25. feb. 2007

Þvílík endaleysa

Rakst þessa fádæma endaleysu eftir Sverri Jakobsson á netinu áðan. Stundum verður manni bara illt að lesa vitleysuna sem kemur frá þeim vinstri grænu. Þið megið ekki skilja mig sem svo að ég sé ósammála Sverri að töluvert skorti á að jafnrétti gæti hér í launamálum en það eru tillögurnar sem fara fyrir brjóstið á mér. Hann vill sem sé aflétta launaleynd og taka upp kynjakvóta. Það er kannski bara rétt að ganga alla leið og setja innistæður bankabóka á netið líka svo hægt sé að draga úr launum þeirra sem eru duglegir að spara. Ég meina það eru takmörk fyrir því hvað fólk þarf að eiga inni á bankabókinni sinni er það ekki?
Hann talar einnig um að Vinstri grænir og Framsóknarmenn séu þeir einu sem tryggi konum örugg sæti á framboðslistum. Það er kannski rétt að benda Sverri á það að í síðustu Borgarstjórnarkosningum voru 3 konur í efstu 7 sætum á lista sjálfstæðisflokksins ef ég man rétt og 5 í efstu 10 sætunum. Þetta gerðu þær án þeirra hækju að eiga sætin vís. Þannig er hægt að færa rök fyrir því að sjálfstæðismenn séu þeir einu sem tryggja framgang kvenna í pólítík án þess að gefa þeim einhverja forgjöf - það þarf nefnilega ekki þegar menn eru raunverulegir jafnréttissinnar. Kannski eru bara frambærilegri konur á hægri vængnum.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gaman væri að fá link á endaleysuna.

Nafnlaus sagði...

Ok, nú sé ég linkinn. Hann er vel falinn.