Þá er farið að styttast allsvakalega í þetta. 34 vikur á þriðjudaginn og það er kominn í mann heilmikill fiðringur. Edda er orðin myndarleg þó bumban sé nett eins og foreldrarnir. Ekki kannski við því að búast að komi einhver risi út úr svona dvergaræktun. Eitt er samt víst að barnið verður liðtækt í boltanum því hann skallar og sparkar í innanverða bumbuna af miklum móð og er einstaklega laginn við að hitta í lófann á pabba sínum.
Frábær afrek
Það er frábær siður hjá Rauða krossinum að veita viðurkenninguna skyndihjálparmaður ársins. Síðustu árin hafa mörg börn og unglingar fengið viðurkenninguna og fyrir árið í fyrra hlaut átta ára gamall drengur hana. Hann bjargaði lífi móður sinnar þegar hann brást hárrétt við ofnæmislosti hennar.
Pabbinn
Við fórum skötuhjúin ásamt Helgu og Sverri, Áslaugu og Ingólfi og Elnu og Fannari að sjá þetta verk í gær. Það er svo magnað með leikhús að það er alltaf gaman að fara en maður fer samt svo ótrúlega sjaldan. Það er ekki einu sinni vegna þess að ég hafi ekki haft tækifærin heldur valdi ég bara að fara ekki. Mamma og pabbi hafa verið frekar dugleg að fara og buðu mér oft að koma með þegar ég bjó hjá þeim en ég afþakkaði alltaf. Þetta varð til þess að þegar ég fór með tengdó á Með fullri reisn fyrir nokkrum árum þá hafði ég ekki farið í leikhús síðan Hilmir Snær og Valgerður Guðna slógu í gegn í The Rocky Horror Picture Show í Loftkastalanum um árið.
En hvað um það - við sáum þetta verk í gær. Bjarni Haukur var auðvitað frábær í Hellisbúanum um árið svo maður bjóst við frábærri skemmtun og það var nákvæmlega það sem maður fékk. Ég veltist um af hlátri hvað eftir annað og á milli komu mikilvæg skilaboð til verðandi og nýbakaðra foreldra. Ég mæli eindregið með þessu fyrir alla sem hafa gaman að því að hlæja.
Boltinn
Áfram MUFC. Góður sigur á Charlton í gær þrátt fyrir að Ronaldo og Carrick væru hvíldir. Það virðist allt ætla að ganga upp hjá mínum mönnum þetta árið. Það er gott og kominn tími til. Það er líka frekar jákvætt að hvíla tvo af bestu leikmönnum liðsins og mennirnir sem koma inn í liðið sjá um að klára leikinn. Það kallar maður að koma inn í liðið með stíl. Ég er farinn að hafa góða tilfinningu fyrir vorinu. Ég er viss um að Óli Gunnar er ánægður með þetta.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli