29. jan. 2007

Handboltinn
Strákarnir hafa verið að standa sig svona upp og ofan. Tap fyrir Pólverjum og Þjóðverjum en sigur á Slóvenum og Túnisbúum. Ég held að ef við höldum okkur frá verjunum þá munum við hirða þessa helvítis dollu. Það er því ljóst að við getum tekið Rússa, Dani, Frakka og Króata en það gæti orðið erfitt að vinna Spánverja, Pólverja og Þjóðverja. Kannski spilast þetta heppilega fyrir okkur í hinum leikjunum en á morgun hef ég trú á því að við tökum Dani.
Ég er gríðarlega ánægður með hvernig breiddin í hópnum hefur aukist. Þannig hafa Logi og Markús Máni staðið sig með prýði og Róbert hefur létt töluvert álagið sem var alltaf á Fúsa. Eins hefur innkoma varnarjaxlanna Sverris og Vignis auðveldað varnarleikinn fyrir Fúsa eins og reyndar Alexander hefur gert líka. Með þessum bætta varnarleik hefur markvarslan batnað til muna og í fyrsta skipti síðan ég fór að fylgjast með hafa markverðirnir verið með bestu mönnum liðsins. Þeir hafa allir átt góða spretti en Birkir hefur þó verið jafnbestur og alveg hreint stórkostlegur á köflum á móti t.d. Frökkum og Slóvenum.

Fótboltinn
Mínir menn í MUFC hafa verið allt of rólegir á leikmannamarkaðnum í janúar að mínu mati því ég var að vonast eftir alla vega einum varnarmanni og einum miðjumanni. Einn miðjumaður hefði meira að segja glatt mig gríðarlega. Ferguson veit hins vegar hvað hann syngur og ég er löngu hættur að efast um ákvarðanir hans í leikmannamálum. Maðurinn er lifandi goðsögn. Nú er bara að baka Reading í bikarnum og halda áfram á sömu braut í deildinni.

Frjálslyndir
Ótrúlegt hvað er hægt að mynda mikinn storm í svona litlu vatnsglasi. Margrét lætur eins og einhver drottning og vælir yfir öllu sem menn segja og gera. Sú hefur verið rúmlega handfylli á gelgjunni en það var svo sem ekki ómerkari nagli en Sverrir Hermanns sem tókst á við það þannig að sennilega hefur það verið í lagi. Það er nú engin lognmolla í honum blessuðum. Ég held reyndar að Frjálslyndir forystumenn muni líta á þessa kosningu sem stuðningsyfirlýsingu við þjóðernisstefnu flokksins og þeir gætu sópað til sín fylgi út á það í vor. Ég er ekki að verja stefnuna en það er augljóst að margir eru orðnir þreyttir á aðstreymi erlends vinnuafls hingað, hvernig sem unnt verður að hefta það. Það er hins vegar sjálfsögð umræða að spá í hvort ekki ætti að halda íslenskunni meira að útlendingum eða a.m.k. ensku. Það er sífellt vaxandi vandamál að á bráðamóttökur LSH leitar fólk sem hvorki talar ensku né íslensku og sumir tala ekkert nema framandi móðurmálið. Slíku fólki er erfitt að hjálpa en sem betur fer er túlkaþjónustan hér framúrskarandi. Það verður í það minnsta spaugilegt að fylgjast með þessari umræðu í aðdraganda kosninganna.

RÚV
Þvílík og önnur eins endaleysa sem þetta RÚV-mál er allt orðið. Ég er nú enn þeirrar skoðunnar að almannavarnanautaskíturinn sé tómur fyrirsláttur í einhverju nostalgíuliði sem vil troða upp á sauðsvartan almúgan einhverjum leiðindagaurum sem fjalla um orð sem enginn notar lengur eða spila tónlist sem einhverjir dauðir menn sömdu á falskt píanó fyrir 1700 árum. Hvað hefur þessi Mozart karakter fram yfir Diktu og Jeff Who?? Nákvæmlega ekki neitt nema hann djammaði aðeins meira og var vel plöggaður. Helvítis ræfill. Ég er svo sem ekki að setja út á músíkina hans sem slíka en það er bara svo margt sem flestum núlifandi finnst skemmtilegra. Tengdamamma heldur t.d. mikla meira upp á Bjögga gamla en hinn útdauða Wolfgang, tengdapabbi hlustar á Spaðana og Queen og pabbi gamli er meira svona djassgeggjari þó hann fíli nú alveg W.A.M.

Hamarsheiði og Helgi Hrafn
Við vorum á Hamarsheiði um helgina fjölskyldan. Jón Bragi og Sigrún voru á landinu og krakkarnir líka svo það var þrumustuð. Helgi Hrafn var alveg steinhissa á þeirri fáránlegu staðreynd að Edda væri með barn í maganum og skildi ekkert í því hvernig ætti að ná því út. Hann hélt fyrst að það kæmi bara út um munninn en þegar pabbi hans reyndi að útskýra þetta fannst honum það ekki trúlegt. Hann velti þessu fyrir sér dágóða stund og sagði svo spekingslegur: "Vi har en plan!! Ég tala bara við doktorkallinn og hann nær því út". Við bræðurnir vorum auðvitað gjörsamlega gagnslausir og það var því ákveðið að Helgi mundi hafa samband við doktorkallinn strax daginn eftir. Ég náði þessu sem betur fer öllu á myndband og þetta verður geymt til þess dags að drengurinn gengur í það heilaga. Þá verður sko hlegið í salnum.

In memoriam
Samband skötuhjúanna virðist brostið og báðir hafa þeir hafið stefnumótun af krafti. Ekki hefur sést til Safapressunnar sl. 10 daga vegna gríðarlegra stefnumótunaranna. Blessuð sé minning sambands þeirra sem var stutt en þó fallegt og ástríðufullt.

Engin ummæli: