Uppfærsla
Sæl öllsömul. Ég er enn að uppfæra síðuna og var nú að setja inn hlekki á nokkur börn í viðbót. Hjá sumum þarf lykilorð en ekki hjá öðrum. Þið finnið út úr því. Annars vil ég endilega að þið sendið mér línu með kommenti ef ykkur finnst barnið ykkar vanta þarna.
Uppáhaldsbloggarinn þessa dagana
Ég er orðinn háður því að lesa nýju matardagbókina hans Ragnars Freys. Ragnar var með mér í læknadeildinni og er mjög ástríðufullur maður. Ein af sterkustu ástríðum hans er matargerð og hann hefur nú ákveðið að deila með okkur hinum snilli sinni í eldhúsinu með því að blogga á hverjum degi hvað hann og konan elda. Ég mæli með því að þið kíkið á þessa síðu ef þið hafið minnsta áhuga á matargerð. Brjálæðislega girnileg síða.
Tvær aðrar heimasíður í smíðum
Annars vegar er það heimasíða fyrir Hamarsheiði sem er reyndar fyrst og fremst fyrir okkur sem eigum pleisið en áhugasamir geta fylgst með því hvað fer fram á heiðinni.
Hin síðan er síðan fyrir "Ole Gunnar Bergmann" en hún verður ekki opnuð strax. Slóðin verður þó þessi þegar þar að kemur og ég geri ráð fyrir að ég opni hana um miðjan mars.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli