Langt síðan síðast
Mér ætlar ekki að takast almennilega að halda dampi við þessa endurlífgun bloggsins en nú þegar haustar ætla ég að reyna að taka mig á. Nú er því ofurblogg.
Hamarsheiði II
Þvíumlík snilld að vera kominn með athvarf frá amstri hversdagsins á mölinni. Við höfum, fyrir þá sem ekki vita það nú þegar, keypt fjórðung í jörð austan fjalls, nánar tiltekið í Gnúpverjahreppi. Þetta er í næsta nágrenni við Steinsholt þar sem við feðgarnir vorum í sveit og Sigurður bóndi hefur verið sérlegur ráðgjafi okkar í hverju því sem viðkemur búskap, allt frá girðingavinnu til heyskapar svo ekki sé nú talað um yfirvofandi dráttarvélakaup. Hina fjórðungana eiga foreldrar mínir, Nonni bróðir og Sigrún konan hans og svo Guðrún systir hans pabba ásamt manninum sínum nafna mínum. Þarna hef ég eytt drjúgum parti frítíma míns í sumar og við vorum t.d. þarna fyrstu 12 dagana í ágúst að girða og koma þessu í stand. Síðan var reyndar heyskapur í síðustu viku en þá var ég bundinn við vinnu hér í bænum. Það hefur í stuttu máli gengið framar vonum með heyskapinn en girðingarvinnan reyndist seinlegri en talið var í fyrstu og þarf ég að klára þetta einhverjar helgar í haust áður en hægt verður að hleypa skepnum á þetta land sem verið var að girða.
Við höfum reyndar ekki staðið í þessu einir því við fengum ómetanlega hjálp frá Ingvari, Þór og Viðari um verslunarmannahelgina en móðir náttúra kom í veg fyrir að við gætum notað krafta þeirra til fullnustu, bæði með leiðinlegu veðri og erfiðu girðingarstæði. Íris hans Þórs kom líka og hjálpaði til við að koma húsinu í stand og draga óheppna gesti upp úr drullupyttum á jeppanum þeirra Þórs. Við skemmtum okkur síðan við mat, drykk, útreiðar og pottaböð á kvöldin svo úr varð ein alskemmtilegasta verslunarmannahelgi sem ég hef upplifað. Það var sérstaklega skemmtilegt þegar Íris fór hálf í kaf í Kálfá en það verður að teljast afrek út af fyrir sig. Henni varð ekki meint af og nú höfum við stórskemmtilega sögu að segja í hvert sinn sem við förum saman á útreiðar.
Hestamennskan
Það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast í seinni tíð er að sjálfsögðu það að mér er að takast að smita fjöldann allan af félögum mínum af hestabakteríunni og það án nokkurrar fyrirhafnar. Fyrir utan þau fjórmenningana eru Ingólfur og Áslaug og Emil og Berglind veik fyrir og svo er Gunni Thor allt í einu orðinn heitur og það án nokkurrar fyrirhafnar af minni hálfu. Gunni hefur alltaf verið frábeygður hestamennsku og á köflum bara hreint út sagt smeykur við hesta þegar við vorum strákar. Nú er hann hins vegar ákveðinn í að láta á þetta reyna og ætlar að fylgja pabba sínum í þessu í vetur. Það verður gaman að sjá hvernig það lukkast en það er nú reynsla mín að þegar menn koma inn í þetta með því hugarfari sem Gunni hefur þá eru þeir fljótir að bíta á öngulinn.
Boltahornið
Víkingarnir mínir eru ekki alveg að slátra deildinni en þeir eru alla vega ekki að tapa mikið og vinna síðan stórt á milli. Ég er hræddur um að síðustu umferðirnar verði þeim erfiðar en það eru leikir við KR-inga og Skagamenn heima og FH-inga í Kaplakrika. Þeir hafa síðustu ár verið í miklum vandræðum með að vinna KR en eru í sumar búnir að vinna Skagamenn uppi á skaga og FH-inga í Kaplakrikanum í bikarnum. Sennilega dugir þeim að vinna aðeins einn af þessum leikjum en betra væri að taka tvo og tryggja sig. Þeir eru líka með bestu markatöluna af þessum liðum þarna í baráttunni svo það getur fleytt þeim langt.
Mínir menn í Manchester eru hins vegar í þrumustuði með markatöluna 8-1 eftir fyrstu tvo leikina og það voru meira að segja leikir gegn liðum sem hafa oft strítt okkur seinni árin. Reyndar tókum við 6 stig á móti báðum þessum liðum í fyrra en þetta er engu að síður fín byrjun. Ég er sérstaklega ánægður með Ronaldo sem virðist hafa þroskast heilmikið á mótlætinu og hreinlega þrífst á því. United aðdáendurnir standa líka vel við bakið á honum sem er auðvitað það eina rétta þó hann hafi hagað sér kjánalega. Það kemur fyrir á bestu bæjum. Ég verð nú að segja að mér finnst þeir ekkert mjög sannfærandi í vinaleiknum hann og Rooney en á meðan það hefur ekki áhrif á leik liðsins er mér slétt sama þó þeir þoli ekki hvorn annan utan vallar. Sendingin hans Rooneys á Ronaldo í markinu á sunnudaginn var náttúrlega bara snilld og afgreiðslan ekki síðri. Svo er Skerið komið á kreik aftur og þá held ég að mörkin muni ekki láta á sér standa.
Chelsky er líka eitthvað að fatast flugið. Ég las mjög skemmtilega tölfræði í Fréttablaðinu í dag um það að þeir hafa tapað þremur af síðustu fjórum leikjum sínum í úrvalsdeildinni og aðeins unnið tvo leiki á útivelli síðan í janúar. Ég held að Chelsea sé liðið sem önnur lið þurfa að skáka til að vinna deildina og held að MUFC og Liverpool verði liðin sem munu gera hvað harðasta hríðina að meistaratitlinum. Arsenal verður í lægð eitt ár í viðbót en koma svo sterkir á næsta ári. Tottenham gæti blandað sér í toppbaráttuna en ég held að þeir hafi ekki nógu mikla breidd til að taka titilinn. Held samt að þeir muni verða í meistaradeildarsæti þegar tímabilið er á enda á kostnað Arsenal. Kannski er þetta bara óskhyggja en maður má alltaf vona.
Það síðasta sem ég ætla að minnast á í boltahorninu er líkamsárás Bens Thatcher á Pedro Mendes. Persónulega finnst mér að þetta brot eigi að negla síðasta naglann í kistu þeirrar fáránlegu reglu að þegar refsað er fyrir brot í leik t.d. með áminningu, sé ekki hægt að bæta í refsinguna að leik loknum. Svona lagað finnst mér verðskulda langt bann, helst út tímabilið. Menn fá fleiri mánaða bann fyrir að gleyma að pissa í glas en sleppa svo með svona líkamsárásir af því að dómarinn er svo mikill heigull að gefa bara gult. Fáránlegt mál og ég vona bara að hann verði settur í grjótið helvískur og dómarinn með. Svona eru þessir helvítis Citymenn.
Pólítíkin
Framsóknarflokkurinn er merkilegt fyrirbæri sem virðist hafa einhverja innri sjálfseyðingarhvöt. Hvernig dettur mönnum í hug að kjósa Halldór yngri í formannsstólinn? Ég bara skil ekki svona einbeittan brotavilja. Ég held að þessi kosning á formanni og varaformanni verði banabiti flokksins og það mun litlu breyta þó Sæunn samstúdent minn sitji þarna og skrifi fundargerðir. Ég geri mér svo sem grein fyrir að ritari flokksins gegnir viðameira hlutverki en það en mér fannst borðleggjandi að losa flokkinn úr viðjum fortíðar með því að kjósa Siv í formannsstólinn. Ég er svo sem ekki að gráta það að Framsóknarflokkurinn deyji en mér finnst reyndar að það vanti hér einhvern buffer á vinstra liðið ef hann hverfur af sjónarsviðinu og vinstri stjórn verður mynduð. Ég hugsa til þess með hryllingi að Samfylkingin og Vinstri grænir komist einir saman til valda. Þá ætla ég beint í sérnám. Ég vona samt að Frjálslyndir geti tekið við þessu hlutverki Framsóknar að verða brúin milli vinstrimanna og hægri manna. Mannskapurinn þeirra núna er bara ekki til að hrópa húrra fyrir þó þar finnist einn og einn með vitsmuni umfram mikið notaðan strákúst.
Nostalgía dauðans
Andreas bróðursonur minn er að byrja í MR og ég hef verið að hjálpa honum aðeins við bókakaup þar sem foreldrar hans búa erlendis og eru farin heim. Þvílík nostalgía að standa í löngum biðröðum á skiptibókamörkuðum. En það er búið í bili.
Hann ætlar að búa hjá settinu og ég held að það eigi eftir að ganga vel. Hann er í 3-J sem er 23 manna náttúrufræðibekkur sem er í frönsku. Hlutfallið er 14/9 stelpunum í vil svo það er ekki slæmt. Skynsamur drengurinn að láta náttúruna ráða og velja sér frönsku sem þriðja tungumál. Í fljótu bragði sýnist mér hann aðeins hafa einn kennara sem ég hafði á mínum árum í MR en það er líka einn besti kennari sem ég hef nokkurn tíma haft, Guðfinna Ragnarsdóttir efnafræðikennari. Hún vakti áhuga minn á efnafræði fyrir alvöru og þegar til kastanna kom var það efnafræðin sem ég lærði í MR sem fleytti mér í gegnum numerus clausus. Það má því segja að Guðfinna beri að hluta til ábyrgðina á því að ég er læknir í dag. Annars hef ég alltaf verið mjög heppinn með efnafræðikennara því í Garðaskóla var það Ögmundur Gunnarsson sem var framúrskarandi kennari og í 4. og 5. bekk í MR kenndi mér Skarphéðinn Óskarsson sem er líka frábær kennari. Marta Konráðsdóttir kenndi mér síðan lífræna efnafræði í 5. bekk og var líka í miklu uppáhaldi.
Pæling
Ef ég væri kvenmaður og héti Andrea Emma Bergmann mundi ég fara í tannlækningar, fá mér vinnu hjá Colgate og hafa netfangið andremma hjá colgate.com. Það væri svalt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli