21. feb. 2007
United, United!
Mínir menn að standa sig þó svo virðist sem markið verði umdeilt um einhverja hríð. Við höfum svo sem fengið okkar skerf af svona mörkum á okkur og ég hef alltaf verið gríðarlega ósáttur við að þetta sé hægt en það var kominn tími til að við fengjum svona mark sjálfir. Annars skilst mér að þetta hafi verið hundleiðinlegur leikur en sá seinni ætti að vera skemmtilegri úr því Lille verður að skora. Ég vona bara að mínum mönnum takist að skora fljótlega svo þeir slökkvi vonir Frakkanna. Svo er bara að vona að PSV og Barcelona standi sig.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli