17. des. 2006

Steggjun!
Við félagarnir steggjuðum Árna Grím í gær. Það var hörkustuð. Byrjuðum á því að vekja hann rétt fyrir níu og hella í hann bjór en svo tók við afrókennsla, brúnkusprautun í g-streng og brjóstahaldara. Síðan var étið en eftir það var það litbolti og svo Bláa lónið áður en við fórum út að borða á Galileo og síðan í partý hjá Ellanum. Þetta var frábær skemmtun en það verður að segjast að við félagar Árna úr læknadeildinni stóðum okkur ekki vel. Emmi og Jón höfðu reyndar báðir löggilda afsökun en ég var bara að aumingjast. Svona er þetta. Sem betur fer voru aðrir félagar hans tilbúnir í giggið og héldu honum á djamminu fram undir morgunn. Vel heppnaður steggjadagur og steggurinn ánægður með þetta skilst mér.

Galileo
Borðuðum þarna í gær. Ég hef heyrt á mönnum sem hafa borðað þarna að þetta sé oft á tíðum ágætis staður en í gær var þetta ekki alveg að gera sig. Ég fékk parmaskinku í forrétt sem var reyndar mjög góð og melónan var ein sú besta sem ég hef smakkað. Síðan fékk ég nautakjöt, hráefnið var í lagi en matreiðslan skelfileg. Algjör synd hvernig þeir fóru með þennan frábæra bita. Svo kom reyndar ágætis súkkulaðikaka í eftirrétt. Aðrir fengu nautacarpaccio sem var enn frosið þegar það var borið fram og Emmi fékk svínakjöt sem enn voru tannstönglar í einhverra hluta vegna. Það var samt kannski ekki endilega maturinn sem var svo slæmur en þjónustan var skelfileg. Stelpugreyin sem voru þarna voru tvær að þjóna stóran hluta kvöldsins og það voru örugglega 50 manns þarna á hæðinni.

Boltinn
Mínir menn stóðu sig ekki nógu vel í dag þegar þeir töpuðu fyrir West Ham. Dapurt. Ég er eiginlega orðlaus yfir þessu bara. Maður getur þó huggað sig við það að Arsenal gerði jafntefli í gær. Það er dapurt að gera jafntefnli við Portsmouth á heimavelli.

Engin ummæli: