14. jan. 2007

Brúðkaup
Gleymdi auðvitað að blogga um brúðkaupin sem við fórum í um og eftir áramótin. Fyrst voru það Heiðar og Fríða 30. desember og svo Árni Grímur og Steinunn þann 6. janúar. Bæði brúðkaupin ógleymanleg, frábær matur, skemmtilegar ræður, skemmtilegt fólk og almenn gleði. Takk fyrir mig fólk.

Boltinn

Þeir gefa ekkert eftir United menn og nú síðast tóku þeir Aston Villa í kennslustund á Old Trafford á laugardaginn. Þrjú mörk í fyrri hálfleik, þar af eitt frá hinum sjóðheita Cristiano Ronaldo og annað frá hinum gagnrýnda Michael Carrick. Ég er mjög hrifinn af þeim félögum og mér finnst gagnrýnin sem Carrick hefur orðið fyrir svolítið fáránleg. Miðjan hefur verið vandamál hjá okkur lengi eða alveg frá því Keane fór að dala og svo kemur þessi strákur, liðið fer að spila vel og hann fær ekkert hrós. Ég held að ein af stóru þáttunum í því hvað Ronaldo, Scholes og Giggs hafi spilað vel á þessu tímabili sé einmitt óeigingjarnt starf Carricks aftarlega á miðjunni og stundum reyndar O'Shea og Fletcher. Ég er í það minnsta einn Unitedmaður sem er hrifinn af framlagi stráksins og vona að hann fái að spila mikið og lengi hjá MUFC.
Ég fór aðeins að skoða heimasíðu Actim og þar sér maður að Ronaldo er #2 yfir bestu leikmenn deildarinnar, rétt á eftir Drogba. Þar getur maður borið þá saman og sér þá eftirfarandi.

Tölfræði Ronaldo Drogba
Leikir 21 23
Leiknar mín 1866 2040
Mörk/skot á mark 13/60 14/29
Mörk að meðaltali 0,62 0,61
Stoðsendingar 6 3
Fyrirgjafir 59 14
Gul spjöld 0 6
Actim stig 394 403

Miðað við þessar tölur skil ég ekki af hverju Drogba toppar listann. Ronaldo er bara miklu betri. Aðrir United menn á þessum lista eru:
Rooney 7. sæti
Rio 12. sæti
Van der Sar 13. sæti
Saha 17. sæti
Giggs 23. sæti
Neville 25. sæti
Evra 33. sæti
Scholes 35. sæti
Vidic 43. sæti
Carrick 69. sæti

Svo þið sjáið að allt byrjunarliðið er á topp 100 listanum

Van der Sar
Neville Rio Vidic Evra
Carrick
Ronaldo Scholes Giggs
Rooney Saha

Ekki slæmt enda hefur liðið staðið sig frábærlega á tímabilinu og ég held að þeir hirði helvítis dolluna í vor.

Engin ummæli: