Ljót orð
Það er ákveðið orð sem hefur riðið húsum Ljós-Gíslans upp á síðkastið sem hann hefur sérstaka andstyggð á, en það er nafnorðið elska. Takið eftir að ég er hvorki að tala um sögnina að elska né nafnorðið elska í merkingunni ástin mín eða krúsíbolluknúsudúllan mín. Orðið sem ég á við er elska í merkingunni ást eða umhyggja. Mér finnst það alveg skelfilegt orð einfaldlega vegna þess hvað það verður ljótt þegar það er notað í þessari merkingu. Vinsamlega notið þetta orð ekki í nærveru minni, það gæti orðið banamein ykkar.
Boltinn
Ég elska að hata önnur fótboltalið en þau sem ég sjálfur held með. Þannig hata ég t.d. Val, Fram og Fylki (hef aldrei náð upp KR-hatrinu í mér). Þannig hata ég líka Chelsea, Arsenal, Juventus, Real Madrid og Bayern Munchen. Ég elska jafnframt Víking, Manchester United, Barcelona og Milanoliðin Inter og AC. Af þessari ástæðu finnst mér ekki gaman þegar Arsenal vinnur tvo góða sigra í röð á útivelli þó það sé gegn Liverpool. Sem betur fer var þetta allt saman í bikarnum og bæði lið halda áfram að skíta í bleyjurnar sínar í deildinni. Mínir menn hafa hins vegar staðið sig frábærlega í deildinni til þessa og maður vonar bara að Ferguson sé enn seinni helmings maður eins og hann hefur alltaf verið, þ.e. að United spili seinni hluta tímabils betur en þann fyrri. Þá verður titillinn okkar.
Vinnan
Ég er að verða búinn með mína sex mánuði á lyflækningadeildunum og hlakka til að skipta um vettvang og flytja mig yfir á háls-, nef- og eyrnadeildina um mánaðarmótin. Það verður svolítið öðruvísi að fást við skurðlæknisfræði næsta hálfa árið en þegar því er lokið verður lífið bara ein svæfing ef öll plön ganga eftir. Í sumar stefni ég að því að fara að athuga fyrir alvöru með sérnám og ég ætla mér að komast út ekki mikið seinna en haustið 2008 eða í síðasta lagi um jólin sama ár. Það er ekki eftir neinu að bíða svo sem en það er ágætt að njóta lífsins aðeins áður en næsti áfangi á námsferlinum hefst.
Lífið
Nú er maður farinn að átta sig betur og betur á því hvað bíður manns eftir rúma 3 mánuði þegar "Óli Gunnar" kemur í heiminn. Við skötuhjúin eigum eins og flestir lesendur vita líklega von á barni í lok mars og ég hef mér og fleirum til gamans uppnefnd bumbubúann Óla Gunnar, Eddu og tengdafólki mínu öllu til mikillar "gleði". Þau eru flest Arsenalmenn en einstaka Poolarar og reyndar einn Villamaður. (Ath!! ekki Villimaður). Svo er það vinnan sem ég nefndi að ofan auk þess sem ég er að reyna að drulla mér af stað með rannsóknarverkefni en ég finn mér aldrei tíma í allri letinni til að koma því af stað. Svo er ég að reyna að koma mér í form því ég ætla að taka eitt alvöru tímabil í boltanum áður en ég flyt út en það gengur erfiðlega, fyrst og fremst vegna áðurnefndrar leti og þrjósku við að taka upp hollara mataræði. Í morgunn hófst enn eitt átakið. Sjáum hvernig gengur.
Ný börn
Ég hef náttúrlega gleymt að blogga um öll nýju börnin í kringum okkur.
Fyrst verður að sjálfsögðu að nefna KR-inginn og fegurðardrottninguna Helgu Kristínu Eiríksdóttur (Eika og Guðnýjar) sem kom í heiminn þann 27. nóvember. Við erum búin að heimsækja hana og hún tók vel á móti okkur. Fjallmyndarleg eins og foreldrarnir.
Næst voru síðan Kristján og Brynja sem búa hér í húsinu og vinna bæði með mér á LSH. Þau áttu litla skvísu á jóladag ef ég man rétt og heilsast öllum vel þar líka. Hún kom aðeins og kíkti á okkur ásamt foreldrunum á gamlárskvöld eða reyndar nýársnótt. Efnileg stúlka þar á ferð.
Síðan var botninn sleginn í árið þegar húnninn þeirra Björns og Ernu leit dagsins ljós á Eðalfundsdaginn 29. desember sl. Hann hlýtur að sjálfsögðu að fá nafnið Hannes úr því hann fæddist á þessum degi og hafði eðalfundinn af pabba sínum en við sjáum til hvernig það fer allt saman.
Í svipinn man ég ekki eftir fleiri nýjum börnum en minnið mig endilega á ef ég gleymi einhverju.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli