tísku að taka þessi gömlu íslensku dægurlög og gefa þau út á disk.

Brúðkaup
Mikið af brúðkaupum þessar vikurnar. Haffi og Hrefna gengu í það alheilagasta um síðustu helgi og tókst það með eindæmum vel. Skemmtileg og falleg athöfn í Dómkirkjunni og síðan var frábær athöfn í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni. Ég hef aldrei komið í þennan sal en hann er mjög skemmtilegur fyrir svona veislur, opinn og rúmur. Í stuttu máli var veislan hin ágætasta líka, frábær matur, góðar ræður og sérdeilis prýðileg súkkulaðikaka í eftirrétt. Ég og Heiðar héldum uppi heiðri Garðabæjargengisins, Heiðar flutti frábæra ræðu og ég afhenti Maka enda handhafi hans í tæpa 11 mánuði. Þorgeir er nú sá úr hópnum sem hefur átt bikarinn lengst en Viðar skemmst enn sem komið er. Haffi mun þó bæta það met því hann nær aðeins að hafa bikarinn í rúman mánuð sem stofustáss því Heiðar ætlar að ganga í hnappelduna 30. desember og verður þá handhafi bikarsins. Hann verður svo að treysta á að Jói og Guðrún eða Gissur og Lára drífi í þessu fljótlega því Gunni, Viðar og Sjonni eru allir dottnir í piparsveinasukkið, djamma allar helgar og ekkert gagn í þeim hvað giftingar varðar á næstunni. Kötturinn hefur reyndar verið með veiðihárin á lofti eins og Gunni með radarinn opinn en þeir hafa eftir því sem ég best veit ekki gert neinar framtíðaráætlanir með baugfingurshandjárnum. Þeir eru hins vegar orðnir svo óaðskiljanlegir að við hjónin köllum þá aldrei annað en skötuhjúin.

Boltinn
Mínir menn standa sig sæmilega í deildinni en ég er reyndar ekki nógu ánægður með að hafa tapað stigum á móti bæði Arsenal og Chelsea á heimavelli. Það þýðir að við eigum tvo gríðarlega erfiða leiki eftir áramót, þ.e. Chelsea á Brúnni og Arsenal á Emirates. Það verður erfitt.

Jæja læt þetta gott heita í bili en reyni að láta ekki líða 2 mánuði þangað til ég skrifa aftur.

30. sep. 2006

Boltinn
Mínir menn í MUFC standa sig í Evrópukeppninni en hafa ekki verið á sama fluginu í deildinni. Vona bara að við tökum Newcastle á sunnudaginn eins og venjulega.

Víkingarnir redduðu sér með góðu jafntefli á móti Skagamönnum í Víkinni. Kom reyndar í ljós að þeir hefðu mátt tapa leiknum en það er nú kannski betra að hafa þetta öruggt. Sjöunda sætið er alla vega staðreynd og það verður gott að byggja á því næsta sumar. Ég veit ekki hvort menn á þeim bænum ætla að styrkja sig en það er ljóst að við megum ekki við miklu meiðslum til að staða liðsins sé mjög slæm. Vonum bara að við getum haldið í Viktor, Ingvar, Grétar, Arnar og Höskuld og þá er allt í gúddífílíng.

Vinnan
Er að klára einhvern rosalegasta mánuð sem ég hef nokkurn tíma upplifað í vinnu. Hef unnið 8-10 tíma hvern einasta virka dag algerlega á fullu allan tímann. Það hafa komið dagar þar sem ég hef hvorki komist á klósettið né til að borða. Það held ég að sé ekki hollt en svona er lífið á LSH þessa dagana. Það má segja að ég sé fremur þreyttur en þetta stendur allt til bóta í næsta mánuði því þá fer ég aftur í venjulega deildarvinnu þar sem sjaldan liggur svo á hlutunum að maður geti ekki tekið sér matarhlé. Er reyndar á næturvakt núna og það er fremur rólegt, búinn að klára pappírsvinnu vikunnar og bara að tjilla. Ætli ég fari ekki að halla mér aðeins fljótlega svo ég verði vel upplagður í pizzubakstur á morgunn.

Hálslón
Merkilegt hvað menn geta verið dramatískir yfir þessu og Ómar loksins búinn að viðurkenna opinberlega það sem allir aðrir landsmenn hafa vitað í öll þau ár sem hann hefur verið fréttamaður. Ómar er í heilmiklu uppáhaldi hjá mér en hann hefur aldrei getað flutt hlutlausar fréttir af umhverfismálum. Hann var strax á níunda áratugnum farinn að flytja ástríðufullar fréttir af ofbeit á afréttum og á sennilega stóran þátt í því hvað ungt fólk á Íslandi í dag lítur niður á bændur. Sorglegt hvernig menn láta fanatisma gleypa sig. Má aldrei fara neinn milliveg?

Myrkvun Reykjavíkur
Var á vaktinni í gær þegar þessi misheppnaðasta hópeflistilraun Íslandssögunnar var reynd. Öll ljós borgarinnar slökkt en borgararnir kveiktu bara útiljósin og skemmdu stemminguna. Ég held að Reykjavík verði ekki myrkvuð nema með því að slökkva á rafmagninu inn í hana. Það er bara mín skoðun.

18. sep. 2006

Boltinn
Víkingar eru ekki alveg að bera virðingu fyrir því að ég hef sterka ættarsögu um hjartasjúkdóma. Ég er ekki ánægður með að þeir skuli geyma það fram í síðustu umferð að redda sér frá falli en þar sem Skagamenn hafa þegar reddað sér held ég að mínir menn séu hólpnir. Sérstaklega í ljósi þess að Grindvíkingar fá FH-inga í heimsókn.

MUFC er líka strax búið að gera veturinn óbærilegan með því að tapa fyrir Arsenal. Það sem verra er, er það að þeir skyldu tapa svona hrikalega verðskuldað. Rassgötin yfirspiluðu þá allan tímann og við fengum ekki nema eitt almennilegt færi og Ronaldo skaut þá beint í hausinn á Þjóðverjagimpinu í markinu.

Utandeildarboltinn
Duffi er að gera góða hluti í umspili fyrir úrslitakeppnina. Vorum að spila við FC Reyni í gærkvöldi. Þeir höfðu verið með einhver ummæli um hversu gamlir við værum á síðunni hjá sér og menn mættu því dýrvitlausir til leiks. Ég sá reyndar ekki nema seinni hálfleikinn en hann var rosalegur. Ég hef ekki séð svona yfirburði í utandeildinni áður. Það var alger einstefna að marki FC Reynis og í einu skiptin sem þeir komu boltanum yfir miðjuna þá hljóp litli fljóti framherjinn þeirra með boltann út í horn og datt. Ótrúlega dapurt og sennilega það slakasta sem ég hef séð í sumar. Við eigum síðan leik við Melsteð á morgunn og ég ætla að reyna að mæta þó ég hafi legið í bælinu í dag veikur.

Rockstar Supernova
Hef aðeins þetta um málið að segja. Magni var sjálfum sér, fjölskyldu sinni, landi og þjóð til sóma og við eigum að vera stolt af honum. Vona að hann rokki áfram svo við fáum að heyra alvöru tónlist af vörum hans en ekki þetta pí#uvæl sem hann hefur verið að syngja með Á móti sól.

11. sep. 2006

Boltinn
Slæmt hjá mínum mönnum í Víkingi að tapa fyrir helvítis KR-ingunum enn eina fokkings ferðina. Týpískt að brenna víti og tapa svo leiknum í resina. Ég held nú samt að þeir falli ekki en tæpt gæti það orðið eins og staðan er í deildinni. Ég hef trú á því að ÍBV og Breiðablik fari niður. Skagamenn vinna sinn leik í næstu umferð og gerir svo jafntefli í Víkinni í síðustu umferðinni og þar með redda bæði Víkingar og Skagamenn sér ef heppnin er með. Ég hef ekki trú á því að mínir menn sæki gull í greipar FH-inga í næstu umferð en þeir gætu kannski náð jafntefli ef þeir spila agað.

Hinir mennirnir mínir í Manchester United eru hins vegar að gera allt rétt þessa dagana. Fjórir sigrar í fjórum fyrstu leikjunum eru mögnuð byrjun og sennilega ein sú besta sem þeir hafa náð síðan ég fór að fylgjast með enska boltanum af einhverju viti. Giggs er að spila betur en nokkru sinni og það virðist sem Ronaldo sé að þroskast við allt mótlætið. Rooney og Scholes eru komnir úr banni og þá verður breiddin í liðinu allt önnur en hefur verið í síðastliðnum leikjum. Ég var eiginlega alveg steinhissa á því að þeir skildu vinna þessa þrjá leiki sem þeir félagarnir voru í banni en Carrick virðist vera að ná sér á strik þarna á miðjunni og það er náttúrlega bara til framdráttar fyrir liðið.

Pólítíkin...
...er merkileg helvítis tík. Mér blöskraði nú alveg fábjánagangurinn um daginn þegar Árni Johnsen fékk uppreisn æru. Þvílík endaleysa sem þessi skrípaleikur er orðinn. Annars held ég að sunnlendingar séu hrifnir af Árna kallinum og ég heyri það á Eyjamönnunum að þeir vilja helst engan annan fyrir sig í baráttuna. Ég hef grun um að nafni hans Mathiesen sé fenginn til að slá tvær flugur í einu höggi. Í fyrsta lagi fær Þorgerður Katrín sjálfsagt yfirburðakosningu í kraganum og verður sterkari varaformaður á eftir. Síðan losna sjálfstæðismenn við annan Árnann sem báðir hafa verið hálfgerðir vandræðagripir. Ég er persónulega miklu hrifnari af dýralækninum Mathiesen en hann virðist eiga í vandræðum með að láta sér lynda við undirmenn sína og það er alltaf vafasamt þegar menn standa og falla með trausti þeirra.

Annað sem vakti furðu mína voru ummæli Steingríms J. Sigfússonar um samvinnu eða kosningabandalag vinstri manna. Mér þætti gaman að sjá það. Steingrímur hefur ekki notað orðið já síðan hann gifti sig svo ég það verði erfiður ávani að losa sig við.

Snilldarmynd
Við Edda tókum mynd sem heitir Derailed í síðustu viku. Clive Owen og Jennifer Aniston (sem ég þoli reyndar ekki) leika í henni. Þessi mynd kom mér virkilega á óvart enda bjóst ég svo sem ekki við miklu. Hafði aldrei heyrt um hana áður og það er kannski ástæðan fyrir því að hún kom svona skemmtilega á óvart. Frábær mynd sem ég mæli með.

Death Before Disco með Jeff Who?
Ég fékk mér þennan disk fyrr í haust og ætlaði alltaf að vera búinn að hrósa honum hér en hef alltaf gleymt því. Í stuttu máli sagt finnst mér þetta einn magnaðasti diskur sem ég hef heyrt frá íslenskri hljómsveit í langan tíma. Gegnheil lagasmíð og góðir textar fluttir af góðum tónlistarmönnum og frábærum söngvara. Gerist ekki mikið betra og ég er gersamlega búinn að nauðga honum í spilaranum í bílnum.

Magni í Rockstar Supernova
Djöfull er hann búinn að standa sig strákurinn. Strákurinn okkar. Frábær frammistaða í síðustu þáttum og nokkuð rokkað og flott frumsamið lag í síðasta þætti. Ég vona bara að hann vinni þetta ekki og þurfi að túra með þessum apaköttum í ár. Hann á eftir að gera það miklu betra sjálfur með sólóferil og getur þá eflaust leyft þeim hinum í Á móti sól að spila á einhverjum sveitaböllum í Kentucky og Kansas. Ég hlakka til að sjá hvernig hann stendur sig á morgunn.

5. sep. 2006

Boltinn
Frábær árangur hjá strákunum okkar í fótboltanum. Góð byrjun á erfiðum riðli og það er vonandi að þeir geti haldið áfram á morgun gegn Dönum. Eiður er að spila eins og hann getur best þessa dagana bæði hjá Barca og með landsliðinu og ég held að árangurinn í þessum riðli sé að stórum hluta undir honum kominn. Reyndar erum við með frábæra vörn og ágætis markvörð en ég held að herslumunurinn liggi hjá fyrirliðanum. Sjáum hvernig fer á morgunn.
En að öðru. Margir Unitedaðdáendur voru ósáttir við aðgerðaleysi okkar manna á leikmannamarkaðnum í ágúst og ég var svo sem ekkert yfirnáttúrlega sáttur en ég held að miðað við spilamennsku liðsins í fyrstu þremur leikjunum þurfum við ekki að hafa neinar áhyggjur. Ég hlakka til að sjá næsta leik á sunnudaginn.
Duffi er líka að gera góða hluti þessa daganna. Ég á reyndar engan heiður að því, því ég hef ekki komist í 4 eða 5 síðustu leiki en þeir tóku Geirfuglana í bakaríið á sunnudaginn 8-0. Glæsilegur sigur.

30. ágú. 2006

Sérkennilegar sektir og fleira úr boltanum
Eins og sjá má á þessari frétt þá er Manchester City búið að kveða upp úrskurð sinn í málefnum Bens Thatcher. Allt í lagi að dæma hann í sex vikna bann en það er sektin sem vekur athygli mína. Sex vikna laukur er klárlega undarlegasta sekt sem ég hef heyrt um í boltanum.
Síðan fannst mér leiðinlegt að sjá Rossi vera lánaðan til Newcastle. Ég hefði viljað sjá svolítið af þessum snilling í aðalliði United í haust. Ég vona bara að hann standi sig vel hjá Newcastle og meiðist ekki illa eins og allir framherjar sem spila fyrir þetta sorglega lið.
United hefur ekki enn keypt nýjan miðjumann en það hefur svo sem ekki verið hægt að kvarta undan miðjunni hjá mínum mönnum fram að þessu þrátt fyrir að Scholes hafi verið meiddur. Ég vona bara að Ferguson klári þetta á morgunn.

Góða ferð
Ljós-Gíslinn óskar urðarkettinum góðrar sjóferðar. Ég vona að hann kynnist nokkrum kisulórum í ferðinni.

28. ágú. 2006

Boltahornið
Mínir menn kláruðu þetta á laugardaginn þó ekki sé hægt að tala um nokkurn stæl. Fínt mark hjá Silvestre og Giggs fékk seinna markið gefins. Ég var ósáttur við varnarleikinn og mér fannst Ferdinand vera algjörlega einbeitingarlaus allan leikinn nema ef vera skyldi í því að rífast í dómaranum. Silvestre gerði líka slæm mistök í marki Watford en átti annars ágætan leik. Carrick var alls ekki sannfærandi í sínum fyrsta leik í byrjunarliðinu. Giggs og Ronaldo voru sprækir en þó nokkuð frá sínu besta. Ég held reyndar að Watford sé bara með þrusugott lið sem er þrælskipulagt og skemmtilega spilandi fram á við á köflum.
Annað sem ég rak augun í um helgina er ótrúlegt mál í Frakklandi sem sannar enn og aftur að Frakkar eru fífl. Makalele ákvað að hætta að spila með landsliðinu en franski landsliðsþjálfarinn velur hann samt í landsliðið og ætlar að fara með málið í hart hjá FIFA ef hann mætir ekki. Fáránlegt mál. Mér finnst einhvern veginn að það eigi að vera val hvers og eins hvort hann vill spila með landsliðinu. Það væri gaman að sjá Chelsea fara með þetta mál í mannréttindadómstólinn ef úr verður.

Utanvegaakstur
Ég er alveg gáttaður á fréttum dagsins. Það voru einhverjir mótorhjólagarpar að leika sér á torfæruhjólum á melum og söndum á hálendinu og einhverjir landvarðahálfvitar hringdu á þyrlu landhelgisgæslunnar til að elta þá uppi. Það er ekki svo að skilja að ég er alfarið á móti utanvegaakstri en þegar hann á sér stað á melum og söndum þá finnst mér það bara allt í lagi. Þessi hjólför verða sjálfsagt horfinn eftir ár og enginn skaði skeður. Við höfum svo sem lent í þessum miðborgarbörnum sem starfa sem landverðir í hestaferðunum okkar. Besta dæmið er þegar við lentum í einum úr Landmannahelli fyrir nokkrum árum. Við áðum við á ca. 5 km frá skálanum. Þar var grasflöt sem var í hálfgerðri órækt og hafði greinilega verið sina þar frá árinu áður. Hestarnir gátu þó kroppað eitthvað aðeins og skitu líka úr sér í leiðinni. Eftir um það bil 10 mínútur kom landvörður á Land Rover á öðru hundraðinu til að reka okkur í burtu. Við hrökkluðumst af stað og hestagreyin stóðu á mel alla nóttina með einhverja hálfónýta heyrúllu sem seld var gegn okurverði af sama landvarðargreyinu. Árið eftir fórum við um sömu slóðir og litum á litla viðkvæma grasbalann. Þar var auðvitað eini græni bletturinn á stóru svæði enda hafði engin sina að ráði verið þar um haustið og skíturinn hafði nært grasrótina á þessum endalausa helvítis vikurmel þarna í kringum Heklu. Síðan eru það sömu helvítis aumingjarnir sem éta helst ekkert nema lífrænt ræktað grænmeti sem er auðvitað ræktað með lífrænum áburði, nefnilega skít. Sumt fólk er bara ekki með heilann gangandi á öllum stimplum.

26. ágú. 2006

Boltinn
Djöfull er ég sáttur við Stuart Pearce og enska knattspyrnusambandið. Pearce er búinn að bannfæra Thatcher hjá City og sambandið hefur ákveðið að gera undantekningu á reglum sínum agabrot og taka mál Thatchers sérstaklega fyrir. Sambandið tók líka ákvörðun um að fella dómara leiksins Dermot Gallagher niður um deild og ég segi bara farið hefur fé betra. Þvílík yfirsjón hjá þessum gagnslausa dómara sem alltaf hefur dæmt eins og hauslaus hæna.

Leikur minna manna í dag er svo gegn nýliðum Watford á Vicarage Road. Ætli maður reyni ekki að kíkja á hann einhvers staðar. Ég held að Watford verði ekki mikil fyrirstaða fyrir mína menn sem eru í feiknastuði þessa daganna. Solskjær setur tvö og Saha eitt. Ronaldo leggur allt upp. Bjartsýni.

Afmæli í kvöld
Við erum boðin í u.þ.b. 60 ára afmæli hjá Hjölla og Toniu í kvöld. Hjölli varð nú þrítugur á sl. ári og mér skilst að Tonia sé 29 svo þau eru að halda upp á þrítugsafmæli svona að meðaltali í kvöld. Góð hugmynd. Ég hlakka til að sækja þau skötuhjúin heim en þarf svo reyndar að sinna sjúkum frá kl. 21 í kvöld til morgunns. Það er svo merkilegt að ég var alltaf mjög fiskinn á rólegar og þægilegar vaktir þegar ég var stúdent og kandídat en eftir að ég byrjaði á svæfingunni hefur færst yfir mig eitthvað "mikiðaðgerarigningarský" svo nú eru allar vaktir hjá mér brjálaðar. Er búinn að taka 3 vaktir eftir að ég byrjaði á lyflækningasviði og það hefur verið heilmikið að gera. Að hluta til er það líklega vegna þess að ég er ekki nógu rútíneraður í þessari vinnu lengur og það kemur nú reyndar fljótt en svo hefur líka bara verið heilmikið að gera líka. Vonum að það verði skárra næstu tvær nætur.

Samfylkingin
Ég hef allt frá stofnun Samfylkingarinnar haft mikinn áhuga á því að heyra hvers vegna fólk kýs þessa vitleysinganna í stórum stíl. Ég get alveg skilið liðið sem kýs Steingrím J. þó ég mundi aldrei gera það en ég get bara ekki skilið hvað fólk sér við Ingibjörgu og Dag svo ekki sé nú talað um Stefán Jón og Steinunni Valdísi. Dagur er að vísu sómadrengur að vinna með og hörkuklár í sínu fagi eftir því sem ég best veit en hann er ekki bara á rangri hillu í pólítíkinni, hann er í kolvitlausri hillusamstæðu. Það sem fer þó mest í taugarnar á mér við stjórnartíð Samfylkingarinnar í borginni var hvernig borgarfulltrúar eyddu stórfé úr sjóðum borgarinnar til að redda einstökum tilfellum vandamála í stað þess að ráðast að rótum vandans og leysa öll tilfellin í eitt skipti fyrir öll.

Pæling
Hafið þið spáð í hvað það er merkilegt hvað við hneykslumst á hlutum í ákveðnu hlutfalli við bakrunn einstaklingsins sem á í hlut. Hvernig haldiði t.d. að það væri ef landsamband kvenfélaga ákvæði að fara í árlega gleðigöngu niður Laugaveginn á nærfötunum einum fata. Nú eða ef læknar og hjúkrunarfræðingar sem reykja mundu stofna sérstök samtök um mannréttindi reykingafólks. Ég vil taka það fram að mér finnst Gay pride frábært innlegg í menningarlíf borgarinnar og það gleður mig að sjá að réttindastaða samkynhneigðra er í stöðugri framför. Réttindastaða reykingafólks er mér líka hugleikin því það er eftir allt saman ekki annars flokks borgarar. Mér finnst bara svolítið gaman að setja einhvern annan minnihlutahóp inn í umhverfið og hefðina sem ákveðinn hópur hefur skapað sér.

Misnotað orð - Mannréttindi
Það er svolítið sorglegt hvað menn bera litla virðingu fyrir orðinu mannréttindi. Ég hef heyrt misbrattar mannvitsbrekkur tala um reykleysi öldurhúsa sem sjálfsögð mannréttindi starfsmanna þeirra. Það eru líka orðin mannréttindi að ríkið borgi brúsann í heilbrigðis-, velferðar- og menntakerfinu. Það eru sjálfsögð mannréttindi að 17000 manns útskrifist úr viðskipta- og tölvufræði á hverju misseri að stórum hluta á kostnað hins opinbera. Svo á líka ríkið að lána námsmönnunum fyrir sígó og mohito á námsárunum og námsmennirnir vilja helst ekki borga neitt til baka, a.m.k. er það af og frá að ríkið eigi að fá nokkra vexti. Þetta eru allt saman orðin mannréttindi. Svo eru náttúrlega líka mannréttindi að þjóðin fái að kjósa um hverja einustu helvítis framkvæmd ríkisins, hvort sem það eru virkjanaframkvæmdir eða lög gegn hringamyndun. Nú til dags er allur andskotinn orðinn mannréttindi og ég verð nú bara að segja að ég kæri mig ekki um öll þessi helvítis mannréttindi. Ég á fullt í fangi með trúfrelsið, fjárræðið og sjálfsákvörðunarvaldið svo ekki sé nú talað um málfrelsið eins og mýmörg dæmin sanna.

25. ágú. 2006

Langt síðan síðast
Mér ætlar ekki að takast almennilega að halda dampi við þessa endurlífgun bloggsins en nú þegar haustar ætla ég að reyna að taka mig á. Nú er því ofurblogg.

Hamarsheiði II
Þvíumlík snilld að vera kominn með athvarf frá amstri hversdagsins á mölinni. Við höfum, fyrir þá sem ekki vita það nú þegar, keypt fjórðung í jörð austan fjalls, nánar tiltekið í Gnúpverjahreppi. Þetta er í næsta nágrenni við Steinsholt þar sem við feðgarnir vorum í sveit og Sigurður bóndi hefur verið sérlegur ráðgjafi okkar í hverju því sem viðkemur búskap, allt frá girðingavinnu til heyskapar svo ekki sé nú talað um yfirvofandi dráttarvélakaup. Hina fjórðungana eiga foreldrar mínir, Nonni bróðir og Sigrún konan hans og svo Guðrún systir hans pabba ásamt manninum sínum nafna mínum. Þarna hef ég eytt drjúgum parti frítíma míns í sumar og við vorum t.d. þarna fyrstu 12 dagana í ágúst að girða og koma þessu í stand. Síðan var reyndar heyskapur í síðustu viku en þá var ég bundinn við vinnu hér í bænum. Það hefur í stuttu máli gengið framar vonum með heyskapinn en girðingarvinnan reyndist seinlegri en talið var í fyrstu og þarf ég að klára þetta einhverjar helgar í haust áður en hægt verður að hleypa skepnum á þetta land sem verið var að girða.
Við höfum reyndar ekki staðið í þessu einir því við fengum ómetanlega hjálp frá Ingvari, Þór og Viðari um verslunarmannahelgina en móðir náttúra kom í veg fyrir að við gætum notað krafta þeirra til fullnustu, bæði með leiðinlegu veðri og erfiðu girðingarstæði. Íris hans Þórs kom líka og hjálpaði til við að koma húsinu í stand og draga óheppna gesti upp úr drullupyttum á jeppanum þeirra Þórs. Við skemmtum okkur síðan við mat, drykk, útreiðar og pottaböð á kvöldin svo úr varð ein alskemmtilegasta verslunarmannahelgi sem ég hef upplifað. Það var sérstaklega skemmtilegt þegar Íris fór hálf í kaf í Kálfá en það verður að teljast afrek út af fyrir sig. Henni varð ekki meint af og nú höfum við stórskemmtilega sögu að segja í hvert sinn sem við förum saman á útreiðar.

Hestamennskan
Það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast í seinni tíð er að sjálfsögðu það að mér er að takast að smita fjöldann allan af félögum mínum af hestabakteríunni og það án nokkurrar fyrirhafnar. Fyrir utan þau fjórmenningana eru Ingólfur og Áslaug og Emil og Berglind veik fyrir og svo er Gunni Thor allt í einu orðinn heitur og það án nokkurrar fyrirhafnar af minni hálfu. Gunni hefur alltaf verið frábeygður hestamennsku og á köflum bara hreint út sagt smeykur við hesta þegar við vorum strákar. Nú er hann hins vegar ákveðinn í að láta á þetta reyna og ætlar að fylgja pabba sínum í þessu í vetur. Það verður gaman að sjá hvernig það lukkast en það er nú reynsla mín að þegar menn koma inn í þetta með því hugarfari sem Gunni hefur þá eru þeir fljótir að bíta á öngulinn.

Boltahornið
Víkingarnir mínir eru ekki alveg að slátra deildinni en þeir eru alla vega ekki að tapa mikið og vinna síðan stórt á milli. Ég er hræddur um að síðustu umferðirnar verði þeim erfiðar en það eru leikir við KR-inga og Skagamenn heima og FH-inga í Kaplakrika. Þeir hafa síðustu ár verið í miklum vandræðum með að vinna KR en eru í sumar búnir að vinna Skagamenn uppi á skaga og FH-inga í Kaplakrikanum í bikarnum. Sennilega dugir þeim að vinna aðeins einn af þessum leikjum en betra væri að taka tvo og tryggja sig. Þeir eru líka með bestu markatöluna af þessum liðum þarna í baráttunni svo það getur fleytt þeim langt.

Mínir menn í Manchester eru hins vegar í þrumustuði með markatöluna 8-1 eftir fyrstu tvo leikina og það voru meira að segja leikir gegn liðum sem hafa oft strítt okkur seinni árin. Reyndar tókum við 6 stig á móti báðum þessum liðum í fyrra en þetta er engu að síður fín byrjun. Ég er sérstaklega ánægður með Ronaldo sem virðist hafa þroskast heilmikið á mótlætinu og hreinlega þrífst á því. United aðdáendurnir standa líka vel við bakið á honum sem er auðvitað það eina rétta þó hann hafi hagað sér kjánalega. Það kemur fyrir á bestu bæjum. Ég verð nú að segja að mér finnst þeir ekkert mjög sannfærandi í vinaleiknum hann og Rooney en á meðan það hefur ekki áhrif á leik liðsins er mér slétt sama þó þeir þoli ekki hvorn annan utan vallar. Sendingin hans Rooneys á Ronaldo í markinu á sunnudaginn var náttúrlega bara snilld og afgreiðslan ekki síðri. Svo er Skerið komið á kreik aftur og þá held ég að mörkin muni ekki láta á sér standa.

Chelsky er líka eitthvað að fatast flugið. Ég las mjög skemmtilega tölfræði í Fréttablaðinu í dag um það að þeir hafa tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum í úrvalsdeildinni og aðeins unnið tvo leiki á útivelli síðan í janúar. Ég held að Chelsea sé liðið sem önnur lið þurfa að skáka til að vinna deildina og held að MUFC og Liverpool verði liðin sem munu gera hvað harðasta hríðina að meistaratitlinum. Arsenal verður í lægð eitt ár í viðbót en koma svo sterkir á næsta ári. Tottenham gæti blandað sér í toppbaráttuna en ég held að þeir hafi ekki nógu mikla breidd til að taka titilinn. Held samt að þeir muni verða í meistaradeildarsæti þegar tímabilið er á enda á kostnað Arsenal. Kannski er þetta bara óskhyggja en maður má alltaf vona.

Það síðasta sem ég ætla að minnast á í boltahorninu er líkamsárás Bens Thatcher á Pedro Mendes. Persónulega finnst mér að þetta brot eigi að negla síðasta naglann í kistu þeirrar fáránlegu reglu að þegar refsað er fyrir brot í leik t.d. með áminningu, sé ekki hægt að bæta í refsinguna að leik loknum. Svona lagað finnst mér verðskulda langt bann, helst út tímabilið. Menn fá fleiri mánaða bann fyrir að gleyma að pissa í glas en sleppa svo með svona líkamsárásir af því að dómarinn er svo mikill heigull að gefa bara gult. Fáránlegt mál og ég vona bara að hann verði settur í grjótið helvískur og dómarinn með. Svona eru þessir helvítis Citymenn.

Pólítíkin
Framsóknarflokkurinn er merkilegt fyrirbæri sem virðist hafa einhverja innri sjálfseyðingarhvöt. Hvernig dettur mönnum í hug að kjósa Halldór yngri í formannsstólinn? Ég bara skil ekki svona einbeittan brotavilja. Ég held að þessi kosning á formanni og varaformanni verði banabiti flokksins og það mun litlu breyta þó Sæunn samstúdent minn sitji þarna og skrifi fundargerðir. Ég geri mér svo sem grein fyrir að ritari flokksins gegnir viðameira hlutverki en það en mér fannst borðleggjandi að losa flokkinn úr viðjum fortíðar með því að kjósa Siv í formannsstólinn. Ég er svo sem ekki að gráta það að Framsóknarflokkurinn deyji en mér finnst reyndar að það vanti hér einhvern buffer á vinstra liðið ef hann hverfur af sjónarsviðinu og vinstri stjórn verður mynduð. Ég hugsa til þess með hryllingi að Samfylkingin og Vinstri grænir komist einir saman til valda. Þá ætla ég beint í sérnám. Ég vona samt að Frjálslyndir geti tekið við þessu hlutverki Framsóknar að verða brúin milli vinstrimanna og hægri manna. Mannskapurinn þeirra núna er bara ekki til að hrópa húrra fyrir þó þar finnist einn og einn með vitsmuni umfram mikið notaðan strákúst.

Nostalgía dauðans
Andreas bróðursonur minn er að byrja í MR og ég hef verið að hjálpa honum aðeins við bókakaup þar sem foreldrar hans búa erlendis og eru farin heim. Þvílík nostalgía að standa í löngum biðröðum á skiptibókamörkuðum. En það er búið í bili.
Hann ætlar að búa hjá settinu og ég held að það eigi eftir að ganga vel. Hann er í 3-J sem er 23 manna náttúrufræðibekkur sem er í frönsku. Hlutfallið er 14/9 stelpunum í vil svo það er ekki slæmt. Skynsamur drengurinn að láta náttúruna ráða og velja sér frönsku sem þriðja tungumál. Í fljótu bragði sýnist mér hann aðeins hafa einn kennara sem ég hafði á mínum árum í MR en það er líka einn besti kennari sem ég hef nokkurn tíma haft, Guðfinna Ragnarsdóttir efnafræðikennari. Hún vakti áhuga minn á efnafræði fyrir alvöru og þegar til kastanna kom var það efnafræðin sem ég lærði í MR sem fleytti mér í gegnum numerus clausus. Það má því segja að Guðfinna beri að hluta til ábyrgðina á því að ég er læknir í dag. Annars hef ég alltaf verið mjög heppinn með efnafræðikennara því í Garðaskóla var það Ögmundur Gunnarsson sem var framúrskarandi kennari og í 4. og 5. bekk í MR kenndi mér Skarphéðinn Óskarsson sem er líka frábær kennari. Marta Konráðsdóttir kenndi mér síðan lífræna efnafræði í 5. bekk og var líka í miklu uppáhaldi.

Pæling
Ef ég væri kvenmaður og héti Andrea Emma Bergmann mundi ég fara í tannlækningar, fá mér vinnu hjá Colgate og hafa netfangið andremma hjá colgate.com. Það væri svalt.

25. júl. 2006

Uppáhaldsknattspyrnumaðurinn
Var að hugsa um það um daginn hver væri uppáhaldsknattspyrnumaðurinn minn. Ég var fljótur að finna það út. Það mundi vera krúttíbollan Ole Gunnar Solskjær. Það er svo margt við þennan leikmann sem ég dáist að. Hann hefur ótrúlegt rándýrseðli í vítateig andstæðinganna. Ótrúlegar staðsetningar, enn betri afgreiðslur og svo hefur hann svo margt annað fram að færa. Hann er fljótur, harður í horn að taka en samt aldrei grófur eða með leikaraskap, frábærar fyrirgjafir og mikil leikgleði. Þetta allt hafa hins vegar margir aðrir leikmenn en það er eitt sem gerir Ole litla að mínum manni. Hann hefur trygglyndi. Hann hefur verið varaskeifa stóran hluta af ferlinum sínum hjá United og a.m.k. 3x hefur Ferguson samþykkt tilboð í hann frá öðrum félögum en Solskjær hefur alltaf neitað að fara á þeim forsendum að hann sé hjá eina liðinu sem hann kærir sig um að spila fyrir það sem eftir er ferilsins. Svona leikmenn eru gulls ígildi. Ég hlakka til að sjá hann spila í vetur og vona að hann hafi losað sig við meiðslin sem hafa þjakað hann síðastliðinn misseri.

Fínn dagur í dag
Við feðgarnir og Andreas bróðursonur minn fórum saman austur á Hamarsheiði í dag til að girða aðeins og járna. Það gekk vel og nú er stefnan sett á rúmlega viku törn eftir mánaðarmótin og þá á að girða hressilega og ríða út á kvöldin. Það verður hressandi.
Kominn heim frá Noregi
Jæja! Þá er maður kominn heim frá Noregi eftir 12 daga sumar og sól - beint í yndislega sumarveðrið á Íslandi. Það var reyndar sæmilegt í gær þegar við komum en nú rignir bara og rignir. Gott fyrir gróðurinn en súrt fyrir okkur hin. Annars held ég að öll þessi rigning geri gróðrinum ekkert sérlega gott ef sólin skín ekki inn á milli. En hvað um það. 5 dagar eftir í vinnu og svo er það bara sveitasælan í næstu viku. Ég verð sem sé á Hamarsheiði frá 1. ágúst og sennilega alveg fram til 11. en þá er fyrirhugað að fara norður í Hrísey með Garðabæjargenginu. Það er nú að verða hefð hjá þessum hóp að kíkja í Hrísey í ágúst (annað árið í röð) og við Edda hlökkum mikið til enda komumst við ekki í fyrra í margrómaða ferð. Síðan er ný vinna eftir sumarfrí þar sem ég hef árs rotation á lyflækningadeildum LSH. Byrja á lungnadeildinni og svo mun ég taka 2ja mánaða bunur á hverri deildinni af annarri út júlí 2007. Síðan er stefnan tekin á svæfinguna á Hringbraut eftir það í a.m.k. hálft ár. Síðan fer maður að huga að sérnámi.

"Sérfræðingar í fréttum"
Í gær var ég að hlusta á fréttirnar á Rás 2 og þar var verið að fjalla um málefni Ísraels og Líbanon og áhrif Bandaríkjanna á þær deilur. Þar var kallaður til einhver stjórnmálafræðingur sem var sagður sérfræðingur í málefnum landanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Í fyrsta lagi var ekkert farið ofan í saumanna á því hvers vegna þessi hálfbjáni var svona mikill sérfræðingur og því varð innlegg hans í umræðuna strax hálfkjánalegt. Hérlendis virðist vera nóg að menn hafi áhuga á einhverju sviði og lesi kannski eina erlenda vefsíðu um málefnin til að teljast sérfræðingar. Ekki skánaði það síðan þegar viðtalið hófst því þessi maður, sem vel getur verið vel að sér um málefnin þarna suðaustur frá, sagði ekkert annað en "menn telja..." og "það er talið...". Fréttamaðurinn hafði nú ekki vit á því að ganga svolítið á sérfræðinginn og pumpa hann svolítið um hvaða menn þetta voru sem telja allan þennan andskota. Fréttaflutningurinn hérna er því miður litaður af því að fréttamennirnir eru ekki nógu grimmir. Svona lagað mundu menn aldrei komast upp með hjá metnaðargjörnum hlutlausum fréttastofum erlendis. Nú var ég reyndar sammála flestu því sem sérfræðingurinn sagði um að áhrif ísreala væru sterk í Bandaríkjunum vegna fjölda gyðinga þar en það er ekki þar með sagt að skoðanir manna séu heilagur sannleikur og eigi að predika í fréttatímum. Menn verða að gera greinarmun á því hvort sérfræðingar eru spurðir eftir skoðunum sínum, annarra eða bláköldum harðsönnuðum staðreyndum. Skoðanir eru fyrir fréttaskýringaþætti en staðreyndir fyrir fréttatíma.

Ég ætla að drífa mig í vinnuna áður en ég fer að pípa eins og hraðsuðuketill. Reyni að blogga eitthvað á næstunni en vera mín í sveitinni gæti slegið slíkum framkvæmdum á frest. Þar til síðar.