Boltinn
Slæmt hjá mínum mönnum í Víkingi að tapa fyrir helvítis KR-ingunum enn eina fokkings ferðina. Týpískt að brenna víti og tapa svo leiknum í resina. Ég held nú samt að þeir falli ekki en tæpt gæti það orðið eins og staðan er í deildinni. Ég hef trú á því að ÍBV og Breiðablik fari niður. Skagamenn vinna sinn leik í næstu umferð og gerir svo jafntefli í Víkinni í síðustu umferðinni og þar með redda bæði Víkingar og Skagamenn sér ef heppnin er með. Ég hef ekki trú á því að mínir menn sæki gull í greipar FH-inga í næstu umferð en þeir gætu kannski náð jafntefli ef þeir spila agað.
Hinir mennirnir mínir í Manchester United eru hins vegar að gera allt rétt þessa dagana. Fjórir sigrar í fjórum fyrstu leikjunum eru mögnuð byrjun og sennilega ein sú besta sem þeir hafa náð síðan ég fór að fylgjast með enska boltanum af einhverju viti. Giggs er að spila betur en nokkru sinni og það virðist sem Ronaldo sé að þroskast við allt mótlætið. Rooney og Scholes eru komnir úr banni og þá verður breiddin í liðinu allt önnur en hefur verið í síðastliðnum leikjum. Ég var eiginlega alveg steinhissa á því að þeir skildu vinna þessa þrjá leiki sem þeir félagarnir voru í banni en Carrick virðist vera að ná sér á strik þarna á miðjunni og það er náttúrlega bara til framdráttar fyrir liðið.
Pólítíkin...
...er merkileg helvítis tík. Mér blöskraði nú alveg fábjánagangurinn um daginn þegar Árni Johnsen fékk uppreisn æru. Þvílík endaleysa sem þessi skrípaleikur er orðinn. Annars held ég að sunnlendingar séu hrifnir af Árna kallinum og ég heyri það á Eyjamönnunum að þeir vilja helst engan annan fyrir sig í baráttuna. Ég hef grun um að nafni hans Mathiesen sé fenginn til að slá tvær flugur í einu höggi. Í fyrsta lagi fær Þorgerður Katrín sjálfsagt yfirburðakosningu í kraganum og verður sterkari varaformaður á eftir. Síðan losna sjálfstæðismenn við annan Árnann sem báðir hafa verið hálfgerðir vandræðagripir. Ég er persónulega miklu hrifnari af dýralækninum Mathiesen en hann virðist eiga í vandræðum með að láta sér lynda við undirmenn sína og það er alltaf vafasamt þegar menn standa og falla með trausti þeirra.
Annað sem vakti furðu mína voru ummæli Steingríms J. Sigfússonar um samvinnu eða kosningabandalag vinstri manna. Mér þætti gaman að sjá það. Steingrímur hefur ekki notað orðið já síðan hann gifti sig svo ég það verði erfiður ávani að losa sig við.
Snilldarmynd
Við Edda tókum mynd sem heitir Derailed í síðustu viku. Clive Owen og Jennifer Aniston (sem ég þoli reyndar ekki) leika í henni. Þessi mynd kom mér virkilega á óvart enda bjóst ég svo sem ekki við miklu. Hafði aldrei heyrt um hana áður og það er kannski ástæðan fyrir því að hún kom svona skemmtilega á óvart. Frábær mynd sem ég mæli með.
Death Before Disco með Jeff Who?
Ég fékk mér þennan disk fyrr í haust og ætlaði alltaf að vera búinn að hrósa honum hér en hef alltaf gleymt því. Í stuttu máli sagt finnst mér þetta einn magnaðasti diskur sem ég hef heyrt frá íslenskri hljómsveit í langan tíma. Gegnheil lagasmíð og góðir textar fluttir af góðum tónlistarmönnum og frábærum söngvara. Gerist ekki mikið betra og ég er gersamlega búinn að nauðga honum í spilaranum í bílnum.
Magni í Rockstar Supernova
Djöfull er hann búinn að standa sig strákurinn. Strákurinn okkar. Frábær frammistaða í síðustu þáttum og nokkuð rokkað og flott frumsamið lag í síðasta þætti. Ég vona bara að hann vinni þetta ekki og þurfi að túra með þessum apaköttum í ár. Hann á eftir að gera það miklu betra sjálfur með sólóferil og getur þá eflaust leyft þeim hinum í Á móti sól að spila á einhverjum sveitaböllum í Kentucky og Kansas. Ég hlakka til að sjá hvernig hann stendur sig á morgunn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli