22. feb. 2007
Svekktur, varla!
Ég get ekki sagt að ég sé mjög svekktur yfir þessu, þó mér finnist þetta jaðra við mannréttindabrot. Ég veit ekki til þess að tekist hafi að sanna á neinn ráðstefnugesta að hann hafi gerst brotlegur við lög þannig að ég skil ekki alveg hvernig Bændasamtökin ætla að verja sig ef til málsóknar kemur. Að því sögðu er ég nú bara sáttur við að þetta fólk sé ekki á leið hingað þó mér finnist sá tilgangur ekki hafa helgað meðalið sem var notað.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli