23. feb. 2007

Siðgæðispostular við Hagatorg og Femínistar

Ég er enn í áfalli yfir því að við Íslendingar skulum láta múgæsingu framkalla mannréttindabrot árið 2007. Mér finnst merkilegast af öllu að Femínistafélag Íslands eða hvað sem þessi svokölluðu kvenréttindasamtök kalla sig skuli hvetja til slíkra mannréttindabrota. Er sem sagt ekki sama hvaða starfsvettvang konur velja sér? Eiga bara þær sem vinna í tískubúðum, verkfræðingar og lögfræðingar skilið að njóta almennra mannréttinda? Ég skoðaði nú heimasíðu þessarar samkundu og þó ég sé nú ekki sannfærður um að allar þessar stúlkur séu siðgæðisséníar þá fæ ég ekki séð að íslenskum stallsystrum þeirra hafi tekist að sýna fram á einhverja glæpi sem kalla á að þessum stúlkum og drengjum sé útskúfað héðan. Hvað varð um regluna að fólk njóti sakleysis uns sekt sé sönnuð?
Getum við þá í framtíðinni átt von á því að vera útskúfað af Radisson SAS hótelum af því að Íslendingar veiða hvali? Þó að við stöndum kannski ekki beinlínis sjálf við skutulinn þá erum við nú einu sinni Íslendingar og ríkisstjórn okkar veiðir hvali. Víðast hvar erlendis er glæpur að veiða hvali alveg eins og það er glæpur hér að framleiða klám.
Ég er samt á því að það sé réttur hvers fyrirtækis að velja sér viðskiptavini og neita fólki um þjónustu alveg eins og það er réttur einstaklingsins að sækjast eftir þjónustunni. Ég fæ ekki séð að réttur einstaklingsins sé meiri en fyrirtækisins. Það breytir því þó ekki að þegar samningar hafa verið undirritaðir þá ber að standa við þá hvort sem manni líkar betur eða verr, ellegar greiða viðeigandi bætur fyrir samningsbrot.
Fyrir mitt leyti skammast ég mín fyrir að búa í landi þar sem yfirvöld leika sér á þeirri fínu línu að álykta um hverjir séu velkomnir hér og hverjir ekki. Persónulega held ég að þetta Femínistafélag geri meiri skaða en gagn í jafnréttismálum hérlendis en það er bara mín skoðun og mér dettur ekki í hug að biðja yfirvöld að álykta um það hvort Femínistafélagið eigi rétt á því að básúna sínar skoðanir og siðapredikanir yfir okkur syndarana. Þeim er fullkomlega frjálst að hafa sínar skoðanir þó mér finnist þær alger tímaskekkja í nútímaþjóðfélagi.

Engin ummæli: