20. feb. 2007

Ógeðfelldir "náttúruverndarsinnar"

Öllu má nú nafn gefa. Sl. föstudag skrifuðu nokkrir Gnúpverjar opið bréf til Gunnars Arnar Marteinssonar oddvita í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í Fréttablaðið vegna fyrirhugaðrar Núpsvirkjunnar. Ég verð að segja eins og er að ómálefnalegri áróður hef ég sjaldan séð. Sjálfur hef ég ekki myndað mér skoðun á þessu máli enn sem komið er en þegar ég sé hvernig málflutningur andstæðinganna hefur farið af stað er næstum útilokað fyrir mig að styðja við bakið á samtökum gegn virkjuninni.
Í þessu bréfi er ráðist persónulega á sómadrenginn Gunnar sem þó hefur reynt að koma fram í þessu máli af einhverri skynsemi og reynt að sjá fleiri en einn flöt á málinu. Þetta náttúruverndarhalelújafólk sem hefur hæst þarna fyrir austan hefur margsinnis sannað að það telur það ekki eftir sér að hagræða sannleikanum fyrir fáfróðum höfuðborgarbúum til að fá þá á sitt band eins og ég komst að þegar ég fór að ræða við nokkrar samverkakonur mínar á svæfingunni í Fossvogi þegar umræðurnar um Norðlingaölduveitu fóru sem hæst. Þær höfðu farið í fylgd ónefnds Nátturuverndar-Gnúpverja inn á afrétt og mun hann hafa sýnt þeim náttúruperlur sem átti að færa í kaf en raunar voru þær víðs fjarri hinu áætlaða lóni. Náttúrverndarsinnum hættir nefnilega til að eyðileggja auðverjanlegan málstað með gífuryrðum og vanhugsuðum blekkingum og það er ástæða þess að margir eru orðnir þreyttir á þessum áróðri. Ég held að sumum væri nú nær að taka til hendinni á eigin landi áður en þeir fara að predika yfir öðrum um náttúrvernd.

Engin ummæli: