Helgi á Hamarsheiði
Fín helgi á Hamarsheiði um helgina. Ég kom heilmiklu í verk innanhúss og slappaði líka af á milli. Íris og Halldór komu ásamt Naomí og við skemmtum okkur vel saman.
Klámhistería
Ég veit ekki hvað er að verða um þetta land. Það er allt vitlaust út af því það ætla að koma hér eitthvað klámpakk að halda ráðstefnu. Ég meina af hverju má þetta lið ekki spjalla svolítið saman hérna. Það er ekki eins og það sé verið að skipuleggja fjöldasamfarir á Austurvelli eða járnbrautarlest í Kringlunni. Ég veit ekki hvers vegna þetta femínistafélag þarf alltaf að vera að rífa sig. Það er ekki eins og þetta fólk sé hér tilneytt.
Þreytt grammófónplata
Skringibjörg Sólbrún er byrjuð á sínu skrykkjótta kosningabarátturausi. Það verður gaman að sjá hvort henni tekst í þetta skiptið að koma í alvöru einhverja stefnuskrá eða hvort hún gerir bara eins og venjulega að fara eftir skoðanakönnunum. Algjörlega hugsjónalaus stjórnmálamaður sem hefur enga tilfinningu fyrir vilja kjósenda lengur. Hundleiðinleg væluskjóða.
Fokking Brynjar Björn
Engin ummæli:
Skrifa ummæli